Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Blaðsíða 15
miðvikudagur 26. nóvember 2008 15Umræða Hver er maðurinn? „margrét Pétursdóttir.“ Hvað drífur þig áfram? „réttlætis- kennd.“ Hvar ólstu upp? „Í reykjavík.“ Við hvað lékstu þér helst sem barn? „Það voru bara útileikir með krökkunum í hverfinu held ég.“ Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn? „villibráð.“ Ertu vön að halda ræðu fyrir svona stóran hóp? „nei, þetta var í fyrsta skipti sem ég geri það.“ Hvernig var tilfinningin? „Hún var mjög góð um leið og ég sá fólkið í salnum og gat horft framan í það.“ Hefurðu fengið einhver viðbrögð við ræðunni á borgarafundinum? „Já, ég hef fengið rosalega mikil og góð viðbrögð alls staðar að og ég þakka fyrir það.“ Er von á kvennaframboði? „nei. Það er ekki ákveðið en það er í gerjun. Ég get þó sagt að kosninga- skrifstofa verður opnuð mjög fljótlega.“ Mætir þú á mótmælin á Austurvelli á laugardögum? „Já. Ég hef ekki mætt í öll skiptin en ég klifraði upp í styttuna á þeim síðustu.“ Hvað er fram undan? „Það er margt í boði. Það er búið að bjóða mér margt og meðal annars að vera með ræðu á næsta útifundi á austurvelli. Svo eru fjölmiðlar á bakinu á mér.“ Hver er draumurinn? „réttlátt, jafnt og húmorískt þjóðfélag.“ TreysTir þú ríkissTjórninni? „Ég treysti henni ekki mjög vel. en ég er ekki á því að kjósa strax, það á frekar að gera í vor. en það er rétt að kjósa aftur. Ég verð samt að viðurkenna að þeir voru seinir að bregðast við.“ Gylfi ÓskArsson 58 ára bÍlvirki. „Já, vegna þess að mér finnst maðurinn bröndóttur. Og við höfum ekkert skárra. Sjálfsagt hafa þeir ekki séð alla hluti fyrir frekar en margir aðrir. dálítið flókið allt saman.“ JÓnAs GunnlAuGsson 80 ára ellilÍfeyriSÞegi. „Já, ég geri það nú. Það á hins vegar að kjósa aftur. Þá til þess að endurnýja umboðið.“ ÓlAfur siGurðsson 52 ára vÉlStJóri. „Ég treysti þeim ekki. Öllu sem þau hafa gert hafa þau klúðrað, eiginlega bara gert illt verra. Ég vil kosningar.“ GunnlAuGur Atli tryGGVAson 18 ára nemi. Dómstóll götunnar MArGrét PétursdÓttir verkakona sló í gegn á borgarafundi sem haldinn var í Háskólabíó síðastliðið mánudagskvöld. margrét er mjög virk í pólitíkinni og er í flokki vinstri-grænna sem og femínistafé- lagi Íslands. einnig er hún virk í fjölmiðlahópi neyðarstjórnar kvenna. á borgarafundinum talaði hún í fyrsta skipti frammi fyrir hópi. Klifraði upp í styttuna „Ég treysti ríkisstjórninni, en það á að skipta um stjórnina í seðlabankanum. Það finnst mér. ekki tímabært að kjósa enn sem komið er.“ MArtin GrAbowski 56 ára læknir. Launakjör bankastjóra nýju ríkis- bankanna hafa vakið mikla andúð og fordæmingu alls almennings og ekki að ástæðulausu. Fyrir liggur að mánaðarlaun þeirra eru frá 1.700.000 kr. á mánuði upp í 1.950.000 kr. auk ýmissa hlunninda sem meta má til tugþúsunda á mánuði. Ganga má út frá því að launakjör annarra æðstu stjórnenda ríkisbankanna, sem ekki taka laun samkvæmt kjarasamn- ingum, dragi dám af þessum öfga- fullu ofurlaunum bankastjóranna sem vel að merkja eru ríkisstarfs- menn. Björgvin G. Sigurðsson, við- skiptamálaráðherra og æðsti yf- irmaður ríkisbankanna sem réð ríkisbankastjórana, hefur gagnrýnt þessi launakjör opinberlega og Ág- úst Ólafur Ágústsson, formaður við- skiptanefndar Alþingis, hefur tek- ið í sama streng. Þeir segja réttilega launin vera alltof há og sérkennilegt að bankastjórarnir taki laun sem nemi tvöföldum mánaðarlaunum ráðherra. tvískinnungur orða og athafna Í ljósi þessara ummæla er ámælis- verður tvískinnungur fólginn í því að hvorki viðskiptaráðherra né for- maður viðskiptanefndar Alþingis hafa lyft litla fingri til að samræma launakjör bankastjóranna og ann- arra yfirmanna bankanna við starfs- kjör annarra æðstu starfsmanna ríkisins. Þeim var og er í lófa lagið, aðeins með því að beita fyrirmæl- um, að sjá til þess að samræmis sé gætt í starfskjörum bankastjóra og þjóðkjörinna manna, dómara, ráðherra, ráðuneytisstjóra, skrif- stofustjóra í Stjórnarráði Íslands, forstöðumanna ríkisstofnana og annarra ríkisstarfsmanna sem svo er háttað um að þau geta ekki ráð- ist með kjarasamningum á venju- legan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu. Björgvin G. og Ág- úst Ólafur hafa haft ærin tækifæri til úrbóta í tæpar sjö vikur. Þeir gátu einnig stýrt ráðningakjörum ríkis- bankastjóranna. Það er einfaldlega svo að hér fylgir hugur ekki máli. Verkin tala annað mál en tungutak- ið. tillögur til úrbóta felldar Fimmtudaginn 6. nóvember síðast- liðinn mælti viðskiptaráðherra fyr- ir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki. Ég tók þátt í störfum viðskiptanefndar um málið fyrir hönd Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs og lagði meðal annars til eftirfarandi tillögur um breytingu á lögunum: „Kjararáð ákveður laun og starfs- kjör bankastjóra fjármálafyrirtækja sem eru í meirihlutaeigu ríkisins og annarra starfsmanna þegar svo er háttað um laun þeirra og starfskjör að þau geta ekki ráðist með samn- ingum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna og samningsstöðu“ og enn fremur: „Um fjármálafyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu ríkisins gilda ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, og upplýsingalaga nr. 50/1996.“ Fyrri tillöguna rökstuddi ég með því að með henni væri í eitt skipti fyrir öll snúið af braut öfgafullrar launaþróunar innan einkabankanna sálugu, burt af braut ofurlauna, bón- usgreiðslna og kaupréttarsamninga. Síðari tillögunni var ætlað að tryggja réttaröryggi og jafnræði borgaranna í samskiptum við ríkisbankana og auka gegnsæi. Sá leyndarhjúpur sem umlukti starfsemi einkabank- anna var gróðrarstía græðgi og mis- réttis og leiddi ásamt öðru til efna- hagshrunsins. Þessar tillögur voru felldar af þingmönnum og ráðherr- um ríkisstjórnar Samfylkingarinn- ar og Sjálfstæðisflokksins. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Ágúst Ólafur Ágústsson, formað- ur viðskiptanefndar, snerust einnig gegn þessum tillögum. Þeir segja eitt en gera annað. Ég læt lesendum eftir að dæma um trúverðugleika þeirra og heilindi. Ríkisstjórnin blessar ofurlaunin kjallari Atli GíslAson alþingismaður skrifar „Björgvin G. og Ág- úst Ólafur hafa haft ærin tækifæri til úr- bóta í tæpar 7 vikur. Þeir gátu stýrt ráðn- ingarkjörum.“ svona er íslanD 1 nauðgunaratriði úr dagvaktinni endurgert Ottó gunnarsson hefur endurgert umdeild atriði úr dagvaktinni þar sem gugga nauðgar ólafi. Hann hefur hins vegar snúið við kynjahlutverkunum, nú er nauðgarinn karl og fórnarlambið kona. 2 Geir: Við steingrímur erum svo góðir félagar forsætisráðherra gerir lítið úr því að Steingrímur J. Sigfússon virtist ýta við honum á alþingi í fyrradag. Steingrímur reiddist þegar björn bjarnason sakaði hann um að tefja fyrir rannsókn á bankahruninu. 3 Þingmenn fá meiri aðstoð en hungraðir mun meiri fjármunum er varið í aðstoðarmenn þingmanna en ríkið veitir til fjölskylduhjálpar Íslands. 4 Morðið á Hrafnhildi enn óupplýst lögreglan í dóminíska lýðveldinu bíður eftir dna-rannsókn áður en frekar verður aðhafst vegna morðsins á Hrafnhildi lilju georgsdóttur. 5 börnum Pamelu strítt villt líferni Pamelu anderson hefur bitnað á sonum hennar sem hafa orðið fyrir aðkasti. 6 ofbeldisstrákum vísað úr skóla Piltarnir þrír sem réðust á jafnaldra sinn fyrir helgi hafa verið reknir úr skóla. 7 Geir: fólk var bara að fá útrás forsætisráðherra segir fundinn í Háskólabíói ekki hafa verið átakafund. mest lesið á dv.is maður Dagsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.