Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Síða 8
mánudagur 27. október 20088 Fréttir
„Það keyptu allir allt sem þeim
datt í hug. Það var bara hugarfar-
ið, hvort sem menn sætta sig við
það nú eða ekki. Það þýðir ekkert
að segja núna: Þið eruð bara vit-
leysingar.“
Þetta segir Björgólfur Guð-
mundsson í miðli sínum, Morg-
unblaðinu, um helgina. Í fjög-
urra síðna viðtali í blaðinu kennir
Björgólfur almenningi, Seðla-
bankanum, ríkinu og fjölmiðlum
um það hvernig fyrir efnahagslíf-
inu er komið. Hann segir að pen-
ingarnir frá Icesave og skatttekjur
frá bönkunum séu ástæðan fyrir
góðri stöðu ríkissjóðs. Ráðuneyt-
in hafi ár hvert keyrt langt umfram
fjárveitingar. „Af hverju heldurðu
að ríkið standi svona vel? Það er
meðal annars vegna þess, að tekj-
ur af þessum lánum og skatttekjur
frá bönkunum hafa gert ríkinu fært
að greiða niður skuldir ríkissjóðs.“
Björgólfur heldur áfram: „Þú
[Agnes Bragadóttir blaðamaður]
veist ósköp vel, að kaupæðið sem
rann á okkur Íslendinga var óskap-
legt og ég hygg að þar séu fáir
undanskildir. Jeppar voru keyptir
í hundraða vís, sumarhús sömu-
leiðis og hjólhýsi, svo dæmi séu
nefnd, að nú ekki sé talað um alla
flatskjáina, raftæki og hvað eina.
Íslenskt þjóðfélag gjörbreyttist
ótrúlega hratt, ekki síst vegna þess
að við gátum útvegað þessa pen-
inga sem ríkið, sveitarfélög, fyrir-
tæki, félagasamtök og einstakling-
ar nutu svo góðs af.“
Gæti grátið
Í viðtalinu segir Björgólfur enn
fremur að hann gæti grátið yfir því
hversu margir eru að missa mik-
ið á Íslandi í dag. Hann segir að
Landsbankinn hefði aðeins þurft
eina viku í viðbót til að semja við
Bretana, þegar aðgerðir ríkisins
gegn íslenskum bönkum hófust.
„Það gerðist einfaldlega þannig
að þegar Glitnir var tekinn voru
allar lánalínur og öll bankasam-
bönd í einu vetfangi rifin af okkur
Íslendingum. Þá gátum við ekki
lifað lengur. Sú aðgerð, ein og sér,
er sú hættulegasta og skaðlegasta
sem framin hefur verið gagnvart
íslensku þjóðfélagi,“ segir hann.
Björgólfur talar um óstjórn í
efnahagsmálum og segir: „Það
þýðir ekkert fyrir stjórnmálamenn,
Seðlabanka eða Fjármálaeftirlit að
hlaupa upp til handa og fóta og
benda á okkur og
hrópa
„Icesave! Icesave!“ til þess að bjarga
sjálfum sér. Þeirra er ábyrgðin og
hefur alltaf verið.“ Hann segir enn
fremur að íslensku fjölmiðlarnir
hafi brugðist. Þeir einblíni bara á
hið neikvæða eins og skuldirnar,
en tali ekkert um eignirnar sem
vegi upp á móti.
Sökin er ríkisins og
Seðlabankans
Útrásarvíkingarnir hafa einn af
öðrum komið fram í fjölmiðlum og
kennt öðrum um hvernig komið er
fyrir þeim og öðrum Íslendingum.
Björgólfur Thor Björgólfsson verð-
ur í viðtali hjá Kompási í kvöld en
ef marka má auglýsingar fyrir þátt-
inn segist hann allur af vilja gerð-
ur til að hjálpa þjóðinni en sé ekki
aflögufær með fjármagn. Hann
segir að ríkisstjórnin og Seðla-
bankinn hafi klúðrað tækifær-
inu til að afstýra því hvernig nú er
komið. Degi áður en neyðarlögin
hafi verið samþykkt á Alþingi hafi
bresk stjórnvöld verið tilbúin til
að ábyrgjast alla reikninga Icesave
gegn 200 milljóna punda trygg-
ingu frá Landsbankanum.
„Á mánudeginum þurftum
við tvö hundruð milljónir til þess
að geta komið þessu í breska lög-
sögu. Við báðum um það á sunnu-
deginum og töldum, menn voru
í góðri trú, að menn myndu fá
það á mánudegi til að borga það,
að sjálfsögðu, til að koma þessu í
breska lögsögu. Svo næsta morg-
un á mánudeginum berst ekkert
svar frá Seðlabankanum þarna
um morguninn. Ekki klukkan
átta, ekki klukkan níu, ekkert svar
klukkan tíu, ekkert svar klukkan
ellefu. Svo klukkan tólf kemur að
því að við þurfum að borga breska
fjármálaeftirlitinu klukkan tólf,“
segir Björgólfur í Kompásþætti
sem sýndur verður annað kvöld en
hluti úr viðtalinu var birtur í frétt-
um Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Hann heldur áfram „Tíminn
líður og ekkert svar. Hálftíma síð-
ar kemur svar frá Seðlabankanum:
Þið fáið ekki fyrirgreiðslu. Þetta
er mér algörlega óskiljanlegt. Al-
gjörlega. Og ég tel að hefðu menn
hugsað sitt ráð og hefðu menn
unnið saman að þessu væri Ice-
save komið í enska lögsögu og við
værum ekki í þessum vandamál-
um og þessum milliríkjadeilum
við Bretland,“ segir hann.
Baugur líður fyrir milliríkja-
deilu
Jón Ásgeir Jóhannesson hefur
sagt, rétt eins og þeir
Björgólfsfeðgar, að ríkið og Seðla-
bankinn séu ábyrg fyrir því hvern-
ig komið sé fyrir þjóðinni nú, auk
þess sem alþjóðleg lausafjár-
kreppa hafi leikið Íslendinga grátt.
Hann hefur sagt að hann hafi allt
sitt undir. Baug þurfi nú að selja á
brunaútsölu vegna þeirrar milli-
ríkjadeilu sem upp hafi komið á
milli Breta og Íslendinga. Baugur
hafi því misst allt lánstraust í Bret-
landi.
Viðurkennir mistök
Lýður Guðmundsson, kenndur
við Bakkavör, er stjórnarformaður í
Exista, áður stærsta eiganda Kaup-
þings, en félagið hefur fallið um 86
prósent á einu ári. Lýður sagði afa
sinn hafa kennt sér að yfirmenn-
irnir ættu síðastir að fara frá borði
ef eitthvað kæmi upp á. „Við bræð-
ur ætlum síðastir frá borði,“ sagði
hann og bætti því við að hann teldi
sig ekki lengur auðmann. Hann
viðurkenndi mistök í viðtalinu við
Björn Inga Hrafnsson, ritstjóra
Markaðarins. „Það voru mistök að
færa ekki Kaupþing úr landi þeg-
ar umsókn bankans um að skrá
hlutafé í evrum var hafnað,“ sagði
Lýður og bætti því við að þeir hafi
verið að ræða um að færa Kaup-
þing úr landi þegar ríkið tók bank-
ann yfir. Hann er einn fárra sem
viðurkenna og benda á dæmi þar
sem þeir hafi brugðist.
Lýður sagði einnig í viðtalinu
að ekki hefði komið til tals að óska
eftir ríkisábyrgð fyrir innlán Kaup-
þings erlendis. „Okkar innlán
voru með þeim hætti að þau eru
ekki að falla á íslenska ríkið. Aðrir
gerðu þetta með öðrum hætti. Og
ég held að þeir verði að svara fyrir
það sem það gerðu,“ sagði hann en
bætti því aðspurður við að það hafi
haft áhrif á fall Kaupþings
í Bretlandi, sem
hafi leitt
til
falls móðurfélagsins á Íslandi.
Björn Ingi ritaði sjálfur leiðara í
Fréttablaðinu í gær þar sem hann
varpaði sök að hluta til á almenn-
ing. „Við vorum of kappsöm, fór-
um of geyst og súpum nú seyðið
af því.
Ekki bara útrásarvíkingarn-
ir sem töldu sig hafa fundið vís-
dóminn eina í viðskiptum, held-
ur líka við hin sem fannst gaman
í veislunni og gott að þurfa ekki
lengur að eiga fyrir hlutunum. Met
í fjölda flatskjáa á hvert heimili var
ekki endilega það heimsmet sem
að var stefnt,“ skrifaði Björn Ingi en
sagði svo. „Við berum hér öll sök,
mismikla að vísu.“
Ekki upprifinn yfir svörunum
Þáttastjórnandinn Egill Helga-
son skoraði í þætti sínum, Silfri Eg-
ils, á útrásarvíkinganna að koma
fram og standa fyrir máli sínu.
Það hafa þeir nú margir hverjir
gert. Egill er nú samt ekki sérlega
ánægður með þá. „Mér finnst þeir
nú ekkert sérstaklega duglegir að
líta í eigin barm og skoða mistökin
sem þeir hafa sjálfir gert. Þeir hafa
frekar verið duglegir að kenna öðr-
um og ytri aðstæðum um hvernig
komið er,“ segir Egill.
„Manni finnst eins og þeir séu
enn í einhverju fantasíulandi. Ég
sá reyndar ekki viðtalið við Lýð en
það sem ég hef lesið er allt í sama
anda. Það er ekkert verið að fara
fram á það að þeir fremji eitthvert
„harakiri“ eða eitthvað slíkt. Þeir
benda hins vegar á alla aðra en
sjálfa sig,“ segir Egill og bætir því
við að honum finnist frekar klént
að Björgólfur Guðmundsson skuli
hafa kosið að tala bara við sitt eig-
ið blað, Morgunblaðið. „Það er
bæði veikt fyrir hann og blaðið,“
segir hann. Egill segir að þessir
menn hefðu betur stigið fram fyrr
en þeir gerðu. Lánalínur hafi tekið
að lokast í ágúst í fyrra og þá hafi
atburðarásin farið á fullt.
Vill að þeir víki strax
„Sektin er auðvitað eftirlits-
stofnana sem áttu að hafa taum-
hald á þessum mönnum og
stjórnmálamanna sem
settu reglurnar. Þær regl-
ur sem voru í gildi
hefðu dugað til að stöðva ofurvöxt
bankanna. Það er enginn vafi á
því að yfirmenn og stjórnir Seðla-
bankans og Fjármálaeftirlitsins
eru sekar um alvarleg afglöp og
eiga að sjálfsögðu að segja af sér
umsvifalaust,“ segir Guðmundur
Ólafsson hagfræðingur, spurður
um það hverjum efnahagshrunið
sé um að kenna.
Hann segir margt gott hægt
að segja um útrásina, þó á meðal
þeirra manna megi finna þvílíka
fjárglæframenn að það jaðri við að
um vitsmunalega sekt sé að ræða í
sumum tilvikum.
Ingimundur og Jón
Sigurðsson ábyrgir
Guðmundur segir með ólík-
indum að aðeins einn einstakling-
ur í Seðlabankanum hafi sagt af
sér en það var Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, fulltrúi Samfylkingar-
innar í bankaráði Seðlabankans.
„Tveir menn eru stjórnarmenn og
yfirmenn í þessum báðum stofn-
unum. Það eru Jón Sigurðsson,
sem er varaformaður bankaráðs
Seðlabankans og formaður stjórn-
ar Fjármálaeftirlitsins. Hann ber
þarna mjög mikla ábyrgð. Hinn
er Ingimundur Friðiksson, banka-
stjóri í Seðlabankanum og stjórn-
armaður í Fjármálaeftirlitinu. Það
er mín skoðun að þessir menn
eigi að víkja þegar í stað. Það er
með ólíkindum að varaformaður
bankaráðs og stjórnarmaður Fjár-
málaeftirlitsins skuli nú stjórna
nær öllum íslenskum fjármála-
stofnunum,“ segir Guðmundur.
Hann segir að Seðlabankinn
beri ábyrgð á peningakerfinu og
þar af leiðandi gengishruni, vaxta-
okri og verðbólgu. Meira að segja
bankinn sjálfur sé gjaldþrota.
„Hvað þarf til þess að menn séu
uppvísir að vanhæfni og afglöpum
ef ekki þetta? Allt sem hefur gerst
í atburðarás undanfarins eins og
hálfs árs nægir til þess að þetta fólk
fari frá,“ segir hann.
Spurður um sekt almennings
segir Guðmundur að fólk sé stund-
um fljótt að sakfella menn sem
hafi ofurlaun. Það sé oft og tíð-
um vegna öfundar. Hann er ekki
sammála Björgólfi Guðmunds-
syni um að sektin liggi að hluta
til hjá almenningi. „Það má hins
vegar velta því fyrir sér hvort allir
þeir hagfræðingar og sérfræðing-
ar, sem ekkert létu í sér heyra und-
anfarin fimm ár, beri ábyrgð fyr-
ir það að hafa látið þetta fram hjá
sér fara,“ segir hann en bætir því
við að stjórnmálamennirnir beri
auðvitað líka ábyrgð. „Þeirra bíður
dómur kosninga,“
segir hann alvar-
legur í bragði að
lokum.
Útrásarvíkingarnir hafa í viðtölum síðustu vikuna keppst við að kenna almenningi, ríkisstjórninni, Seðla-
bankanum og fjölmiðlum um það hvernig fyrir þjóðinni er komið í efnahagsmálum. Að þeirra mati liggur
sökin hjá öllum öðrum en þeim sjálfum. Björgólfur Guðmundsson segir góða stöðu ríkissjóðs innlánum
og skatttekjum frá bönkunum að þakka. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, bendir einn út-
rásarvíkinga á eigin mistök. Hagfræðingur segir ábyrgðina liggja hjá eftirlitsstofnunum og vill að yfir-
menn í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu segi af sér tafarlaust.
Þetta er ykkur að kenna
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Það þýðir ekkert fyr-
ir stjórnmálamenn,
Seðlabanka eða Fjár-
málaeftirlit að hlaupa
upp til handa og fóta
og benda á okkur og
hrópa „Icesave! Icesa-
ve!“ til þess að bjarga
sjálfum sér. Þeirra er
ábyrgðin og hefur alltaf
verið.“
„Hvað þarf til þess að
menn séu uppvísir að
vanhæfni og afglöpum
ef ekki þetta?“
„Við bræður ætlum
síðastir frá borði“
Segir Lýður guðmunds-
son stjórnarformaður
exista, áður stærsti
eigandi kaupþings.
Kennir ríkinu og Seðlabanka um
Jón ásgeir Jóhannesson segir að erlend
lausafjárkreppa hafi leikið landið grátt.
Skoraði á útrásarvíkingana
að gefa sig fram
egill Helgason gefur lítið fyrir
skýringar þeirra og segir þá
benda á alla nema sjálfa sig.
Kennir almenningi um
björgólfur guðmundsson
segir kaupæði almennings
eina af ástæðum þess hvernig
fyrir okkur fór.
Björgólfur Thor segir
yfirtöku ríkisins ástæðuna
fyrir fallinu. Segist ekki
geta lagt til fjármuni til
uppbygginar.
Vill umsvifalausar
uppsagnir stjórnenda
eftirlitsstofnana
guðmundur ólafsson
hagfæðingur vill Ingimund
og Jón Sigurðsson burt.