Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 10
föstudagur 21. nóvember 200810 Fréttir
Sri Rahmawati kom til Íslands frá Indónesíu árið 1997 þá 27 ára. Aðeins sex árum síðar varð hún fórnarlamb
í einu hrottalegasta morðmáli seinni tíma hér á landi. Fyrrverandi sambýlismaður hennar og barnsfaðir, Há-
kon Eydal, myrti hana að yfirlögðu ráði 4. júlí 2004. Í nýrri bók Ragnhildar Sverrisdóttur um ævi og afdrif
Sri, Velkomin til Íslands, er áður ósögð saga konu, sem allir þekktu með nafni fyrir nokkrum árum, rakin.
Forleikur að morði
Sri Rahmawati kom til Íslands árið
1997, þá 27 ára, frá Jakarta í Indó-
nesíu. Aðeins sex árum síðar var
hún myrt á hrottafenginn hátt. Hún
var 33 ára, í blóma lífsins, þegar Há-
kon Eydal, barnsfaðir hennar og
fyrrverandi sambýlismaður, myrti
hana. Hákon sýndi enga iðrun þeg-
ar upp um hann komst. Vopnaður
kúbeini og taubelti murkaði hann
lífið úr barnsmóður sinni að yfir-
lögðu ráði 4. júlí 2004. Hann fékk 16
ára dóm fyrir ódæðið og var dæmd-
ur til að greiða börnum Sri 22 millj-
ónir króna í skaðabætur. Ragnhild-
ur Sverrisdóttir, rithöfundur og
blaðamaður, hefur skrifað bók sem
ber heitið Velkomin til Íslands, þar
sem hún rekur ævi Sri Rahmawati
af mikilli innsýn. DV kynnti sér bók-
ina, ævi Sri sem og örlög hennar
sem vöktu óhug almennings fyrir
fjórum árum.
Hálfa leið yfir hnöttinn
Sri Rahmawati fæddist í höfuðborg
Indónesíu, Jakarata, 19. desember
árið 1970. Hún ólst upp meðal tíu
systkina á heimili þar sem var þröng
á þingi og allur kostur af skornum
skammti. Ung að aldri var hún gift
mun eldri manni sem á endanum
lét sig hverfa. Með honum eignað-
ist Sri tvö börn. Einstæð móðir í Jak-
arta bjó við kröpp kjör. Brátt átti hún
eftir að standa á krossgötum í lífinu.
Eldri systir Sri, Díana, kynntist ís-
lenskum manni sem heitir Sigurgeir
og var búsettur í Jakarta árið 1989
og þar opnaðist nýr gluggi fyrir Sri.
Árið 1995 ákváðu Díana og Sigur-
geir að flytjast til Íslands. Það var þó
ekki fyrr en tveimur árum síðar eða
árið 1997 sem Sri Rahmawati varð
að taka erfiðustu ákvörðun lífs síns.
Að elta drauminn um betra líf fyrir
sig og börnin sín tvö alla leið til Ís-
lands. Hálfa leið yfir hnöttinn. Hún
yrði samt fyrst að skilja börnin sín
tvö eftir hjá fjölskyldu sinni í Indó-
nesíu. „Hún varð að skilja börnin
sín tvö eftir í Indónesíu í fimm ár á
meðan hún kom undir sig fótun-
um hér á landi. Það hefur ekki ver-
ið auðvelt en sýnir baráttuna í fólki
sem er að reyna búa sér og börnum
sínum betra líf,“ segir Ragnhildur
sem skrifað hefur bók um líf og ör-
lög Sri Rahmawati. Bókin, sem heit-
ir Velkomin til Íslands, er væntanleg
í búðir á næstu dögum.
Vann myrkranna á milli
Óralangt frá fjölskyldu sinni og
börnum bjó Sri nú á Íslandi þar sem
hún fékk vinnu hjá Samsölubrauð-
um, sem seinna urðu Myllubrauð.
Þar vann hún nær öll sín ár hér á
landi. Eftir að hafa komið til Íslands
í neyð árið 1997 átti hún ekki eftir
að fá að sjá börnin sín tvö, Danna
og Amöndu, fyrr en árið 2000 þeg-
ar hún komst loks í heimsókn aft-
ur til heimalandsins. Það var síðan
ekki fyrr en árið 2002, fimm árum
eftir að hún yfirgaf þau fyrst í leit
að betra lífi, sem hún gat sent eftir
börnunum. Hún hafði komið und-
ir sig fótunum, unnið ötullega, nær
myrkranna á milli, og draumurinn
um betra líf virtist vera að rætast. En
draumar verða oft að martröð.
Sri kynnt fyrir Hákoni
Besta vinkona Sri Rahmawati hér
á landi var kona að nafni Maricel
sem fluttist hingað frá Filippseyjum
árið 1996. Önnur vinkona þeirra var
Ruby frá Singapúr sem bjó þá með
íslenskum manni sem hún hafði
kynnst í heimalandi sínu. Gam-
all félagi hans, Hákon Eydal, kom
oft í heimsókn til þeirra og það var
fyrir tilstilli Ruby sem Sri og Hákon
kynntust árið 1999. „Það var strax
greinilegt að Hákoni leist vel á Wati.
Hann hafði orð á því næst þegar
hann hitti Ruby, en bætti því við að
líklega ætti hann engan möguleika
á að kynnast þessari fallegu konu
betur,“ segir í Velkomin til Íslands,
um fyrstu kynni Sri, sem í bókinni er
nefnd með gælunafni sínu Wati, og
Hákons. Þau kynni áttu eftir að vera
örlagarík, og nokkuð sem Ruby átti
eftir að sjá eftir alla tíð.
Séntilmaður reynist skrímsli
Samband Hákonar og Sri þróaðist
eftir að þau kynntust og þau vörðu
meiri tíma saman. Ragnhildur segir
í bókinni að hann hafi virst sannur
séntilmaður og ástin virtist blómstra
þeirra á milli. Fjölskyldu hennar leist
heldur ekki illa á hann. Svo fór að Sri
flutti inn til Hákons árið 2001.
Sambúðin hafði aðeins staðið í
tvær vikur samkvæmt bókinni þeg-
ar Sri hringdi í Maricel algjörlega
miður sín. „Hákon sló mig.“ Höggin
áttu eftir að verða fleiri. Hákon mun
hafa drukkið stíft og ekki haldið lof-
orð sitt við Sri um að láta af þeirri
iðju. Þá grunaði Sri að hann neytti
annarra vímuefna. Sri flúði til Mar-
ciel sama kvöld þangað sem Hákon
mætti með loforð um bót og betr-
un. Honum var neitað um inngang
og næstu daga hringdi farsími Sri
linnulaust. Sri hafði svarað einstaka
sinnum og svo fór að hann náði að
tala hana aftur á sitt band. Ekki í síð-
asta skipti í stormasömu sambandi
þeirra. „Þetta var dæmigert ofbeld-
issamband sem hún var í með Há-
koni. Og hún brást við eins og svo
margar konur í slíku sambandi. Hún
virðist hafa reynt eins lengi og hún
gat í von um að það batnaði. Alltaf
verið að vonast til að þau gætu orð-
ið hamingjusöm fjölskylda. Hún,
börnin hennar tvö og svo litla stelp-
an, Irma, sem þau eignuðust síðar
saman.“ segir Ragnhildur spurð um
samband Hákonar og Sri. Ofbeldis-
samband þeirra er rakið í bókinni
frá sjónarhorni fjölskyldu Sri þar
sem ýmislegt misjafnt kemur fram.
Séntilmaðurinn varð að skrímsli,
drifinn áfram af afbrýðisemi, fastur
í viðjum vaxandi áfengis- og vímu-
efnaneyslu. Snemma árs 2002 var
Sri Rahmawati orðin barnshafandi.
Vinkonur sjást í hinsta sinn
Sri Rahmawati yfirgaf loks Hákon
og við tók hatrömm forræðisdeila
þeirra á milli. Hún hafði gefist upp
á barsmíðunum. Við tóku hótanir
og frekari líkamsárásir sem enduðu
loks fyrir dómstólum árið 2004. Há-
kon var sýknaðar þrátt fyrir staðfast-
an og trúverðugan framburði Sri.
Lykilvitni í málinu, sem er í bókinni
aðeins nefnd Lillý, skipti um skoðun
þegar í dómsal var komið og „mundi
ekki voðalega mikið eftir þessu“. Sri
fannst hún svikin af nágranna sín-
um og vinkonu. Þrátt fyrir að Há-
kon hafi verið neitað um forræði og
umgengnisrétt á meðan dómsmálið
var í meðferð fékk hann takmarkað-
an umgengnisrétt undir eftirliti eftir
sýknudóminn. Sri vildi að Irma ætti
föður sinn að og enn eina ferðina
tók hún við honum aftur, þrátt fyr-
ir allt sem áður var gengið. Þau fóru
saman í sumarbústað, tóku börnin
með og allt gekk vel. Helgina eftir
bústaðarferðina fóru Sri og Maricel
saman út á lífið laugardaginn 3. júlí.
Maricel taldi sig hafa séð jeppabif-
reið Hákonar veita þeim eftirför á
heimleiðinni um nóttina. Það var
í síðasta sinn sem hún sá vinkonu
sína á lífi.
Hrottafengið morð
Sunnudaginn 4. júlí hafði Sri ekki
skilað sér heim eftir nóttina. Þegar
eldri börnin hennar, Danni og Am-
anda sem voru í pössun, reyndu að
hringja í hana, var slökkt á síman-
um. Lögreglan yfirheyrði Hákon 6.
júlí en hann lá strax undir grun lög-
reglu sökum ofbeldisfortíðar hans
gegn Sri. Hann játaði ekki fyrr en 28.
júlí og var afar erfiður viðureignar í
rannsókn lögreglu. Hann leiddi lög-
reglu á villigötur og sagðist hafa los-
að sig við líkið í sjóinn á Kjalarnesi.
Það reyndist ekki satt.
Síðar hefur komið í ljós að nótt-
ina örlagaríku þreif Hákon Eydal
kúbein og barði Sri ítrekað með
því, þar af fjórum sinnum í höfuð-
ið. Fyrstu höggin lentu á höndum
Sri þegar hún bar þær fyrir sig. Eitt
högganna lenti á höfði hennar og
hneig hún þá niður á gólfið og reis
ekki upp aftur. Hákon lét höggin
áfram dynja á Sri með klaufhluta
kúbeinsins. Tók hann því næst tau-
belti og herti að hálsi hennar. Það
var víst sá verknaður sem dró Sri til
dauða. Kúbeinshöggin voru samt
að mati réttarlæknis það alvarleg að
Sri hefði að öllum líkindum ekki lif-
að þau af. Hákon bar lík barnsmóð-
ur sinnar því næst inn í sturtuklefa
og þreif það. Setti hana svo í poka
og bar út í bíl. Hann henti farsíma
hennar í sjóinn og losaði sig við líkið
í hraungjótu í nágrenni Hafnarfjarð-
ar. 3. ágúst árið 2004 vísaði Hákon
lögreglu loks á lík Sri Rahmawati eft-
ir nærri mánaðar leit og rannsókn.
Draumurinn um betra líf fyr-
ir hana og börnin hér á landi hafði
endað með hörmungum. Málið
vakti gríðarlegan óhug meðal al-
mennings sem horði upp á Hákon
Eydal hljóta hámarksrefsingu fyrir
verknaðinn, 16 ár í fangelsi.
Mikilvæg saga skráð
En eftir standa þrjú munaðarlaus
börn, Danni, Amanda og Irma.
Ragnhildur Sverrisdóttir segir þau
blessunarlega hafa fengið yndis-
legt heimili hjá Díönu og Sigurgeiri.
„Þetta eru ofsalega flottir krakk-
ar. Þessi fjölskylda er sterk og hef-
ur haldið vel utan um þau. Því er
nauðsynlegt fyrir þau að þessi saga
sé skráð. Í réttarskjölum er allt það
ljóta sem Hákon hafði um móður
þeirra að segja fært til bókar. Öm-
urlegar persónuárásir. En það hefur
ekki verið hægt að taka upp hansk-
ann fyrir hana,“ segir Ragnhildur,
um bók sína Velkomin til Íslands
þar sem ítarlega er farið í saumana
á ævi Sri Rahmawati.
Heimildir: Ragnhildur Sverrisdóttir,
2008, Velkomin til Íslands. DV laug-
ardaginn 5. mars 2005 og Morgun-
VESTURRjúpnaskot í VesturröstRemington og Winchester
SiguRðuR MikaEl jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
„Hún varð að skilja börnin sín
tvö eftir í Indónesíu í fimm ár
á meðan hún kom undir sig
fótunum hér á landi. Það hef-
ur ekki verið auðvelt en sýn-
ir baráttuna í fólki sem er að
reyna að búa sér og
börnum sínum
betra líf.“
kom í leit að betra lífi sri rahmawati var aðeins
33 ára þegar hún var myrt á hrottafenginn hátt af
fyrrverandi sambýlismanni sínum Hákoni eydal.
Mynd ÚR EinkaSafni. BiRt MEð lEyfi
Samviskulausi morðinginn Hákon eydal sést hér leiddur út úr réttarsal.
Hann myrti sri rahmawati með kúbeini og taubelti 4. júlí 2004. Hlaut 16 ára
fangelsisdóm. Mynd 365. BiRt MEð lEyfi.
Velkomin til Íslands ragnhildur
sverrisdóttir sést hér ásamt Illuga
Jökulssyni að virða fyrir sér fyrstu prentun
af nýrri bók hennar velkomin til Íslands.
Mynd RakEl óSk SiguRðaRdóttiR