Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Qupperneq 2
miðvikudagur 26. nóvember 20082 Fréttir
Í óundirrituðu bréfi til Matthíasar Jo-
hannessen, ritstjóra Morgunblaðsins,
vorið 1998 var haft í hótunum við rit-
stjórana og meðal annars staðhæft að
lögreglan hefði hlerað síma blaðsins.
Í bréfinu voru ræddar miklar
skuldir Styrmis Gunnarssonar rit-
stjóra og hótað að koma upplýsingum
um þær á framfæri við almenning ef
blaðið léti ekki af því að birta greinar
eftir Sverri Hermannsson, sem ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar hafði komið
úr bankastjórastöðu í Landsbankan-
um þá um vorið.
Í bréfinu er einnig hótað að upp-
lýsa um veisluhöld Sverris á vegum
Landsbankans leyfi ritstjórarnir hon-
um að halda áfram níðskrifum um
Davíð og ríkisstjórn hans.
Fáir velkjast í vafa um að bréfið var
ritað af manni úr innsta hring Sjálf-
stæðisflokksins.
Sverrir segir að Kjartan Gunnars-
son, þáverandi framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, hafi reynt að
gera Styrmi gjaldþrota.
Landsbankafárið síðara
Árið 2003 kom út bókin „Sverrir –
skuldaskil“, skráð af Pálma Jónas-
syni fréttamanni. Bókin er byggð á
frásögnum Sverris Hermannsson-
ar, sem var einn helsti forystumaður
Sjálfstæðisflokksins, þingmaður og
ráðherra flokksins samfellt frá árinu
1971 til ársins 1988.
Um páskaleytið 1998 var Sverrir
Hermannsson, bankastjóri Lands-
bankans, látinn víkja úr embætti
ásamt tveimur öðrum bankastjór-
um, Björgvini Vilmundarsyni og
Halldóri Guðbjarnarsyni. Á þess-
um tíma var bankinn í eigu ríkisins.
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins,var orðinn
formaður bankaráðsins og undirbjó
á þessum tíma hlutafélagavæðingu
bankans til þess síðar að einkavæða
hann í samræmi við vilja ríkisstjórn-
arinnar.
Kafli numinn brott
Þegar bókin um Sverri kom út var
ekki greint frá því að tekinn hafði ver-
ið einn kafli úr henni skömmu fyrir
prentun. Í kaflanum var meðal ann-
ars fjallað um bréf sem Sverrir á í fór-
um sínum og sent var vorið 1998 til
Matthíasar Johannessen, ritstjóra
Morgunblaðsins. Bréfið er ódagsett
og ekki er að finna á því neina und-
irskrift. Sverrir telur innihald bréfsins
vera þess eðlis að ekki þurfi að vel-
kjast í vafa um að það sé ritað af Kjart-
ani Gunnarssyni, framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins á þessum tíma.
Slíkar séu upplýsingarnar og eðli hót-
ananna.
Matthías Johannessen segist í
samtali við DV ekki skrifa undir kenn-
ingu Sverris um höfund bréfsins en
kannast við að hafa fengið það og af-
hent Sverri.
Bréfið var ritað eftir að Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra hafði
gert árangurslausa tilraun með að-
stoð hluta af stjórn Árvakurs, til að
loka Morgunblaðinu fyrir Sverri Her-
mannssyni. Hann hafði farið hamför-
um á síðum blaðsins og beint spjót-
um sínum einkum að Davíð og Finni
Ingólfssyni viðskiptaráðherra eftir að
Sverrir harktist nauðugur frá Lands-
bankanum.
Tilgangur bréfsins virt-
ist því vera sá að hóta
ritstjórum Morg-
unblaðs-
ins ef þeir
yrðu ekki
við þeirri
málaleitan
að úthýsa
Sverri af síð-
um blaðsins.
Hótunarbréf
Bréfritari byrjar á
því að frekari um-
ræður um Lands-
bankamálið kunni
að bera í bakkafull-
an lækinn og tilgang-
ur Morgunblaðsins sé
sá einn að verja
Sverri
Hermannsson því hann fái að „ryðja
úr sér óþverranum á síðum blaðsins“.
Ritstjórarnir muni fá að kenna á slíku
framferði.
Síðan víkur bréfritari að því að
mikið umtal sé hjá Landsbanka-
mönnum um ýmislegt, sem eigi að
vera trúnaðarmál. Til dæmis hafi
því verið komið á framfæri við hann
að lögregla viti upp á sína tíu fingur
hvernig vitneskja um SÍS-málið hafi
borist út úr bankanum. Þeir hafi haft
í sínum fórum hleranir frá símtölum
Agnesar Bragadóttur við bankann.
Ákveðið hafi verið að gera ekkert
fleira í málinu að sinni.
Málið var borið undir Agnesi í
gær, en hún neitar að tjá sig um það.
„Það sem sagt er í trúnaði hér á rit-
stjórninni kemur þér ekki við,“ sagði
hún við blaðamann DV.
Þá víkur bréfritari að því að orðr-
ómur sé innan Landsbankans um
veisluhöld Sverris á vegum bankans
fyrir nafngreinda menn, þar á með-
al Matthías Johannessen, viðtakanda
óundirritaða bréfsins. Kveðst bréf-
ritari ekki vilja vera í sporum Sverris
að skýra slík veisluhöld fyrir þjóðinni
til viðbótar öllu því, sem á hann væri
búið að klína.
Bréfritari víkur síðan að Styrmi
en segir að um það allt saman hljóti
Matthías Johannessen að vera kunn-
ugt. Davíð Oddsson hafi sagt Styrmi,
að fyrst hann notaði Moggann til að
hafa af sér mannorðið myndi hann
(Davíð Oddsson) launa honum
lambið gráa og upplýsa allt um fjár-
mál hans. Úr því myndi fást skorið
hvor þeirra lifði slíkt af.
Bréfið endar svo á því að að lagt
er til að allur málatilbúnaðurinn sem
víkur að Sverri verði af lagður. Hann
sé engum til góðs, en af nógu sé að
taka í banka eins og Landsbanka, ef
nógu djúpt sé grafið og menn séu
nægilega ósvífnir. Minnt er á að friður
óttans sé hinn varanlegasti, eins og
eitt sinn hafi verið haft á orði.
Loks leggur bréfritari til að að
Agnes Bragadóttir verði rekin af blað-
inu vegna illkvittni hennar, sem gæti
skaðað bestu menn.
Stjórn Árvakurs varð ekkert ágengt
við að loka Morgunblaðinu fyrir
Sverri og ritstjórarnir höfðu óundir-
ritaða bréfið að engu.
Allt á suðupunkti milli
Flokksins og Moggans
Í miðju fárinu 1998 frá því banka-
stjórarnir voru látnir taka pok-
ann sinn í Landsbankanum
ákveður Davíð að bjóða
Styrmi Gunnarssyni,
ritstjóra Morgun-
blaðsins, sæti í
auðlindanefnd
sem freista átti
þess að koma á
friði um kvóta-
kerfið. Þetta
var í byrjun
júní 1998.
Stjórnar-
flokkarnir
skipuðu raun-
ar engan þing-
mann í auð-
lindanefndina, en
formaður henn-
ar var Jóhannes
Nordal. „Við telj-
um nefndina
mjög mik-
ilvæga og valið í hana undirstrikar
það,“ sagði Davíð Oddsson í samtali
við Morgunblaðið 6. júní þetta sama
ár.
Degi áður, föstudaginn 5. júní,
höfðu ritstjórar Morgunblaðsins
setið áríðandi fund með stjórn Ár-
vakurs. Samkvæmt dagbókarfærsl-
um Matthíasar Johannes-
sen ritstjóra óskuðu
stjórnarmennirnir
Stefán Eggerts-
son og Hulda
Valtýsdótt-
ir upp-
haflega
eftir fund-
inum
með rit-
stjórun-
um, en
Haraldur
Sveinsson,
stjórnarfor-
maður Ár-
vakurs, og
Hallgrímur
B. Geirsson,
framkvæmda-
stjóri félagsins,
sátu fundinn
einnig. Styrm-
ir hefur sjálf-
ur
MogganuM hótað úr innsta hring
Ritstjóri Morgunblaðsins fékk óundirritað hótunarbréf vegna skrifa Sverris Hermanns-
sonar í blaðið. Í því er rætt um skuldir Styrmis Gunnarssonar ritstjóra, hleranir lög-
reglunnar á símum blaðsins og veisluhöld Sverris í Landsbankanum á þeim tíma. Flest
bendir til þess að bréfið sé ritað af manni úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins.
JóHAnn HAuKSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Davíð Oddsson
hafi sagt Styrmi, að
fyrst hann notaði
Moggann til að hafa
af sér mannorðið
myndi hann (Davíð
Oddsson) launa
honum lambið gráa
og upplýsa allt um
fjármál hans. Úr því
myndi fást skorið
hvor þeirra lifði
slíkt af.
Agnes Bragadóttir blaðamaður á Morgun-
blaðinu bréfritari heldur því fram að lögreglan
hafi hlerað síma morgunblaðsins og viti upp á
sína tíu fingur hverjar heimildir agnesar voru í
SÍS-málinu, en það endaði fyrir dómi.
MYnD HEIÐA HELGADóTTIR
Davíð oddsson seðlabankastjóri
Styrmi ofbauð söguburður úr innsta
hring Sjálfstæðisflokksins um skuldir
sínar og gekk á fund davíðs.
MYnD SIGuRÐuR GunnARSSon
Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins í 25 ár og
bankaráðsmaður í Landsbankanum
Sverrir segir kjartan hafa viljað gera
Styrmi gjaldþrota.
MYnD GunnAR GunnARSSon
undirferli í Landsbankanum?
Fyrrverandi bankastjóri segir
fyrrverandi bankaráðsmann hafa lagt
að sér að gera ritstjóra gjaldþrota.
MYnD SIGTRYGGuR ARI