Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2008, Side 22
mánudagur 27. október 200822 Fólkið Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra mun svara spurningum lesenda í næsta tölublaði Monitors. Björgvin verður í liðnum Satt & logið en þar eru lagðar fyrir viðmælend- ur hinar ýmsu spurningar sem les- endur hafa sent inn. Landsmönnum gefst því tækifæri til þess að spyrja ráðherrann spjörunum úr. Björg- vin fer því í hóp með Gillzenegger, Ásgeiri Kolbeins, Krumma í Mínus, Helga Seljan og Jóni Gnarr sem allir hafa svarað spurningum lesenda. Spurning hvort kynjahlutfallið í Satt og logið verði rétt af með kvenkyns viðmælanda næst. Bók Guðmundar Magnússonar um íslenska viðskiptaheiminn er komin út. Eins og DV greindi frá á dögun- um hóf Guðmundur ritun bókarinn- ar síðastliðið vor en þá var staða ís- lenska fjármálakerfisins óneitanlega töluvert öðruvísi en hún er í dag eftir hrun bankanna. Guðmundur kvaðst þó ekki hafa þurft að breyta miklu í bókinni þar sem hann væri ekki að rekja í smáatriðum atburði síðustu vikna, heldur væri hann með breið- ari fókus á þróun viðskiptaheimsins. Hvað sem því líður er athyglisvert að lesa fremst í bókinni nafn þess sem hannar kápuna, sem kalla má umbúðir Nýja Íslands. Hann heitir Jón Ásgeir. Samkvæmt öruggum heimildum DV er þarna þó ekki um að ræða fjármálafurstann Jón Ásgeir Jóhannesson. Sýndir í SænSka Sjónvarpinu „Það fer nú dálítið eftir fjármagni hvernig það tekst. Við erum dálít- ið bundin að því leytinu til að við fjármögnuðum þessa seríu á styrk frá Kvikmyndamiðstöð og Norræna sjóðnum. Í reglum beggja þessara sjóða er að þeir styrkja ekki seríu tvö neins staðar,“ segir Sigurjón Kjart- ansson spurður um framhaldsseríu af Svörtum englum. Sigurjón er einn af handritshöfundum þáttanna sem hafa slegið öll áhorfsmet í íslensku sjónvarpi í vetur. „Forsendan fyrir því að fá styrk er að við getum selt þetta erlend- is. Nú þegar er ljóst að sænska rík- issjónvarpið mun sýna Svarta engla og það var mikill áhugi í Cannes á þáttunum frá hinum ýmsu stöðum,“ segir Sigurjón. „Við náttúrlega bara krossum fingur og vonum að það gangi eitt- hvað að fá einhverja peninga að utan. Þá getum við hugsanlega farið í framleiðslu á seríu tvö en það verð- ur bara að koma í ljós.“ Aðspurður hvort einhverjar handritshugmyndir séu komnar upp í kollinn fyrir aðra þáttaröð fá- ist fjármagnið svarar Sigurjón. „Það eru náttúrlega til fleiri skáldsögur eftir meistarann Ævar Örn. Bæði Blóðberg og Sá yðar sem syndlaus er sem hvort tveggja eru sögur sem gaman væri að gera sjónvarpsseríur úr. Svo er hann að koma með nýja bók fyrir jólin sem ég hlakka til að lesa,“ segir Sigurjón en Svartir englar voru byggðir á tveimur bókum eftir rithöfundinn Ævar Örn Jósefsson, Skítadjobbi og Svörtum englum. Sigurjón segir að aðstandend- ur Svartra engla hafi ekki átt von á því að þættirnir myndu slá jafnmik- ið í gegn og raun ber vitni. „Nei, við áttum nú ekki von á því að hundrað og fimmtíu þúsund manns myndu horfa á þáttinn á hverju sunnudags- kvöldi. En það er mjög ánægjulegt að komast að því hvað fólk tekur þessu vel.“ Í nóvember fer í tökur lögfræði- dramasería sem heitir Réttur og er handritið skrifað af Sigurjóni og Margréti Örnólfsdóttur sem einnig skrifaði handritið að Svörtum engl- um en auk þess bættist í hópinn Kristinn Þórðarson. „Þátturinn fer í tökur í nóvember og verður sýnd- ur á Stöð 2 í vetur ef allt gengur að óskum.“ Það er nóg að gera hjá Sigur- jóni þessa dagana við hand- ritaskrif en hann er einnig einn af handritshöfundum Áramótaskaupsins sem er heldur vandasamt verk á tímum sem þessum þar sem þjóðfélagið og stjórn- málin taka stöðugum breyt- ingum. „Við náttúrlega sitj- um handritshöfundarnir og horfum á beinar útsendingar frá blaðamannafundum. Þetta er dálítið eins og að vinna á Dag- blaði virðist vera þar sem það er alltaf eitthvað að breytast. En við erum komin vel á veg og skrif- um og skrifum og svo bara úr- eldast sketsarnir eftir því sem þetta heldur allt saman áfram.“ krista@dv.is Spennuþættirnir Svartir englar hafa slegið öll áhorfsmet í íslensku sjónvarpi í vetur. Síðasti þátturinn var sýndur í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi en þátturinn þar á undan mældist með fimmtíu og átta prósenta áhorf. Önnur þáttaröð veltur á því hvort fjár- magn fáist fyrir þáttunum en einn af handritshöfundum Svartra engla, Sigurjón Kjart- ansson, segir mikinn áhuga erlendis á þáttunum. Lið Verzlunarskóla Íslands sigr- aði hið svokallaða Stjörnulið í góð- gerðarknattspyrnuleik sem fram fór í Kórnum í Kópavogi á laugar- dag. Verzló sigraði í leiknum 3–1 en Egill „Gillzenegger“ Einarsson fór fyrir Stjörnuliðinu. Gillz eða Störe eins og hann kallar sig hafði lofað „skeiningu“. Það gekk hins vegar ekki eftir og enduðu Verzlingar á því að skeina stjörnurnar. Í Stjörnuliðinu voru einnig Auð- unn Blöndal, Heiðar Austmann, Ívar Guðmunds, Logi Bergmann, Þor- grímur Þráins, Tryggvi Guðmunds- son, Gunnleifur Gunnleifsson, Sig- mar Guðmundsson, Helgi Seljan, Sigmundur Ernir og fleiri þekktir. Störe sagði í samtali við Fotbolta. net að ástæðan fyrir tapinu hafi ver- ið sú að hann var bara með aumingj- um í liði. „Við vorum með náttúrlega alveg þrjá, fjóra, fimm þroskahefta menn í liðinu. Náttúrlega Helgi Selj- an, ef hann verður ekki skeinandi sig næsta mánuðinn veit ég ekki hvað,“ bætti Störe við. asgeir@dv.is Stjörnuhrap í kópavogi Lið VeRzLunaRSKóLanS SigRaði StjÖRnuLiðið í góðgeRðaRfótboLta: Svartir englar: ráðherra í Monitor jón áSgeir hannar nýja íSland Svartir Englar Þættirnir hafa slegið öll áhorfsmet í íslensku sjónvarpi og meðal annars slegið út áhorf á gömlu, góðu Spaugstofunni. Með mörg járn í eldinum Sigurjón var einn af handritshöfundum vinsælasta sjónvarpsþátt- ar Íslands fyrr og síðar. nú situr hann sveittur við skrif á áramótaskaupinu sem er heldur strembið eins og ástandið er á Íslandi í dag. Skeining Lið Verzlunarskólans sigraði örugglega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.