Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Side 15
fimmtudagur 28. ágúst 2008 15Umræða
Stígur Helgason, blaðamaður, setti
saman ágæta fréttaskýringu í Frétta-
blaðinu síðastliðinn þriðjudag um
laxveiðiferð æðstráðenda höfuð-
borgarinnar í fyrra. Mennirnir voru
Haukur Leósson, þáverandi stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykjavík-
ur, Guðlaugur Þór Þórðarson, heil-
brigðisráðherra og stofnandi REI,
Björn Ingi Hrafnsson, þáverandi
formaður borgarráðs og Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgar-
stjóri.
Upplýst hefur verið að Baug-
ur keypti upphaflega veiðileyfin
sem æðstráðendur borgarinnar og
Orkuveitunnar nýttu. Ekkert hef-
ur enn komið fram um að Orku-
veita Reykjavíkur hafi keypt leyfin
af Baugi og Haukur Leósson boðið
æðstráðendum borgarinnar í lax-
veiði á vegum Orkuveitunnar. Hver
tók við endurgreiðslu hafi einhver
fjórmenninganna endurgreitt veiði-
leyfið?
Í drögum að ósamþykktum siða-
reglum fyrir borgarfulltrúa seg-
ir meðal annars: „Kjörnir fulltrúar
skulu forðast alla hegðun innan og
utan starfa þeirra fyrir hönd Reykja-
víkurborgar sem gæti talist fela í
sér að veita eða þiggja mútur og til-
kynna um gjafir eða boð um gjafir
í samræmi við reglur sem borgar-
stjórn setur.“
Hvar liggja mörkin?
Setjum sem svo að Baugur hafi ætl-
að að greiða fyrir hagsmunum sín-
um með því að bjóða æðstráð-
endum borgarinnar í laxveiði. Til
dæmis vegna eignarhluta Baugs
í FL-Group sem stóð í samninga-
viðræðum við REI um útrás á sviði
jarðvarmaorku. Eins og fram kemur
í skýrslu stýrihóps á vegum borgar-
innar liggur ljóst fyrir að áhrif FL-
Group á ákvarðanir í REI málinu
hafi verið mikil og jafnvel ráðandi.
Það er hins vegar ekki áfellisdómur
yfir FL-Group heldur yfir handhöf-
um almannavaldsins í Reykjavíkur-
borg.
Um laxveiðiferðina má einnig
segja að mútubrot er ekki framið að
fullu fyrr en einhver eða einhverjir
hafa þegið þau gæði sem boðin eru.
Búum til dæmi. Landsbankinn og
Landsvirkjun eru í samvinnu um út-
rás á sviði raforkuframleiðslu. Setj-
um sem svo að Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar, sem talar
fyrir einkavæðingu orkuframleiðsl-
unnar í landinu, hafi setið með
Björgólfi Guðmundssyni og Kjart-
ani Gunnarssyni, ráðandi eigend-
um Landsbankans, um borð í lúxus-
snekkju í höfninni í Mónakó. Mundi
forstjóri Landsvirkjunar teljast
mútuþægur hefði hann þegið boð
Landsbankamanna um siglingu á
Miðjarðarhafi á lúxussnekkju? Væri
Björgólfi ekki frjálst að bjóða kunn-
ingjum sínum um borð í snekkju í
Mónakó án þess að vera vændur um
að bera fé á menn? Færi það ekki
eftir tengslum Landsvirkjunar og
Landsbankans og viðskiptahags-
munum beggja aðila? Í opnu þjóð-
félagi yrði þjónn almennings, for-
stjóri Landsvirkjunar í þessu tilviki,
að gera grein fyrir gjöfum og gæðum
sem hann þiggur.
Vill þyngri refsingu
15. apríl síðastliðinn lagði dóms-
málaráðherra fram minnisblað á
ríkisstjórnarfundi um niðurstöð-
ur GRECO-nefndarinnar á vegum
Evrópuráðsins, en hún rannsakar
spillingu í aðildarlöndunum. Efni
skýrslunnar vakti ekki athygli fjöl-
miðla. Í henni er nánast talið grun-
samlegt að aðeins einn maður (Árni
Johnsen þingmaður) hafi verið
dæmdur fyrir mútubrot
hér á landi undanfarna
einn til tvo áratugi.
Þetta er talið til
marks um veikar
og reynslulaus-
ar stofnanir sem
rannsaka, ákæra
og dæma í slík-
um málum.
Við sem búum
í landinu telj-
um að sum-
ar þessara
stofnana
séu með-
virkar með
valdinu og
ættu að vera
hluti af viðfangsefni GRECO.
Í skýrslu nefndarinnar er lagt til
að viðurlög við mútubrotum verði
hert; hegning sé til dæmis vægari
hér á landi fyrir mútubrot en fyr-
ir fjársvik. Þá telur nefndin brýnt
að lög um mútubrot nái jafnt yfir
kjörna fulltrúa, þingmenn sem aðra
borgara.
Það vekur vissa ónotakennd að
við hlið Stígs, blaðamanns á Frétta-
blaðinu, skuli vinna
maður sem er við-
fangsefni í frétta-
skýringar hans
um spillingu
og mútur. Hvar
gæti þetta gerst
annars staðar
en einmitt á Ís-
landi?
Hver er maðurinn?
„Ég er kristinn, barn guðs, og vinn að
því hörðum höndum að breyta lífi
fátækra barna í Kenía.“
Hvað drífur þig áfram?
„Það er bakgrunnur minn, ég kem úr
mjög fátækri fjölskyldu, en ég ákvað
að að ég ætlaði ekki að lifa þannig.
Ég verð að standa á mínum eigin
fótum sem afrískur maður.“
Hver er þinn helsti hæfileiki?
„sú staðfesta mín að vera lifandi,
sterkur og hvetja aðra. Ekki missa
vonina og ekki að syrgja.“
Hvert er leiðinlegasta
húsverkið?
„Það er ekkert húsverk sem mér
finnst leiðinlegt. Þó maður sé
fátækur getur maður verið hreinn.“
Hvað er skemmtilegast
í sjónvarpinu?
„Það eru alþjóðlegar fréttir og
íþróttir.“
Syngur þú í sturtu?
„Nei, þá eyði ég meiri tíma í sturtunni
og meira vatni, vatn er líf og fólk
berst um vatnið. Því reyni ég að nota
sem minnst af vatni svo það sé til
meira handa næstu kynslóðum.“
Ætlarðu að sjá handboltastrák-
ana okkar koma heim?
„Já. Ég horfði á alla leikina og var svo
ánægður þegar þeir unnu stóru
þjóðirnar.“
Varstu hræddur á Ítalíu?
„Já, ég var mjög hræddur og vissi
ekki hvað myndi gerast og enginn
vildi tala við mig. Hér er allt gerólíkt,
allir eru vinalegir. Ísland er gott land
og hér er gott fólk.“
Hvað er fram undan?
„að vera með fjölskyldunni og passa
að konunni minni líði vel, hún varð
fyrir miklu áfalli þegar ég var sendur
til Ítalíu. Ég vil þakka öllum á Íslandi
sem hjálpuðu mér og ríkisstjórninni
sem gaf okkur fjölskyldunni þetta
tækifæri til að vera aftur saman.“
Grunsamlegar laxveiðar ráðamanna
JóHann
HaukSSon
útvarpsmaður skrifar
„Í henni er nánast talið
grunsamlegt að aðeins
einn maður hafi verið
dæmdur fyrir mútubrot
hér á landi undanfarna
einn til tvo áratugi.“
RÍkiSStJóRnaRfunduR Oft á tíðum situr fjölmiðlafólk fyrir ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundum. Hér má sjá Heiðar Örn sigurfinnsson,
fréttamann ríkisútvarpsins, taka viðtal við Þorgerði Katrínu gunnarsdóttur menntamálaráðherra að loknum fundi í vikunni. sólin lagði blessun sína yfir samræðurnar, rétt
á milli rigningarskúra. MYnd SiGtRYGGuR
Hefur silfrið áHrif á íslenskt íþróttalíf?
„Já, örugglega. Ætli það komi ekki nýtt
handboltaæði.“
BJöRGVin inGi JónSSon,
tvÍtugur rafEiNdavirKi
„Já, það held ég að hljóti að vera. Nú
fara allir krakkar á Íslandi að æfa
handbolta.“
BJaRni ÞóR JónSSon,
26 ára margmiðluNarHÖNNuður
„Þetta eflir íslenskt íþróttalíf á allan
hátt.“
HReiðaR SiGtRYGGSSon,
52 ára, sKólastJóri Í laNgHOltssKóla
„Já, Það byrja örugglega fleiri að æfa
handbolta.“
HelGa láRa HalldóRSdóttiR,
15 ára NEmi
Dómstóll götunnar
paul RaMSeS kom til Íslands á
þriðjudaginn. Hann er hælisleitandi
frá Keníu og var sendur í flótta-
mannabúðir á Ítalíu í júlí.
Ísland er
gott land
„Já, þetta er hvetjandi að öllu leyti.“
StefanÍa JöRGenSdóttiR,
47 ára HEimaviNNaNdi
kjallari
mynDin maður Dagsins