Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Qupperneq 38
Arsenal Bolton Wanderers
Chelsea Everton
Aston Villa Blackburn Rovers
Fulham Hull City
Middlesbrough
Newcastle United Sunderland
Liverpool Manchester City Manchester United
Portsmouth Stoke City
Wigan AthleticWest Bromwich AlbionTottenham Hotspur West Ham United
föstudagur 21. nóvember 200838 Sport
Torres heill heim rafael benitez var mikið létt þegar ljóst varð að spán-
verjarnir fimm í liði Liverpool komust heilir í gegnum landsleik spánar og Chile.
benitez þurfti að horfa upp á fernando torres togna í síðasta landsleikjahléi en
ekkert lið má við því að missa slíkan leikmann í meiðsli. torres kom inn á fyrir
david villa í seinni hálfleik og skoraði eitt af þremur mörkum spánverja í leiknum.
alonso og riera spiluðu allan leikinn, reina kom inn á í hálfleik og arbeloa spilaði
í seinni hálfleik. Leikmennirnir fimm verða því klárir í slaginn gegn fulham en
ekki er reiknað með því að steven gerrard verði leikfær.
umsjón: tómas þór þórðarson, tomas@dv.is / sveinn Waage, swaage@dv.is
Það kaupa öll lið einhvern tímann leikmenn sem teljast vera „flopp“. Stórliðin á Englandi eru þar til dæmis
hvergi undanskilin. Hver man ekki eftir Juan Verón hjá Manchester United, Fernando Morientes hjá Liver-
pool, Francis Jeffers hjá Arsenal og auðvitað konungi allra floppa, Andriy Shevchenko hjá Chelsea. Eitt lið
er þó allra liða duglegast að kaupa leikmenn sem ekki standa undir væntingum. Newcastle. Það var ekki
mikið mál að taka til átta leikmenn sem hafa floppað þar. Þurfti ekki að horfa lengra til baka en þrjú ár.
Bestir í að finna floppin
CaCapa
brasiLía
Aldur: 32 ára
Staða: varnarmaður
Núverandi lið: newcastle
Tímabil hjá Newcastle: 2007-?
Leikir með Newcastle: 24
Árið 1999 var Cacapa valinn besti varnarmaður
brasilísku deildarinnar. Hann fór þaðan til Lyon og
var fyrirliði þess í fimm af þeim sjö árum sem hann
spilaði þar og vann franska meistaratitilinn öll þau
ár. það var því enginn aukvisi sem newcastle var að
fá til sín þótt ekki margir vissu hver hann væri þegar
hann kom til englands. þarna var á ferðinni fyrirliði
langbesta liðs frakklands og hafði spilað reglulega í
meistaradeildinni. að hann sé ennþá á samningi er
eiginlega ótrúlegt. að hafa ekki náð sér á strik er
svo vægt til orða tekið að það hálfa væri nóg. Á
síðasta tímabili tókst honum meira að segja að vera
tekinn af velli eftir sautján mínútur þegar newcastle
var 3-0 undir gegn Portsmouth á heimavelli.
ótrúleg umskipti hjá manni sem nú kemst ekki í
liðið. og er það engin furða.
abdoulaye Faye
senegaL
Aldur: 30 ára
Staða: varnarmaður
Núverandi lið: stoke
Tímabil hjá Newcastle: 2007-2008
Leikir með Newcastle: 22
það var góð ástæða fyrir því að sam allardyce tók
þennan risavaxna miðvörð með sér frá bolton þegar
hann tók við stjórnartaumunum hjá newcastle.
þetta tröll hafði verið ein stærsta ástæða þess að
bolton var lið sem svo erfitt var að skora hjá.
allardyce sá þar leik á borði að styrkja vörnina með
manni með reynslu af úrvalsdeildinni og hafði
sannað sig. en eins og svo margir varnarmenn sem
klæðast hvíta og svarta búningum var eins og faye
hefði aldrei áður spilað vörn þegar kom að leikjum
með newcastle. ráðvilltur í liði sem var langt frá því
að vera með sama leikskipulag og aga og bolton
átti faye eflaust versta knattspyrnuár ævi sinnar.
byrjunarliðsmaður hjá bolton er hann núna kominn
á bekkinn hjá stoke. allardyce gerði honum gott í
bolton, óleik hjá newcastle.
david rozehnal
tékkLand
Aldur: 28 ára
Staða: varnarmaður
Núverandi lið: Lazio
Tímabil hjá Newcastle: 2007-2008
Leikir með Newcastle: 7
rozenhal hafði átt fínan feril þangað til hann gekk
til liðs við newcastle. Lék með Club brugge í belgíu í
tvö ár áður en hann færði sig til frakklands og lék
með París st. germain í önnur tvö. Hjá Psg var hann
valinn besti leikmaður liðsins af stuðningsmönnum.
Hann er tékkneskur landsliðmaður og á að baki 43
landsleiki. Lék bæði alla leiki tékklands á Hm 2006
og em í sumar. en hjá newcastle var sagan ekki
jafnmikið ævintýri. ömurlegar frammistöður hans
skiluðu aðeins sjö leikjum og var hann lánaður eftir
aðeins hálft síðasta tímabil til Lazio á ítalíu. geri
aðrir betur. skipti svo endanlega yfir í sumar. var
einmitt maðurinn sem kom inn á fyrir Cacapa eftir
sautján mínútur í leiknum fræga gegn Portsmouth.
Átti að fá á sig víti aðeins mínútu eftir að hann kom
inn á. slapp með það greyið.
josé enrique
sPÁnn
Aldur: 22 ára
Staða: varnarmaður
Núverandi lið: newcastle
Tímabil hjá Newcastle: 2007-?
Leikir með Newcastle: 29
kannski ekki jafnmikið flopp og hinir kollegar
hans en enn einn varnarmaðurinn á listanum. eftir
ágætistímabil með villarreal á spáni aðeins
tvítugur að aldri sá allardyce mikið í honum. Hann
hefði kannski sloppið við sæti á listanum þar sem
honum er nú aðeins að vaxa ásmegin stráknum.
en það hversu mikið newcastle hélt ekki vatni yfir
honum gerir hann að frekar miklu floppi. Hann
áttaði sig engan veginn á að mikill munur er á
enska og spænska boltanum. þegar hann hafði
lokið hlaupum sínum fram skokkaði hann oft létt
til baka og skildi stöðu sína eftir auða. þar biðu
nú ekki mikið skárri menn til að bjarga því sem
bjargað varð eins og listinn sýnir fram á. „stórkost-
legur sóknarbakvörður,“ var sagt um hann við
undirskriftina.
joey barTon
engLand
Aldur: 26 ára
Staða: miðjumaður
Núverandi lið: newcastle
Tímabil hjá Newcastle: 2007-?
Leikir með Newcastle: 28
Hvar er hægt að byrja? tuktúslimurinn og
vandræðagemlingurinn joey barton. Hefur leikið
fleiri leiki með fótboltaliði fangelsis síns en
newcastle. maður sem bryddaði upp á þeirri nýjung
að berja liðsfélaga sinn í klessu. ekki gamaldags
stympingar, heldur barði hann ousmane dabo í
klessu. það „skondna“ í því er að þá snilld fram-
kvæmdi hann hjá manchester City og þarf
newcastle að súpa seyðið af því. inni á vellinum
hefur hann einnig lítið getað enda með það á bak
við eyrun að hann sé nýkominn úr fangelsi eða á
leið í það. Hversu mikil vandræði hann hefur skapað
einu liði á einu og hálfu ári er hreint ótrúlegt. þó að
ljótt sé að segja er hann þó ágætur í götuslagsmál-
um eins og sást á myndbandi af honum berja
einhvern ungling sem átti það ekkert skilið. þetta er
eins og ef dabbi grensás væri í breiðabliki.
alan smiTh
engLand
Aldur: 28 ára
Staða: framherji
Núverandi lið: newcastle
Tímabil hjá Newcastle: 2007-
Leikir með Newcastle: 33
glöggir lesendur taka eftir að smith er titlaður fram-
herji. það er vegna þess að hann er framherji. Lék
sem framherji hjá Leeds og keyptur sem framherji
til manchester united. þegar allt var með versta
móti í herbúðum united og roy keane farinn hélt
alex ferguson að smith gæti orðið úrvals harður
miðjumaður því hann hafði svipað keppnisskap og
keane. Honum skjátlaðist. því keypti sam allardyce
hann til newcastle en hann vissi sjálfur ekki alveg
hvort hann væri að kaupa hann sem miðjumann
eða framherja. þess vegna hefur hann spilað báðar
stöður á víxl og verið hreint út sagt ömurlegur. ekki
skorað eitt einasta mark. það var hræðilegt fyrir
smith að Leeds skyldi falla því þar lék hann best.
Hann þarf að færa sig um set einu sinni í viðbót og
leika sem framherji. Hann er nefnilega alls ekki
slæmur leikmaður (framherji).
alberT luque
sPÁnn
Aldur: 28 ára
Staða: vængmaður
Núverandi lið: malaga
Tímabil hjá Newcastle: 2005-2007
Leikir með Newcastle: 21
Æ, æ, æ. spænski hrellirinn. Luque kom upp í
gegnum unglingastarf barcelona en fór snemma til
mallorca. þaðan fór hann til deportivo La Coruna
þar sem hann varð einn af bestu vængmönnum
spænsku deildarinnar. Hraði hans, tækni og ekki síst
öll mörkin sem hann skoraði af vængnum héldu
mörgum augum stórra liða á þessum fína
leikmanni. enska úrvalsdeildin heillaði og
peningaflæðið sem þar er. Hans versta ákvörðun
hingað til en hann auðvitað vissi það ekki þá.
meiðslum þjáður nær allan tímann sem hann var
hjá newcastle átti hann ekki sjö dagana sæla. þegar
hann svo loksins spilaði gat hann ekkert og var
aldrei í takt við neitt sem liðið var að gera. eftir eitt
ár á bekknum hjá ajax er Luque núna í malaga á
spáni og hefur leikið þrjá leiki á þessu tímabili.
Hæðir og lægðir.
jean-alain boumsong
frakkLand
Aldur: 28 ára
Staða: varnarmaður
Núverandi lið: Lyon
Tímabil hjá Newcastle: 2005-2006
Leikir með Newcastle: 47
auðvelt er að ímynda sér stuðningsmenn
newcastle fá hroll þegar þeir líta á þá staðrend að
boumsong lék 47 leiki fyrir newcastle. eftir frábær
ár hjá auxerre í frakklandi hélt hann til bretlands
árið 2004. stoppaði þó í tvö ár hjá rangers þar sem
hann var þeirra besti maður og vann sér inn
landsliðssæti hjá frakklandi. Hann á að baki 24
landsleiki með því svo það sé hér skjalfest. með
reynslu af breskum fótbolta og landsleiki fyrir ekki
ómerkara landslið en frakkland á bakinu virtist sem
newcastle væri að fjárfesta í öflugum miðverði.
öflugur eða ekki öflugur gat hann nákvæmlega
ekki neitt og kostaði newcastle tvö mörk gegn
manchester united á sínu fyrsta tímabili. endalaus
vandamál í einkalífinu hjálpuðu ekkert til og þegar
að sumri kom var newcastle fljótt að taka tilboði
juventus sem þá lék í seriu b.