Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2008, Síða 46
föstudagur 21. nóvember 200846 Helgarblað DV Hjúkrunarfræðingur með köllun Colin norris er fyrsti hjúkrunarfræðingurinn í bretlandi sem dæmdur hefur verið fyrir morð síðan benjamin geen fékk sautján ára dóm fyrir að myrða tvo sjúklinga árið 2006. Það var talið að ástæðan fyrir morðum Colins hefði verið sú að honum hefði einfaldlega verið illa við aldrað fólk. Í hans augum var aldrað fólk bara til ama og engum greiði gerður með því að halda því á lífi. Colin var ákærður fyrir morð á fjórum konum og eina morðtilraun og álitið að hann hefði haldið áfram að myrða gamalmenni ef ekki hefði komist upp um hann. Lesið um hjúkrunarfræðinginn sem myrti í næsta helgarblaði dv. Banvænt hryggBrot Ricardo Navarro hafði ekki hugsað sér að sleppa hendinni af Svetlönu Orlova. Ofbeldishneigð Navarros hafði gert hana afhuga honum en hann hugðist nýta sér rauveruleikaþátt til að vinna hjarta hennar aftur. Frammi fyrir milljónum sjónvarpsáhorfenda fór hann á hnén og bað hennar. Raunveruleikaþátturinn Diar- io de Patricia var vinsæll þáttur í spænsku sjónvarpi. Mögulegum þátttakendum var gert að nefna til sögunnar einhvern sem þeir vildu gjarna hitta og þá yfirleitt í rómant- ískum tilgangi. Fundinum er síðan komið á án þess að sú persóna sem óskað er eftir hafi minnstu hug- mynd um hvað sé í vændum. Þetta skipulag gerði Ricardo Navarro kleift að koma Svetlönu Orlova í opna skjöldu. Svetlana var frá Pétursborg í Rússlandi og hafði búið í Alicante í átta ár og unnið sem herbergisþerna á hótel- um. Lífið var ekki létt og hún þurfti að ala önn fyrir syni sínum, af- urð sambands hennar og spánsks manns sem heyrði sögunni til. Þau höfðu verið nágrannar 2004 og eft- ir að hafa kynnst nánar hófu þau búskap. Svetlönu fannst að lífið brosti við sér, en það var skammgóður vermir. Áður en langt um leið kom í ljós að í Navarro bjó ofbeldishneigð og hann bæði barði hana og beitti hana kynferðislegu ofbeldi. Svetl- ana lét það yfir sig ganga í einhvern tíma, en síðan varð henni nóg boð- ið og kærði hann til lögreglunnar. Navarro fékk sex mánaða skilorðs- bundinn dóm. Lofaði bót og betrun Navarro lofaði bót og betrun og sór að hann myndi aldrei leggja hend- ur á Svetlönu á ný. Loforð og iðrun hans entust jafnlengi og nýársheit og fyrr en varði hófust barsmíðarn- ar á ný. Kvöld eitt í október 2007 flýði Svetlana úr íbúð þeirra, blóð gusaðist úr skurði á höfði hennar, hár vantaði þar sem Navarro hafði gripið í hana og ljótt mar var á hálsi hennar. Svetlana lagðist grátandi á bekk í garði þar til vegfarandi einn misk- unnaði sig yfir hana og kom henni á spítala. Í þetta sinn var iðrun Navarros svo yfirþyrmandi að engu líkara var en hann meinti það sem hann sagði. Símhringingum rigndi yfir Svetlönu, sem hún svaraði ekki, og sms-skilaboð fylgdu í kjölfar- ið. Svetlönu sýndist að eina lausn- in væri að fara heim til Rússlands, en vegabréfsvandræði vegna sonar hennar komu í veg fyrir það. Navarro fékk ellefu mánaða fangelsisdóm, enn og aftur skil- orðsbundinn, og var auk þess bannað að koma í innan við fimm hundruð metra fjarlægð frá Svet- lönu. Navarro leggur á ráðin Það var þá sem Navarro datt í hug að notfæra sér raunveruleikaþátt- inn Diario de Patricia. Hann hafði sambandi við þáttastjórnendur og sagði að hann langaði að laga sam- band sitt og kærustunnar. „Við höf- um glímt við nokkur vandamál, en nú langar mig að nota þáttinn ykkar og biðja hana að giftast mér,“ sagði Navarro við einn þáttastjórn- andann. Þáttastjórnendur elskuðu hug- myndina og leituðu að Svetlönu. „Hann er náinn þér og kemur langt að,“ var Svetlönu sagt. Í hennar huga gat langt að aðeins þýtt Rúss- land og hún sá tækifæri til að kom- ast jafnvel heim til Rússlands á ný. Án þess að hika samþykkti hún að koma fram í þættinum, sem senda átti út 14. nóvember. Svetlana sat í myndverinu og beið í eftirvæntingu og maðurinn sem vildi svo ákaft hitta hana nálg- aðist að baki hennar.Þegar hún sá hver maðurinn var fór um hana skjálfti. Hún reyndi að mæla, en kom ekki upp einu orði. Kynnirinn, Patricia, talaði fjálg- lega um Ricardo Navarro, þennan unga rómantíska mann og ærleg- an ásetning hans, en Svetönu lang- aði mest til að öskra, en var það um megn. Bónorð og afsvar Svetlana gat ekki horft á Navarro, það var líkt og augu hennar væru sveipuð mistri, en hún skynjaði að hann kraup fyrir framan hana og dauðaþögn ríkti í myndverinu. Navarro rétti hring að henni, rödd hans var silkimjúk og klökk. „Þú ert eina konan fyrir mig. Þú ert mér allt, allt,“ sagði hann með leikrænum tilþrifum. Svetlana var sem frosin af skelfingu og fyrir- munað að stynja upp einu orði. „Nú, hverju svararðu honum, Svetlana?“ heyrði hún Patriciu spyrja, og ekki laust við að óþols gætti í rómnum. Svetlana beitti sig hörðu og tókst loks að finna röddina: „Nei,“ hvíslaði hún. Þetta var ekki svarið sem Patr- icia vildi heyra, og ekki svarið sem Navarro átti von á frammi fyrir milljónum sjónvarpsáhorfenda. Hann stóð niðurlægður á fætur og þátturinn sem átti að enda á stór- kostlegum nótum rann sitt skeið vandræðalega á enda. Hnífur í stað hrings Nokkrum dögum síðar tók Svetlana eftir BMW-bifreið sem fylgdi henni eftir. Hún velti því ekkert frekar fyr- ir sér. Sonur hennar, sem var orð- inn fimm ára, átti að vera hjá föður sínum um helgina. Á sunnudeginum fór Navarro heim til Svetlönu, hann vissi að hún var ein heima. Þegar hún opn- aði dyrnar sagði hann blátt áfram: „Ég vil að þú komir til baka og búir með mér.“ Svar Svetlönu var skor- inort: „Aldrei!“ Án frekari málalenginga smeygði hann hendinni inn und- ir frakkann sinn. En það var ekki hringur sem hann otaði að henni í þetta sinn, heldur hnífur. Eftir að hafa stungið Svetlönu skar hann hana á háls. Nágrannar heyrðu ópin í Svet- lönu og hringdu á sjúkrabíl. Hún dó morguninn eftir. Lögreglan handtók Navarro örfáum klukku- stundum síðar. Hann hafði rakað á sér höfuðið, kannski í undarlegri tilraun til að gera sig ósýnilegan. Ricardo Navarro er í fangelsi og bíður dóms. „Við höfum glímt við nokkur vandamál, en nú langar mig að nota þáttinn ykkar og biðja hana að giftast mér,“ sagði Navarro við þátta- stjórnandann. umsjón: koLbeinn Þorsteinsson, kolbeinn@dv.is HPI Savage XL fjarstýrður bensín torfærutrukkur, sá stærsti og öflugasti til þessa. Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is SAVAGE XL Nýkominn H ild ur H lín Jó ns dó tt ir / h ild ur @ dv .is Ricardo Navarro með hringinn virtist fyrirmunað að skilja að svetlana vildi ekkert með hann hafa. Svetlana Orlova varð skelfingu lostin þegar hún sá hver það var sem kominn var í myndverið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.