Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Side 12
mánudagur 27. október 200812 Fréttir
Nú eru níu dagar til forsetakosninga
í Bandaríkjunum og kosningabar-
áttan ber þess æ skýrari merki að
senn líður að ögurstund. Frambjóð-
andi demókrata, Barack Obama,
sakar andstæðing sinn, repúblikan-
ann John McCain, um að beita fyrir
sig neikvæðum áróðri á endasprett-
inum.
Í Nevada-fylki sagði Obama að
„ljót símtöl, afvegaleiðandi póstur
og sjónvarpsauglýsingar, ógætilegar,
svívirðilegar athugasemdir“ kæmu í
veg fyrir „breytingar“.
John McCain sakaði Obama
um að dansa sigurdans áður en
sigur væri í höfn. Báðir frambjóð-
endur einbeita sér nú að mik-
ilvægum fylkjum í vesturhluta
Bandaríkjanna.
Í síðustu kosningum voru Nev-
ada, Nýja-Mexíkó og Koloradó öll
á bandi repúblikana, en nú gæti
brugðið til beggja vona og úrslit
í fylkjunum gætu reynst þung á
vogarskálunum ef mjótt verður
á mununum 4. nóvember. Eins
og sakir standa sýna kannanir að
Obama hefur gott forskot.
Obama er nýsnúinn til baka
í kosningabaráttuna, en hann
gerði hlé á henni til að heimsækja
aldraða ömmu sína á Havaí, en
hún hafði verið lögð á sjúkrahús
vegna krankleika. Þegar Obama
sneri aftur var hann ómyrkur í
máli um þá stefnu sem McCain
hafði tekið. „Á endasprettinum
taka „segja-hvað-sem-er, gera-
hvað-sem-er“-stjórnmál of oft
völdin,“ sagði hann í Las Vegas.
„Bandaríska þjóðin hefur ekki
áhuga á að heyra stjórnmála-
menn ráðast hver á annan – hún
vill heyra hvernig þeir hyggjast
ráðast gegn þeim áskorunum sem
snúa að daglegu lífi miðstéttar-
fjölskyldna,“ sagði Obama. Hann
gerði tilraun til að sýna fram á
tengsl McCains við stefnu fráfar-
andi forseta, George W. Bush, og
sagði að McCain hefði verið svo
andvígur stefnu Bush að hann
hefði greitt atkvæði með henni í
níutíu prósentum tilfella. „Það er
rétt, hann ákvað að láta George
Bush heyra það óþvegið í tíu pró-
sentum tilfella,“ sagði Obama og
líkti því við ef Robin yrði reiður
við Leðurblökumanninn.
Í Mesilla í Nýju-Mexíkó vitn-
aði John McCain í frétt úr New
York Times þar sem sagt var að
í herbúðum Obama væru menn
nú þegar búnir að leggja drög að
innsetningarræðu fyrir Obama,
frétt sem liðsmenn Obama hafa
sagt vera „fullkominn upp-
spuna“.
„Innsetningarræða Obama
hefur verið skrifuð. Ég er ekki að
skálda það. Fjöldi kjósenda er
óákveðinn, en hann hefur tekið
ákvörðun fyrir þá,“ sagði McCain.
Hann bætti við: „Það sem Banda-
ríkin þarfnast nú er einhver sem
er reiðubúinn til að klára slaginn
áður en hann dansar sigurdans-
inn.“ Í tilraun til að fjarlægja sig
frá Bush forseta sagði McCain að
bandaríska þjóðin gæti ekki eytt
næstu fjórum árum á sama hátt
og stórum hluta síðustu átta ára,
í að vona að lukkan snúist á sveif
með Bandaríkjunum heima eða
erlendis.
Samkvæmt könnun tíma-
ritsins Newsweek hefur Obama
þrettán prósenta forskot á John
McCain.
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Nú líður senn að ögurstundu í forsetakosningunum í Bandaríkjunum:
obama og McCain kona virðir fyrir sér
listaverk af frambjóðendunum á sýningu í París.
Frambjóðendur
skjóta Föstum skotum
Tígrisdýrum hefur fjölgað í Bengal vegna flóða í Bangladess:
Skilja eftir sig fjölda ekkna
Í Deulbari, afskekktu þorpi í Beng-
al, þekkja allir þorpsbúar einhvern sem
hefur orðið fyrir barðinu á tígrisdýri.
Hingað til hafa tígrar og menn lifað í
nokkurri sátt og samlyndi á þessu af-
skekkta svæði í Vestur-Bengal. Árið 2004
fór fram talning á tígrum í Vestur-Beng-
al, og niðurstaðan var tvö hundruð sjö-
tíu og fjögur dýr, en það er af sem áður
var og fjölgun tígra fylgja tíðari árásir.
Að sögn þorpsbúa er vitað um að
minnsta kosti fimmtán árásir tígra það
sem af er ári og þar af sex banvænar.
Árásirnar skilja eftir sig sístækkandi hóp
ekkna, og hryllilegum frásögnum fjölg-
ar.
Krabbaveiðimenn og hunangs-
safnarar eru í hópi þeirra sem í mestri
hættu eru. Þeir geta ekki leyft sér að sitja
heima vegna þeirrar ógnar sem tígurinn
er. Þótt afrakstur krabbaveiðimanna af
aflanum sé ekki mikill munar um allt og
saman leigja þeir sér bát og leggja í leið-
angur sem gæti verið þeirra síðasti. Leið
þeirra liggur um svæði sem Bengaltíg-
urinn hefur gert að sínu eftir að hafa flú-
ið flóð í nágrannaríkinu Bangladess og
hann kann vel að meta mannakjöt.
Eitt fórnarlamba tígursins var Swap-
an Haldar, þrjátíu og fimm ára krabba-
veiðimaður. Þrátt fyrir ítrekaða ósk eig-
inkonu sinnar um að fara hvergi lagði
hann í leiðangur ásamt félögum sín-
um. Félagar Haldars sneru heim næstu
nótt með lík hans í farteskinu. Ekkja
hans, Minati, fékk að heyra hvern-
ig dauða hans bar að höndum. Eigin-
mann hennar grunaði ekki að tígris-
dýr væri í grenndinni fyrr en það lét til
skarar skríða. Það læsti kjaftinum utan
um höfuð hans og dró hann inn í skóg-
inn. Þegar félagar hans fundu hann var
hann dáinn. „Fólk er hjálparvana, en
einhvern veginn verðum við að búa
hér,“ sagði Minati.
Þegar blaðamaður breska dagblaðs-
ins Observer var í Deulbari voru tuttugu
og níu ekkjur samankomnar í sam-
komuhúsi þorpsins. Allar höfðu þær
svipaða sögu að segja og höfðu upp-
lifað sama missi. En engu að síður eru
tilfinningar þorpsbúa ekki litaðar óvild
í garð Bengaltígursins. „Við höfum allt-
af lifað með tígrunum. Það er hluti til-
verunnar hér,“ sagði einn fyrrverandi
kennari í Deulbari. Hann bætti við að
þessir árekstrar myndu halda áfram því
mannæturnar leita í mannakjöt. „Þegar
þær eru komnar á bragðið, munu þær
ávallt leita í það,“ sagði kennarinn.
bengaltígur kann vel
að meta mannakjöt.