Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Side 4
miðvikudagur 26. nóvember 20084 Fréttir
Biblíutal
í bæjarstjórn
Marteinn Magnússon, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins í
Mosfellsbæ, vitnaði í biblíuna
á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Rætt var um
menningarhús
í Mosfellsbæ
og þá fyrirætl-
an bæjarins
að ráðast í
samkeppni um
hönnun kirkju
og menningarhúss að Háholti.
Marteinn teldur samkeppnislýs-
ingu sem lögð var fyrir bæjarráð
ófullnægjandi og að hún bæri
þess merki að menningarhús-
ið væri aðalatriðið en kirkjan
víkjandi. „Þetta er óviðunandi
og minni ég á hvað biblían segir
um þess háttar samkrull,“ sagði
Marteinn og benti á Matteus-
arguðspjallið þar sem fjallað er
um bænahús. Guðspjallið var
birt í heild sinni í fundargerð
bæjarins.
Vísað úr skóla
Piltunum þremur, sem gengu
hrottalega í skrokk á samnem-
anda sínum í Njarðvíkurskóla,
hefur verið vikið úr skólanum.
Málið er nú í höndum lögreglu
og barnaverndarnefndar. Alda
Hrönn Jóhannsdóttir, lögfræð-
ingur hjá lögreglunni á Suður-
nesjum, segir að rannsókn máls-
ins sé lokið og ákæra á hendur
piltunum verði væntanleg gefin
út eftir áramót. Árásin náðist á
myndband sem var síðan sett
á vefinn YouTube en það var
síðan fjarlægt. Guðmunda Lára
Guðmundsdóttir, skólastjóri
Njarðvíkurskóla, sagði í samtali
við DV að starfsfólk skólans væri
slegið yfir atburðinum.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Kærir forseta
Guðbrandur Einarsson, bæjar-
fulltrúi A-lista í Reykjanesbæ,
hyggst leita til félagsmálaráðu-
neytis vegna þeirra ákvörðunar
Bjarkar Guðjónsdóttur, forseta
bæjarstjórnar, að ávíta ekki
Garðar Vilhjálmsson, bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokks, vegna
ummæla sem hann lagði Guð-
brandi í munn á þar síðasta
fundi bæjarstjórnar. Þetta kemur
fram á vef Víkurfrétta. Guð-
brandur krafðist þess á síðasta
bæjarstórnarfundi að þau yrðu
dæmd dauð og ómerk. Garðar
baðst afsökunar á ummælunum
og sá Björk ekki ástæðu til að
ávíta Garðar.
Leiðrétting
Í súluriti sem fylgdi frétt um
aðsóknarmet á dv.is í blaðinu
í gær urðu þau leiðu mistök
að súlur sem sýndu aðsókn
að vefmiðlinum Eyjunni og
vef Viðskiptablaðsins víxluð-
ust. Þannig var vb.is eign-
uð aðsókn á Eyjuna sem var
með 60.780 notendur í síð-
ustu viku. Súlan sem sýndi
aðsókn á Eyjuna var svo öllu
lægri en tilefni var til þar sem
24.678 notendum vb.is voru
settir undir Eyjuna. Hlutað-
eigandi eru beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Geir H. Haarde ræddi við blaða-
menn eftir ríkisstjórnarfund í Ráð-
herrabústaðnum í gærmorgun og
sagði hann þar meðal annars að
ef boðað yrði til kosninga nú yrði
ekkert af lánveitingu frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum. „Ef stefnir hér
í pólitíska óvissu, sem við mynd-
um gera með því að rjúfa þing og
boða til kosninga, verður ekkert af
þessu. Þess vegna verðum við að
einhenda okkur í að leysa úr mál-
um en ekki búa til meiri óvissu og
óróa ofan á það sem fyrir er.“
Grétar Mar Jónsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, seg-
ir forsætisráðherra vera að hræða
þjóðina frá kröfunni um kosning-
ar. Ólafur Páll Jónsson heimspek-
ingur segir ummæli hans hljóma
eins og hann lýsi skuldbinding-
um íslensku þjóðarinnar við sjóð-
inn sem persónulegum en þær séu
skuldbindingar ríkisins og þjóðar-
innar.
Þegar Geir var spurður hvort
með þessum ummælum væri
hann að segja að eitt af skilyrðum
IMF væri að hér yrðu ekki kosn-
ingar í bráð svaraði hann því neit-
andi: „Hann hefur ekki komið ná-
lægt neinu slíku og ekki sett okkur
nein skilyrði með það. Ég bara er
að tala um það hvað mér finnst
skynsamlegt.“
Geir þorir ekki í kosningar
Grétar Mar Jónsson,
þingmaður Frjáls-
lynda flokksins,
segir forsætis-
ráðherra vera
að hræða
þjóðina frá
kröfunni um
kosningar.
„Hann er að
hræða fólk-
ið í land-
inu. Sjö-
tíu prósent
af þjóðinni
vilja kosn-
ingar. Ég
held að
ríkis-
stjórnin verði að gefa fólkinu kost
á því að kjósa,“ segir Grétar. „Hann
vill ekki og þorir ekki í kosningar.
Ég held að hann sé einfaldlega að
blekkja þjóðina,“ segir Grétar og
tekur fram að það sé ekkert smekk-
legt við þessi ummæli Geirs. Hann
segir ríkisstjórnina hafa legið of
lengi á upplýsingum og hvorki
upplýst þjóðina né stjórnarand-
stöðuna um gang mála. Hann
segist ekki vita hvort einhverjir
aukasamningar við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn séu í gildi en tekur
fram að sjóðurinn hafi áður gert
samninga við ríkisstjórnir án þess
að þeir hafi verið skriflegir.
Stjórn í skjóli Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur vinstri-grænna, segir það mikið
umhugsunarefni að forsætisráð-
herra skuli fara út í slíka tengingu.
„Ég myndi kalla þetta mjög óvið-
urkvæmilega tengingu við þessa
lánsumsókn inn í íslensk stjórn-
mál. Ég varð satt best að segja meir
og meir undrandi og hugsi þegar
ég fór að velta þessu fyrir
mér,“ segir Steingrímur.
„Forsætisráðherra er
í reynd að segja að
ríkisstjórn hans
sitji nú í skjóli Al-
þjóðagjaldeyris-
sjóðsins og það
megi ekki kjósa
eða hrófla við
ríkisstjórninni
vegna þess,“ seg-
ir Steingrímur
og tekur fram að
hann voni að for-
sætisráðherra hafi
ekki fallist á einhver
skilyrði Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins sem
feli í sér að lýðræðið
sé tekið úr sam-
bandi.
Kosningar vel skilgreint ferli
Ólafur Páll Jónsson, heimspek-
ingur við Háskóla Íslands, segir
Geir skilja landsmenn eftir með
eitt stórt spurningarmerki. Erf-
itt sé að skilja hvað hann eigi við
með þessum orðum. „Það hljóm-
ar sumpart eins og hann lýsi
skuldbindingunum sem persónu-
legum skuldbindingum,“ segir Ól-
afur en hann segir að skuldbind-
ingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
séu skuldbindingar á ríkið, og
hvern þann sem er í forsvari fyr-
ir það. Sem slíkar ættu skuldbind-
ingarnar því að vera óháðar því
hver situr í ríkisstjórn.“
Ólafur segist ekki skilja hvers
vegna ekki sé hægt að búa þannig
um hnútana að það yrði tryggt að
ný ríkisstjórn myndi standa við
þær skuldbindingar. Hægt væri
að stofna utanþingsstjórn sem
myndi vinna að þessum mál-
um á meðan flokkarnir yrðu
uppteknir af kosningum.
Varðandi ummæli Geirs
þess efnis að ef boðað
yrði til kosninga færi allt í
pólitíska óvissu segist Ólafur hafa
efasemdir um það. „Samkvæmt
skoðanakönnunum er ekki annað
sjáanlegt en að það yrðu tiltölu-
lega hreinar línur eftir kosningar.“
Hann segir kosningar vera tiltölu-
lega vel skilgreint ferli. Stofnan-
ir ríkisins verði ekki óvirkar þó að
boðað sé til kosninga.
Geir sagði sína skoðun
Baldur Þórhallsson stjórnmála-
fræðingur segir Geir einungis
hafa sagt sína skoðun. „Hann er
bara að segja sína skoðun. Ef yrði
hér ný ríkisstjórn og ef hún sætt-
ir sig ekki við þá áætlun sem nú-
verandi ríkisstjórn hefur gert við
sjóðinn gæti núverandi samn-
ingur verið kominn í upplausn.
Þá segir sig sjálft að samstarf við
sjóðinn gæti verið í uppnámi. Og
þá í leiðinni lánveitingar frá ná-
grannaríkjum okkar.“ Hann telur
afar ólíklegt að Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn hafi eitthvað komið ná-
lægt því hvort hér yrðu kosning-
ar eða ekki. Ef svo væri, væri það
mjög óeðlilegt.
Jón BJArKi mAGnúSSon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„Hann er að hræða
fólkið í landinu. Sjö-
tíu prósent af þjóðinni
vilja kosningar. ég
held að ríkisstjórnin
verði að gefa fólkinu
kost á því að kjósa.“
EKKERT LÁN
EF ÞIÐ KJÓSIÐ
Geir H. Haarde sagði í gær að ef boðað yrði til kosninga myndi ekkert verða af láni
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Grétar mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokks-
ins, segir forsætisráðherrann vera að hræða þjóðina, hann þori ekki í kosningar. ól-
afur Páll Jónsson heimspekingur segir Geir skilja landsmenn eftir með eitt stórt
spurningarmerki á meðan Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur segir Geir ein-
ungis hafa sagt hug sinn.
„Hann er að hræða fólkið í landinu“
grétar mar Jónsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, segir forsætisráð-
herra vera að hræða þjóðina frá kröfu um
kosningar með ummælum sínum.
Kosningar seinka láni eða koma í veg fyrir
það geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í gær að
ekki verði af lánveitingu frá alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um ef þing verði rofið og boðað til kosninga.
mynd SiGtryGGur Ari