Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Blaðsíða 13
fimmtudagur 28. ágúst 2008 13Fréttir Fegurðarkeppni nunna blásin af Ítalski presturinn sem hugðist halda fegurðarsamkeppni nunna hefur nú neyðst til að hætta við þessi áform sín. Antonio Rungi sagðist vilja eyða þeirri staðal- ímynd sem fólk hefði af nunnum og fullyrti að hugmyndina hefði hann fengið frá nunnum. Ætlunin var að halda fegurðarsamkeppn- ina á netinu. En ekki voru allir jafnánægðir með fyrirhugað framtak Rungis. „Yfir- boðarar mínir voru ekki ánægðir. Biskupinn var ekki ánægður, en þeir misskildu mig,“ sagði Anton- io Rungi. Það var að sögn Rungis aldrei ætlunin að nunnurnar spíg- sporuðu eftir sýningarpallinum. Hélt hún væri taska Sjötíu og átta ára sænsk kona mis- skildi heldur betur leiðbeiningar sem hún fékk á Arlanda-flugvell- inum í Stokkhólmi. Konan var á leið til Þýskalands og var vísað að farangursfæribandi og var sagt að þar skyldi hún setja það sem ætti að fara um borð í flugvélina. Annað tveggja heyrði konan ekki leiðbeiningarnar, eða misskildi þær svo hrapallega, því hún tyllti sér á færibandið og var innan tíð- ar horfin sjónum nærstaddra. Konan hlaut fyrir vikið slæmar skrámur, en fékk óðara aðstoð starfsfólks og þrátt fyrir ævintýr- ið missti hún ekki af fluginu til Þýskalands. Yfirvöld í Mumbaí ráðast til atlögu við óþef af ruslahaugum: Rússar halda áfram að ögra Vestur- löndum og með þeirri ákvörðun að viðurkenna sjálfstæði aðskilnaðar- héraðanna Suður-Ossetíu og Abkas- íu, þvert gegn ráðleggingum, hafa Rússar undirstrikað viðhorf sín. Rússar segjast ekki óttast neitt, þar með talið nýtt kalt stríð við þá sem standa gegn þeim í málinu. Rússar hundsa alþjóðasamfélagið Forseti Rússlands, Dmitry Med- vedev, samþykkti kosningu rúss- neska þingsins sem í byrjun vikunn- ar ákvað einróma að viðurkenna héruðin tvö sem sjálfstæð ríki. Með aðgerðunum hundsa Rússar ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og ganga þvert á vilja vestrænna ríkja um að landamæri Georgíu yrðu virt. Á þriðjudagskvöldið sakaði Medved- ev svo ríkisstjórn Bandaríkjanna um að dulbúa vopna- og hergagnasend- ingar sínar til Georgíu sem neyðar- aðstoð. Rússar eru sagðir hafa með þessu manað Evrópu og Bandarík- in til að bregðast við ákvörðun sinni. Rússar telja þó að skiptar skoðan- ir séu á gjörðum sínum meðal Evr- ópuríkja, og því verði aðgerðir gegn þeim af skornum skammti af hálfu Evrópuríkja. Óttumst ekki kalt stríð Yfirvöld í Washington fordæmdu ákvörðun Rússa. Bretar kalla eftir því að Evrópuríki sameinist gegn ágangi Rússa. Svíar segja að Rússar hafi kallað yfir sig árekstur við Vestur- lönd, á meðan alþjóðlegar stofnan- ir segja yfirlýsingu Medvedev ólög- mæta og óásættanlega. „Við óttumst ekki neitt, ekki heldur nýtt kalt stríð ef til þess kemur,“ sagði Medvedev á þriðjudaginn. „Rússland er ríki sem mun tryggja sína hagsmuni hvívetna við landamæri sín. Um það skal eng- inn efast,“ sagði Rússlandsforseti afar ógnandi. Georgíumenn saka Rússa um að halda hinni mikilvægu Svartahafshöfn Poti í hverkví, en því neita Rússar. Medvedev gekk skref- inu lengra og sakaði Bandaríkja- menn um að nota Poti til að flytja hergögn inn í Georgíu. „Það er engin herkví til staðar. Öll skip geta lagst að bryggjunni í Poti. Bandarísk skip og önnur nota hana til að flytja mann- úðaraðstoð til Georgíu. Og það sem Bandaríkjamenn kalla mannúðarað- stoð í þessu tilfelli, kalla aðrir vopn,“ er haft eftir Medvedev á BBC frétta- stofunni. Bitlaus Vesturlönd Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, var fullur sjálfstrausts þegar hann lýsti því yfir að allar að- gerðir vestrænna ríkja gegn Rússum væru í mesta lagi orðin tóm og dipl- ómatískar refsiaðgerðir sem væru þolanlegar. „Ég hef ekki trú á því að einangrun Rússa í alþjóðasamfélag- inu sé yfirvofandi. Þetta verður eng- inn dómsdagur,“ sagði Lavrov. Suður-Ossetía þungamiðjan Baráttan um Suður-Ossetíu var kveikjan að átökum fyrir nokkrum vikum síðan milli Rússa og Georgíu- manna. Í héraðinu búa um 70 þúsund manns sem telja sig Rússa frekar en Georgíumenn. Hið fátæka og glæpum hrjáða fjallahérað er talið eiga lítinn raunhæfan möguleika á að verða sjálf- stætt ríki, og er talið að yfirlýsing Rússa sé fyrirboði um innlimun héraðsins í Rússland að sögn Mikheil Saakashvili, forseta Georgíu. Upphaf átakanna má rekja til misheppnaðrar tilraunar Georgíumanna og Saakashvili til að ná aftur yfirráðum yfir Suður-Ossetíu. Rússar svöruðu með hernaðaraðgerð- um þar sem þeir töldu árás Georgíu- manna ógna lífi og limum rússneskra hjálparstarfsmanna og ríkisborgara í héraðinu. Síðan þá hafa ásakanir um þjóðernishreinsanir gengið á víxl. Yfirvöld í Mumbaí á Indlandi hafa ákveðið að grípa til róttækra aðgerða vegna hins mikla óþefs sem leggur frá tveimur af stærstu ruslahaugum borg- arinnar. Ákveðið hefur verið að nota fjörutíu og tvö þúsund lítra af Sanil Supreme, jurtaúða, sem verður úðað yfir haugana tvisvar sinnum á dag. Yfirmaður sorphirðumála í Mumbaí, Ahmad Karim, vonar að með þeim hætti verði hægt að gera líf þeirra fjög- ur hundruð þúsund íbúa sem búa í nágrenni hauganna bærilegra. Annar hauganna, Deonar, þekur eitthundrað og tuttugu hektara svæði og var fyrst notaður af Bretum árið 1927. Síðan þá hefur safnast þar upp fjall af óunnu sorpi með fylgjandi gas- myndun og óþef. Ekki eru allir jafnbjartsýnir á árang- ur og Ahmad Karim. Leiðtogi íbúa- samtaka á svæðinu, Sandeep Rane, finnst hugmyndin hlægileg. Borgar- yfirvöld hafa eytt sem svarar til ellefu og hálfrar milljónar króna á ilmvatnið, en það er gríðarhá upphæð í borg þar sem margir draga fram lífið á innan við sjötíu krónum á dag. Ahmad Karim blæs á alla gagn- rýni, ilmúðinn sem hann hefur keypt á að duga næstu sex mánuði og ef ár- angurinn verður jákvæður mun hann panta meira. Það er mat sérfræðinga að yfirvöld í Mumbaí séu illa í stakk búin til að eiga við þau sjöþúsund og fimmhundruð tonn af úrgangi sem íbúar borgarinnar, átján milljónir að tölu, skila af sér daglega. Í bígerð er að leggja niður Deon- ar og Mulund ruslahaugana á næstu árum og taka landið undir iðnaðar- og íbúðasvæði. En hætt er við að minn- ingin um þessa stærstu ruslahauga borgarinnar muni lengi lifa í minn- ingu íbúa borgarinnar. Jurtaúði á sorpið Fátækrahverfi í Mumbaí sjö þúsund og fimm hundruð tonn af sorpi bætast við daglega. RússaR óttast ekkeRt Ákvörðun Rússa að viðurkenna sjálfstæði Suður-Ossetíu og Abkasíu er ögrun við Vesturlönd. Rússar óttast ekki refsi- aðgerðir og því síður að þeir hafi lagt línurnar að nýju köldu stríði. Forseti Rússlands sakar Bandaríkin um að dulbúa vopnasendingar til Georgíu sem neyðaraðstoð. Óttalaus leiðtogi dmitry medvedev óttast ekkert og er reiðubúinn að taka refsingum andstæðinga sinna. mynd/afP Mikheil Saakashvili forseti georgíu nýtur stuðnings Vesturveldanna í baráttunni gegn rússum. mynd/afP © GRAPHIC NEWS Poti ABKASÍA NORÐUR OSSETÍA SVARTAHAF Suður OSSETÍA G E O R G Í A TYRKLAND ARMENÍA ASERBAÍDSJAN Tbilisi R Ú S S L A N D 60 miles 100km Herkví Rússa í Poti Aug 4: Russia accuses Georgian President Mikhail Saakashvili (left) of ethnic cleansing in breakaway South Ossetia, claiming attacks by Georgian army against Moscow-backed rebels Aug 11: Russian troops move from Abkhazia and South Ossetia deep into Georgian territory, seizing key towns of Zugdidi, Senaki and Gori, plus strategic east-west road. Tbilisi is eectively cut o from western Black Sea coast Aug 12: Russian President Dmitry Medvede v (right) orders end to ghting. UN estimates more than 2,500 killed, 100,000 people displaced within Georgia and South Ossetia Aug 7: Truce with rebels breaks down – Georgian troops launch surprise attack on regional capital Tskhinvali Aug 9: Georgian parliament approves presidential decree declaring state of war . Russian planes attack military targets in central town of Gori Aug 10: Georgia says it has ordered its troops to begin ceasere, that its forces have withdrawn from South Ossetia. Russia launches bombing raids near Georgian capital Tbilisi Pictures: Associated Press Átakasvæðið í GeorgíuÁTAKASVÆÐIÐ Í GEORGÍU mynd/graPhic news

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.