Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Síða 15
föstudagur 21. nóvember 2008 15Helgarblað Geir Hilmar Haarde var fyrst kjörinn á þing fyrir rúmum tveimur áratugum, árið 1987, sama ár og Guðni Ágústs- son sem sagði skyndilega af sér þing- mennsku á dögunum. Það var svo ellefu árum síðar sem Geir varð fjár- málaráðherra, eða árið 1998. „Ég sat með honum í boði þegar hann fékk tilkynningu um að hann yrði ráð- herra, og ég man það að hann hopp- aði í loft upp.“ Svona lýsir fyrrverandi þingmaður sem starfaði mikið með Geir viðbrögðum hans þegar hon- um var sagt að hann yrði fjármála- ráðherra. „Það var auðvitað stór við- burður í hans lífi.“ Í kjölfarið hélt Geir stærðarinnar veislu í KR-heimilinu þar sem vinir og velunnarar mættu og fögnuðu með honum. Geir og flokkseigendafélagið Geir tók við formannsembætti Sjálf- stæðisflokksins árið 2005. Þá var „flokkseigendafélagið“ svokallaða í Sjálfstæðisflokknum, hinn pólitíski armur Kolkrabbans, komið að fótum fram, ekki síst vegna aukins frjáls- ræðis í viðskiptum og á fjármála- markaði, og vegna nýríkra útherja. Geir er í veigamiklum skilningi fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins sem ekki gengur sérstaklega erinda gamla flokkseigendafélagsins og sem ekki þarf sérstaka blessun frá flokkseig- endafélaginu og Morgunblaðinu. Ýmsir í hinum frjálslyndari armi flokksins sem töldu sig eiga harma að hefna gagnvart gömlu flokkseig- endaklíkunni, sáu því fram á nýja og umburðarlyndari tíma í Sjálfstæðis- flokknum - ekki síst eftir að Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson varð skömmu síð- ar afgerandi sigurvegari í prófkjöri sjálfstæðismanna til borgarstjórnar haustið 2005. Aðför borgarfulltrúa sjálfstæð- ismanna að Vilhjálmi vegna REI- málsins, og hrakfarir borgarstjórn- arflokksins í kjölfarið, veiktu því í vissum skilningi ímynd formannsins sem leiðtoga grasrótar flokksins og aukins umburðarlyndis. Tímamót þegar Geir tók við Þegar Geir var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins markaði það einnig ákveðin tímamót í þeirri sögu flokksins sem lýtur að formönnum hans. Geir er fyrsti formaður Sjálf- stæðisflokksins í mjög langan tíma sem ekki er lögfræðingur að mennt heldur lærður í hagfræði og alþjóða- stjórnmálum, fögum sem ættu að nýtast honum vel í hinum krappa dansi líðandi stundar. Hann lauk BA- prófi í hagfræði við Brandeis Uni- versity í Waltham í Massachusetts í Bandaríkjunum 1973, MA-prófi í al- þjóðastjórnmálum við Johns Hopk- ins University, School of Advanced International Studies í Washington DC í Bandaríkjunum 1975 og MA- prófi í þjóðhagfræði við University of Minnesota í Minneapolis í Banda- ríkjunum 1977. Davíð Oddsson, Þorsteinn Páls- son, Geir Hallgrímsson, Jóhann Haf- stein, Bjarni Benediktsson og Ólaf- ur Thors voru allir löglærðir þó Geir Hallgrímsson hafi reyndar einnig lokið hagfræðiprófi við Harvard og Ólafur hafi aldrei lokið prófum í lög- fræði. Það er því einungis fyrsti for- maður Sjálfstæðisflokksins, Jón Þor- láksson verkfræðingur, sem á það sameiginleg með núverandi for- manni flokksins að hafa ekki komið nálægt laganámi. Geir og frjálshyggjan Geir er eindreginn frjálshyggju- maður en þó miklu fremur í klass- ískum skilningi orðsins, fremur en í skilningi nýfrjálshyggju. Hann hef- ur aldrei látið draga sig í þann dilk sem andstæðingar Sjálfstæðisflokks- ins kalla „öfga nýfrjálshyggjunnar“. Hann myndi líklega ekki taka undir réttlætiskenningu Roberts Nozick, né kokgleypa allar frjálshyggjukenn- ingar Hayeks og Friedmanns. Þegar Geir tók við formennsku SUS af Jóni Magnússyni (nú þing- flokksformanni Frjálslyndra), sem studdi Geir til embættisins á þingi sambandsins á Ísafirði 1981, varð hann fyrsti sjálfkjörni formaðurinn í SUS í langan tíma. Hannes Hólm- steinn Gissurarson taldi sig vera þar kominn með traustan frjálshyggju- mann og samstarfsmann í formanns- stólinn. En Hannes komst fljótt að því að Geir lét ekki að stjórn, hvorki gagnvart Hannesi né Milton Fri- edmann. Sjálfstæði Geirs gagnvart Hannesi kostaði nær vinslit þeirra og Hannes varð að sætta sig þá stað- reynd að Geir lætur ekki segja sér fyr- ir verkum. Pólitískur skákstíll Davíðs og Geirs Viðmælendur DV eru sammála um það að helstu kostir Geirs sem stjórnmálamanns séru pólitískt raunsæi, góð hagfræðimenntun, yf- irvegun og æðruleysi. Geir og Davíð Oddsson seðlabankastjóri eru báð- ir miklir áhugamenn um skák. Dav- íð er góður skákmaður en Geir er af- burða skákmaður og leikur sér að því að tefla blindskák við sterka skák- menn. Hinn pólitíski skákstíll Dav- íðs er fórnar-, sóknar- og fléttustíll í anda Friðriks Ólafssonar og Aljekíns, enda hefur hann hrist fram úr erm- inni ógleymanlegar, pólitískar skák- fléttur sem komið hafa allri þjóðinni á óvart. Geir hefur hins vegar hinn mun þyngri pólitíska skákstíl sem bygg- ist á yfirveguðu stöðumati og leggur ekki í óþarfa tvísýnu. Slíkir skákmenn ná oft einu peði í enda byrjunarinn- ar og sigra síðan skákina að lokum á þessum litlu yfirburðum, með þraut- seygju og þolinmæði að vopni. Pólit- ískur skákstíll Geirs minnir því frem- ur á yfirvegaðan og stundum þungan skákstíl þeirra Margeirs Péturssonar og Karpovs. Tvígiftur Vesturbæingur Geir heitir fullu nafni Geir Hilmar Haarde og er fæddur í Reykjavík 8. apríl 1951, sonur Önnu Steindórs- dóttur Haarde, húsmóður í Reykja- vík, og Tomas Haarde símafræðings, fæddur í Rogalandi í Noregi. Tom- as lést árið 1962 og Anna féll frá fyr- jón bjarki maGnússon oG krisTján hrafn GuðmunDsson blaðamenn skrifa: jonbjarki@dv.is og kristjanh@dv.is NÆRMYND Geir haarde er afar yfirvegaður maður og vel af guði gerður. Viðmælendum DV ber flestum saman um það, þótt sumir hafi efasemdir um að hann sé rétti maðurinn til að leiða íslensku þjóðina í gegnum það stormviðri sem hún stendur nú frammi fyrir. Húmorinn og glaðlyndið hefur reynst honum vel í gegnum tíðina. En rólyndið og andvaraleysið getur komið honum í koll, sem sagan á kannski eftir að leiða í ljós að hafi haft eitthvað með það að gera hvernig efnahagsástandið er nú á Íslandi. forsætisráðherra brúnaþungur fjölmiðlar hafa sótt hart að geir síðustu vikurnar. mYnD rakel ósk Blindskák „Mér finnst hann ekkert voðalega glaður í þessu starfi, finnst honum ekki líða vel. Og þá á ég við allt frá því hann tók við því í fyrra.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.