Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Page 14
föstudagur 21. nóvember 200814 Fréttir
glíma enn við glitni
Senn líður að skuldadögum Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, gagnvart aðalviðskiptabanka sínum
Glitni. Félagið skuldar bankanum um þrjá milljarða króna sem Glitnir hefur heimild til að gjaldfella.
Björgólfur Guðmundsson, aðaleigandi Árvakurs, berst nú fyrir því að halda í fjölmiðlaveldið.
„Það er ekkert að gerast í þessu máli
í dag eða á morgun. Það var gengið
þannig frá málum að það er ekkert
sem gerist í þessari viku sem breyt-
ir hlutum úr þeirri stöðu sem var
þegar DV greindi frá málinu,“ seg-
ir Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Björgólfs Guðmundssonar aðaleig-
anda útgáfufélagsins Árvakurs. DV
greindi frá því 12. nóvember síð-
astliðinn að skuldastaða félagsins
við aðalviðskiptabanka sinn, Glitni,
væri afar slæm.
Glitnir í lykilstöðu
Eins og DV greindi frá þann 12. nóv-
ember síðastliðinn reynir Glitnir nú
að ná völdum í Árvakri, útgáfufé-
lagi Morgunblaðsins en þeir vilja að
hluta af skuldum fyrirtækisins við
bankann verði breytt í hlutabréf.
Eftir því sem DV kemst næst nam
tap fyrirtækisins rúmlega hundrað
milljónum króna. Samkvæmt heim-
ildum DV skuldar Árvakur um fjóra
milljarða króna. Þar af er um þriggja
milljarða króna skuld við Glitni sem
hefur heimild til að gjaldfella lán-
ið. Bankinn er með krossveð í reks-
rinum þannig að bankinn getur
yfirtekið það sem er í rekstrinum,
prentsmiðjuna, nafnið, vefinn Mbl.
is og annað. Björgólfur Guðmunds-
son og aðrir eigendur lögðu allt að
hálfan milljarð króna í félagið fyrr á
árinu til að styrkja rekstur þess en
það virðist ekki hafa skilað tilætluð-
um árangri.
Eru að gæta hagsmuna sinna
„Þeir eru með kröfur og eru að gæta
sinna hagsmuna, þarna eru viss
tímamörk og frestir sem þarf að
uppfylla. Annars tel ég ekkert nýtt
að frétta af þessu máli.“ segir Ásgeir
um hugsanlega gjaldfellingu Glitn-
is á skuldum Árvakurs. Stjórnend-
ur og eigendur Árvakurs berjast nú
fyrir því að halda fyrirtækinu áfram
í sinni eigu án aðkomu bankans.
Skuldadagar framundan
Samkvæmt heimildum DV hafa
engar frekari aðgerðir né viðræður
átt sér stað milli Árvakurs og Glitn-
is frá því DV greindi fyrst frá stöðu
mála. Þó eru skuldadagar fram
undan hjá fyrirtækinu sem á næst-
unni mun skýrast hvort menn þar á
bæ nái að uppfylla. Sömu heimildir
DV herma að staða Fréttablaðsins
sé álíka slæm þar sem skuldir nema
á þriðja milljarði króna. Fullyrðir
heimildarmaður DV að bankarnir
sjái nú raunsætt fram á það að þessi
félög nái ekki að standa undir þeim
skuldum sem á þeim hvíla. Óvissa
er um hvort af samningum verði í
tengslum við samruna Fréttablaðs-
ins við Árvakur, tveggja mjög skuld-
settra fyrirtækja.
SiGurður MikaEl jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
„Þeir eru með kröfur
og eru að gæta sinna
hagsmuna, þarna eru
viss tímamörk og frest-
ir sem þarf að upp-
fylla“
Berst fyrir eignarhaldinu
björgólfur guðmundsson,
aðaleiganda Árvakurs, berst nú
við ríkisbankann um hluti sína í
fjölmiðlaveldinu.