Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2008, Síða 22
þriðjudagur 23. september 200822 Fólkið
Mikil leynd hefur ríkt yfir tilvon-
andi plötu tónlistarkonunnar Lay
Low en plata þessi kemur út á veg-
um Cod Music á Íslandi 16. október.
Aðdáendur tónlistarkonunnar geta
hins vegar glaðst yfir því að fyrsta lag
plötunnar, By and By, fer í spilun í
dag. Bæði má vænta þess að heyra
lagið á útvarpsstöðvum landsins
auk þess sem lagið fer í spilun á
Myspace-síðu Lay Low en slóðin er
myspace.com/baralovisa. Í tilefni af
útgáfu plötunnar verða haldnir helj-
arinnar útgáfutónleikar í Fríkirkj-
unni í Reykjavík kvöldið sem platan
kemur út. Hægt er að nálgast miða
inni á midi.is.
Stjörnubloggarinn Trent Vanegas
er í heimsókn á Íslandi. Trent heldur
úti síðunni pinkisthenewblog.com
og er í hópi með slúðurbloggurum
eins og Perez Hilton sem hafa öðlast
frægð gegnum netið. Trent segir frá
því á síðu sinni að hann hafi farið
gullna hringinn á sunnudag og á
mánudag hafi tekið við hestaferð.
Trent leynir ekki hrifningu sinni á
landinu og hvetur alla til að heim-
sækja það. „Ég þakka guðunum á
himnum uppi fyrir að hafa komið
hingað. Þið verðið öll að prófa þetta,“
segir Trent hæstánægður.
Stjörnublogg-
ari á landinu
Hjónaerjurnar
aukaSt ekki
„Ég er bara ánægð með þetta,“ seg-
ir Eva María Jónsdóttir dagskrár-
gerðarkona þegar blaðamaður slær
á þráðinn til hennar til að athuga
hvað henni finnist um breyttan út-
sendingartíma viðtalsþáttar henn-
ar á sunnudagskvöldum í Sjón-
varpinu. Eins og greint var frá um
helgina var þátturinn færður aft-
ur til klukkan 20.30 í stað þess að
vera sýndur strax að loknum kvöld-
fréttum, eins og venjan hefur verið.
Spennuþáttaröðin íslenska Svartir
englar fékk þann útsendingartíma
í staðinn.
Með þessu var komið í veg fyr-
ir að Svartir englar yrðu sýndir á
sama tíma og Dagvaktin á Stöð 2 en
forveri hennar, Næturvaktin, naut
feikilegra vinsælda þegar hún var
sýnd síðasta vetur.
„Mitt áhyggjuefni er ekki hve-
nær þátturinn er sýndur. Mitt verk-
efni er bara að búa til góðan þátt,“
segir Eva. „Og ég er mjög ánægð
með þáttinn þannig að mér er al-
veg sama hvenær hann er sýndur. Ef
þeir vilja tefla honum á móti sterk-
asta efni Stöðvar 2 finnst mér það
bara fínt.“
Svo skemmtilega vill til að leik-
stjóri Svartra engla er Óskar Jónas-
son, eiginmaður Evu. Hún kannast
ekki við að hjónaerjur hafi aukist
vegna þessarar víxlunar á þáttum
þeirra. „Það voru nægar hjónarerj-
ur fyrir þannig að þetta breytir engu
þar um,“ segir Eva María og hlær.
Í tilkynningu sem Ríkisútvarpið
sendi fjölmiðlum vegna breyting-
anna segir að þær séu gerðar í fullri
sátt Þórhalls Gunnarssonar, dag-
skrárstjóra Sjónvarpsins, og Pálma
Guðmundssonar, sjónvarpsstjóra
Stöðvar 2.
Dagvaktin og Svartir englar eru
báðir styrktir af Kvikmyndamiðstöð
Íslands, og þar með styrktir með al-
mannafé, og telur Eva að það sé rót-
in að því hversu langt er gengið í
sáttum á milli stöðvanna. „Þeim er
því ekki stætt á að sýna þetta á sama
tíma held ég. En ef dagskrárgerð-
arfólk hefði mestar áhyggjur af því
hvenær þættirnir þeirra eru sýnd-
ir og hverjir horfa væri frekar illa
komið fyrir íslenskri dagskrárgerð,“
segir Eva.
Við þetta má bæta að gestur
Evu næsta sunnudag er Hugrún
„Huggy“ Ragnarsdóttir, ljósmynd-
ari og fyrrverandi fyrirsæta. „Það
var mjög gaman að kynnast þessari
týndu dóttur landsins. Hún er ekki
mjög íslensk í viðkynningu og þar af
leiðandi frábær viðmælandi.“
Huggy býr í London en kom til
Íslands vegna þáttarins. Auk ljós-
myndarastarfsins hefur hún getið
sér gott orð undanfarin misseri fyrir
dómgæslu í þáttunum Britains Next
Top Model sem sýndir eru á Skjá
einum.
„Hún á mjög dramatíska sögu
að baki og er ekkert að breiða
yfir það,“ lýsir Eva. Óneitanlega
vekja stórar varir Huggy athygli
þeirra sem hafa séð hana á
skjánum og aðspurð játar Eva
meðal annars að hafa spurt út
í þær. „Hún svaraði því bara
eins og hún svaraði því,“ seg-
ir Eva með leyndardómsfull-
um tón.
Þeir sem vilja fræðast
nánar um Huggy og hennar
sögu og útlit verða því bara
að horfa á þátt Evu næsta
sunnudag, hvort sem þeir
fórna þá Dagvaktinni eða
kíkja á þáttinn á RÚV+ eða á
netinu. kristjanh@dv.is
Þáttum hjónanna Evu Maríu Jónsdóttir og Óskars
Jónassonar var víxlað í dagskrá RÚV svo spennu-
þáttaröðin Svartir englar yrði ekki á sama tíma og
gullkálfar Stöðvar 2 í Dagvaktinni. Eva segir út-
sendingartíma þáttar síns ekki áhyggjuefni.
Brúðguminn eftir Baltasar Kor-
mák fær ekki góða meðferð hjá
bandaríska kvikmyndablaðinu
Variety. Myndin, sem er framlag
Íslands til Óskarsverðlaunanna
þetta árið, er sögð vera hálfmis-
heppnuð tilraun til gríns en það er
Dennis Harvey sem dæmir mynd-
ina.
Dómurinn kemur nokkuð á
óvart en myndin fékk einróma lof
gagnrýnenda hér heima og fékk
einnig mjög góða aðsókn. Meira
en 60.000 manns lögðu leið sína á
Brúðgumann. Þá er Brúðguminn
einnig tilnefndur til kvikmynda-
verðlauna Norðurlandaráðs.
Reyndar er dómur Variety nán-
ast sá eini neikvæði sem birst hef-
ur um myndina. Þó nokkrir aðr-
ir dómar hafa birst eftir sýningu
myndarinnar á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Toronto.
Á vefsíðunni twitchfilm.net er
sagt að Brúðguminn sé ein af allra
sterkustu myndunum frá Norð-
urlöndunum þetta árið. Þá fær
myndin, sem heitir á ensku White
Night Wedding, einkunnina 8 af 10
á síðunni tiffreviews.com.
Variety er mjög áhrifamikið
tímarit í Hollywood og gæti haft
áhrif á gengi Brúðgumans þeg-
ar kemur að Óskarsverðlaunun-
um. Hins vegar gætu allir hinir já-
kvæðu dómarnir vegið upp á móti
þótt þeir séu ekki jafnáberandi og
sá í Variety.
asgeir@dv.is
óSkarSframlaginu Slátrað
KViKmynDatímaRitið VaRiEty gEfuR BRÚðgumanum SlaKa Dóma mEðan aðRiR gEfa góða:
Brúðguminn
Hefur fengið góða dóma hjá
flestum öðrum en Variety.
Eva María:
fyrSta
lagið í
Spilun
Huggy Ragnarsdóttir
Verður gestur evu næsta
sunnudag og ræðir
meðal annars varirnar
frægu.
Eva María
„ef dagskrárgerðarfólk hefði mestar
áhyggjur af því hvenær þættirnir þeirra
eru sýndir og hverjir horfa væri frekar illa
komið fyrir íslenskri dagskrárgerð.“