Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Side 4
föstudagur 21. nóvember 20084 Fréttir Sandkorn n Þokkadísin Ásdís Rán fer ótroðnar slóðir á bloggsíðu sinni en hún hefur tekið upp á því að aðstoða íslenskar kon- ur í gegnum veraldarvefinn. Á bloggi sínu svarar hún hin- um ýmsu spurningum er snúa að mataræði og almennu heilbrigði. Þá hefur Ásdís Rán slegist í hóp heims- þekktra Hollywood-persóna með því að auglýsa Icelandic Glacial-vatnið sem kemur úr smiðju Jóns Ólafssonar. Fyr- irsætan Paris Hilton er meðal þeirra sem hafa auglýst vatnið en það gerði hún eftir að hafa dvalið í fangelsi í Bandaríkj- unum og sagði við tilefnið: „Ahh, taste of freedom.“ Ásdís Rán og Paris Hilton eiga margt sameiginlegt en þær eru báðar fyrirsætur og hafa gert það gott í heimalandi sínu, Ásdís Rán á Íslandi en Paris í Bandaríkj- unum. n Afbrotamaðurinn Annþór Karlsson, betur þekktur sem Anni af sumum, er kominn með Facebook-síðu, rétt eins og hálf þjóð- in. Á sínum tíma hélt Annþór uppi Myspace- síðu, en lögreglan notaðist við síðu kapp- ans til þess að hafa uppi á honum er hann braust út úr fangelsi á sínum tíma. Lögreglan sá að hann var innskráður og gat með hjálp síðunnar elt hann uppi. Í dag eru breyttir tímar. Annþór afplánar nú dóm sinn á Litla Hrauni, edrú og leikur sér á Facebook. n Ráðning umboðsmanns Ís- lands, Einars Bárðarsonar, í starf aðstoðarmanns Kjartans Ólafsson- ar alþing- ismanns hefur vak- ið undr- un. Finnst mönnum ótrúlegt að Kjartan ráði sér aðstoð- armann þegar Ísland stendur fyrir einni mestu skuldsetningu lýðveldisins. Þótt Einar hefði ekki fengið starfið sæti hann ekki auðum höndum því hann á fyrirtækið Concert auk þess sem hann var nýlega ráðinn verkefnisstjóri hjá Reykjanes- bæ en þar eiga sjálfstæðismenn hreinan meirihluta. n Síðustu daga hefur verið mikið um það rætt að sameina Seðlabanka og Fjármálaeftirlit- ið til að efla eftirlit með bönkum í framtíðinni. Hefur þetta verið orðað sem svar við því að yfirvöld hafi ekki aðhafst nóg til að halda aftur af stækk- un bankanna og koma í veg fyr- ir kollsteypu íslensks efnahags- lífs. Ekki eru þó allir á þessari skoðun. „Hverjum nema ráð- herrum dettur í hug að setja handónýta stofnun inn í aðra handónýta?“ spyr Jónas Krist- jánsson, fyrrverandi ritstjóri, á bloggi sínu. En auðvitað telja sumir að hugmyndin sé frekar tilkomin í von einhverra um að losna við Davíð Oddsson seðlabankastjóra en að styrkja stofnanirnar. Skáldið Skrifar Skemmtiferðaskipið kristján hreinsson skáld skrifar. „Skipstjórinn gaf sínar fyrirskipanir og vildi ekki hlusta á þá sem vöruðu við.“ Skemmtiferðaskipið sigldi um lygn-an sjó í sól og blíðu. Þá gerðist það að loftskeytamaðurinn tilkynnti að það væri mikil móða á innanverðum gluggum stýrishússins. Farmiðasalinn tók í sama streng. Reyndar var þetta einn og sami maðurinn og sá ágæti maður hafði meira að segja stýrt skipinu um hríð. Að vísu var hann ekki menntaður til þeirra verkefna sem hann sinnti en þar eð hann var frekur fékk hann sínu framgengt. Hásetarnir höfðu tekið eftir móðunni á rúðunum og flestum farþegum sýndist móð- an vera orðin ansi mikil. En jafnvel þótt loftskeytamaðurinn segð- ist viss um að móðan væri að skemma útsýnið þótti honum síst koma til greina að þurrka af rúðunum. Þar eð skipstjórinn og stýrimaðurinn voru vissir um að skipið væri á leið í gegnum þykka þoku, datt þeim ekki í hug að hlusta á aðvar- anir farþeganna. Enda voru farþegarnir flest- ir hverjir illa haldnir – viti sínu fjær af hungri. Nokkrir farþegar höfðu reyndar fengið nóg að éta og var þeim flestum orðið bumbult. Skipstjórinn gaf sínar fyrirskipanir og vildi ekki hlusta á þá sem vöruðu við. Hann hunds- aði allar ábendingar. Og þegar dýptarmælir- inn sýndi grynningar og þegar ratsjáin sýndi sker sagði skipstjórinn að líklega væru tækin farin að bila. Í augum hans var það hin utan- aðkomandi þoka sem eyðilagði útsýnið. Enda fór það svo, að með aðstoð áhafnarinnar náði skipstjórinn að sigla skipinu svo kirfilega í strand að því varð ekki haggað. Þegar fólk var á leið í björgunarbátinn, vakti það óskipta athygli að fyrrverandi bryti skyldi stökkva í sjóinn. Og einnig vakti það athygli að skipstjórinn muldraði fyrir munni sér: - Við skulum ekki eyða dýrmætum tíma í að finna sökudólga – við skulum ekki einu sinni reyna að finna þá sem bera ábyrgð á óförum okkar. Og þegar farþegarnir höfðu komið sér fyr- ir í björgunarbátnum, kom í ljós að áhöfn- in var öll við störf – ekki hafði verið skipt út einum einasta skussa. Sami skipstjórinn gaf sömu fyrirmælin. Að vísu var hann búinn að hækka fargjaldið. En það virtist ekki breyta neinu. Áfram talaði hann um þoku, en átt- aði sig ekki á því að á gleraugum hans var móða. Nú hafa þessi heimsku grey höfuð lagt í bleyti en ennþá vantar annað fley og annað föruneyti. Þór Engholm, tíu ára piltur, kemst ekki í skólann marga daga á ári vegna þess að Ísa- fjarðarbær mokar ekki að heimili hans. Móðir hans, Elísabet Pétursdóttir, er orðin þreytt á ástandinu. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðar, segir að allt of dýrt sé að moka að húsinu. skafl heftir skólagöngu „Strákurinn er núna búinn að missa þrjá daga í röð úr skóla út af einum snjóskafli sem er á veginum,“ segir Elísabet Pétursdóttir, sem búsett er á Sæbóli í Önundarfirði á Vestfjörðum. 10 ára sonur hennar, Þór Engholm, missir marga daga úr skóla á hverju ári vegna þess að Ísafjarðarbær mok- ar ekki veginn að húsinu. Elísabet segist vera orðin þreytt á ástandinu. Einn skafl lokar veginum „Vissulega koma stundum upp þær aðstæður þegar allt fyllist af snjó og þá gengur ekki að moka alla leið. En þegar það er lítill snjór eins og núna, einn skafl sem lokar veginum, er þetta hvimleitt,“ segir Elísabet. Þór stundar nám í grunnskólanum á Flateyri en vegalengdin frá Sæbóli inn á Flateyri er 54 kílómetrar. Til að fara í þorpið þarf að fara yfir erfiðan fjallveg. Yfir vetrarmánuðina spillist færðin oft að Sæbóli. Vegna þess þarf Elísabet að birgja sig upp af matvöru þegar hún kemst í verslun en nú seg- ist hún vera orðin uppiskroppa með helstu nauðsynjar. „Ég á kjöt, fisk og mjólk í frystinum en ég fer að verða uppiskroppa með þessar helstu mat- vörur sem maður neytir dagsdag- lega,“ segir hún en hún komst síðast í verslun fyrir viku. Gengið á vegg Elísabet segir að sér hafi verið lofað í maí á þessu ári að unnið yrði í þess- um málum í sumar. Nú sé hins vegar kominn nóvember og enn hafi ekk- ert gerst. „Þeir þurfa að gera sér grein fyrir því að ég hef búið hér í tuttugu ár og ég er ekkert að fara. Manni finnst það hræðilegt þegar málinu er vísað úr einni nefnd í aðra hjá Ísafjarðar- bæ. Sem betur fer hafa ákveðnir að- ilar sýnt mér stuðning, eins og skóla- stjórinn á Flateyri, en þeir virðast líka labba á vegg þegar þeir spyrja um hlutina. Það virðist enginn geta svar- að því hver á að taka ákvörðun um mokstur og hvernig eigi að standa að þessum málum.“ Kostnaðarsamur mokstur Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar, segir að bærinn hafi gert heimavistarsamning við Elísa- betu á sínum tíma í ljósi skólaskyldu piltsins. Halldór segir að sá samn- ingur feli í sér að hún keyri strákinn yfir til Flateyrar þegar það er fært og hann dvelji hjá hálfsystur sinni og sé þar í fæði og húsnæði. Þá segir hann að henni hafi staðið til boða að dvelja í íbúð á Flateyri sem bærinn hefði borgað en hún hafi hafnað því. „Við erum ekki að koma okkur undan skyldu okkar en aðstæður þarna eru svo svakalegar. Bærinn er langt í burtu og það er yfir þennan erfiða fjallveg að fara. Það er enginn snjómokstur þarna samkvæmt regl- um Vegagerðarinnar nema á vorin þegar hann er opnaður,“ segir Hall- dór. Hann bendir á að kostnaður- inn við að moka alla leið inn á Sæ- ból hlaupi á hundruðum þúsunda í hvert skipti. Því hafi verið ódýrara að fara þá leið að bjóða henni afnot af íbúð á vegum bæjarins inni á Flateyri sem hún hafi hafnað. Einar Þór SiGurðSSon blaðamaður skrifar einar@dv.is Þreytt á ástandinu sigríður segist vera orðin leið á ástandinu. sonur hennar kemst ekki í skólann vegna snjóskafls sem lokar veginum að sæbóli. Mynd SiGurður BoGi SævarSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.