Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Qupperneq 4
Norðmenn
vilja hjálpa
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, hitti í gær Kristinu
Halvorsen, fjármálaráðherra
Noregs. Þau ræddu stöðu efna-
hagsmála, að því er fram kemur
á heimasíðu VG, og lýsti Krist-
ina yfir vilja Norðmanna til að
aðstoða Íslendinga fjárhagslega.
Rædd var sú hugmynd að Norð-
urlöndin taki virkan þátt í fjár-
hagsaðstoð með Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum. Steingrímur hélt
í gær einnig fundi með Íslend-
ingum í Ósló og
Kaupmanna-
höfn. Á
þriðjudaginn
mun Stein-
gímur taka
þátt í um-
ræðum for-
ystumanna
í norrænum
stjórnmálum
á Norður-
landa-
ráðs-
þinginu
í Hels-
inki.
mánudagur 27. október 20084 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Tugþúsundir
til varnar
Um það bil fimmtíu þúsund
manns höfðu skrifað nafn sitt á
heimasíðuna www.indefence.
is í gær en þar senda Íslendingar
skýr skilaboð til yfirvalda á Bret-
landi um að hér á landi búi ekki
hryðjuverkamenn. Síðan er við-
bragð við harkalegum aðgerð-
um breskra stjórnvalda gegn ís-
lenskum bönkum þar í landi en
hryðjuverkalögum var beitt til
þess að frysta eigur bankanna.
Stjórnvöld á Íslandi voru sein til
þess að bregðast við þeim snún-
ingi almenningsálits í Bretlandi
gegn Íslendingum sem fylgdi
í kjölfarið en síðan er hugsuð
til þess að rétta hlut Íslendinga
í umræðunni ytra. Fjölmiðlar
hafa fjallað um málið bæði hér
heima og erlendis og til stendur
að afhenda breskum ráðamönn-
um undirskriftalistann.
Ósátt við
Moggann
Tæplega þrjú hundruð fé-
lagar höfðu skráð sig í Face-
book-hópinn „Við söknum þín
Sigmund“ um miðjan dag í gær.
Krafa félaga er einföld: „Við vilj-
um Sigmund aftur á Morgun-
blaðið.“ Þekktir einstaklingar eru
þarna á meðal og má þar nefna
gleðigjafann Hemma Gunn,
handboltakappann Sigfús Sig-
urðsson og Gurrí Haraldsdóttur
á Vikunni.
Því er greinilegt að sú ákvörð-
un nýs ritstjóra Morgunblaðs-
ins, Ólafs Stephensen, að reka
Sigmund fyrirvaralaust úr starfi
hefur fallið í grýttan jarðveg en
Sigmund hafði teiknað fyr-
ir blaðið í 45 ár, eða vel hálfa
mannsævi.
„Það er misskilningur að fundur-
inn í London hafi snúist um stöðu
Landsbankans,“ segir Baldur Guð-
laugsson, ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu. Þetta segir hann
í svari við fyrirspurn DV um stöðu
hans á fundi Björgvins G. Sigurðs-
sonar viðskiptaráðherra og Alista-
irs Darling, fjármálaráðherra
Bretlands, um Landsbankann.
Fundurinn fór fram 2. september en
Baldur átti þá sjálfur hlut í bankan-
um. Hann sat á fundinum sem full-
trúi fjámálaráðuneytisins og var því
beggja vegna borðsins.
Darling áhyggjufullur
Í samtali fjármálaráðherranna
Árna Mathiesen og Alistairs Darling
7. október, sem lesið var upp í Kast-
ljósi fyrir helgi, segir Alistair að á
umræddum fundi hafi hann lýst yfir
miklum
áhyggjum af stöðu Landsbankans í
London. Þegar Árni sagði við Darling
að erfiðlega hefði reynst afla stuðn-
ings við Íslendinga, svaraði hann:
„Ég veit það en ég verð að segja eins
og er að þegar ég hitti kollega þína
og þá hina kemur í raun í ljós að það
sem okkur var sagt reyndist ekki
rétt. Ég hafði mjög miklar áhyggjur
af stöðu bankans í London og þeir
héldu áfram að segja að ekkert væri
að óttast.“
Fáeinum dögum eftir fundinn
með Alistair Darling seldi Baldur
bréfin í Landsbankanum. Það var
um mánuði áður en ríkið þjóðnýtti
Landsbankann og náði hann því að
selja áður en bréfin urðu alveg verð-
laus.
Vissi ekkert umfram
markaðinn
Baldur heldur því fram, eins og
áður segir, að það sé misskilningur
að fundurinn í London hafi snúist
um stöðu Landsbankans. Hann seg-
ir að fundurinn hafi snúist um
það hvernig greiða mætti
fyrir því að hægt yrði að
flytja innistæður á
innlánsreikn-
ingum í
úti-
búi Landsbankans í London yfir í
dótturfélag en hann segir að það
ferli hafi þá verið í gangi. „Þegar ég
seldi hlutabréf mín í Landsbankan-
um nokkru síðar lá ekki annað fyr-
ir en að það mál væri að leysast. Þá
höfðu nýlega birst fréttir í íslensk-
um blöðum um erfiða stöðu Lands-
bankans, meðal annars vegna fyr-
irsjáanlegra stórra útlánatapa hans
sem leiddu til þess að hlutabréf í
bankanum lækkuðu. Þegar ég seldi
hafði ég því engar upplýsingar um
Landsbankann sem markaðurinn
hafði ekki,“ segir Baldur í svarinu.
Sá ekki skýrslu Landsbankans
Fram hefur komið að tveir bresk-
ir hagfræðingar gerðu fyrr
á árinu skýrslu um ís-
lenska fjármála-
kerfið. Hún var
gerð að
frum-
kvæði Landsbankans en í skýrsl-
unni kom fram að hagkerfinu á Ís-
landi stæði ógn af stærð bankanna.
Annar höfundur skýrslunnar seg-
ir að niðurstöður hennar hafi verið
kynntar með fulltrúum ríkisstjórn-
arinnar. Baldur neitaði því, í samtali
við Vísi.is 16. október, að hafa séð
umrædda skýrslu þegar bréfin voru
seld. Hann sagðist raunar ekki hafa
séð hana fyrr en 14. október.
Fátt um svör
DV spurði Baldur einnig að því
hversu stóran hlut hann hafi átt í
Landsbankanum, á hvaða gengi
hann hafi selt og hvort viðskipta-
og/eða fjármálaráðherra hafi vitað
að eignaraðild hans á fundinum 2.
september. Þegar þetta er skrifað
hafði svar ekki borist, ekki frekar
en frá ráðherrunum sem um ræð-
ir. Þeir tveir voru að auki spurðir að
því hvort þeir myndu beita sér fyrir
því að salan yrði skoðuð af eftirlits-
aðilum.
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, segir það misskilning
að fundur Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra og Alistairs Darling, fjár-
málaráðherra Bretlands, í London 2. september hafi snúist um stöðu Landsbankans.
Baldur átti þá hlutabréf í Landsbankanum en seldi þau í kjölfar fundarins þar sem
hann sat sem fulltrúi fjármálaráðuneytisins.
seldi í laNdsbaNka
réTT fyrir hruNið
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Fáeinum dögum eftir fundinn með alistair
darling seldi Baldur bréfin í landsbankanum.“
Fjármálaráðherra ræddi við kollega sinn í
Bretlandi, Alistair Darling Í spjalli þeirra
sagðist darling hafa lýst yfir áhyggjum af stöðu
Landsbankans á fundi í London 2. september.
Segir fundinn í London ekki hafa snúist
um stöðu Landsbankans baldur guðlaugs-
son ráðuneytisstjóri átti hlut í bankanum
þegar hann fundaði með viðskiptaráðherra
og alistair darling í London 2. september.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
leitar minnst þriggja Pólverja vegna
alvarlegrar líkamsárásar sem átti sér
stað við Hverfisgötuna í Reykjavík
að kvöldi laugardags. Minnst fjór-
ir grímuklæddir menn réðust þá til
inngöngu á heimili fjögurra sam-
landa sinna vopnaðir bareflum. Þeir
börðu heimilismenn með stálrör-
um og hafnaboltakyflum þannig
að tveir þeirra þurftu að leita til
bráðamóttöku Landspítalans
vegna höfuðáverka.
Árásarmennirnir voru á bak
og burt þegar lögreglu bar að.
Hin fórnarlömbin tvö voru
einnig með áverka en af-
þökkuðu læknisaðstoð þrátt
fyrir að vera með brotn-
ar tennur eftir árásina og
skurði á baki.
Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglu vita fórnarlömbin
hverjir réðust á þau og er þeirra nú
leitað. Ekki fékkst staðfest
hjá lögreglu nákvæmlega
hversu margra manna er
leitað en minnst þrír árás-
armenn ganga lausir eftir að
lögreglan handsamaði einn
þeirra síðla gærdags.
Þegar haft var samband við
bráðamóttökuna í gærkvöldi
fengust þær upplýsingar að
mennirnir væru farnir þaðan
en ekki liggur fyrir hvort þeir
fóru á aðra deild innan Land-
spítalans eða þeir hafi verið út-
skrifaðir af spítalanum.
Lögreglan verst allra frétta af
málinu en þar fengust þær upp-
lýsingar í gærkvöldi að hinna
árásarmannanna væri enn leitað.
erla@dv.is
Lögreglan leitar minnst þriggja manna sem ganga lausir eftir hrottalega líkamsárás:
Brutu tennur með hafnaboltakylfu
Hrottaleg árás tveir Pólverjar
enduðu á bráðamóttöku með
höfuðáverka eftir líkamsárás
samlanda sinna um helgina.
Lögreglan handtók einn
árásarmanninn í gær en leitar
enn samverkamanna hans.