Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Side 6
mánudagur 27. október 20086 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Lögð hefur verið fram kæra til rík- issaksóknara á hendur Eggert Jóns- syni, aðalvarðstjóra lögreglunnar á Seltjarnarnesi, fyrir að hafa beitt 62 ára konu ofbeldi. 26. september seg- ist Sólveig Jónsdóttir hafa verið tek- in hálstaki af varðstjóranum og hent út af skrifstofu hans með valdi. Egg- ert neitar sök en vill ekki tjá sig um málið. Lögmaður Sólveigar, Þuríður Halldórsdóttir, segir framkomuna afar óeðlilega og bendir á að Sólveig hafi áður lent í vandræðum í sam- skiptum sínum við lögregluna. Í losti „Ég er bara í losti, og er búin að vera í losti seinustu vikurnar,“ seg- ir Sólveig en hún fór á lögreglustöð- ina á Seltjarnarnesi föstudaginn 26. september. Drengir sem búa í sama húsi og Sólveig höfðu hótað henni og ráðist á og skemmt bíl hennar en hún vildi koma því á framfæri við lögreglu. Hún var með ljósmyndir af póstkassa sem hún segir strákana hafa eyðilagt í þrígang og ræddi það við lögreglu- mann. Því næst kom hún við á skrif- stofu Eggerts varðstjóra og spurði hann út í hvað lögreglan myndi gera í málunum. Einhverra hluta vegna reiddist Eggert og bað Sólveigu um að fara. „Hann kom æðandi á móti mér að hurðinni, tók fast utan um mig og kastaði mér út á gang,“ segir Sólveig. Hún segist hafa lent á veggnum og meitt sig en eftir atvikið sagði hún við Eggert að hún myndi kæra hann. Neitar sök Sólveig skrifaði í kjölfarið bréf til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og fékk í kjölfarið bréf þar sem henni var tjáð að búið væri að senda málið til saksóknara. „Þeir eru ráðnir til að passa fólkið en ekki til þess að ráðast á fólk,“ segir Sólveig sem er óánægð með hvernig komið var fram við hana. Eggert þvertekur fyrir að hafa beitt Sólveigu einhverju ofbeldi en viðurkennir að hann hafi vísað henni út af lögreglustöðinni. Hann vill þó ekki tjá sig meira um málið og segir dómstóla þurfa að skera úr um þess- ar fullyrðingar Sólveigar. Sólveig hef- ur áður komið á lögreglustöðina og reyndi hún meðal annars að leggja fram kæru vegna eignarspjalla fyrir nokkru. Óeðlileg afgreiðsla Þuríður Halldórsdóttir, lögfræð- ingur Sólveigar, staðfestir frásögn hennar og segir málið hafa verið kært til ríkissaksóknara sem fer með rannsókn málsins. „Ég tel afgreiðslu lögreglunnar gagnvart þessari konu afsakaplega óeðlilega og framkomu líka,“ segir hún en hún fór með Sól- veigu á lögreglustöðina fyrir nokkru. Þá ætlaði Sólveig að kæra eignaspjöll á bíl og öðru á sameigninni en lög- reglan gerði að Þuríðar sögn ekkert í því. Svörin sem þær fengu hjá lög- reglunni voru þau að það væri bara hægt að senda skriflegt erindi. „Ég hef aldrei fengið svona afgreiðslu hjá lögreglunni áður. Þeir gáfu enga ástæðu og hlógu eiginlega,“ segir Þuríður. Sólveig hefur áður lagt fram kæru vegna eignaspjalla en það mál datt dautt niður. Hún segist vonast til þess að þetta mál verði ekki látið nið- ur falla. 62 ára kona segist hafa orðið fyrir því að varðstjóri lögreglunnar hafi beitt hana ofbeldi og hent henni út af skrifstofunni. Hún hefur lagt fram kæru í málinu og vill að réttlætið nái fram að ganga. Varðstjórinn neitar sök og segir að dómstólar muni komast að því rétta í málinu, hann hafi ekkert rangt gert. Lögfræðingur Sólveigar Jónsdóttur segist aldrei hafa kynnst slíkum vinnubrögðum hjá lögreglunni. KÆRIR LÖGGU FYRIR LÍKAMSÁRÁS JÓN bJarki magNúSSoN blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is Í sjokki Sólveig Jónsdóttir segist ennþá vera í sjokki en hún sakar varðstjóra lögreglunnar um að hafa beitt hana ofbeldi. „ég er bara í losti, og er búin að vera í losti sein- ustu vikurnar.“ „Við fréttum bara af þessu í gegn- um foreldra. Ein dagmóðirin hringdi í mig og sagði að móðir barns sem er hjá henni hafi fengið hringingu þar sem móðurinni var boðið að koma með barnið sitt á þennan leikskóla,“ segir Guðrún Þ. Ævarsdóttir, formað- ur dagmæðra á Suðurnesjum, en á næstunni tekur til starfa ungbarna- deild við Leikskólann Háaleiti á Vall- arheiði í Reykjanesbæ. Þar er boðið upp á þau nýmæli að veita gæslu fyrir börn á aldrinum níu til tveggja ára. „Það er þungt hljóðið í mörgum dagmæðrum. Sumar þeirra eru þegar með laus pláss, jafnvel tvö eða þrjú. Ef það koma ekki inn fleiri börn sjá sum- ar þeirra jafnvel fram á að þurfa að fá sér nýtt starf,“ segir Guðrún. Hún segir vissulega marga foreldra hafa afþakkað dvöl fyrir ungbörn sín á leikskólanum og kjósi frekar að hafa þau hjá dagmæðrum. Undanfarið hefur verið fjölgun á dagmæðrum á Suðurnesjum og seg- ir Guðrún að dagmæður hafi beint þeim tilmælum til bæjarskrifstofunn- ar að þær sem sækja þar um leyfi til starfseminnar fái upplýsingar um að minna sé nú að gera en á sama tíma á síðasta ári. Leikskólinn Háaleiti var opnaður fyrir um tveimur mánuðum. Þar er pláss fyrir áttatíu börn en samkvæmt nýjustu tölum hefur aðeins verið sótt um pláss fyrir sautján börn. Nýting plássa var því aðeins 20 prósent og því brugðið á það ráð að opna ung- barnadeild. Eftir að dagmæður fréttu af breyt- ingunum boðuðu þær Árna Sigfús- son, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, á sinn fund. Í samtali við DV segir Árni að hann telji áhyggjur dagmæðra ástæðulausar. „Ég stappaði í þær stál- inu. Það getur varla gerst að það verði neinn flótti frá þeim,“ segir Árni. Hann bendir á að vist hjá dagmæðrum hafi ýmsa kosti umfram vistun á leikskóla og mikilvægt að foreldrar íhugi þá. Aðspurður hvort ekki hefði verið rétt af bæjaryfirvöldum að upplýsa dagmæður um að til stæði að opna ungbarnadeild segir hann: „Ég tel að það hefði litlu breytt hvenær menn væru upplýstir.“ erla@dv.is Dagmæður á Suðurnesjum eru uggandi um sinn hag vegna opnunar ungbarnadeildar: Ungbarnadeild ógnar dagmæðrum Ástæðulausar áhyggjur á næstunni verður opnuð ungbarnadeild við Leikskólann Háaleiti á Vallarheiði þar sem tekið er við börnum allt niður í níu mánaða aldur. árni Sigfússon bæjarstjóri telur áhyggjur dagmæðra óþarfar. Skora á ráða- menn að mæta „Hvernig gat þetta gerst?“ er spurning sem þeir Gunnar Sig- urðsson leikstjóri og Davíð A. Stefánsson bókmenntafræðing- ur vilja fá svar við í kjölfar efna- hagsþrenginga hér á landi. Því hafa þeir boðað til borgarafund- ar í Iðnó í kvöld klukkan átta og skora á ráðherra, þingmenn, seðlabankastjóra, stjórn Seðla- bankans og fyrrverandi banka- stjóra viðskiptabankanna að mæta. Í tilkynningu frá Gunn- ari og Davíð segir að misvísandi skilaboð ráðamanna berist í gegnum fjölmiðla og því nauð- synlegt að ráðamenn ræði beint við fólkið í landinu í kvöld. Bjargað tvisvar sama daginn Óheppnin elti ökumann sem saknað var í gærkvöldi og hófu þrjár björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Lands- bjargar leit að manninum. Talið var að hann væri á leið frá Egilsstöðum til Vopnafjarð- ar en veður var afar slæmt á svæðinu. Maðurinn fannst Héraðsmegin á Hellisheiði eystri um níuleytið í gærkvöldi þar sem fólksbíllinn sem hann var á sat fastur. Fyrr um daginn sótti björg- unarsveitin Hérað þennan sama mann þegar hann lenti í vandræðum á Öxi. Gera má ráð fyrir að hann leggi ekki í langferð á næstunni nema gera grein fyrir ferðum sínum og verði vel útbúinn. Tveir stútar á Suðurnesjum Suðurnesjamenn voru heldur hávaðasamir um helgina og þurfti lögreglan að sinna þó nokkrum útköllum í heimahús aðfaranótt sunnu- dagsins vegna óláta. Þurfti lögregla að hafa afskipti af fólki vegna ölvunar en einnig heim- sótti hún nokkur heimili þar sem gerð var sú krafa að tónlist yrði dempuð niður og öðrum hávaða haldið í lágmarki. Einn ökumaður var svipt- ur ökuréttindum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum aðfaranótt sunnudags vegna ölvunar við akstur. Annar öku- maður missti ökuréttindi sín nóttina áður fyrir sömu sakir. Móðgun að fá Breta Fyrirhuguð koma breskra herflugvéla til Íslands í árslok er, í ljósi nýjustu atburða, móðgun við Íslendinga. Þetta segir í álykt- un Kjördæmissambands fram- sóknarmanna í norðausturkjör- dæmi sem þingaði á Egilsstöðum um helgina. Að mati framsóknar- manna geta Bretar ekki talist vin- veitt ríki, með hliðsjón af því að þeir hafi beitt hryðjuverkalögum gegn íslenskum fyrirtækjum og sagt íslenska ríkið gjaldþrota, og því væri óeðlilegt að breskir her- menn stígi fæti sínum á íslenskra grund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.