Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Qupperneq 2
mánudagur 27. október 20082 Fréttir
Föstudagur 29. júní 200714 Helgarblað DV
BANDITOS SKEMMTU
SÉR VEL Á ÍSLANDI
Alþjóðlegar mótorhjólaklíkur hafa
reynt að ná fótfestu hér á landi með
það að sjónarmiði að smygla inn
fíkniefnum. Árið 2003 vísaði toll-
gæslan á Keflavíkurflugvelli níu Vít-
isenglum, eða meðlimum Hells Ang-
els, frá landi, þar sem talið var að þeir
vildu koma á viðskiptatengslum við
undirheima Íslands.
Ári síðar reyndu meðlimir Hog
Riders MC að koma inn til landsins.
Þeim var einnig snúið við vegna rök-
studds gruns tollgæslunnar um að
þeir hygðust styrkja tengsl sín við
land og þjóð með það að markmiði
að ná kjölfestu í fíkniefnaviðskipt-
um. Þau samtök eru einnig alþjóðleg
glæpasamtök samkvæmt þáverandi
sýslumanni Keflavíkurflugvallar.
Samkvæmt öruggum heimildum er
heimsóknum erlendra mótorhjóla-
gengja hvergi lokið því meðlimir
Banditos voru hér á landi í mánuð-
inum. Þau samtök hafa háð blóðugt
stríð við Vítisenglanna á Norður-
löndum og hafa menn verið myrtir í
þeim átökum.
Innrás Vítisenglanna
Árið 2003 var níu meðlimum Vít-
isenglanna, eða Hells Angels, mein-
aður aðgangur að Íslandi. Þeim var
snúið við og sendir til síns heima.
Jón Trausti Lúthersson ætlaði að
taka á móti þeim en hann er með-
limur í Fáfni MC í dag. Hann var
handtekinn eftir harðvítug átök við
lögregluna í flughöfninni. Ástæðan
fyrir því að Vítisenglunum var snú-
ið við var rökstuddur grunur um að
þeir hygðust koma á viðskiptatengsl-
um við íslenska undirheima til að
auðvelda dreifingu á þeim fíkniefn-
um sem þeir ætluðu hugsanlega
að smygla hingað til lands. Sam-
tökin eru alræmd á Norðurlöndum
og hafa meðlimir þess verið marg-
dæmdir fyrir morð, fíkniefnasmygl
og vopnasölu.
Fleiri samtök
Aðeins ári síðar var meðlimum
Hog Riders MC snúið við á Kefla-
víkurflugvelli. Vopnuð sérsveit Rík-
islögreglustjóra var send til að taka
á móti samtökunum. Þeir voru þó
handteknir án átaka og færðir til yf-
irheyrslu. Eftir að yfirheyrslum lauk
var mönnunum vísað aftur úr landi.
Yfirvöld töldu að samtökin væru lítið
annað en skipulögð glæpastarfsemi
en því neita meðlimir Hrolls MC sem
vildu veita þeim móttöku.
Ástæðan fyrir því að Hog Rid-
ers var boðið til Íslands er sú að þá
hefði Hrollur MC farið úr því að vera
„hangarounds“ og yfir í „prospects“.
Það er einhverskonar virðingar-
stigi sem litlir klúbbar feta sig upp á
nokkuð löngum tíma hjá alþjóðleg-
um klúbbum eins og Hog Riders eða
Vítisenglum.
Fáfnir á forsíðu
Fjallað er um Fáfni MC í nýjasta
tölublaðinu Scanbike. Það tímarit er
helst þekkt á Íslandi eftir að DV sagði
frá dauðalista sem þar birtist. Þar
kom nafn Íslendingsins Sigurðs Ing-
ólfssonar fram. Þar var sagt að hann
væri eftirlýstur. Í tilkynningunni í
Scanbike er látið í veðri vaka að hver
sá sem jafni sakirnar við Sigurð muni
njóti velvildar hjá samtökunum. Þeir
sem ganga á Sigurð muni vinna sér
inn punkta hjá forystusauðunum.
Þeir sem Hells Angels hafa lýst eftir á
þennan hátt í gegnum tíðina hafa yf-
irleitt ekki átt von á góðu. Hótanir, of-
sóknir, ofbeldi og í einstaka tilfellum
morð hafa fylgt í kjölfar þess að Hells
Angels gefi út yfirlýsingu sem þessa.
Kjörorð samtakanna er að þeir sem
eitthvað eiga sökótt við einn meðlim
geta átt von á hefnd frá hverjum sem
er í Hells Angels.
Banditos á Íslandi
Það eru ekki aðeins Hog Riders
eða Vítisenglarnir sem vilja komast
inn í landið. Meðlimir í mótorhjóla-
klúbbnum Banditos voru hér á landi
í mánuðinum. Þetta staðfestir Sverr-
ir Þór Einarsson. Þeir komu í friði að
hans sögn og skemmtu sér ljómandi
vel hér á landi.
Banditos og Vítisenglarnir hafa
lengi eldað grátt silfur. Árið 1997
skutu meðlimir Banditos flugskeyti
inn í samkomuhús Hells Angels með
þeim afleiðingum að Vítisenglar létu
lífið. Eftir það hefur blóðugt stríð
verið háð á milli klúbbanna og er tal-
ið að þeir séu að berjast um yfirráða-
svæði til þess að selja fíkniefni. Slóð
klúbbanna er blóði drifin á Norður-
löndum og hafa saklausir vegfarend-
ur orðið á milli í eldlínu félaganna.
Lítið hefur þó heyrst um missklíð
klúbbanna undanfarin ár og má því
álykta sem svo að þeir séu búnir að
grafa stríðsöxina í bili.
Foringi Vítisengla á Íslandi
Það eru ekki bara Banditos með-
limir sem skemmta sér á Íslandi
heldur var einnig leiðtogi norsku
Vítisenglanna hér á landi árið 2004.
Hann heitir Leif Ivar Kristiansen og
er 44 ára gamall. Hann hlaut níu ára
fangelsisdóm fyrir að smygla 350
kílóum af hassi frá Danmörku. Níu
aðrir englar voru dæmdir ásamt
honum.
Á sínum tíma fjallaði DV ítarlega
um málið en þar kom fram í viðtali
við sérfræðing hjá Ríkislögreglu-
stjóra sem hefur tekið þátt í samstarfi
norrænna lögregluþjóna í baráttunni
við glæpastarfsemi vítisengla, að Leif
hefði dvalið hér á landi. Lögregla á
Norðurlöndunum fylgist náið með
ferðum Vítisengla og heldur skrá yfir
þá sem eru taldir virkir í glæpaverk-
um þeirra. Lögregla hafði afskipti af
Kristiansen þegar hann kom hingað
á sínum tíma. Þeir hindruðu ekki för
hans þar sem þetta hafi verið áður
en norrænir ríkislögreglustjórar hafi
hafið samstarf um að stöðva glæpa-
starfsemi Hells Angels.
Fáfnir neitar tengslum
„Ég leigi bara af þeim House of
Pain nafnið,“ segir Sverri Þór Ein-
arsson eða Sverrir Tattú en hann er
meðlimur í Fáfni. Hann heldur úti
tattú stofu og notast klúbburinn við
nafn Vítisenglanna. Hann segir eng-
inn tengsl vera á milli klúbbanna,
hvað þá að þeir séu að aðhafast eitt-
hvað ólöglegt. Margar sögur hafa
gengið um Fáfni MC en sérsveit rík-
islögreglustjóra hefur oftar en einu
sinni þurft að hafa afskipti af félags-
heimili þeirra. Sjálfur segir Sverr-
ir að flest afskipti lögreglunnar hafi
verið erindaleysur. Annar meðlim-
ur klúbbsins, Jón Trausti Lúthersson
var nýverið dæmdur fyrir hrottalega
líkamsárás í Héraðsdómi Reykja-
víkur. Þá hlaut hann átján mánaða
fangelsisdóm.
„Það eina sem við eigum sameig-
inlegt með Hells Angels eru Harley
Davidsson-mótorhjólin,“ segir Sverr-
ir að lokum.
Valur grettIsson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Vítisengill jón trausti
Lúthersson var handtek-
inn á Keflavíkurflugvelli
eftir átök við lögreglu
vegna heimsóknar
Vítisenglanna.
scanbike Fáfnir MC er á forsíðu
mótorhjólatímaritsins scanbike en þar
hefur nafn íslendings birst í þeim
tilgangi að láta Vítisengla misþyrma
honum.
leif Ivar Kristiansen Leiðtogi norsku
Vítisenglanna var á íslandi árið 2004,
nokkru síðar var hann dæmdur í níu
ára fangelsi fyrir stórtækt hasssmygl.
sverrir tattú sverrir Þór
Einarsson eða sverrir tattú
eins og hann er kallaður segir
það hreinan rógburð að Fáfnir
MC tengist Vítisenglum.
„Meðlimir í mótorhjólaklúbbn-
um Banditos voru hér á landi
í mánuðinum. Þetta staðfestir
Sverrir Þór Einarsson. Þeir komu
í friði að hans sögn og skemmtu
sér ljómandi vel hér á landi.“
mánudagur 5. nóvember 20078 Fréttir DV
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Iðraðist einskis og svaf vært
Paul Warfield Tibbets yngri, flug-
stjóri Enolu Gay, vélarinnar sem
varpaði kjarnorkusprengjunni á Hir-
oshima, er látinn níutíu og tveggja
ára að aldri. Sprengjan, sem vó fimm
tonn og var kölluð „Litli strákur“, varð
um eitt hundrað og fjörutíu þúsund-
um manna að bana þegar henni var
varpað á Hiroshima 6. ágúst 1945. Auk
þeirra sem létust umsvifalaust létust
mun fleiri þegar frá leið.
Á sextíu ára afmæli sprengjunn-
ar lýstu þrír eftirlifandi meðlimir leið-
angursins því yfir að „þeir iðruðust
einskis“. Tibbets, sem lést eftir tveggja
mánaða sjúkralegu, bað um að jarð-
arför hans færi fram án viðhafnar og
að enginn legsteinn yrði settur á leiði
hans. Hann óttaðist að gröf hans yrði
skotspónn andstæðinga sprengjunn-
ar.
Tibbets sagði að þúsundir fyrrver-
andi hermanna og fjölskyldur þeirra
hefðu látið í ljósi þakklæti og ýjað að
því að þeir væru jafnvel ekki á lífi ef
ekki hefði verið fyrir kjarnorkusprengj-
urnar. Í viðtali árið 1975 sagði hann að
hann væri stoltur því honum hefði tek-
ist að láta allt ganga upp. „Ég sef vært
hverja nótt,“ sagði hann.
Ári síðar var hann gagnrýndur fyr-
ir að setja sprenginguna á svið á flug-
sýningu í Texas. Sveppaský var mynd-
að þar sem hann flaug yfir á B-29-vél
sem gengur undir nafninu Fljúgandi
virkið. Japanir brugðust ókvæða við og
Bandaríkjamenn báðust afsökunar.
Árið 1995 var Smithsonian-stofn-
unin með sýningu vegna fimmtíu ára
afmælis Hiroshima-sprengjunnar
þar sem hún var sett í samhengi við
þær þjáningar sem hún orsakaði. Það
kallaði Tibbets „helvíti grófa móðg-
un“. Að hans sögn snýst athyglin í of
miklum mæli um þjáningu Japana, en
ekki nógu mikið um grimmd japanska
hersins.
Enola Gay Paul Warfield Tibbets rétt
áður en hann lagði upp í flugferðina til
Hiroshima.
Vítisenglar
Samtökin Hells Angels voru stofnuð
árið 1948 í Fontana í Kaliforníu og
var hugmyndin að nafninu fengin frá
flugsveit bandaríska flughersins frá
fyrstu árum síðari heimsstyrjaldar.
Samkvæmt vefsíðu samtakanna var
það fyrrverandi flugmaður þeirrar
sveitar og vinur eins stofnfélaganna
sem stakk upp á nafninu.
Verulegs misræmis hefur gætt
í frásögnum af upphafsárum
samtakanna og að sögn Ralphs
Barger, stofnfélaga Oakland-
deildarinnar, voru einar fyrstu
deildir samtakanna stofnaðar í
San Francisco, Gardena, Fontana
og víðar sem sjálfstæðar deildir
og höfðu meðlimir þeirra jafnvel
enga vitneskju um að aðrar deildir
væru til. Núna eru starfandi fleiri en
hundrað deildir Vítisengla, eins og
þau eru nefnd á okkar ástkæra og
ylhýra máli, í tuttugu og níu löndum,
en árið 1961 var á Nýja-Sjálandi
stofnuð opinberlega fyrsta deildin
utan Bandaríkjanna. Fyrsta deildin
í Evrópu var stofnuð á Englandi árið
1969 í kjölfar þess að Bítlarnir buðu
nokkrum meðlima Vítisengla í San
Francisco til London.
Opin öllum nema þeldökkum
Að verða fullgildur meðlimur
Vítisenglanna er langt og tímafrekt
ferli, en samtökin eru ekki öllum
opin. Samkvæmt heimildum dóms-
málaráðuneytis Bandaríkjanna þarf
sá sem æskir aðildar að vera hvítur,
rómanskur eða asískur og tuttugu
og eins árs eða eldri og eiga Harley
Davidson-mótorhjól. Blökkumenn
eiga ekki möguleika á að verða félag-
ar og samkvæmt skjali sem notað var
í dómsmáli í Kanada, eru reglur þar
að lútandi mjög strangar. Í skjalinu
kemur fram að Oshawa-deildin hafi
leyft blökkumanni að verða „aftaní-
ossi“, en þegar sú vitneskja barst yf-
irstjórn samtakanna til eyrna varð
að reka hann á brott, því aðild hans
braut í bága við alþjóðareglur sam-
takanna.
Allir sem vilja verða meðlim-
ir byrja á því að verða „aftaníossi“, á
því tímabili er viðkomandi veginn og
metinn og er boðið á uppákomur og á
þess kost að hitta meðlimi Vítisengla
á þekktum mótsstöðum. Ef áhugi er
fyrir hendi er viðkomandi boðið að
gerast „aukafélagi“ og gildir sú staða
í eitt eða tvö ár. Þá er hann endur-
metinn og fær stöðuna „tilvonandi“
og getur tekið þátt í sarfsemi deild-
arinnar, en hefur ekki atkvæðisrétt.
Á þeim tíma er hann metinn með til-
liti til fullrar aðildar. Ef allt gengur að
óskum verður umsækjandinn full-
gildur meðlimur og má merkja fatn-
að sinn í samræmi við það.
Táknmynd bræðralags
og tryggðar
Vítisenglar eru umdeild samtök
sveipuð mistri leyndardóms og dul-
úðar, þökk sé mikilli leynd sem með-
limirnir hafa tileinkað sér, jafnvel
með einmitt þann ásetning í huga.
Meðlimir nota ekki fullt nafn í sam-
skiptum sínum við félaga sína, ein-
göngu fyrra nafn og jafnvel bara við-
urnefni. Saga samtakanna er litrík og
í henni er að finna mörg tilfelli þar
sem staðfest hafa verið tengsl með-
lima þeirra við glæpsamlega starf-
semi. Vítisenglum er öðrum þræði
lýst sem goðsögnum nútímans og
táknmynd bræðralags og tryggð-
ar liðinna tíma og hins vegar sem
ótýndum glæpamönnum og plágu
á samfélaginu. Að sama skapi dreg-
ur almenningsálitið dám af umfjöll-
un fjölmiðla og sveiflast frá virðingu
og hetjudýrkun til fullkominnar fyr-
irlitningar.
Undir þumli mínum
Eitt frægasta atvik í sögu Vítisengla
átti sér stað á hljómleikum í Kaliforníu
6. desember 1969, þar sem fram
komu Jefferson Airplane, The Flying
Burritos og Rolling Stones. Vítisenglar
höfðu verið ráðnir til öryggisgæslu
og áttu laun þeirra meðal annars að
vera bjór að andvirði fimm hundruð
bandaríkjadala. Einn þeirra sem
stóðu að tónleikunum, Meredith
Hunter, ruddist upp á svið sveiflandi
byssu og náði að skjóta einu skoti, en
var svo stunginn til bana. Skotið særði
einn Vítisengil, en um minniháttar
sár var að ræða. Samkvæmt algengri
þjóðsögu áttu þessir atburðir sér stað
á meðan The Rolling Stones flutti lagið
Sympathy for the Devil. Sannleikurinn
er hins vegar sá að lagið sem The
Rolling Stones flutti meðan á þessum
ósköpum stóð var Under my Thumb.
Vítisengillinn Alan Passaro var síðar
sýknaður af morðákæru á grundvelli
sjálfsvarnar vegna málsins.
Vítisenglar
í 29 lönduKOlbEinn þOrsTEinssOnblaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Í baksýnisspeglin-
um vítisenglar í
líkfylgd myrts félaga.
Öryggisgæsla Vítisengla á
hljómleikum The rolling Stones í
Kaliforníu 1969.
sarkozy kemur
til bjargar
Tsjadnesk yfirvöld hafa
sleppt sjö Evrópubúum af sautj-
án úr haldi í meintu mannráns-
máli. Þeir sem þar er um að
ræða eru fjórir spænskir flug-
þjónar og þrír franskir frétta-
menn. Þeir voru leystir úr haldi
eftir að Nicolas Sarkozy kom
óvænt til Tsjad.
Málið snýst um áformaðan
flutning rúmlega hundrað
tsjadneskra og súdanskra barna
til Frakklands. Málið vakti upp
mikla reiði í Tsjad því fljótlega
vöknuðu upp efasemdir um
tilgang samtakanna sem að
flutningunum stóðu.
Fólksflótti frá
flóðasvæðum
Fleiri hundruð þúsund
manns hafa flúið flóðasvæðin
í Tabasco í Mexíkó, en enn
bíða um þrjú hundruð
þúsund manns björgunar á
heimilum sínum. Vatnshæð
í Villahermosa, höfuðborg
fylkisins, er allt að sex metrar
og standa aðeins þök húsanna
upp úr. Forseti landsins,
Felipe Calderon, kallaði út
allan flugher landsins til að
koma vistum til fólks og flytja
á brott. Samkvæmt síðustu
tölum hafa flóðin kostað
fimm manns lífið í suðurhluta
landsins, þar af einn í
Tabasco. Flóðin eru tilkomin
vegna óhemju mikillar
úrkomu sem olli því að ár rufu
bakka sína.
Frelsi
fjölmiðla skert
Fjöldi stjórnarandstæðinga
hefur verið tekinn höndum í
Pakistan í kjölfar neyðarlaganna
sem Pervez Musharraf forseti
setti um helgina. Frelsi fjölmiðla
hefur verið skert og höft sett á
réttindi borgara. Ákvörðun Mush-
arrafs hefur sætt mikilli gagnrýni
og telja stjórnmálaskýrendur
að með neyðarlögunum ætli
Musharraf að koma í veg fyrir að
hæstiréttur ógildi kosningarnar
sem fram fóru fyrir mánuði.
Magnaða moppuskaftið
Dagar skúringafötunnar eru taldir Alltaf tilbúið til notkunar
Gólfin þorna á augabragði
Fljótlegt og þægilegt
Sölustaðir:
Húsasmiðjan - Byko - Pottar og prik Akureyri - Áfangar Keflavík - Fjarðarkaup - Parket og gólf -
Eyjatölvur - Miðstöðin Vestmannaeyjum - Litabúðin Ólafsvík - Skipavík Stykkishólmi - Rými -
SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki - Nesbakki Neskaupsstað - Núpur Ísafirði -
Vélaleiga Húsavíkur. Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ársins
fáfnir fær stuðningsaðild að vítisenglunum:
miðvikudagur 2. júlí 2008 dagblaðið vísir 118. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
Þeir eru
komnir!
„Óhugnanlegt“
Morð er toppurinn
Norskur Vítisengill
svarar fyrir Fáfni
Aníta heillar
Hollywood
daNir eru
haMiNgju-
saMastir
Íslendingur bankar á dyr aðalliðs real betis
íslendingar eru ekki lengur hamingjusamasta þjóð í heimi. nú hafa danir vinninginn.
íslendingar eru álíka hamingjusamir og kólumbíumenn og íbúar púertó ríkó.
hVerFa þíNir
peNiNgar?
skoðaðu hvort innistæða þín
rýrnar vegna verðbólgunnar.
NeyteNdur
kvikmynd anítu briem er spáð
velgengni. aníta skartaði sínu
fegursta á frumsýningunni.
M I Ð V I K U D A G U R 2 . J Ú L Í 2 0 0 8 U M S J Ó N : K o L b R Ú N P á L Í N A H e L G A D Ó t t I R k o l b r u n @ d v . i s
sumartíska
Flest dettur í og úr tísku jaFnört og krónan Flöktir. eitt Fyrirbæri Fer þó aldrei úr tísku: sumarið. allir taka því jaFnopnum örmum og geir ólaFs tekur athyglinni. í þessu sumartískublaði dv er að Finna Flotta götutísku reykjavíkur, hvernig íslendingar klæða sig á Ferðalögum, ómissandi snyrtivörur og ódýra sumarkjóla.
sé blað
FÓlk
Fréttir
föstudagur 6. júlí 20072 Fréttir DV
Helen Ó. Pálsdóttir
Leó Örn Þorleifsson
ÓSVEIGJANLEIKI SÆRIR
EINSTÆÐA MÓÐUR
Einstæð þriggja barna móðir, Helen
Ó. Pálsdóttir, er sár yfir ósveigjanleika
Fæðingarorlofssjóðs í sinn garð er
sjóðurinn gerði mistök og kom henni
í vandræði. Jafnframt varð hún fyr-
ir vonbrigðum með viðbrögð Félags-
þjónustu Reykjavíkur er hún óskaði
eftir þeirra aðstoð við að leysa úr vand-
ræðunum.
Málsatvik voru þau að í aprílmán-
uði ofgreiddi Fæðingarorlofssjóður
Helen þannig að hún fékk greitt inn á
reikning tvöfalda greiðslu. Nokkru síð-
ar fékk hún bréf frá sjóðnum þar sem
henni var tilkynnt að næstu greiðslu
fengi hún ekki og dregið yrði jafnframt
af greiðslu þar á eftir til að ná til baka
þeir upphæð sem ofborguð var. Þetta
fyrirkomulag hentaði Helen heldur
illa og leitaði hún með þá ósk til Fæð-
ingarorlofssjóð að snúa þessu við, að
taka hlutagreiðslu fyrst og sleppa síð-
an alfarið seinni greiðslunni. Að henn-
ar sögn var þeirri beiðni alfarið hafnað
og fyrir vikið sér hún fram á að eiga erf-
itt með að lifa af út mánuðinn.
Höfum engar heimildir
Leó Örn Þorleifssson, forstöðu-
maður Fæðingarorlofssjóðs, segist
ekki geta rætt einstök málefni þeirra
sem hljóta greiðslur úr sjóðnum.
Hann segir ofborganir geta átt sér
stað og í þeim tilvikum beri sjóðn-
um að ráðast í endurkröfu við fyrsta
tækifæri. „Mér er algjörlega óheim-
ilt að ræða einstök mál. Almennt er
það hins vegar þannig að í þeim til-
vikum sem ofborganir eiga sér stað,
og það er eitthvað sem getur gerst, þá
ber okkur að innheimta greiðsluna
um hæl. Við höfum engar heimild-
ir í okkar starfsemi til að sveigja það
eða beygja enda erum við að sýsla
með opinbert fé. Ef viðkomandi aðili
á eftir greiðslur hjá okkur er einfald-
ast að draga af þeim,“ segir Leó Örn.
„Menn hljóta að fylgjast með banka-
reikningum sínum og taka eftir tvö-
földum greiðslum. Fólki sem fær of-
borgað ber að setja sig í samband við
okkur og endurgreiða. Ef menn kjósa
að nýta féð sjálfir þá förum við strax í
endurkröfu, eðli málsins samkvæmt,
og getum ekki verið að sveigja reglur
eða lána fólki úti í bæ. Í þeim tilvikum
þarf fólk að leita til félagsþjónustu eða
banka. Okkur ber að sækja greiðsluna
við fyrsta mögulega tækifæri enda
erum við ekki lánastofnun.“
Reið og sár
Aðspurð segir Helen ósveigjan-
leikann koma sér afar illa á þessum
tímapunkti. Hún ítrekar að vegna
mistaka Fæðingarorlofsjóðs þurfi
hún að leita leiða til að lifa af út mán-
uðinn. „Þetta hitti bara illa á núna.
Ég bað þá einfaldlega að snúa þessu
við, að þeir myndu taka frekar hluta
um síðustu mánaðarmót og næsta
mánuð taka alla greiðsluna því að ég
myndi fá barnabætur þá en þeir neit-
uðu. Sem sagt, síðustu mánaðarmót
fékk ég ekki neitt og í dag get ég ekki
farið með dóttur mína til læknis, get
hvorki keypt þurrmjólk né bleyjur
handa stráknum mínum. Ofan á allt
saman næ ég ekki að klára reikning-
ana þennan mánuðinn,“ segir Helen.
„Ég bað Félagsþjónustuna um hjálp
í þessum vandræðum til að lifa út
mánuðinn en þeir vildu ekki hjálpa
mér. Þeir sögðu mér að ég þyrfti að
passa upp á þetta sjálf en þetta voru
hvorki mín mistök né minn ósveigj-
anleiki. Vegna þessa ósveigjanleika
er ég með allt í eftirdragi og þarf að
reyna að skrimta út mánuðinn. Ég er
bara svo reið og sár yfir þessu.“
TRausTi HafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Síðustu mánaðarmót
fékk ég ekki neitt og í
dag get ég ekki farið með
dóttur mína til læknis,
get hvorki keypt þurr-
mjólk né bleyjur handa
stráknum mínum.“
erfiður mánuður Helen
segir að vegna ósveigjan-
leika fæðingarorlofssjóðs
eigi júlímánuður eftir að
reynast erfiður.
Skrópaði í
héraðsdóm
Fíkniefnasali, sem var ákærð-
ur fyrir að hafa haft undir hönd-
um tæp fimmtán grömm af
amfetamíni, skrópaði ítrekað í
Héraðsdóm Suðurlands. Hann
hafði þó mætt einu sinni og ját-
aði þá brotið á sig.
Fíkniefnin fundust við hefð-
bundna leit í Vestmanneyjum
í ágúst á síðasta ári. Maðurinn
skrópaði ítekað í héraðsdóminn
og að lokum var gefinn út hand-
tökuskipun á hann. Þrátt fyrir allt
lét hann ekki sjá sig. Héraðsdóm-
ur dæmdi hann þá í tæplega 150
þúsund króna sekt ella sæti hann
fangelsi í tíu daga.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Sparkaði í
liggjandi mann
Maður á þrítugsaldri var
dæmdur í 45 daga fangelsi
skilorðsbundið í tvö ár fyrir að
sparka af miklum krafti í höfuð
liggjandi manns. Árásin átti sér
stað á Þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
um í ágúst árið 2005.
Dómara við Héraðsdóms
Suðurlands þótti þótti drátt-
ur málsins aðfinnsluverður og
gagnrýndi ákæruvaldið fyrir það.
Engu að síður játaði maður-
inn árásina skýlaust en sagði að
hann hefði ekki sparkað svo fast
í höfuð liggjandi mannsins. Hér-
aðsdómi Suðurlands var nokk
sama um þær útskýringar enda
vitni að atburðinum sem sögðu
annað.
Fatlaðir fá öll
launin greidd
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur ákveðið að
styrkja samstarfsverkefni ÍTR og
Svæðisskrifstofu um málefni fatl-
aðra þannig að fatlaðir fái sömu
laun og ófatlaðir. Gagnrýnt hefur
verið að þeir fái ekki borgað fyrir
alla vinnu sína. Jóhanna vonar
að umræðan verði til að enn fleiri
fyrirtæki og stofnanir bjóði fatlaða
starfsmenn velkomna. Sú skýr-
ing sem gefin var á því að fatlaðir
fengu ekki sömu laun og aðrir
væri að kki hefði fengist nægilegt
fjármag til verkefnisins. Þroska-
hjálp gagnrýndi það harðlega.
Náttúruskoðun
á methraða
Ítalskur ferðamaður var
sviptur ökuréttindum þegar
lögreglan á Akureyri mældi
bifreið sem hann ók á 171 kíló-
metra hraða. Hann var með
tvo farþega í bílnum og gáfu
þeir þá útskýringu á hraðakstr-
inum að þeir væru að skoða
náttúruna. Svona mikill hraði
arðar sviptingu ökuleyfis
e að auki þurfti Ítalinn að
borga hundrað og tólf þúsund
krónur í sekt. Sektina þurfti
hann að borga á staðnum og
gat bjargað sér fyrir horn með
Visa kortinu. Ljóst þykir þó að
það er ansi mikið fé á ítölskum
mælikvarða.
Vildi hætta í Fáfni og var misþyrmt
Fáfnismaður sem Sérsveit lög-
reglustjórans í Reykjavík bjargaði úr
félagshúsnæði þeirra á Vatnsstíg í
fyrrinótt vildi hætta í Fáfni samkvæmt
staðfestum heimildum. Ósætti mun
hafa komið upp í félagsheimilinu að
kvöldi miðvikudags þannig að slags-
mál brutust út.
Að sögn lögreglu sýndu tveir Fáfn-
ismenn mótþróa en lögreglumenn
yfirbuguðu þá. Fáfnismaðurinn sem
vildi hætta í klúbbnum hlaut talsverða
áverka og var fluttur á slysadeild Land-
spítalans til aðhlynningar.
Það var seint á miðvikudagskvöld-
inu sem lögreglu barst ábending um
að verið væri að misþyrma manni í fé-
lagshúsnæði Fáfnis. Sérsveitin var köll-
uð til ásamt lögreglumönnum. Þegar
lögreglan ruddist inn á félagsheimilið
blasti við þeim ofbeldið og voru leik-
ar skakkaðir. Ekki er ljóst hversu lengi
ofbeldið viðgekkst en einn heimildar-
maður DV líkti atburðinum við pynt-
ingar.
Þegar haft var samband við með-
lim klúbbsins vildi hann ekki tjá sig
við DV vegna umfjöllunar blaðsins um
meint tengsl þeirra við Vítisenglanna,
eða Hells Angels.
Í sömu umfjöllun kom fram að
meðlimir móthjólagengisins Banditos
hafi verið hér á landi í júní.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur margsinnis haft afskipti af
félagshúsnæði Fáfnis en einn með-
limur klúbbsins er Jón Trausti Lúth-
ersson. Hann var dæmdur í átján
mánaða fangelsi í síðasta mánuði
fyrir líkamsárás í félagi við annan
mann.
Þau svör fengust hjá lögreglu að
yfirheyra ætti mennina í gær. Þeir
voru alls tíu sem voru handteknir
og því ljóst að yfirheyrslur taki nokk-
urn tíma. Brotaþoli var ekki búinn
að leggja fram formlega kæru vegna
málsins. valur@dv.is
fáfnis maður handtekinn fáfnismaðurinn jón trausti lúthersson var handtekinn
þegar Vítisenglar vildu inn í landið. Ekki er ljóst hvort hann sé einn af þeim hand-
teknu eftir meinta líkamsárás á fáfnisheimilinu.
fimmtudagur 3. júlí 20086 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Gott veður um
helgina
Næstu helgi verður veðrið
gott um land allt. Það verður þó
hlýjast á suðvesturhluta landsins
þar sem hitinn gæti farið eitt-
hvað yfir 20 gráður. Fyrir austan
verður eitthvað svalara en samt
sem áður gæti hiti þar farið upp
í 18 gráður. Einhverja þoku gæti
gert að næturlagi við fjöll og litlar
skúrir gætu orðið inn til landsins.
Veðrið lítur mjög vel út um land
allt og getur fólk því ferðast hvert
á land sem er án þess að hafa
áhyggjur af veðri.
Vilja bora
í Krýsuvík
Hitaveita Suðurnesja fer
fram á að Hafnarfjarðarbær geri
breytingar á aðalskipulagi frá
2005 til 2025 svo hitaveitan geti
hafið tilraunaboranir í Krýsuvík.
Beiðnin var lögð fyrir skipulags-
og byggingaráð Hafnarfjarðar
síðastliðinn þriðjudaginn. Hita-
veitan lagði fram greinargerð um
fyrirhugaða framkvæmd borana
en áður hafði skipulags- og bygg-
ingaráð óskað eftir því í byrjun
júní. Skipulags- og byggingaráð
frestaði erindinu á milli funda en
sá næsti verður haldinn 22. júlí.
Ekki fokið í fólk
Haraldur Þórarinsson for-
maður Landsambands hesta-
mannafélaga, segir að ekki hefði
fokið í fólk á hestamannamóti
þó svo að vindurinn hefði blásið
mikið á þriðjudag. Hann segir
ekkert geta toppað óveðrið sem
var á Hvolsvelli á þriðjudags-
kvöld. Opna þurfti íþróttahúsið
svo að fólk kæmist í öruggt skjól
og mikið af fólki nýtti sér það.
Haraldur er þó bjartsýnn á
veðrið það sem eftir lifir móts.
„Veðrið er orðið gott núna og
veðurspáin er fín. Ég hef ekki trú
á öðru en að hér verði fjöldi fólks
við góðar aðstæður í góðu veðri.“
Sunnlenskir sveitarstjórnarmenn
eru ósáttir við að stjórnvöld leggi auk-
in verkefni á Heilbrigðiseftirlit Suður-
lands án þess að því fylgi nokkur fjár-
veiting úr ríkissjóði.
Samkvæmt nýrri reglugerð verð-
ur eftirlit við verndarsvæði Þingvalla-
vatns aukið og hefur það í för með sér
aukakostnað fyrir Heilbrigðiseftir-
lit Suðurlands. Nýja reglugerðin hef-
ur ekki bara áhrif á Heilbrigðiseftirlit
Suðurlands heldur veldur hún einn-
ig auknum koastnaðarútgjöldum fyr-
ir sumarbústaðaeigendur á svæðinu.
Það er vegna þess að sumarbústaða-
eigendur verða að endurnýja fráveitu
sína til að draga úr köfnunarefnis-
mengun við Þingvallavatn.
„Reglugerðin var sett án þess að
nokkurt fjármagn fylgdi henni,“ seg-
ir Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
„Við erum ánægð með reglugerð-
ina þar sem tilgangur hennar er að
vernda Þingvallavatn sem er stórkost-
legt vatn, það vantar bara fjármagn-
ið til útfærslu á reglugerðinni,“ seg-
ir Elsa. Reglugerðin mun auka álag
á Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sem
hefur eftirlit með framkvæmd reglu-
gerðarinnar enda er þetta nýtt verk-
efni sem ekki er borið uppi af eftir-
litsgjöldum eins og venja er með aðra
eftirlitsskylda aðila. Samband sunn-
lenskra sveitafélaga hefur beðið um
fund með Þórunni Sveinbjarnardótt-
ur umhverfisráðherra ásamt Heil-
brigðiseftirliti Suðurlands en ekki
hefur fengist svar frá ráðherra. Málið
er af þeim sökum í biðstöðu þangað
til svar frá ráðherra fæst. olivalur@dv.is
Fá ekki fé til verksins
Við Þingvelli Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir hefur ekki veitt svar um fund.
„Íslensk stjórnvöld þurfa ekki að
óttast okkur,“ segir Leif Ivar Kristi-
ansen, leiðtogi Hells Angels í Nor-
egi, í samtali við DV. Samkvæmt
hættumati greiningardeildar rík-
islögreglustjórans er litið á tengsl
vélhjólaklúbbsins Fáfnis MC við
Vítisenglana í Noregi sem ógn við
Ísland. Í greinargerð sem var kynnt
fjölmiðlum á mánudaginn sagði
orðrétt: Íslenski vélhjólaklúbbur-
inn Fafner MC Iceland hefur nú
gerst stuðningsklúbbur Hells Ang-
els. Þar með hefur hópur manna,
sem ítrekað hefur komist í kast við
lögin hér á landi, stofnað til form-
legra tengsla við skipulögð, alþjóð-
leg glæpasamtök. Leif segir sam-
tökin tilbúin í stríð vilji stjórnvöld
stríð.
Sannið misferli
„Ég er mjög hissa á að íslensk
stjórnvöld skuli segja þetta,“ segir
Leif og varar enn fremur stjórnvöld
hér á landi við því að hræra upp í
ótta almennings gagnvart samtök-
unum. Hann segir það grundvall-
arforsendu að sanna glæpi á menn
eða samtök áður en farið er að saka
þau um að vera alþjóðleg glæpa-
samtök. Þá bendir Leif á að það sé
misjafn sauður í mörgu fé, auðvitað
hafi menn innan samtakanna gerst
brotlegir við lög, en það ætti ekki að
kasta rýrð á samtökin í heild sinni
frekar en menn dæmi heila þjóð
vegna verknaða einstakra manna
sem tilheyra henni.
„Þið verðið hreinlega að sanna
það,“ áréttar Leif um ásakanir grein-
ingardeildar ríkislögreglustjórans.
Mætum þeim af hörku
„Mér þykir reyndar leitt að þeir
skuli vera hræddir við okkur, við
erum kurteisir menn og viljum bara
ferðast um á mótorhjólunum okk-
ar,“ segir Leif en hann er stofnandi
Hells Angels í Noregi og forsprakki
samtakanna í því landi. Leif gengst
þó ekki við því að hann sé for-
ingi þeirra þegar blaðamaður spyr
hann, en neitar því ekki heldur.
„Ef þeir vilja stríð getum við
mætt þeim af fullri hörku,“ seg-
ir Leif um hörku stjórnvalda í garð
samtakanna hér á landi en bendir
jafnframt á að það sé þó ekki vilji
norsku Vítisenglanna. Aðspurður
um Fáfnismenn segir hann þá efni-
lega stráka en þeir séu ekki opin-
berlega orðnir Vítisenglar þótt þeir
eigi góða möguleika á því.
Kom til Íslands
„Mér líkaði mjög vel við Ísland
þegar ég heimsótti landið,“ segir
ForinGi HE
tilbúinn í stríð
Valur grettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Jón trausti lúthersson fáfnismaðurinn og
tilvonandi Vítisengillinn jón trausti var handtekinn
þegar Vítisenglar reyndu fyrst að koma hingað til
lands. leiðtogi norsku Vítisenglanna segir samtökin
tilbúin í stríð sé það vilji stjórnvalda.
DV Fréttir fimmtudagur 3. júlí 2008 7
g ells Angels
Leif sem kom hingað fyrir örfáum
árum. Þá var hann ekki stöðvaður
þrátt fyrir að lögreglan hafi lagt sig
í líma við að snúa meðlimum geng-
isins við til síns heima. Hann segir
að þvert á móti hafi lögreglan verið
mjög vinaleg á meðan hann dvaldi
hér á landi. Hann segist hafa not-
ið landsins gæða á meðan hann
dvaldi hér og hefur ekkert illt um
þjóðina að segja. Honum finnst
aftur á móti viðbrögð lögreglunnar
hafa verið heldur hörð þegar þeir
hafa komið í hópum. Eftir að þeim
var vísað úr landi í fyrra fóru þeir í
mál við ríkið.
Fimm sinnum fyrir dóm
„Þeir hafa dregið mig fimm
sinnum fyrir dóm og alltaf hef ég
gengið út sem frjáls maður,“ seg-
ir Leif um erfitt líf Vítisengilsins.
Ein af alvarlegri ákærunum sem
hann fékk var vegna smygls á þrjú
hundruð og fimmtíu kílóum af
hassi frá Danmörku til Noregs. Þá
var efnunum smyglað með húsbíl
og eldri hjón óku honum. Landa-
mæraverðir náðu efnunum og
voru níu einstaklingar ákærðir í
kjölfarið. Sjálfur þurfti Leif að dúsa
í gæsluvarðhaldi í þrettán mán-
uði þar til hann var dæmdur
í níu ára fangelsi. Síðan var
hann sýknaður af hæsta-
rétti Noregs.
Hinir átta fengu sam-
tals fimmtíu og sjö ára
fangelsisdóma vegna
glæpsins.
Hugsanlega til
Íslands
„Við erum fjöl-
skyldumenn,
eigum börn og
lifum venjulegu
lífi, en ég reyni
ekki að ljúga að
Íslendingum,
sumir Vítis-
englar hafa fengið dóma,“
segir Leif og talar ítrekað
um Vítisenglana sem stórt
bræðralag eða fjölskyldu.
Hann bendir jafnframt
á að Vítisenglar geri
menn ekki að glæpa-
mönnum. Það sjá
mennirnir sjálfir um.
Aðspurður hvort
von sé á norskum Vít-
isenglum til landsins
segir hann aldrei að
vita – vistin síðast
hafi að minnsta
kosti verið
notaleg.
„Við erum fjölskyldumenn, eigum börn
og lifum venjulegu lífi, en ég reyni ekki að
ljúga að Íslendingum, sumir Vítisenglar
hafa fengið dóma.“
Leif Ivar Kristiansen
Leiðtogi Vítisenglanna leif ivar
Kristiansen er leiðtogi norsku Vítisengl-
anna og leiðbeinir fáfni eftir grýttum
slóðanum til fullgildingar samtakanna.
mynd tOm E. ØStHuuS
Mikill viðbúnaður var á Keflavíkur-
flugvelli á föstudaginn vegna komu
Vítisenglanna en samkvæmt heim-
ildum DV voru meðlimir samtak-
anna hingað komnir til þess að fagna
tólf ára afmæli íslenska mótorhjóla-
klúbbsins Fáfnis. Þá var heimsóknin
einnig liður í umsóknarferli Fáfnis-
manna en þeir hafa í nokkur ár unn-
ið hart að því að gerast meðlimir
Vítisenglanna. Á sama tíma í fyrra
reyndu átta meðlimir Vítisenglanna
að koma til landsins en lögreglan
skarst í leikinn og neitaði þeim um
landvistarleyfi.
Jón Trausti Lúthersson, einn
nafntogaðasti meðlimur Fáfnis, vildi
í samtali við DV ekki staðfesta að
lögregla hefði haldið Vítisenglum
frá afmælisveislu Fáfnis. „No comm-
ent,“ sagði Jón Trausti og bætti við að
hann teldi ekki tímabært að tjá sig
um málið.Meðlimir hinna alræmdu
Hog Riders-mótorhjólasamtaka
voru í sömu flugvél og Vítisenglarn-
ir á föstudag og tveir þeirra komust í
gegnum landamæraeftirlitið á Kefla-
víkurflugvelli og eru þeir nú staddir
á Íslandi. Hvor tveggja Hog Riders
og Hell‘s Angels hafa verið tengd við
skipulagða glæpastarfsemi víða er-
lendis.
Vöktuðu komusalinn
Óeinkennisklæddir lögreglu-
menn vöktuðu komusalinn í Leifs-
stöð á föstudaginn og fylgdust grannt
með öllum þeim sem í flugstöðinni
voru. Töluvert fleiri lögreglumenn
stóðu vaktina á Keflavíkurflugvelli
vegna málsins og var til að mynda
aukahópur lögreglumanna kallaður
út. Þá var einnig heilt teymi rann-
sóknarlögreglumanna á staðnum.
Lögreglan var því við öllu búin en
aðgerðin gekk þó snurðulaust fyrir
sig.
Ekki náðist í talsmann lögregl-
unnar í Keflavík vegna málsins og
því er ekki vitað um afdrif þeirra Vít-
isengla sem voru stöðvaðir við kom-
una til landsins eða hversu margir
voru handteknir. Í sambærilegum
málum hafa Vítisenglarnir ávallt
verið yfirheyrðir og þeim síðan vís-
að úr landi.
Jóhann R. Benediktsson, fyrrver-
andi lögreglustjóri á Suðurnesjun-
um, barðist hart gegn því að Vítis-
englarnir næðu fótfestu hér á landi
en hann sagði í samtali við DV fyrr
á þessu ári að það væru alvarlegar
fréttir ef slík samtök væru að skjóta
varanlegum rótum hér á landi. Þá
sagði hann einnig að þessir menn
væru engin lömb að leika sér við og
að menn klífi metorðastigann hjá
Vítisenglunum með því að fremja al-
varlega glæpi.
Vilja inn í Vítisenglanna
Samkvæmt heimildum DV áttu
Fáfnismenn að færast einu skrefi
nær inngöngu í Vítisenglana nú um
helgina og voru þeir meðlimir Vítis-
englanna sem stöðvaðir voru í Leifs-
stöð meðal annars komnir hingað til
lands af því tilefni.
Fáfnir er nú í miðju umsókn-
arferlinu hjá Hell‘s Angels og hef-
ur klúbburinn fengið nafnbótina
„hangaround club“ sem gerir þá að
viðurkenndum áhangendum Hells
Angel‘s samkvæmt vefsíðu samtak-
anna hells-angels.com. Umsókn-
arferlið er í þremur skrefum en það
getur tekið þó nokkurn tíma fyrir
Fáfni að verða fullgildur klúbbur í
Vítisenglunum. Fyrsta skrefið er að
fá nafnbótina „hangaround club“
en því næst fær Fáfnir nafnbótina
„prospect“ eða tilvonandi og að
lokum verða Fáfnismenn fullgildir
meðlimir Vítisenglanna.
Hog Riders komust í gegn
Athygli vakti að tveir leðurklædd-
ir meðlimir mótorhjólasamtakanna
Hog Riders komust í gegnum landa-
mæraeftirlitið á föstudaginn þrátt
fyrir það að samtökin séu nátengd
Vítisenglunum. Þeir voru brattir við
komuna til landsins en vildu þó ekk-
ert tala við blaðamann DV og reyndu
að hylja andlit sitt þegar ljósmynd-
ari hugðist taka myndir af þeim.
Íslenskur meðlimur Hog Riders-
samtakanna, sem tók á móti þeim í
Leifsstöð, sagði í samtali við DV að
hvorki hann né þeir sem hann sótti
í Leifsstöð tengdust Fáfni eða Vítis-
englunum.
Fyrir þremur árum fjallaði DV um
íslenskan fjölskylduföður sem var á
dauðalista Vítisenglanna en hann
hafði lent í útistöðum við íslenska
meðlimi Hog Riders á skemmti-
staðnum Amsterdam í Reykjavík.
Það þykir því ljóst að Hog Riders
og Vítisenglarnir tengjast sterkum
böndum bæði hér á landi og erlend-
is.Björn Bjarnason gerði Hog Rid-
ers og Hell‘s Angels að umtalsefni á
heimasíðu sinni í nóvember í fyrra
og sagði að reynslan sýndi að „hvar-
vetna sem Hell’s Angels og önnur
sambærileg vélhjólasamtök ná fót-
festu fylgir aukin skipulögð glæpa-
starfsemi í kjölfarið. Þeirri viðleitni
samtakanna fylgir og jafnan stór-
aukin hætta á hótunum, fjárkúgun-
um og ofbeldi“.
Ógn við öryggi í landinu
Greiningardeild ríkislögreglu-
stjóra telur Fáfni og Vítisenglana vera
ógn við öryggi í landinu. Í skýrslu
greiningardeildarinnar frá því fyrr á
þessu ári er fjallað um Fáfni og sagt
að klúbburinn hafi stofnað til form-
legra tengsla við alþjóðleg glæpa-
samtök með því að gerast stuðnings-
klúbbur hjá Vítisenglunum.
„Stór vélhjólagengi á borð við
Hell‘s Angels og Bandidos, sem
halda uppi skipulagðri glæpastarf-
semi, eru alþjóðlegt vandamál. Þau
leitast stöðugt við að auka umsvif
sín og stækka markaðssvæði. Gengi
þessi stunda fjölbreytta og skipu-
lagða glæpastarfsemi. Þau hafa
löngum verið umsvifamikil á sviði
fjárkúgana, ofbeldis og fíkniefna-
viðskipta. Fyrir liggur að mörg þess-
ara samtaka tengjast einnig vopnas-
mygli, skipulagningu vændis og
mansali. Í nágrannalöndunum hef-
ur ítrekað komið til blóðugra upp-
gjöra þessara hópa. Á árunum 1994
til 1997 týndu 11 manns lífi í átökum
Hell‘s Angels og Bandidos,“ segir í
skýrslu ríkislögreglustjóra.
Vítisenglum haldið frá afmælisVeislu
Félagar úr mótorhjólasamtökunum Hell‘s
Angels voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli
á föstudaginn. Mikill viðbúnaður var í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna komu
Vítisenglanna en þeir komu með flugi frá
Kaupmannahöfn. Tveir meðlimir mótor-
hjólasamtakanna Hog Riders komust í
gegnum landamæraeftirlitið en hvor
tveggja samtökin hafa verið tengd við
skipulagða glæpastarfsemi.
Atli MáR GylfAson
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
Hog Riders meðlimirnir vildu ekki ræða við
dV við komuna til landsins og drifu sig upp í
þennan pallbíl og hurfu snarlega á braut.
Myndir Róbert Reynisson.
Kátir við komuna mótorhjólatöffararnir
úr Hog riders voru heppnari en stallbræð-
ur þeirra úr Vítisenglunum.