Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Blaðsíða 34
föstudagur 21. nóvember 200834 Helgarblað Íslenskir þingmenn eru misseinheppnir, spilltir og heiðarleg- ir. Vafalítið eru þeir flestir hinir vænstu menn en þó nokkrir hafa ritað nafn sitt í sögubækurnar fyrir eitthvað sem þeir vilja án efa ekki láta minnast sín fyrir. Þetta eru ýmist mis- mæli, aðsvif, harðorðir tölvupóstar, ölvunarakstur eða jafnvel brot á ýmsum lagaflokkum í einu. Nýjasta tilvikið er rýtings- stunga Bjarna Harðarsonar, þáverandi þingmanns Framsókn- arflokksins, í bak samherja síns í formi tölvupósts sem fyrir handvömm Bjarna fór á alla fjölmiðla landsins. DV rifjar upp ýmsar neyðarlegar aðstæður sem þingmenn hafa lent eða kom- ið sér í síðustu ár. Neyða legar aðstæður þingmanna Mislukkuð rýtingsstunga eitt ferskasta dæmið um slæm mistök alþingismanns er mislukkuð rýtingsstunga bjarna Harðarsonar framsóknarmanns í bak samherja og varaformanns síns, valgerðar sverrisdóttur. Þannig vildi til að kvöld eitt á dögunum ætlaði bjarni sér að senda póst sem innihélt heldur niðrandi orð í garð valgerðar á aðstoðarmann sinn og óska eftir því að bréfið yrði sent nafnlaust á alla fjölmiðla. ekki vildi þó betur til en svo að bjarni sendi óvart póstinn beint á alla fjölmiðla, og ekki bara íslenska fjölmiðla heldur líka erlenda. Í kjölfarið sendi hann svo annan póst þar sem hann óskaði eftir því að fjölmiðlar myndu ekki fjalla um þessi mistök sem honum hefði orðið á en þess í stað varð þetta hitamál í öllum fjölmiðlum morguninn eftir. Lyktir málsins urðu að bjarni sagði af sér þingmennsku. Rassaspörk og mútuþægni Árni Johnsen hefur líklegast einna oftast þingmanna komist í fjölmiðla fyrir undarlega hegðun og skapvonsku. eitt af eftirminnilegustu skapofsaköstum Árna var án efa á alþingi árið 1996. össur skarphéðinsson hafði nýlokið við að flytja ræðu sem Árni var augljóslega ósammála og segir össur þá eitthvað á þá leið að hann heyri í hæstvirtum þingmanni Árna Johnsen hrista höfuðið. Árni brást illa við og á leiðinni út úr salnum lét Árni fótinn vaða beint í afturendann á össuri. síðan þá hefur Árni af og til misst stjórn á skapi sínu, meðal annars kýlt Hreim Heimisson, söngvara Lands og sona, neglt öxlinni í tökumann sjónvarpsins og lamið sjómann. að því ógleymdu að hafa verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar á Kvíabryggju fyrir fjárdrátt, umboðssvik, rangar skýrslur til yfirvalda og mútuþægni í opinberu starfi. Áhyggjur eða ekki áhyggjur ... Í maíbyrjun 2007, skömmu fyrir þingkosningar, lýsti sjálfstæðiskonan Ásta möller á heimasíðu sinni yfir áhyggjum af afskiptasemi forseta Íslands af stjórnarmynd- un eftir kosningarnar. fréttastofa stöðvar 2 óskaði eftir viðtali við Ástu um málið morguninn eftir að færslan birtist. Hún samþykkti það en afboðaði stuttu síðar. fréttamaður stöðvar 2 hitti hins vegar á Ástu skömmu seinna og spurði hana út í áhyggjurnar, en hún svaraði því til í afar vandræðalegu viðtali að það sem hún hefði viljað segja stæði á heimasíðu hennar. skömmu síðar hafði þingkonan samband við fréttastofuna og vildi fá að tjá sig nánar um málið. Þá sagði hún að hún hefði hugleitt málið nánar og rætt við fólk og niðurstaðan þá verið að hún hefði haft óþarfa áhyggjur af þessu. Ásta kom enn kjánalegri út úr seinna viðtalinu en því fyrra. Þeir sem til þekkja segja að skinið hafi í gegn að hæstráð- endur í valhöll hafi sagt Ástu að skipta um skoðun í málinu. Margruglaðist á nafni Halldór blöndal, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, kann ófáar stökurnar og limrurnar sem runnið hafa upp úr honum við hin ýmsu tækifæri í gegnum tíðina. af því mætti ætla að Halldór hefði stálminni. ef svo er brást það honum að minnsta kosti illilega dag einn í þinginu fyrir nokkrum árum. Þá var Halldór í ræðustól að svara fyrir eitthvað sem Ásta ragnheiður Jóhannes- dóttir, þingkona samfylkingarinnar, baunaði á hann. Í svarinu kallaði sjálfstæðismaðurinn reyndi þingkonuna að minnsta kosti þrisvar ragnheiði Ástu við mikil hlátrasköll þingheims. Þegar Halldóri hafði verið bent á mismælið sagði hann að honum fyndist þessi útgáfa nafnsins fallegri. Halldór beit svo höfuðið af skömminni með því að rangfeðra Ástu, loksins þegar honum tókst að hafa fyrra og seinna nafn á réttum stað, sagði Ásta ragnheiður „Pétursdóttir“. Þess má geta að eina kunnustu rödd ríkisútvarpsins á kona að nafni ragnheiður Ásta Pétursdóttir sem að líkindum flækti málin fyrir Halldóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.