Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Síða 24
föstudagur 21. nóvemer 200824 Fókus u m h e l g i n a Ævar Örn Jósepsson rithöfundur hefur stimplað sig inn í þjóðfélagið sem einn fremsti glæpasagnahöfundur landsins. Hann er í heildina nokkuð ánægður með þáttaröðina Svarta engla sem sýnd var á RÚV og er byggð á tveimur af bókum hans. Hann segir þó að persónur þáttanna hafi ekki verið þær sem hann skrifaði. Ævar lauk nýverið skrifum á tveimur nýjum bókum, skáld- sögu annars vegar og ævi- sögu Harðar Torfasonar hins vegar. Pönkari með prestsdrauma Ekki mínar persónur Opið hús og basar Á morgun, laugardag milli klukkan eitt og fjögur verður hægt að gæða sér á gómsætum rjómavöfflum og heitu súkkulaði á vægu verði á opnu húsi dagvistar og endurhæfingar Ms-félagsins. dagvistin er til húsa á sléttuvegi 5. einnig verður hægt að festa kaup á fallegum vörum sem unnar eru á dagvistinni. Nú fer hver að verða síðastur að sjá verkið Scarta í höndum Stúdenta- leikhússins en síðustu sýningar eru í kvöld, föstudagskvöld, og á morg- un, laugardagskvöld. „Scarta þýð- ir í rauninni Scandinavian Amat- eur Art Contest og er bæði skrítin og skemmtileg sýning. Við notumst ekki við hefðbundið leikhúsform en í sýningunni veltum við því fyr- ir okkur hvernig hægt sé að keppa í listum,“ segir Katrín Halldóra Sig- urðardóttir sem fer með hlutverk eins keppandans í verkinu. „Það kemur margt á óvart í sýn- ingunni og við viljum ekki eyði- leggja fyrir áhorfandanum með því að gefa of mikið upp.“ Leikstjóri verksins er Víkingur Kristjánsson og um búninga og leikmynd sér Eva Signý Berger. „Þau tvö saman eru algjörir snillingar og þetta er búið að vera alveg rosalega skemmtilegt. Senurnar hafa allar verið unnar upp úr spuna og við bjuggum sýn- inguna til með Víkingi. Við höfum fengið frábærar viðtökur og á mið- vikudagskvöldið sýndum við fyr- ir troðfullu húsi svo við ákváðum að bæta inn þessari aukasýningu í kvöld,“ segir Katrín. Sýningarnar fara fram í kjall- ara Norræna hússins og er hægt að nálgast miða í síma 867-8640. Miða- verð fyrir nema er þúsund krónur en annars fimmtán hundruð krónur. krista@dv.is Síðustu sýningar á verki Stúdentaleikhússins, Scarta: skrítin og skemmtileg sýning steinar í djúp- inu frumsýnt Hafnarfjarðarleikhúsið frumsýnir í kvöld, föstudagskvöld verkið Steinar í djúpinu. Hér er ekki um að ræða leikgerð á einu tilteknu verki eftir rithöfundinn Steinar Sigurjónsson, heldur sjálfstætt leikhúsverk sem sækir innblástur í allt hans höfunda- verk og að hluta til í ævi hans og örlög. En þess má geta að heildar- safn verka Steinars kom út fyrr á árinu. Rúnar Guðbrandsson sér um leikstjórn verksins og meðal leikara eru Árni Pétur Guðjónsson, Ólafur Darri Ólafsson, Birna Hafstein og Björn Ingi Hilmarsson. Miðasala fer fram í Hafnarfjarðarleikhúsinu og á midi.is. sýningaOpnun Og upplestur Á sunnudaginn milli klukkan eitt og fjögur verður mikið um að vera í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi. Um þrjátíu konur kynna bækur sínar með ýmsum hætti á þremur stöðum í húsinu. Háskólanemar hafa umsjón með „Kellíngunni á kassanum“ þar sem höfundar koma og lesa upp úr glænýjum bókum og ýmislegt fleira spennandi verður á dag- skrá. Klukkan tvö verða opnaðar sýningarnar Ungblind þar sem Björn Sigurjónsson sýnir myndir af blindum ungmennum og Utan- garðsmálverk Halldóru Helgadótt- ur af jurtum sem vaxa utangarðs. Ævar Örn Jósepsson einn fremsti spennusagnahöfundur landins er að gefa frá sér tvær nýjar bækur, skáldsögu og ævisögu Harðar torfasonar þar sem lesend- ur fá að kynnast honum enn betur. Keppendurnir í Scandinavian Amateur Art Contest sýning stúdentaleikhússins í þetta skiptið kemur áhorfandanum á óvart.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.