Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Side 25
föstudagur 21. nóvemer 2008 25Fókus Hvað er að GERAST? föstudagur n Kreppurapp á Prikinu Kreppa tær og rétta. Það verður sannköll- uð hip-hop-veisla á Prikinu í kvöld þegar helstu rímnaskáld Íslands koma saman. diddi fel, Intro Beats og fleiri munu skemmta almúganum á þessum svörtu tímum. frítt áfengi í boði. tuttugu ára aldurstakmark. fjörið byrjar klukkan 21. Á miðnætti tekur síðan dj danni deluxxx við. n Stórtónleikar á NASA fyrir aðeins 1.500 krónur færðu þrjár af vinsælustu hljómsveitum landsins beint í æð. Hjaltalín, sprengjuhöllin og motion Boys hafa tekið sig saman og ætla að skemmta Íslendingum þetta föstudags- kvöldið. tónleikarnir fara fram á nasa. Húsið opnað klukkan 23 og er 20 ára aldurstakmark. n Dalton og Herbert á Players sveitaballastemning verður í algleymingi á Players þetta kvöldið. félagarnir í dalton munu tæta allt og trylla, en goðsögnin sjálf, Herbert guðmundsson, mun einnig stíga á svið og taka nokkra slagara. farið í þægilega skó því nú verður dansað. Ballið byrjar klukkan 22. n Sexual Chocolate á Q-bar Plötusnúðadúettinn sexual Chocolate er þekktur fyrir tryllta stemningu. ef þú fílar 80s, diskó og house-tónlist er skyldumæt- ing á Q-bar í kvöld. súkkulaðiplötusnúð- arnir kunna að skapa frábæra stemningu. Æsingurinn hefst á miðnætti. n Geirmundur Valtýsson á Kringlu- kránni Það verður heldur betur stuð á Kringlu- kránni í kvöld þegar geirmundur sjálfur valtýsson stígur á svið. enginn verður svikinn þetta kvöldið. Það er alveg á hreinu. Ballið byrjar klukkan 23. laugardagur n Barátta í Vetrargarðinum milli klukkan fjögur og sex í dag fara fram tónleikar undir yfirskriftinni Baráttukveðjur í vetrargarðinum í smáralind. Á tónleikun- um koma fram hljómsveitirnar agent fresco, mammút, Ká eff Bjé ásamt matta, Ástþór óðinn, dark Harvest, vítamín, stjörnuryk, anna Hlín og Heiður. tónleikarnir eru í samstarfi við Krabba- meinsfélagið og gefa allir vinnu sína á tónleikunum. frítt inn fyrir alla fjölskyld- una. n Stuðmenn í Keflavík stuðmenn með Jónsa og Hara systur í fararbroddi ætla að spila á duus húsum í reykjanesbæ í kvöld en sveitin hefur ekki rekið upp herópið þar í yfir tvö ár. Þetta verða jafnframt fyrstu tónleikar stuð- manna á ferð þeirra um landið. eyþór gunnarsson, slagverks- og hljómborðsleik- ari, og ómar guðjónsson gítarleikari ætla að leggja sveitinni lið á tónleikunum. n Skímó á Nasa Íslensku poppgoðsagnirnar í skítamóral ætla að slá upp heljarinnar dansiballi á nasa í kvöld. Það ætti enginn unnandi íslenskrar popptónlistar að láta þennan rosalega dansleik framhjá sér fara. Húsið opnað á miðnætti og er aldurstakmark tuttugu ár. n Veðurguðirnir á Players Ingó og veðurguðirnir ætla að halda uppi stuðinu á Players í kvöld eins og þeim einum er lagið. ef það er eitthvað sem fær þig til að gleyma kreppu og snjókomu er það hið hrikalega hressa lag Á Bahama. Það er líka um að gera að fara í allir dansa kónga þegar þið heyrið þetta lag í kvöld. n Handboltarokk á Rosenberg Handboltakempan og tónlistarmaðurinn B. sig ætlar að halda tónleika á rosenberg á Klapparstíg í kvöld en hann hefur heldur betur slegið í gegn á undanförnum árum. Á dögunum kom út platan good morning mr. evening með B. sig við góðar viðtökur. ÉG – ef miG SKylDi KAllA eftiR ÞRáiN BeRtelSSoN merkileg bók um svall og svartnætti, en með heiðríkju yfir. m æ li r m eð ... AmtmAðuRiNN á eiNBúASetRiNu eftiR KRiStmuND BjARNASoN gagnrýnandi dv verður undrandi ef betri ævisaga kemur út á þessu ári. eRlA, GóðA eRlA eftiR eRlu BollADóttuR nauðsynleg lesning öllum þeim sem vilja læra af lífinu. myNDiN PASSeNGeRS Kemur allverulega á óvart. m æ li r eK Ki m eð ... Vel GeRðuR eiNleiKuR. Leiksýningin 21 manns saknað í saltfisksetrinu í grindavík tRAitoR ansi tæpt að traitor eigi erindi í kvikmynda- hús. Ævar Örn jósepsson rithöfundur hefur stimplað sig inn í þjóðfélagið sem einn fremsti glæpasagnahöfundur landsins. Hann er í heildina nokkuð ánægður með þáttaröðina Svarta engla sem sýnd var á RÚV og er byggð á tveimur af bókum hans. Hann segir þó að persónur þáttanna hafi ekki verið þær sem hann skrifaði. Ævar lauk nýverið skrifum á tveimur nýjum bókum, skáld- sögu annars vegar og ævi- sögu Harðar torfasonar hins vegar. „Í heildina er ég ánægður með þetta og ætla ekki að vera æsa mig yfir þessu litla sem ég hefði viljað hafa öðruvísi,“ segir Ævar Örn Jóseps- son rithöfundur en hann er höfund- ur bókanna sem spennuþáttaröð- in Svartir englar í Ríkissjónvarpinu er byggð á og sýndir voru nýlega. Bækur Ævars, Skítadjobb og Svartir englar, hafa hlotið lofsamlega dóma og var önnur bókanna meðal annars tilnefnd til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna. Þættirn- ir, sex talsins, voru sýndir nýlega í sjónvarpinu við ekki síðri undirtekt- ir og fengu sögulegt áhorf. Allt undir 60% áhorf þegar mest mældist. Ævar fylgdist sjálfur spenntur með þáttun- um á hverju sunnudagskvöldi og því hvernig handritshöfundar yfirfærðu verk hans úr bókriti í sjónvarpsþátt. „Ég er ánægður með sumt en minna með annað,“ segir Ævar. „Svo vissi ég nú hvernig þetta mundi enda,“ segir Ævar og hlær. Sagði sig frá handritaskrifum Ævar tók ekki þátt í handritaskrif- unum nema að litlu leyti enda get- ur það orðið erfitt þar sem höfund- ur verks er miklu tengdari því en sá sem skrifar handrit upp úr því. „Ég var með til að byrja með en sagði mig svo frá þessu. Það borgaði sig bara þannig. Það kom sá punktur upp í ferlinu að ég hugsaði að betra væri að láta þetta alfarið í þeirra hendur og hætta að skipta mér af þessu,“ segir hann. „Að sjá persónur og aðstæður, sem maður hefur sjálfur búið til eft- ir eigin höfði, komnar í sjónvarps- þátt og skrifaðar af öðrum getur orðið skrýtið.“ Aðspurður hvort eitt- hvað hafi komið honum á óvart seg- ist hann alveg hafa búist við að eitt- hvað yrði öðruvísi og annað væri í raun óhjákvæmilegt. Það sem hon- um fannst komast hvað síst til skila voru persónurnar sjálfar í þáttun- um. „Mér fannst persónurnar sem ég skrifaði ekki vera þarna á skján- um. Þetta voru ágætis persónur en ekki þær sem ég skrifaði. Það var kannski það eina sem ég staldraði virkilega við,“ segir Ævar. „En það er ekkert að marka hvað mér finnst. Sjónvarp er annar miðill og það sem truflar mig truflar endilega ekki aðra,“ segir hann en getur vel hugs- að sér að skrifa handrit fyrir sjón- varp í framtíðinni. Sjónvarpið hefur tryggt sér rétt- inn að fjórðu bók Ævars en lítið er vitað um þá framleiðslu. Hann hef- ur ekki heyrt neitt um að eitthvað sé að gerast og telur hann líklegt að það verk muni bíða betri tíma. Reynt að drepa Hörð torfa Hörður Torfason hefur verið áber- andi í fjölmiðlum að undanförnu og þá helst fyrir mótmælin gegn ríkis- stjórninni. Ævar hefur nýlokið við að skrifa ævisögu hans. Af hverju Hörður Torfason en ekki einhver annar skýrir Ævar með fjölskyldu- tengslum. „Við Hörður erum ná- frændur og höfum því þekkst í ára- tugi. Ég þekki hann og hans sögu og hann þekkir mig svo það er ósköp eðlilegt að ég geri söguna frekar en einhver annar,“ segir Ævar. Ævisagan, sem nú er tilbúin, hef- ur verið í vinnslu í rúmlega tvö ár. „Þetta var eldgömul hugmynd sem ég bar undir hann fyrir tíu árum fyrst. Honum fannst hann vera of ungur þá. Það voru útgefendur sem höfðu áhuga og töluðu við okkur en hann vildi það ekki á þeim tíma.“ Það var svo fyrir tæpum þremur árum, þegar annar útgefandi bank- aði upp á, að Hörður var til og hafði þá samband við Ævar. „Ég hafði aldrei skrifað ævisögu né lesið mik- ið af þeim sjálfur svo ég er forvitinn að vita hvernig fólki líkar þessi út- gáfa,“ segir hann og bætir við að það hafi verið mun erfiðara en að skrifa skáldsögu. Þjóðin þekkir Hörð Torfa frá ýms- um sviðum, en er eitthvað nýtt sem kemur fram í bókinni og lesendur þekkja ekki vel? „Bókin segir sögu hans og það er farið ítarlega í hluti sem margir vita nú þegar. Svo er eitt og annað sem færri vita en hann seg- ir til dæmis frá því í fyrsta sinn á op- inberum vettvangi þegar reynt var að drepa hann á sínum tíma. Það er farið svolítið vel ofan í hvernig hon- um leið og hvernig ástandið var eftir viðtalið 1975 í Samúel þar sem hann kom út úr skápnum. Einnig ástæð- una fyrir því að hann flutti úr landi og var í burtu í langan tíma,“ segir Ævar. „Mér finnst sagan eiga fullt er- indi í dag.“ les eingöngu krimma Fyrsta skáldsaga Ævars, Skítadjobb, kom út árið 2002 og fékk góða dóma. Þegar Svartir englar kom svo út ári seinna stimplaði Ævar sig inn sem einn fremsti spennusagnahöfund- ur landsins. Sú hugmynd að skrifa glæpasögu hafði lengi blundað í Ævari. „Ég hafði gengið með þá hug- mynd í þessum stóra maga mínum lengi og það var ekki fyrr en ég fór bara að skrifa að ég fann að þetta var það sem ég vildi,“ segir Ævar. Ævar hefur sjálfur mestan áhuga á krimmasögum og segist lítið annað lesa. Það sem helst verður fyrir valinu eru norrænar og breskar sögur. Hann er minna fyrir ameríska þrillera og segir vanta allt bitastætt í þá. Efnið í bækur sínar sækir Ævar í íslenskt samfélag. Hann sýnir það skýrt og skilmerkilega að hann vill hafa bækur sínar í takt við það sem er að gerast í kringum okkur. Þegar Ævar var langt kominn með nýjustu bókina, Land tækifæranna, ákvað hann að bæta hana og breyta eft- ir að efnahagsástand landsins fór úr skorðum. Sagan fjallar um nýríkan íslenskan útrásarvíking sem lendir í ógöngum og því tilvalið að nota að- stæður landsins til að gera frásögn- ina samtímalegri. „Sagan stendur al- veg óbreytt þannig séð, fórnarlömbin eru þau sömu og glæpamenn þeir sömu en mér fannst ég ekki geta gert annað en skrifa þessi ósköp að ein- hverju leyti inn í hana.“ Vann í banka Ævar hefur starfað víða í gegnum árin en haldið sig mest við fjölmiðla. Hann hefur verið í blaðamennsku, ýmist sem lausapenni eða í föstu starfi. Ævar hefur einnig unnið við þýðingar, annast dagskrárgerð í út- varpi og unnið í sjónvarpi en árið 1986 sá hann um þáttinn Poppkorn ásamt Gísla Snæ Erlingssyni. Hann hefur meira að segja unnið í banka. „Það var nú bara í tvö ár um svipað leyti og ég var í Poppkorni og það var nú ekki framtíðarstarf. Ég sat í gjaldkerastúkunni ásamt mörgu góðu fólki. Við Dr. Gunni sátum þarna hlið við hlið og höfðum gam- an af. Það var margt gott fólk þarna á sínum tíma og er enn þótt maður geti ekki sagt að allir bankastarfs- menn séu góðir. Þetta er orðið langt síðan,“ segir Ævar. Ævar á konu, tvær dætur og tvo ketti. „Svo á ég einn aldraðan Land Rover sem virkar enn,“ segir hann stoltur. Spurður út í ástandið get- ur hann ekki sagt neitt annað en að það sé skelfilegt. „Það er bara ekkert öðruvísi en það og maður veit ekkert hvernig maður á að vera eða hvað maður á að gera,“ segir hann og á það eflaust við alla aðra í þjóðfélag- inu. „Þetta er bara svo súrt.“ Báðar bækur Ævars koma út núna fyrir jólin, annars vegar ævi- sagan um Hörð Torfa og hins vegar nýja skáldsagan hans, Land tæki- færanna. Hvað næst kemur frá hon- um er enn ekki vitað. „Ég hef ekki hugmynd um hvað gerist á morgun, það verður bara að koma í ljós.“ asdisbjorg@dv.is Ekki mínar persónur Það getur verið ansi erfitt að finna upp hjólið aftur og aftur í tölvu- leikjaheiminum en sumum tekst það – þó með misjöfnum árangri. Mirror‘s Edge er gott dæmi um það þegar vel tekst til að finna upp hjólið aftur. Leikurinn gerist í stór- borg þar sem yfirvöld fylgjast náið með öllu sem gerist. Myndavélar á hverju horni, búið að berja niður alþýðuna og ekkert fer framhjá lag- anna vörðum. Ekki ósvipað því sem myndi gerast á Íslandi ef ákveðinn maður væri einræðisherra, hóst. Leikurinn er fyrstupersónuhas- arleikur og fjallar um stelpuna Faith sem hefur það að atvinnu að koma skilaboðum á milli þeirra sem fíla engan veginn þessa ofurhlerun yf- irvaldsins. Þetta gerir Faith með því að stökkva húsþaka á milli, klifra upp veggi, renna sér undir hitarör og þar fram eftir götunum. Ég vil helst segja sem minnst um sjálf- an söguþráðinn annað en að hann kemur bara ágætlega út. Spilunin er algjör snilld. Leik- urinn gengur nefnilega ekki út á að skjóta vondu gæjanna heldur ein- faldlega að hlaupa frá þeim. Það er kannski ekkert almennt talið „kúl“ að hlaupa frá slagsmálum (sá væg- ir sem vitið hefur meira) en það er hrópandi mótsögn við þennan leik. Einu skiptin sem þú færð að skjóta af byssu í leiknum er þegar þú af- vopnar lögguna en þá getur þú að- eins notað þær byssukúlur sem eft- ir eru í klippunni – þú getur hvergi náð í kúlnapakka eða eitthvað slíkt. Leikurinn sem sagt byggist á því að koma skilaboðum til skila með öllum tiltækum ráðum. Það gerir Faith með því til dæmis að hlaupa upp vegg, stökkva af hon- um og upp á brún þar sem hún síðan lætur sig renna á reipi nið- ur um nokkrar hæðir. Allar þessar hreyfingar í einni bunu er það sem gerir leikinn að því sem hann er – frábær skemmtun. Þar af leiðandi rennur spilunin ljúft ofan í mann í bland við skemmtilega grafík stórborgarinnar. Mirror‘s Edge er sannkallaður tímamótaleikur og eitthvað sem „alvöru“ nördar eins og ég ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Á ystu nöf! Svartir englar Ævar er nokkuð ánægður með gerð þáttanna þrátt fyrir að hann sjái ekki sínar persónur koma fram. tölvuleikir Mirror‘s EdgE tegund: fyrstu-persónu hasarleikur Spilast á: X360, Ps3 og PC

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.