Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Blaðsíða 13
mánudagur 27. október 2008 13Fréttir
Myrti sýndareiginmann sinn
Japönsk kona var handtekin í Japan í
síðustu viku eftir að hafa drepið sýnd-
areiginmann sinn í vinsælum tölvu-
leik. Hin fjörutíu og þriggja ára kona
varð víst ekki sátt við að komast að því
að hann hafði skilið við hana í leikn-
um, Maplestory. Að sögn lögreglunn-
ar komst hún með ólögmætum hætti
yfir innskráningaratriði þess sem lék
eiginmanninn og eyddi persónu hans.
Til þess hafði konan ferðast 1.000
kílómetra leið til heimabæjar „eigin-
mannsins“. Konan situr nú í fangelsi
í Sapporo og bíður þess að komast
að hvort hún verður ákærð fyrir að
brjóstast inn í tölvu og breyta gögnum.
Hún gæti átt yfir höfði sér fimm ára
fangelsisvist og sekt sem nemur allt að
600.000 krónum.
Hefur áhrif á blóðþrýsting
Það kann vel að vera að það valdi
hærri blóðþrýstingi hjá mörgum þegar
einhver rekur við í návist þeirra. En sá
sem rekur við nýtur hins vegar góðs
af því gasi sem hann hefur sleppt út í
andrúmsloftið.
Vísindamenn við John Hopkins-há-
skólann í Maryland í Bandaríkjun-
um hafa komist að því að myndun
brennisteinsvetnis í þörmunum hefur
góð áhrif á blóðæðarnar. Rannsóknir
á músum hafa leitt í ljós að brenni-
steinsvetnið víkkar æðarnar og með-
því er hægt að koma lagi á blóðþrýst-
inginn.
Þessi nýja uppgötvun kann að leiða
til fleiri möguleika við meðhöndlun á
háum eða lágum blóðþrýstingi, segja
vísindamennirnir.
Át sig í hel
Tuttugu og þriggja ára mathákur
hné niður þegar hann tók þátt í
átkeppni í háskóla sínum á Taív-
an.
Nemandinn, Chang að nafni,
var í óða önn að úða í sig brauði
fylltu með grjónum og osti og
hafði auk þess gleypt í sig eitthvað
af skammti liðsfélaga síns þegar
hann byrjaði að kasta upp og hné
síðan dauður niður.
Fyrir tilstilli þessa nema hafði lið
hans tekið forystu í keppninni
„Stærsti maginn“ í Dayeh-háskól-
anum.
Ef Chang hefði náð fyrsta sæti í
keppninni hefði hann orðið sjö
þúsund krónum ríkari, hann átti
ekki því láni að fagna.
Íshellan á norðurpólnum bráðnar
á methraða hvort heldur sem er að
sumri eða vetri. Þetta er niðurstaða
breskra vísindamanna, en þeir hafa
komist að því að sumarbráðnun,
sem í ár varð til þess að norðvest-
ursiglingaleiðin opnaðist, heldur
áfram um vetrarmánuðina. Síðasta
vetur þynntist sjávarís sem nemur
nítján prósentum.
Allajafna hefur íshellan minnk-
að að sumri til en stækkað að vetri,
en niðurstöður vísindamannanna
benda til að sá tími sem íshellan
nær að endurnýja sig verður sífellt
styttri.
Katharine Giles prófessor, sem
stýrði rannsókninni, sagði að rann-
sóknin hefði leitt í ljós að þykkt sjáv-
aríss við Norðurpólinn hefði hægt og
bítandi orðið minni, en síðan hefði
þykkt íssins snarminnkað. „Eftir
metbráðnun sumarið 2007 tók þykkt
vetraríssins einnig mikla dýfu. Það
sem veldur áhyggjum er að sjávar-
ísinn hopar ekki eingöngu heldur
þynnist hann líka,“ sagði Giles.
En ástæður þynningarinnar eru
einnig áhyggjuefni í sjálfum sér.
Katherine Giles komst að því að loft-
hiti veturinn 2007 var það lágur að
ekki er hægt að kenna honum um.
Því þarf að leita orsakanna ann-
ars staðar og mögulegt er að hækk-
andi hitastig sjávar eða breytingar
á hringrás sjávar hafi borið heitara
vatn undir ísinn. Ef sú er raunin má
leiða að því líkur að Norðurheim-
skautsísinn muni bráðna mun hrað-
ar en fyrr hefur verið talið. Að mati
nokkurra vísindamanna er ekki
loku fyrir það skotið að sumaríshell-
an gæti heyrt sögunni til innan ára-
tugar.
Meðalþykkt sjávaríss á Norður-
pólnum, síðastliðinn vetur, var um 26
sentímetrum minni en meðalþykkt
síðustu fimm vetra, sem svarar til um
10 prósenta þynningar. En sjávarís á
vestanverðum Norðurpólnum hafði
þynnst mun meira, eða um 49 sentí-
metra, sem leiddi til þess að norð-
vestursiglingaleiðin opnaðist sum-
arið 2007 og varð fær skipum í fyrsta
skipti í um þrjátíu ár.
Niðurstöður Katherine Giles
prófessors styðja niðurstöður Pet-
ers Wadham, sjávareðlisfræðings við
Cambridge-háskólann. Hann hefur
sex sinnum farið undir íshelluna síð-
an 1976 og safnað gögnum. Wadham
birti fyrstu skýrslu sína um ástand
íssins árið 1990, þar sem hann sýndi
fram á að norðurheimskautsísinn
hafði þynnst sem nemur 15 prósent-
um á árunum 1976 til 1987. Í mars
2007 fór Wadham undir íshelluna og
komst þá að því að hún var einungis
50 prósent af þykktinni árið 1976.
„Þessi gríðarlega hopun síðastlið-
inna tveggja sumra er hámark þynn-
ingarferlis sem átt hefur sér stað um
áratugabil og nú er ísinn einfaldlega
að hverfa,“ sagði Wadham.
Kjarni bráðnunarinnar er í sjálfu
sér ekki flókin vísindi. Ísinn er hvít-
ur og endurkastar stærstum hluta
sólarljóssins afur upp í himinhvolf-
ið. Þegar hann bráðnar opnast haf-
svæði sem eru dökk og drekka í sig
sólarljósið, hitna og hraða bráðn-
uninni. „Þetta er eitt alvarlegasta
vandamál sem jörðin hefur staðið
frammi fyrir,“ sagði Peter Wadham.
„Þessi gríðarlega hopun síðastliðinna tveggja
sumra er hámark þynningarferlis sem átt hefur
sér stað um áratugabil og nú er ísinn einfaldlega
að hverfa,“ sagði Wadham.
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Rannsóknir á íshellu norðurheimskautsins gefa ekki ástæðu til bjartsýni. Ef spá vísindamanna gengur
eftir mun sumaríshellan heyra sögunni til innan áratugar. Sumarið 2007 opnaðist, í fyrsta sinn í þrjátíu
ár, norðvestursiglingaleiðin og ef fer sem horfir gæti það verið til frambúðar. Talið er að ástæður geti
verið hækkandi hitastig sjávar eða breyting á hringrás sjávar.
ÍsHellan
Hopar og
þynnist
tireless, kafbátur konung-
lega breska sjóhersins
Peter Wadham sjávareðlis-
fræðingur hefur farið fjölda
leiðangra undir íshellu
norðurheimskautsins.