Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1903, Side 129
127
Tfirlit
yfir búnaðarskýrslurnar 1901, með hliðsjón af skýrslunum frá
búnaðarfjelögunum, og af fyrri árum.
LausafjárframtaliS er ávallt álitið heldur lágt, eins jafnan áður. l>að á við allar
skyrslur, sem eru byggð'ar á skattaframtali. Að sjálfsögðu er margt alveg rjett í skýrslunum
t. d. tala byla, en önnur atriði í þeim sumstaðar eru, ef til vill ágizkun, t. d. útheyshestar,
sem efasamt er hvort lireppstjórar ávallt fá hjá bóndanum sjálfum sem lilut á að máli. I
sumum hreppum voru til skamms tíma skyrslurnar um töðu og úthey ekki fyltar út. Um
jai'ðabætur má segja, að skýrslur búnaðarfjelaganna hljóta að vera rjettar, það sem þær ná,
en að fleiri jarðabætur eru gjörður, en þar standa, því margur maður sem ekki er í búnaðar-
fjelagi gjörir jarðabætur, og pað er ekki alveg víst, að þær jarðabætur, (’inkum smájarðabæt-
ur) sem gjörðar eru innan jarðabótafjelaga komi í skýrslurnar.
Skýrslurnar veröa svo teknar eptir liðum eins og áður hefir vcrið gjört,
1. Tala framteljanda og býla hcfur verið síðustu árin:
1895 ........................ .............. 9857 framteljeudur 6886 býli
1896—1600 meðaltal ......................... 10285 - 6839 —
1901 ....................................... 10077 - 6796 —
Tala framteljanda var hæst 1897, og var þá 10433 manns, en hefur lækkuð um
100 manns á ári síðan, og er nú komiun niður í 10097 manns. Eflaust hefur þeim mönnum
fækkað sem eiga lifandi pening tíundarbæran, það er apturför tekið eitt út af fyrir sig. En
sje aptur litið á iunieign í sparisjóðum, þá hefur húu aukist svo á sama tíma að landsmenu
eiga að líkindum eins mikið eða meira eptir þessi ár en fyrir þau.
Tala býla lækkar stöðugt frá því 1895. Alls nemur húu 90 býlum. Eptir því ættu
16 býli að leggjast niður á ári um land allt. Fólkið sem yfirgefur búskapinn fer aðallega til
kaupstaða og sjáfarins, þar sem þeim þykir hægra að komast af og arðvænlegra að hafa ofan
af fyrir sjer. Býlum, eða búandi mönuum (í sveit) hefur fjölgað aptur frá 1900—01 úr 6732
uppí 6796, hvort að sú hreifing er varanleg eða ekki, verður ekki sagt aö svo stöddu.
2. F a s t e i g n a r h u n d r u ð á öllu landinu voru eptir jarðamatinu eptir aö jarð-
irnar í liangárvallasýslu og Skaptafellssýslu voru virtar upp aptur... 86.189,3
1901 var búið á 85,551,4
í eyði voru talin eptir skýrslunum 637,9
Aunars hafa verið talin í eyði:
1895 315.9 hndr. 1899 296.6 hndr.
1896 291.3 — 1900 349.4 —
1897 181.3 — 1901 637.9 —
1898 475.5 — >
Jarðir og lönd eru optast notuð fyrir því, þólt þær sjeu taldar í eyði. Ganguriun
sýnist vera að eyðilandið vaxi, og kot og jarðir sjeu sumstaðar að fara í auðn miklu meira
en áður. —
Af skýrslunum má sjá að þeim fækkar, sem liafa laudbúnað fyrir atvinnu, en að
þeiru fækkar dræmt.