Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Qupperneq 8
föstudagur 21. nóvember 20088 Fréttir
„Ég get ekkert tjáð mig um þetta,
þetta er mál sem varðar einstak-
an viðskiptaaðila og við getum
ekki tjáð okkur um það,“ segir fyrr-
verandi prókúruhafi Stíms ehf. og
stjórnarmaður félagsins, Þórleifur
Stefán Björnsson. Hann starfar sem
yfirmaður fjárstýringa innan Saga
Capital. Stím er skrásett til húsa hjá
Saga Capital. Þórleifur sagði sig úr
stjórn félagins í lok ágúst en vildi
ekki gefa upp hvers vegna.
Stím ehf. er sennilega eitt dul-
arfyllsta eignarhaldsfélag lands-
ins en það fékk 25 milljarða króna
lán í nóvember á síðasta ári til þess
að kaupa annars vegar hlutabréf í
Glitni fyrir um 16 milljarða og svo í
FL Group fyrir rúma átta milljarða.
Glitnir veitti lánið og tók aðeins veð
í bréfum félagsins, nú er ljóst að tap
bankans vegna lánveitingarinnar er
ekki minna en tíu milljarðar króna.
Stím keypti af Glitni
Það var í nóvember á síðasta ári
sem Stím ehf. óskaði eftir risaláni
upp á 25 milljarða hjá Glitni. Svo
virðist sem bankinn hafi veitt félag-
inu lánið og tekið veð í hlutum FL
Group. Þá er ljóst að minnsta kosti
10 milljarðar króna eru nú tapað-
ir vegna lánveitingarinnar. Stím
keypti hlutabréf í FL Group fyrir
um níu milljarða króna og svo virð-
ist sem Glitnir hafi sjálfur átt bréf-
in. Glitnir virðist þar af leiðandi
hafa lánað Stím ehf. gagngert svo
félagið gæti keypt hlutina af bank-
anum sjálfum. Gengi FL Group
féll nokkru fyrir kaupin og mánuði
síðar skilaði félagið halla upp á 64
milljarða.
„Ég staðfesti fyrir hönd FL
Group, nú Stoða, að Stím ehf. hafi
bæst í hluthafahóp FL Group 16.
nóvember 2007 eftir að hafa keypt
3,8 prósenta hlut af Glitni,“ seg-
ir upplýsingafulltrúi Stoða, Júlíus
Þorfinnsson, og bætir við að þar
endi aðkoma FL Group að félag-
inu.
Tapaði tvisvar
Það vekur athygli að Stím seldi hluta
af bréfum sínum í FL Group í desem-
ber á síðasta ári, aðeins mánuði eftir
fyrri kaupin, en ástæðan var sú að nýtt
hlutafé var gefið út. Þá hafði virði bréf-
anna þegar rýrnað um tæpan millj-
arð. Hins vegar keypti Stím meira í FL
Group í janúar eða um hálft prósent
til viðbótar en gengið var þá einnig í
falli. Í febrúar voru átta milljarðarnir,
sem Stím fékk lánaða og keypti fyrir,
orðnir þrír milljarðar. Ástæðan var
mikið fall á gengi FL Group. Það var
svo í mars-apríl sem Stím seldi öll
bréfin sín í FL Group. Þá lækkaði hlut-
ur félagsins einnig í Glitni en tapið var
hins vegar gríðarlegt.
Barnabarn Geira á Guggunni
Eini skráði aðilinn að Stím ehf. sam-
kvæmt hluthafaskrá er útgerðar-
maðurinn og Bolvíkingurinn Jakob
Valgeir Flosason. Sjálfur er Jakob
kominn af útgerðarfólki frá Bolung-
arvík en afi hans var Ásgeir Guð-
bjartsson, eða Geiri á Guggunni
eins og hann var oft kallaður. Hann
átti togarann Guðbjörgu ÍS. Togar-
ann seldi Ásgeir til Samherja fyrir
allmörgum árum. Þess má geta að
eigandi Samherja er Þorsteinn Már
Baldvinsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður Glitnis. Þegar Þorsteinn
var spurður hvort Stím tengdist
Kaldbaki, fjárfestingafélagi Sam-
herja, svaraði Þorsteinn afdrátt-
arlaust: „Til þess að það sé alveg á
hreinu er þetta ekki eignarhaldsfé-
lag á vegum Kaldbaks.“
Þorsteinn Már vildi ekki tjá sig að
öðru leyti um málið.
Fátt um svör
Þegar menn tengdir Stími eru
spurðir út í félagið verður fátt um
svör. Fyrrverandi stjórnarformaður
bankans, Þorsteinn M. Jónsson, bar
fyrir sig leynd og sagðist ekki geta
tjáð sig um málið en hann gegndi
stjórnarformennsku þegar lánið
var veitt. Hann benti á fjölmiðla-
fulltrúa Glitnis, Má Másson. Þeg-
ar við hann var rætt benti hann á
Lárus Welding, fyrrverandi banka-
stjóra Glitnis. Ekki hefur náðst í
hann þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir. Aftur á móti sagði hann í viðtali
í Silfri Egils að hann gæti ekki tjáð
sig um einstaka viðskiptavini. Þeg-
ar gengið var á hann vegna Stíms,
svaraði hann því til að eflaust væri
Stím einn af viðskiptavinum bank-
ans og þau viðskipti hefðu verið
eins og öll önnur viðskipti.
Útgerðarmaður heldur áfram
Sjálfur sagði Jakob Valgeir í viðtali
við DV fyrir stuttu að hann væri ekki
gjaldþrota. Aðspurður vissi hann
ekki betur en að útgerðin í Bolung-
arvík héldi áfram þrátt fyrir risatap
Stíms ehf. Hann vildi hins vegar ekki
tjá sig um það hvort hann
væri raunveru-
legur
eigandi félagsins né
hverjir væru í stjórn
þess.
Jakob Valgeir
virðist vera hinn
mesti huldumað-
ur sjálfur en Vest-
firðingar sem rætt
var við sögðu hann
hafa mesta við-
veru á höfuðborg-
arsvæðinu þótt hann
ætti hús í Bolungarvík.
Einn þeirra sagði Jak-
ob sérlega feim-
inn mann
og hlé-
dræg-
an.
STJÓRNARMAÐUR STÍMS
VIÐHELDUR LEYNDINNI
Prókúruhafi Stíms ehf., Þórleifur Stefán Björnsson, vildi ekki tjá sig um aðild sína að félaginu en hann sagði
sig úr stjórn í ágúst síðastliðnum. Þórleifur er sjálfur yfirmaður fjárstýringa innan Saga Capital fjárfestinga-
bankans. Þá hefur DV heimildir fyrir því að Glitnir seldi Stím bréf í FL Group sem áður var í eigu Glitnis
sjálfs. Þá keypti félagið einnig hlut fyrir 16 milljarða í Glitni fyrir peninga sem bankinn hafði lánað félaginu.
valur GreTTiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Vantar þig fjármálaráðgjöf?
Þarftu að ná áttum í peningamálunum?
lVið gerum heildar yfirlit yfir fjárhagsstöðuna
lVið semjum við kröfuhafa um gjaldfallnar skuldir
lVið aðstoðum þig við fasteignaviðskipti
lVið gerum verðmat á fasteigninni þinni
lVið bendum þér á hvar má spara og minnka útgjöld
Hringdu núna!
Það er auðveldara að taka á vandanum strax!
GH Ráðgjöf
Sóleyjargötu 17, 101 Reykjavík Sími 510-3500 og 615-1020
Guðrún Hulda Ólafsdóttir hdl
Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Geymdu þessa auglýsingu – Hún getur komið sér vel
Glitnir Lánaði stím 25 milljarða til þess
að kaupa hlutabréf af bankanum sjálfum.
Þórleifur Stefán Björnsson var
prókúruhafi stíms ehf. og stjórnarmað-
ur en hann neitar að tjá sig um félagið.
Þorsteinn M. Jónsson
vill ekki tjá sig um stím
ehf. eða lánið sem var
veitt félaginu þegar
hann var stjórnarfor-
maður glitnis.
„Ég staðfesti fyrir
hönd FL Group, nú
Stoða, að Stím ehf.
hafi bæst í hluthafa-
hóp FL Group 16. nóv-
ember 2007 eftir að
hafa keypt 3,8 pró-
senta hlut af Glitni.“