Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Qupperneq 19
Má ekki tala uM
sambandið
mánudagur 27. október 2008 19Sviðsljós
Samantha Ronson er sögð
hrædd um að kærasta henn-
ar, leikkonan Lindsay Lohan
skipti aftur um lið og ætlar hún
þess vegna að biðja Lindsay
um að giftast sér sem fyrst til
þess að tryggja að Mean Girls-
leikkonan verði með henni til
æviloka.
Samantha gæti þurft flýta
bónorðinu því Lindsay er sögð
vera yfir sig heilluð af Gossip
Girl-leikaranum Chace Craw-
ford. Leikkonan rakst á kyn-
tröllið í teiti á dögunum og
hætti ekki að daðra við hann.
„Lindsay stóð þannig að
einhver hluti af líkama henn-
ar snerti alltaf unga leikar-
ann. Eitt skiptið var hún byrj-
uð að nudda mjöðm sinni upp
að hans. Augnaráðið sem hún
sendi honum var hreint dóna-
legt, hún hvíslaði í eyra hans og
sneri öllu sem hann sagði upp
í kynferðislegt tal,“ segir heim-
ildarmaður við Daily Mirror.
Og leikkonan hætti ekki þar.
Hún gerir lítið annað þessa
daganna en að senda Chace
daðursleg sms-skilaboð sam-
starfsfélögum hans í þættinum
til mikillar kátínu.
Í uppnámi Samantha
er hrædd um að missa
Lindsay Lohan.
Gamanleikarinn og leikstjór-
inn Ben Stiller á í viðræðum
við kvikmyndarisann Dream-
works um að leikstýra mynd-
inni The Trial of the Chicago 7.
Um er að ræða pólitíska drama-
mynd sem er byggð á sannsögu-
legum atburðum sem áttu sér
stað í Bandaríkjunum í kringum
landsþing demókrata í Chicago
árið 1968.
Leikstjórar eins og Steven
Spielberg og Paul Greengrass
hafa verið orðaðir við myndina
og því kemur nokkuð á óvart ef
Stiller fær leikstjórastólinn þar
sem hann hefur nánast einungis
leikstýrt gamanmyndum á ferli
sínum. Hann er með myndir
undir beltinu eins og The Cable
Guy, Zoolander og nú síðast
Tropic Thunder.
Stiller leikstýrði þó myndinni
Reality Bites árið 1994 sem er
rómantísk gamanmynd þannig
að dramað er ekki alveg nýtt fyr-
ir Stiller.
Ben Stiller á í
viðræðum um að
leikstýra pólitískri
dramamynd.
Úr gríni í alvÖru
Bætir á sig
Söng- og leikkonan Beyonce
Knowls segist hafa bætt á sig
tæpum tíu kílóum fyrir hlutverk
í myndinni Cadillac Records.
Þar leikur Beyonce goðsagna-
kenndu blússöngkonuna Ettu
James en myndin verður frum-
sýnd í byrjun desember. Einnig
leika í myndinni Óskarsverð-
launaleikarinn Adrien Brody,
Jeffrey Wright, rapparinn Mos
Def og þokkagyðjan Emm-
anuelle Chriqui. Þetta er fyrsta
mynd leikstjórans Darnell
Martin en hann hefur leikstýrt
fjölmörgum þekktum þáttum í
sjónvarpi svo sem Law & Order,
ER og Grey´s Anatomy.
vill Cloon-
ey og Pitt
Fyrrverandi kryddpían Geri
Halliwell hyggst nú gera teikni-
mynd eftir barnabók sinni Ug-
enia Lavender og vill ólm fá þá
George Clooney og Brad Pitt til
að tala inn á myndina. „Ég hef
ekki hitt Brad Pitt persónulega
svo ég efast um að hann myndi
taka að sér hlutverkið en ég
þekki Clooney ágætlega og
ætla mér að krækja í hann. Ég
er með karaktera í myndinni
sem heita Bradley Litt og dr.
Clooney sem taka á móti litlu
systur Ugeniu í búð sem kall-
ast Garrods. Það væri bara svo
frábært að fá þá til að tala inn
á Bradley og dr. Clooney,“ segir
Geri sem sjálf ætlar að tala fyrir
Ugeniu.
Daðrar við Chace
Crawford
Lindsay Lohan snýr baki
við Samönthu Ronson.
Nýja Sendibílastöðin
568 5000
Daðrar á fullu Lindsay Lohan daðrar við gossip girl-leikarann Chace Crawford.