Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Síða 20
Svarthöfði er rómantísk sál sem hefur óbilandi trúa á ástinni og hefur aldrei hvikað frá því að ástin sé það eina sem við
þurfum til þess að komast í gegnum
þann táradal sem lífið annars er. Svart-
höfða vöknaði því um augu þegar hann
horfði á forseta sinn í sjónvarpinu, fyrir
nokkrum árum, biðja þjóð sína um
tilfinningalegt svigrúm til þess að fá
að stilla strengi hjarta síns saman við
hörpustrengi sálar hinnar glæsilegu
Dorrit Moussaieff. Svarthöfða fannst
ekkert sjálfsagðra en forsetinn fengi að
eiga tilhugalíf sitt með þessari glæsi-
legu huldukonu, sem sást æ oftar við
hlið hans, í friði og gaf fúslega eftir þetta
umbeðna svigrúm. Slíkt hið sama gerði
meirihluti þjóðarinnar með glöðu geði.
Þessi sama þjóð samgladdist síðar innilega þegar kærustu-parið á Bessastöðum opinber-aði trúlofun sína. Þau Ólafur
og Dorrit höfðu greinilega notað svig-
rúmið sem þjóðin gaf þeim vel og vart
var hægt að hugsa sér ánægjulegri nið-
urstöðu tilfinningalegra samanburð-
artilrauna þeirra. Dorrit heillaði ekki
aðeins forseta vorn heldur sauðsvart-
an almúgann líka sem sá ekki sólina
fyrir þessari glaðlegu og fögru konu
sem kom eins og óvæntur sólargeisli
inn í líf forsetans á myrkustu stundum
ævi hans. Gifting er eðlilegt framhald
trúlofunar og við byrjuðum vongóð að
telja niður í nánast konunglegt brúð-
kaup á Bessastöðum.
Eins og Svarthöfði gladdist innilega þegar hann frétti að forseti hans hefði fundið ástina öðru
sinni grömdust honum nýj-
ar fréttir af því að skratta-
kollurinn Davíð Odds-
son skuli hafa reynt að
ómerkja hjónaband Dor-
ritar og Ólafs með laga-
flækjum. Áður en Ólafur
þagnaði og gerðist hinn
mildi hirðir þjóðar
sinnar var gantast
með að hann mætti
ekkert aumt sjá. Án
þess að sparka í það.
Og nú hefur Guð-
jón Friðriksson,
sagnfræðingur
þjóðarinnar, fært
sönnur fyrir því í
bók um lífshlaup
forsetans að Davíð
hafi þessa sömu
tilhneigingu og hans
forna fjanda Ólafi Ragn-
ari var löngum eignuð.
Allar góðar sögur verða að hafa í það minnsta einn skúrk sem haldinn er skítlegu eðli. Þeir eru jafnan hreyfiafl hverrar
sögu. Hrinda atburðarás af stað, keyra
hana áfram og halda athygli lesand-
ans. Um þetta höfum við ótal dæmi
allt frá Láka jarðálfi til J.R. Ewing. Allar
góðar ástarsögur þurfa líka á skúrkum
að halda eins og Shakespeare var svo
meðvitaður um í Rómeó og Júlíu. Þar
reyndu að vísu heilar hersingar tveggja
ættbálka að stía kærustupari allra tíma
í sundur. Rómeó og Júlía fengu því ekki
notist nema eitt augnablik áður en vél-
ar fólanna urðu til þess að þau samein-
uðust í eilífðinni.
Sem betur fer er svo mikill vindur úr Davíð að hann hefur ekki sama slagkraft og Montigú-arnir og Capúletarnir forðum
og þess vegna blómstrar ástin enn á
Bessastöðum vonandi hinum geðstirða
fyrrverandi forsætisráðherra til mik-
illar skapraunar. Seðlabankastjóran-
um og skósveinum hans gengur betur
að drepa gjald- miðla og
efnahag en
ástina sem
er vita-
skuld
æðri
öllu
verald-
legu
brölti.
Þar sem Davíð mistókst svo hrapallega að bregða fæti fyrir Ólaf Ragnar á vegi ástarinnar sér Svarthöfði enga ástæðu til
þess að erfa þetta ráðabrugg við hann
enda er syndaregistrið svo langt að af
nógu öðru er að taka. Svarthöfði hugsar
eiginlega frekar með hlýhug til þessa ís-
lenska Tybalts sem lagði sitt af mörkum
til þess að gera fallega ástarsögu enn
dramatískari, fallegri og eftirminnilegri.
Mikið hlýtur samt þeim manni að líða illa á sálinni sem getur ekki unað göml-um andstæðingi að njóta
ástar og hlýju fallegrar konu. Þó ber í
þessu tilfelli að hafa í huga að skúrkur-
inn hefur ekki fengið mikið tilfinninga-
legt svigrúm til þess að rækta ástar-
samband sitt við íslensku krónuna.
Gremjan er því að vissu leyti skiljanleg
en mikið ósköp yrði það samt þjóðinni
allri til mikilla heilla ef ást Davíðs á
krónunni fengi að kólna og deyja út hið
fyrsta.
föstudagur 21. nóvember 200820 Umræða
Ást í meinum
svarthöfði
spurningin
„Ef þau stæðu
ofan á tertunum
jú,“ segir Örn
Árnason,leikari
og flugeldasali
með meiru. örn á
heilan gám af
flugeldum frá því
í fyrra sem hann
ætlar að selja fyrir þessi áramót á
svipuðu verði og í fyrra.
er þetta nóg til
þess að sprengja
ríkisstjórnina?
sandkorn
n Bók Guðjóns Friðriksson-
ar um Ólaf Ragnar Grímsson,
forseta Íslands, er stríðsyf-
irlýsing við Davíð Oddsson
seðlabankastjóra sem reyndi,
samkvæmt bókinni, að bregða
fæti fyrir
hjónaband
forsetans
og Dorrit
Moussai-
eff. Víst er
að Guðjón
er þar með
kominn í
ónáð seðla-
bankastjórans. Hermt er að það
hafi verið sameiginlegt átak
föllnu bankanna að greiða höf-
undarlaun til Guðjóns vegna
bókarinnar og kannski eins gott
að þær greiðslur höfðu allar
farið fram að fullu þegar þeir
hrundu.
n Greiðslustöðvun bresk-ís-
lenska knattspyrnuliðsins West
Ham er mörgum áhyggju-
efni en sýnt er að félagið sé á
leiðinni úr eigu Íslendinga.
Fjölmargir hafa notið gest-
risni aðaleigandans, Björgólfs
Guðmundssonar, og sperrt
stél í heiðursstúku félagsins.
Þeirra á meðal er knattspyrnu-
áhugamaðurinn og sjónvarps-
maðurinn Egill Helgason sem
að vísu segist hafa verið þar í
boði Ásgeirs Friðgeirssonar,
spunameistara Björgólfanna.
En nú er þessum tíma í glæsilífi
Íslendinga líklega að ljúka og
þeir verða að njóta sparkleiks-
ins í almenningnum, innan um
breskar bullur.
n Jón Sigurðsson, helsti
ábyrgðarmaður Fjármála-
eftirlitsins og varaformaður
stjórnar Seðlabankans, þykir
ekki hafa farið vel út úr viðtali
við Kastljós-
ið þar sem
hann gegn-
umsneytt
hafði ekkert
um hitt og
annað að
segja. Taldi
hann ábyrgð
hrunsins
enga vera hjá stofnunum sín-
um. Svo er að sjá sem Jón sé
lagstur í vörn með Davíð Odds-
syni seðlabankastjóra og vilji
firra eftirlitsstofnun sína allri
ábyrgð. Margir höfðu horft til
Jóns sem mannsins sem gæti
reist bankakerfið úr öskunni og
tekið við stjórn Seðlabankans.
Væntanlega hefur farið um þá
hrollur við varnarræðuna.
n Týndi þingmaðurinn, Kjart-
an Magnússon, þótti reisa sér
nokkurn hurðarás um öxl þeg-
ar hann réð umboðsmann Ís-
lands, Einar Bárðarson, til að
vera aðstoðarmaður hans. Víst
er að þingmaðurinn stendur í
skugga eigin aðstoðarmanns
sem er elskaður og dáður af
fjölda samlanda sinna. Raddir
eru uppi um það í suðvestur-
kjördæmi að Einar yrði mikill
liðsauki fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn á þingi. Sjálfur er hann
ekki fráhverfur slíku og mun
hafa tekið vel í að slást við
þingmann sinn í næsta próf-
kjöri.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Sjóvið hlýtur að
vera gott þegar
aðalpersónan
fær krakka til
þess að gráta áður
en sýningin byrjar.“
n Emilu Campell, blaðamaður Baltimore
Examiner, um Stefán Karl sem Trölla í sýningunni
Þegar Trölli stal jólunum. - DV.
„Þess vegna held
ég að það
margborgi sig
að gera jólainn-
kaupin snemma í ár.“
n Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, um að vörur eigi eftir að
hækka enn meira fyrir jól. - DV.
„Hann stal senunni
þessi krakki.“
n Ingvar „Ringó“ Jóel, gjaldkeri kraflyftingafé-
lagsins Metals um hinn 22 ára Palla „fermetra“
sem lyfti yfir tonni á heimsmeistaramótinu í
kraftlyftingum. Hann hlaut viðurnefnið
Tonnatakið í leiðinni. - Fréttablaðið.
„Mér skilst að í
bókinni sé birt
kópía af bréfi sem
er mjög sérstakt.“
n Sigurður G. Guðjónsson lögmaður um bréf í
bók Guðjóns Friðrikssonar um forseta Íslands. Þar
sem Davíð Oddsson, sem sat þá sem forsætis-
ráðherra, gerði athugasemdir við hjónaband
forsetans og Dorritar Moussaieff. - Stöð 2.
„Að það markmið náist
með því að kasta eggjum í
ráðherrabíl, finnst mér
ólíklegt.“
n Björn Bjarnason sem sakar samtökin Nýja
tíma, sem vilja þjóðstjórn, um að hafa grýtt
ráðherrabíl hans með eggjum. Samtökin neita
sök. - DV.
Andlýðræðisflokkurinn
Leiðari
Framsóknarflokkurinn er andvígur þingræðinu. Það sannaðist enn og aft-ur þegar Siv Friðleifsdóttur framsókn-
arkonu misbauð að Helgi Hjörvar samfylk-
ingarmaður skyldi færa fram gagnrýni á Geir
Haarde sjálfstæðismann fyrir að hreinsa
ekki burt yfirstjórn Seðlabankans. Siv hrein-
lega vorkenndi Geir fyrir að lenda í gagnrýni
frá þingmanni í samstarfsflokki og henni
blöskraði svo að hún hafði ekki lyst á að tjá
sig meira um málið.
Það stendur hins vegar skrifað í stjórnar-
skrá lýðveldisins að þingmenn eigi að fylgja
eigin sannfæringu. Flestir vita að það er
þingræði á Íslandi, sem byggist á því að al-
þingismenn skiptast á skoðunum, ekki bara
skoðunum flokks síns, heldur eigin skoð-
unum. Þingmenn mega vera ósammála því
sem ríkisstjórnin ákveður, enda væri þing-
ið annars fullkomlega óþarft. Framsóknar-
menn tala ítrekað gegn þessari grundvallar-
stoð lýðræðisins. Þeir vilja að þingmenn líti á
sig sem fótboltamenn og spili með eigin liði.
Það er ekkert grín, því nákvæmlega sama
líking kom frá Dagnýju Jónsdóttur, fyrrver-
andi þingkonu Framsóknarflokksins, þegar
flokkurinn seldi sig Davíð Oddssyni í skipt-
um fyrir valdastöðu. Flokkurinn bráðnaði
eins og smjör í höndum Davíðs, í þeim eina
tilgangi að halda völdum.
Siv er ekki ein á því innan flokksins að ein-
hver helsti löstur flokka sé að þing-
menn fylgi sannfæringu sinni
opinberlega. Valgerður Sverris-
dóttir, nú formaður, hefur áður
gagnrýnt samfylkingarþingmenn
fyrir að vera ekki fullkomlega sam-
stiga Sjálfstæðisflokknum. Henni
þótti agalegt fyrr á árinu að Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
skyldi reifa hugmyndir sínar um að
farsælast væri að Ísland gengi í Evr-
ópusambandið. Ekki vegna þess
að hugmyndin væri slæm, heldur
vegna þess að hún var ekki í sam-
ræmi við skoðanir Sjálfstæðis-
flokksins.
Eðlilegast væri nú að fram-
sóknarmenn fögnuðu því að þingmenn
Samfylkingarinnar væru sammála þeim í
tilteknum málum, því allt snýst þetta um að
fá sannfæringu sinni framgengt, en svo er
ekki. Þeir nánast fyllast andstyggð yfir fólki
sem fylgir stjórnarskrárbundinni sannfær-
ingu sinni. Þjóðin er í vondum málum með
slíka stjórnarandstöðu. Meira að segja
í Bandaríkjunum er lýðræðið heil-
brigðara. Þar er þingmönnum ekki
til hnjóðs að ganga gegn eigin flokki.
Heilbrigð stjórnarandstaða hefði
þvert á móti fagnað því að Helgi
Hjörvar tæki upp sama málstað og
hún.
Framsóknarflokkurinn hefur
ekki skánað við brotthvarf Guðna
Ágústssonar og Bjarna Harð-
arsonar. Flokkurinn er til
óþurftar á Alþingi. Ef hann
kemst hins vegar í ríkis-
stjórn breytist það. Þá
verður hann varasamur
fyrir íslenskt lýðræði.
jón trausti reynisson ritstjóri skrifar. Þjóðin er í vondum málum með slíka stjórnarandstöðu.
bókstafLega