Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Qupperneq 6
miðvikudagur 26. nóvember 20086 Fréttir
Tilboð á
barnamyndatökum
Góð mynd er falleg jólagjöf!
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
Mekka veitinga
Kópavogsbær er mekka veitinga-
staða ef marka má þær rekstrar-
leyfisumsóknir sem hafa borist
bænum. Á síðasta fundi bæjar-
ráðs Kópavogsbæjar var fjallað
um hvorki meira né minna en
fimm rekstrarleyfi vegna veit-
ingastaða sem verður að teljast
ansi gott miðað við núverandi
efnahagsástand. Veitingastaðir
á borð við Burger King, Kínahof-
ið og Subway voru á meðal um-
sækjenda. Íbúar höfuðborgar-
svæðisins ættu því að geta litið til
Kópavogsbæjar í auknum mæli
þegar hungrið segir til sín.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Stærra álver
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar vilja
stærra álver í Straumsvík. Lögðu
þeir fram bókun þess efnis á
fundi bæjarráðs en í henni kem-
ur fram að stækkun álversins
hefði gríðarlega jákvæð áhrif.
Sjálfstæðismenn segja að tekjur
bæjarins myndu stóraukast og
hundruð nýrra starfa verða til.
„Einnig yrðu hliðaráhrif mjög
mikil á allt atvinnulíf í bænum.
Um leið er það harmað að af-
stöðuleysi meirihluta Samfylk-
ingarinnar hafi leitt til þess að
stækkunaráformum fyrirtækisins
var hafnað í íbúakosningu í mars
2007. Skorað er á bæjaryfirvöld
að taka málið upp hið fyrsta.“
Bilaður strætó
Næstelsti strætisvagn SVA, Stræt-
isvagna Akureyrar, er bilaður.
Þetta kom fram á fundi fram-
kvæmdaráðs Akureyrar. Stefán
Baldursson, forstöðumaður
Strætisvagna Akureyrar, ósk-
aði vegna þess eftir heimild til
kaupa á notuðum strætisvagni
frá Reykjanesbæ. Ástæðan var
„vegna alvarlegrar bilunar og
mikils kostnaðar við viðgerðina“.
Framkvæmdaráð tók þó enga af-
stöðu til málsins og var því frestað
til næsta fundar. Íbúar á Akureyri
þurfa þó ekki að örvænta því SVA
á fleiri strætisvagna.
Kona sem vildi gera rétthafabreytingu fékk undarleg svör hjá Vodafone:
krafin um undirskrift látins eiginmanns
„Hér er að sjálfsögðu um mistök að
ræða af okkar hálfu sem við hljót-
um að harma og biðja viðkom-
andi afsökunar á því,“ segir Hrann-
ar Pétursson, upplýsingafulltrúi
Vodafone.
Ósáttur viðskiptavinur fyrir-
tækisins hafði samband við DV á
dögunum. Konan, sem vildi ekki
láta nafns síns getið, sagðist hafa
sett sig í samband við símafyrir-
tækið þar sem hún vildi gera rétt-
hafabreytingu á farsímanúmeri
látins eiginmanns síns og færa
það yfir á sig. En svörin sem hún
fékk voru að hann yrði að koma og
skrifa undir breytinguna. Konunni
var skiljanlega nokkuð brugðið þar
sem maður hennar hafði verið lát-
inn um tveggja ára skeið.
„Almenna reglan í svona til-
vikum er að biðja aðstandendur
að koma til okkar og skrifa undir
svo við séum með undirskrift fyr-
ir nýjan rétthafa. Það gilda mjög
strangar reglur um rétthafabreyt-
ingar og öll frávik frá þessum op-
inberu reglum um slíkt eru vand-
meðfarin,“ segir Hrannar vegna
þessa óvenjulega máls. „Það seg-
ir sig sjálft að svona lagað getur
ekki talist eðlilegt og er ekki í sam-
ræmi við okkar vinnureglur,“ bætir
Hrannar við.
Konan kvaðst afar ósátt við
svörin sem hún fékk og að eigin
sögn ætlar hún að skipta um síma-
fyrirtæki.
Mistök Hrannar Pétursson segir svörin
sem konan fékk ekki í samræmi við
vinnureglur vodafone.
Mynd Rakel Ósk siguRðaRdÓttiR
„Það er algjör þvæla að það sé verið
að greiða mér peninga fyrir að vera
stjórnarformaður,“ segir Jakob Valgeir
Flosason, skráður stjórnarformaður
huldufélagsins Stíms ehf., en DV var
fyrst fjölmiðla til að fjalla um Stím.
Félagið fékk nítján og hálfan millj-
arð króna lánaðan hjá Glitni án þess
að leggja nokkur veð fyrir því í nóv-
ember á síðasta ári. Jakob Valgeir
hefur hingað til ekki viljað tjá sig um
félagið en svaraði því til að það væri
ekki rétt í grein sem birtist í Morg-
unblaðinu um helgina að Hannes
Smárason og Jón Ásgeir Jóhannes-
son hafi stofnað félagið. Hann segir
félagið hafa samanstaðið af nokkrum
einstaklingum sem lögðu sjálfir fram
milljarða til viðskiptanna. Þeir pen-
ingar hafa nú tapast.
lán án ábyrgðar
Það var á þriðjudaginn í síðustu viku
sem DV byrjaði að fjalla um huldufé-
lagið Stím ehf. Félagið fékk tæpa tut-
tugu milljarða í lán frá Glitni án þess
að leggja fram persónuleg veð fyrir
láninu. Félagið var þriðji stærsti skuld-
ari bankans þegar hann var þjóðnýtt-
ur. Glitnir lánaði félaginu peningana til
þess að kaupa hlut bankans í FL Group
fyrir átta milljarða. Þá seldi Glitnir
einnig Stím hlut í sér sjálfum fyrir sex-
tán milljarða. Fyrir vikið var Stím orð-
ið tuttugasti stærsti hluthafi Glitnis og
sá sjöundi stærsti í FL Group. Eftir að
Stoðir, áður FL Group, fóru í greiðslu-
þrot, og Glitnir var þjóðnýttur er talið
að ekki minna en tíu milljarðar hafi
tapast vegna lánsins.
stofnuðu ekki stím
Blaðakonan Agnes Bragadóttir skrif-
aði um óeðlilegar lánveitingar Glitnis
til FL Group í nóvember og desember
á síðasta ári. Í greininni, sem birtist á
sunnudaginn, fullyrðir hún jafnframt
að Hannes Smárason, fyrrverandi for-
stjóri FL Group, og Jón Ásgeir Jóhann-
esson hafi stofnað huldufélagið Stím
ehf. Þá staðhæfir Agnes einnig að þeir
hafi fengið Jakob Valgeir til þess að ljá
félaginu nafn sitt en tilgangur leynifé-
lagsins á að hafa verið sá að þeir vildu
halda hríðfallandi gengi hlutabréfa í
FL Group uppi.
„Þeir gerðu það ekki og þeir voru
alveg klárlega ekki hluthafar í þessu
félagi,“ segir Jakob Valgeir aðspurð-
ur hvort Hannes og Jón Ásgeir hafi
stofnað til félagsins.
Huldumenn á bak við stím
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarfor-
maður FL Group, nú Stoða, og Lár-
us Welding, fyrrverandi bankastjóri
Glitnis, sendu frá sér hvor sína yfir-
lýsinguna um helgina vegna greinar
Morgunblaðsins. Þar höfnuðu þeir
ásökunum sem birtust í blaðinu um
óeðlilegar lánveitingar en Jón Ás-
geir sagði meðal annars að trygg veð
hefðu verið fyrir lánunum. Þá neitaði
hann alfarið fyrir að hann hefði stofn-
að leynifélagið Stím ehf.
Þegar blaðamaður spurði Jakob
Valgeir hverjir stæðu þá í raun á bak
við félagið, sagði hann ákveðinn hóp
manna standa á bak við það, en hann
vildi ekki gefa upp nöfn þeirra.
lögðu fram milljarða
„Það er alveg ljóst að það voru lagð-
ir fram peningar fyrir viðskiptunum,“
segir Jakob Valgeir en þessi dularfulli
hópur sem stóð á bak við Stím lagði
fram tæpa fimm milljarða til kaup-
anna í FL Group og Glitni.
Aðspurður hvort þetta hefðu verið
eðlileg viðskipti svarar Jakob: „Jú, ég
held að þetta hafi verið nokkuð eðli-
leg viðskipti þannig lagað. Fjármála-
eftirlitið skoðaði þetta í fyrrahaust.“
Þess má geta að Fjármálaeftirlitið
rannsakaði flöggunar- og tilkynning-
arskyld viðskipti og hefur komist að
þeirri niðurstöðu að þar hafi lög ekki
verið brotin. Eftirlitið rannsakar hins
vegar enn, og hefur gert í marga mán-
uði, lánið sem Glitnir veitti Stím.
valuR gRettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Þeir gerðu það ekki
og þeir voru alveg
klárlega ekki hluthaf-
ar í þessu félagi.“
Stjórnarformaður huldufélagsins Stím ehf., Jakob valgeir Flosason, fullyrðir í við-
tali við DV að Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes smárason hafi ekki stofnað Stím
ehf. Þá segir hann jafnframt tóma þvælu að hann hafi fengið sérstaklega greitt fyrir
að ljá félaginu nafn sitt og kennitölu.
SVER JÓN ÁSGEIR
OG HANNES AF SÉR
fimmtudagur 20. n
óvember 2008
8
Fréttir
„Ég get ekki tjáð mi
g um málefni fé-
lagsins, þú verður
að tala við fjöl-
miðlafulltrúa,“ segi
r Þorsteinn M.
Jónsson, fyrrverand
i stjórnarformað-
ur Glitnis og stjórnar
maður FL Group,
þegar hann var spu
rður út í huldu-
fyrirtækið Stím eh
f. Þorsteinn var
stjórnarformaður G
litnis þegar eign-
arhaldsfélagið Stím
fékk 25 milljarða
króna lán en samkv
æmt heimildum
DV var lánið veitt á
n þess að félagið
legði fram fullnægja
ndi veð fyrir því.
Að auki segja heim
ildir innan bank-
ans að lánið hafi ek
ki farið í gegnum
sérstakt áhættumat.
Lánsféð var síð-
ar nýtt til hlutabréfa
kaupa í FL Group
sem stuttu síðar skil
aði methalla upp
á 64 milljarða króna
.
Lán án ábyrgðar
Það var í október se
m Stím ehf. fékk
tuttugu og fimm m
illjarða króna lán
hjá Glitni, en lánið
er jafnhátt þeirri
upphæð sem Pólv
erjar hafa boð-
ist til að lána íslens
ku ríkisstjórninni
vegna efnahagsþren
ginganna. Þegar
blaðamaður fletti up
p eiganda Stíms
fannst eingöngu eit
t nafn, útgerðar-
mannsins Jakobs Va
lgeirs Flosasonar
frá Bolungarvík. All
nokkrar heimild-
ir blaðsins herma að
Stím hafi fengið
lánið hjá Glitni eftir
sérstæðum leið-
um og það til þess
að kaupa hlutafé
í FL Group sem þót
ti heldur áhættu-
sækin fjárfesting á
þeim tíma. Engu
að síður fékk Stím
lánið, að því er
virðist, athugasemd
alaust.
Kannaðist við félagið
Þegar Stím ehf. fék
k lánið var Þor-
steinn M. Jónsson
stjórnarformaður
Glitnis auk þess að
vera stjórn-
armaður í FL Group
. En hann
var ekki eini stjó
rnarmað-
ur FL Group sem s
at í báð-
um félögum því S
karphéð-
inn Berg Steinarsson
auk Jóns
Sigurðssonar, síðar
forstjóra
FL Group, sátu einn
ig í stjórn
Glitnis þegar lánið v
ar sam-
þykkt. Þegar Þors
teinn
var spurður hvort h
in
eðlilega boðleið slík
ra
risalána væri sú
að stjórnin
þyrfti að sam-
þykkja þau,
vildi Þor-
steinn ekki
tjá sig um
það, þótt
bankaleynd hvíli ek
ki á verklagsregl-
um banka. Aðspur
ður hvort hann
kannaðist við félag
ið, svaraði hann
því að hann gerði þa
ð, þótt hann vissi
ekki um eigendur þe
ss.
Ekki á vegum Kaldba
ks
„Ef það er eitthvað
athugavert við
það mun það koma
upp úr kafinu hjá
Fjármálaeftirlitinu
eða skilanefnd-
unum,“ sagði Jakob
Valgeir út-
gerðarmaður þegar
blaða-
maður spurði
hann út
í eðli
Stíms ehf. og hvort
hann væri raun-
verulegur eigandi fé
lagsins. Reyndar
vildi Jakob ekki tjá
sig um það hvort
hann væri raunveru
legur eigandi fé-
lagsins né vildi han
n upplýsa blaða-
mann um það hve
rjir sætu í stjórn
þess.
Aftur á móti bárust
böndin í kjöl-
farið að Þorsteini M
á Baldvinssyni,
sem tók við stjó
rnarformennsku
Glitnis í apríl á þess
u ári. Þeg-
ar hugsanlegt eigna
rhald
var borið
upp við
hann
svaraði hann: „Til þe
ss að það sé alveg
á hreinu er þetta ek
ki eignarhaldsfé-
lag á vegum Kaldbak
s.“
Þorsteinn Már vildi
ekki tjá sig að
öðru leyti um málið
.
Eflaust viðskiptavinu
r
Þegar haft var sa
mband við fjöl-
miðlafulltrúa Glitnis
, Má Másson, var
blaðamanni bent á
að ræða við Lár-
us Welding, fyrrver
andi bankastjóra
Glitnis. Þrátt fyrir í
trekaðar tilraunir
náðist ekki samban
d við hann. Aft-
ur á móti var Láru
s Welding
spurður í Silfri Egils
, viku fyr-
ir þjóðnýtingu, hvo
rt hann
kannaðist við Stím o
g kaup
þess í FL Group. Þá
svaraði
Lárus að Stím væri
eflaust
einn af viðskipta
vinum
bankans og þau við
skipti
verið eins og öll
önnur
viðskipti. Viku síða
r kom
í ljós að Stím var tu
ttugasti
stærsti hluthafi Glitn
is og
sjöundi stærsti hlu
t-
hafi FL Group.
Þorsteinn M. Jónsso
n
Stjórnarmenn beggja
vegna borðSinS
„Til þess að það sé alve
g á
hreinu er þetta ekki eig
nar-
haldsfélag á vegum Ka
ldbaks.“
vaLur grEttisson
blaðamaður skrifar:
valur@dv.is
Lárus Welding fyrrve
randi bankastjóri
glitnis taldi Stím eflau
st vera eitt af
mörgum fyrirtækjum
sem voru í viðskipt-
um við glitni en þega
r hann var spurður va
r
Stím tuttugasti stærs
ti hluthafi bankans.
Þorsteinn Már Baldv
insson tók við
sem stjórnarformaðu
r af nafna sínum
en hann þverneitar a
ð Stím ehf. hafi
verið á vegum Kaldba
ks eða Samherja.
Þorsteinn M. Jónsson
var
stjórnarformaður glit
nis og sat á sama
tíma í stjórn fL group
þegar
huldufélagið Stím eh
f. fékk risalán, að
því er virðist án fullnæ
gjandi veða.
Í auga stormsins Kros
seignatengsl
hafa verið yfirþyrman
di í viðskiptalífi
Íslands en svo virðist
sem fL group sé
hjartað í þeim tengslu
m. félagið, sem
heitir núna Stoðir, ge
ngst undir
rannsókn hjá skattstjó
ra.
Bakkavararbræður
bakkavör
Björgólfur thor Björg
ólfsson
Hannes smárason
Jón Ásgeir Jóhanness
on Pálmi Harald
sson Karl Wer
nersson
Oddaflug
glacier renewable
energy fund Jötu
nn Holding
mánudagur 24. nóvember 20086
Fréttir
Tilboð á
barnamyndatökum
Góð mynd er falleg jólagjöf!
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
Leyndarmál Ingunnar í esjubergi
„Það er allavega komin hola,“ seg-
ir Ingunn Wernersdóttir athafnakona
en framkvæmdir eru loks hafnar við
Esjuberg í Þingholtsstræti 29a. Ing-
unn keypti fasteignina á síðasta ári af
einkahlutafélagi norska listmálarans
Odds Nerdrum. Esjuberg hýsti áður
Borgarbókasafnið og þykir eitt falleg-
asta og sögufrægasta hús landsins.
10. september fékk Ingunn leyfi
skipulagsfulltrúans í Reykjavík til að
reisa tengibyggingu við húsið, en ráð-
gert er að byggja tveggja hæða hús
norðan við gamla húsið og tengja bygg-
ingarnar saman. Esjuberg var friðað af
borgarstjórn 25. apríl 1978 en húsið
var reist árið 1916. Fyrr í sumar fagn-
aði húsafriðunarnefnd því að fram-
kvæmdir væru hafnar við endurbæt-
ur hins friðaða húss og taldi nefndin
að viðbyggingin félli vel að húsinu og
drægi ekki úr gildi þess til varðveislu.
Engar athugasemdir voru gerðar.
Ingunn vildi ekki tjá sig við blaða-
mann DV um framkvæmdirnar þeg-
ar eftir því var leitað. Hún vildi held-
ur ekki upplýsa hvaða starfsemi væri
fyrirhuguð í Esjubergi. Í grein Frétta-
blaðsins frá 10. september var full-
yrt að Ingunn hefði ekki greitt undir
200 milljónum króna fyrir húsið sem
heimildir þess herma að verði stand-
sett sem fjölskylduhús.
Tengibyggingin, sem framkvæmdir
eru nú hafnar við, verður 245 fermetr-
ar sem þýðir að eignin verður samtals
713 fermetrar. Á efri hæðum tengi-
byggingarinnar verður bílskúr með
bílastæði en þar undir verður stórt
jarðrými með heitum potti, gufubaði,
búningsherbergjum og þvottahúsi.
mikael@dv.is
Holan verður baðaðstaða
245 fermetra tengibygging
esjubergs mun meðal annars
hýsa bílskúr, bílastæði og
stórt jarðrými með heitum
potti og gufubaði. Mynd dV
Stútar
undir eftirliti
Átak gegn ölvunarakstri er hafið
hjá lögregluliðum á Suðvestur-
landi og stendur það til áramóta.
Skipulegu eftirliti verður haldið
úti á hinum ýmsu tímum sólar-
hringsins víðs vegar um svæðið.
Markmið átaksins er að vekja
athygli á þeirri hættu sem stafar
af ölvunarakstri og hvetja fólk til
almennrar varkárni í umferð-
inni. Minnt er á viðvörunarorð-
in „Eftir einn ei aki neinn“ en í
gegnum árin hefur akstur undir
áhrifum aukist í jólamánuðin-
um. Átakið nær að sjálfsögðu
einnig til aksturs undir áhrif-
um fíkniefna en afleiðingar þess
geta sömuleiðis verið skelfilegar.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Konur fá styrki
Í dag mun Jóhanna Sigurð-
ardóttir, félags- og trygginga-
málaráðherra, afhenda styrki til
atvinnumála kvenna í Þjóð-
menningarhúsinu. Fundurinn
hefst klukkan 13.00 og fer fram í
Bókasalnum. Fimmtíu milljón-
ir króna voru til úthlutunar að
þessu sinni og bárust 246 um-
sóknir hvaðanæva af landinu.
Tíu verkefni hljóta tveggja millj-
óna króna styrk en alls verða 56
styrkir veittir til verkefna af ýmsu
tagi. Styrkir sem þessir hafa ver-
ið veittir frá 1991 í því skyni að
ýta undir atvinnurekstur kvenna.
Bílvelta í
Staðarsveit
Enginn slasaðist illa þegar vel
útbúinn jeppi valt í Staðarsveit
um klukkan hálf tvö eftir hádegi
í gær. Nokkuð hvasst var á Snæ-
fellsnesi í gær að sögn lögregl-
unnar og víða fljúgandi hálka.
Jeppinn valt skammt sunnan
Fr ðárheiðar en tvennt var í
bíl um. Hann fór heilan hring
en fólkið kenndi minniháttar
ymsla. Rúður brotnuðu í bíln-
um og er hann eðli málsins sam-
kvæmt nokkuð skemmdur.
Stím var ruSla-
KiSta GlitniS Hagsmunir Glitn-is voru gríðarlegir gagnvart Fl Group.
Vilhjálmur Bjarnason, formaður Fé-
lags fjárfesta, segir í samtali við DV
að eitthvað mikið hafi gerst í kringum
þessar lánveitingar. „Þetta er eitthvað
huldufyrirtæki og Lárus Welding er
staðinn að því að ljúga,“ segir hann.
Aðspurður hvort hann meti það svo
að lánveitingarnar hafi staðist regl-
ur segir hann: „Þetta stenst reglur ef
til staðar eru ábyrgðir eða tryggingar
fyrir lánsfénu.“ Hann kveðst þó ekki
þekkja málið betur en fram hefur
komið í fjölmiðlum.
Í fréttaskýringu Agnesar Braga-
dóttur í Morgunblaðinu í gær er því
haldið fram að Jón Ásgeir Jóhann-
esson og Hannes Smárason hafi
ákveðið á leynifundi í október í fyrra
að stofna leynifélagið FS37 sem síðar
varð Stím. Stími hafi svo verið ætlað
að kaupa bréf í FL Group til að halda
gengi bréfa í FL uppi en þau höfðu
lækkað verulega. Jón Ásgeir brást við
skrifum Agnesar með yfirlýsingu um
að þau væru dylgjur og slúður.
Lána Stími til að bæta
eiginfjárstöðu
Eins og DV sagði frá í byrjun síðustu
viku veitti Glitnir Stími ehf. risalán
til hlutabréfakaupa. Lánið var veitt í
nóvember á síðasta ári. Annars vegar
keypti Stím hluti í FL Group fyrir um
átta milljarða og svo sextán milljarða
í bankanum sjálfum. Samkvæmt
heimildum DV lögðu huldumenn
að baki Stími fram fimm milljarða
króna í þessum viðskiptum. Vil-
hjálmur Bjarnason sagði í viðtali við
Spegilinn á laugardaginn að ástæð-
an fyrir því að Glitnir lánaði Stími
til hlutabréfakaupa í bankanum hafi
aðallega verið til þess að bæta lausa-
fjárstöðu bankans sem þá var fastur í
miðri lausafjárkrísunni sem var und-
anfari heimskreppunnar.
Glitnir vildi vernda FL Group
Þá segja heimildir að Glitnis-
mönnum hafi ekki hugnast að selja
hluti sína í FL Group og setja beint
á markað, í ljósi þess að þá myndi
gengi bréfanna lækka. Þess í stað
seldu þeir bréf sín beint til Stím ehf.
sem keypti á yfirverði, og viðhélt þar
með háu gengi FL Goup.
Nokkru áður en Glitnir seldi í FL
Group hafði félagið lækkað nokkuð.
Aðeins nokkrum vikum eftir söluna
skilaði FL Group gríðarlegum halla-
rekstri. Alls hafði félagið tapað 64
milljörðum, þar af var á sjötta millj-
arð skrifað á rekstrarkostnað.
Stærsti skuldarinn
Samkvæmt Morgunblaðinu var FL
Group stærsti skuldari Glitnis en fé-
lagið skuldaði bankanum tæpa 27
milljarða króna. Þá sátu þrír ein-
staklingar úr stjórn FL Group einnig
í stjórn Glitnis. Þar af var Þorsteinn
M. Jónsson, stjórnarformaður Glitn-
is auk þess að vera stjórnarmaður
í FL Group. Þá var stærsti hluthafi
Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson,
einnig stjórnarfomaður FL Group.
Hagsmunir Glitnis voru gríðarleg-
ir gagnvart FL Group og svo virðist
sem Stím hafi verið notað til þess að
bjarga bankanum frá tapi FL Group
og viðhalda háu gengi á félaginu. Ári
eftir kaup Stíms í félaginu urðu bréf
FL Group verðlaus. Að auki stendur
yfir skattrannsókn á málefnum fé-
lagsins.
Rannsakað í ár
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur
ekki náðst í Lárus Welding sem var
bankastjóri Glitnis þegar viðskiptin
áttu sér stað. Hann sendi hins veg-
ar frá sér yfirlýsingu á laugardaginn
vegna greinar Agnesar Bragadóttur
um óðelilegar lánveitingar Glitnis til
FL Group. Í yfirlýsingu sinni upplýsti
Lárus að Fjármálaeftirlitið hefði ósk-
að eftir gögnum um Stím ehf. sem og
hann hefði afhent. Þá sagði út-
gerðarmaðurinn Jakob Val-
geir Flosason, eini skráði
einstaklingurinn á bak
við Stím, að hann væri þess fullviss
að skilanefndir og Fjármálaeftirlitið
myndu komast að þeirri niðurstöðu
að ekkert óeðlilegt hafi átt sér stað
hjá Stím. Því er ljóst að Stím hefur
verið til rannsóknar hjá FME í heilt
ár án niðurstöðu.
VaLuR GRettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Vilhjálmur Bjarnason Segir Lárus
Welding hafa verið staðinn að lygum.
Lárus Welding
Hefur gefið misvísandi
svör um viðskipti
Stíms og glitnis.
föstudagur 21. nóvember 20088
Fréttir
„Ég get ekkert tjáð mig um þetta,
þetta er mál sem varðar einstak-
an viðskiptaaðila og við getum
ekki tjáð okkur um það,“ segir fyrr-
verandi prókúruhafi Stíms ehf. og
stjórnarmaður félagsins, Þórleifur
Stefán Björnsson. Hann starfar sem
yfirmaður fjárstýringa innan Saga
Capital. Stím er skrásett til húsa hjá
Saga Capital. Þórleifur sagði sig úr
stjórn félagins í lok ágúst en vildi
ekki gefa upp hvers vegna.
Stím ehf. er sennilega eitt dul-
arfyllsta eignarhaldsfélag lands-
ins en það fékk 25 milljarða króna
lán í nóvember á síðasta ári til þess
að kaupa annars vegar hlutabréf í
Glitni fyrir um 16 milljarða og svo í
FL Group fyrir rúma átta milljarða.
Glitnir veitti lánið og tók aðeins veð
í bréfum félagsins, nú er ljóst að tap
bankans vegna lánveitingarinnar er
ekki minna en tíu milljarðar króna.
Stím keypti af Glitni
Það var í nóvember á síðasta ári
sem Stím ehf. óskaði eftir risaláni
upp á 25 milljarða hjá Glitni. Svo
virðist sem bankinn hafi veitt félag-
inu lánið og tekið veð í hlutum FL
Group. Þá er ljóst að minnsta kosti
10 milljarðar króna eru nú tapað-
ir vegna lánveitingarinnar. Stím
keypti hlutabréf í FL Group fyrir
um níu milljarða króna og svo virð-
ist sem Glitnir hafi sjálfur átt bréf-
in. Glitnir virðist þar af leiðandi
hafa lánað Stím ehf. gagngert svo
félagið gæti keypt hlutina af bank-
anum sjálfum. Gengi FL Group
féll nokkru fyrir kaupin og mánuði
síðar skilaði félagið halla upp á 64
milljarða.
„Ég staðfesti fyrir hönd FL
Group, nú Stoða, að Stím ehf. hafi
bæst í hluthafahóp FL Group 16.
nóvember 2007 eftir að hafa keypt
3,8 prósenta hlut af Glitni,“ seg-
ir upplýsingafulltrúi Stoða, Júlíus
Þorfinnsson, og bætir við að þar
endi aðkoma FL Group að félag-
inu.
Tapaði tvisvar
Það vekur athygli að Stím seldi hluta
af bréfum sínum í FL Group í desem-
ber á síðasta ári, aðeins mánuði eftir
fyrri kaupin, en ástæðan var sú að nýtt
hlutafé var gefið út. Þá hafði virði bréf-
anna þegar rýrnað um tæpan millj-
arð. Hins vegar keypti Stím meira í FL
Group í janúar eða um hálft prósent
til viðbótar en gengið var þá einnig í
falli. Í febrúar voru átta milljarðarnir,
sem Stím fékk lánaða og keypti fyrir,
orðnir þrír milljarðar. Ástæðan var
mikið fall á gengi FL Group. Það var
svo í mars-apríl sem Stím seldi öll
bréfin sín í FL Group. Þá lækkaði hlut-
ur félagsins einnig í Glitni en tapið var
hins vegar gríðarlegt.
Barnabarn Geira á Guggunni
Eini skráði aðilinn að Stím ehf. sam-
kvæmt hluthafaskrá er útgerðar-
maðurinn og Bolvíkingurinn Jakob
Valgeir Flosason. Sjálfur er Jakob
kominn af útgerðarfólki frá Bolung-
arvík en afi hans var Ásgeir Guð-
bjartsson, eða Geiri á Guggunni
eins og hann var oft kallaður. Hann
átti togarann Guðbjörgu ÍS. Togar-
ann seldi Ásgeir til Samherja fyrir
allmörgum árum. Þess má geta að
eigandi Samherja er Þorsteinn Már
Baldvinsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður Glitnis. Þegar Þorsteinn
var spurður hvort Stím tengdist
Kaldbaki, fjárfestingafélagi Sam-
herja, svaraði Þorsteinn afdrátt-
arlaust: „Til þess að það sé alveg á
hreinu er þetta ekki eignarhaldsfé-
lag á vegum Kaldbaks.“
Þorsteinn Már vildi ekki tjá sig að
öðru leyti um málið.
Fátt um svör
Þegar menn tengdir Stími eru
spurðir út í félagið verður fátt um
svör. Fyrrverandi stjórnarformaður
bankans, Þorsteinn M. Jónsson, bar
fyrir sig leynd og sagðist ekki geta
tjáð sig um málið en hann gegndi
stjórnarformennsku þegar lánið
var veitt. Hann benti á fjölmiðla-
fulltrúa Glitnis, Má Másson. Þeg-
ar við hann var rætt benti hann á
Lárus Welding, fyrrverandi banka-
stjóra Glitnis. Ekki hefur náðst í
hann þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir. Aftur á móti sagði hann í viðtali
í Silfri Egils að hann gæti ekki tjáð
sig um einstaka viðskiptavini. Þeg-
ar gengið var á hann vegna Stíms,
svaraði hann því til að eflaust væri
Stím einn af viðskiptavinum bank-
ans og þau viðskipti hefðu verið
eins og öll önnur viðskipti.
Útgerðarmaður heldur áfram
Sjálfur sagði Jakob Valgeir í viðtali
við DV fyrir stuttu að hann væri ekki
gjaldþrota. Aðspurður vissi hann
ekki betur en að útgerðin í Bolung-
arvík héldi áfram þrátt fyrir risatap
Stíms ehf. Hann vildi hins vegar ekki
tjá sig um það hvort hann
væri raunveru-
legur
eigandi félagsins né
hverjir væru í stjórn
þess.
Jakob Valgeir
virðist vera hinn
mesti huldumað-
ur sjálfur en Vest-
firðingar sem rætt
var við sögðu hann
hafa mesta við-
veru á höfuðborg-
arsvæðinu þótt hann
ætti hús í Bolungarvík.
Einn þeirra sagði Jak-
ob sérlega feim-
inn mann
og hlé-
dræg-
an.
STJÓRNARMAÐUR STÍMS
VIÐHELDUR LEYNDINNI
Þórleifur Stefán Björnsson
valur GreTTiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Vantar þig fjármálaráðgjöf?
Þarftu að ná áttum í peningamálunum?
lVið gerum heildar yfirlit yfir fjárhagsstöðuna
lVið semjum við kröfuhafa um gjaldfallnar skuldir
lVið aðstoðum þig við fasteignaviðskipti
lVið gerum verðmat á fasteigninni þinni
lVið bendum þér á hvar má spara og minnka útgjöld
Hringdu núna!
Það er auðveldara að taka á vandanum strax!
GH Ráðgjöf
Sóleyjargötu 17, 101 Reykjavík Sími 510-3500 og 615-1020
Guðrún Hulda Ólafsdóttir hdl
Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Geymdu þessa auglýsingu – Hún getur komið sér vel
Glitnir Lánaði stím 25 milljarða til þess að kaupa hlutabréf af bankanum sjálfum.
Þórleifur Stefán Björnsson var
prókúruhafi stíms ehf. og stjórnarmað-ur en hann neitar að tjá sig um félagið.
Þorsteinn M. Jónsson
vill ekki tjá sig um stím
ehf. eða lánið sem var
veitt félaginu þegar
hann var stjórnarfor-
maður glitnis.
„Ég staðfesti fyrir
hönd FL Group, nú
Stoða, að Stím ehf.
hafi bæst í hluthafa-
hóp FL Group 16. nóv-
ember 2007 eftir að
hafa keypt 3,8 pró-
senta hlut af Glitni.“
miðvikudagur 19. nóvember 2008
4
Fréttir
InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Kristinn spyr
aftur um skuldirKristinn H. Gunnarsson, þing-maður Frjálslynda flokksins, hefur nú í annað sinn lagt fram fyrirspurn um skuldir sjávarút-vegsfyrirtækja.
Kristinn vill vita hverjar skuldir útgerðanna eru í nýju ríkisbönkunum og hversu mik-ill hluti skuldanna er til kom-inn vegna kvótakaupa. Hann spurði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra út í þetta um miðjan síðasta mánuð en fékk þá það svar eitt að ráðuneytið gæti ekki svarað, ástæðan væri sú að bankarnir væru skráð félög á markaði. Nú hefur Kristinn spurt Árna Mathiesen fjármála-ráðherra flestra sömu spurn-inga. Kemur þá í ljós hvort hann kunni fleiri svör við þessu en Björgvin.
Vel þekktur á
stolnum bílMaður á stolnum bíl lagði á flótta þegar lögreglan á Akranesi hugðist stöðva för hans við eft-irlit á föstudaginn var. Ók mað-urinn hratt út fyrir bæjarmök Akraness, stöðvaði bifreiðina og hljóp út í myrkrið. Hafði bifreið-inni sem hann ók verið stolið af bílasölu í Reykjavík fyrr um dag-inn. Slíkt var óðagot mannsins að hann gleymdi farsíma sínum í bílnum. Lögreglan veit hver þar var á ferð enda góðkunningi lögreglunnar. Maðurinn hafði framvísað skilríkj-
um þegar hann
fékk bílinn lánað-
an í reynsluakstur
á bílasölunni auk
þess sem af
honum var
tekin mynd
í gjaldskýli
Hvalfjarðar-
ganganna.
Hann er
ófundinn
og er hans
nú leitað.
Brynjólfur Árnason, fyrrverandi sveitarstjóri Grímseyjarhrepps, hef-ur verið ákærður fyrir fjárdrátt. Mál hans verður þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Upp komst um meint brot Brynjólfs í kjölfar umfjöllunar DV um þjófnað hans á 12.900 lítrum af olíu í fyrra. Brotin áttu sér stað frá janúarmánuði 2003 þar til í ágústmánuði 2007. Fyrir það brot hlaut Brynjólfur þriggja mán-aða skilorðsbundið fangelsi. Í kjölfar umfjöllunar blaðsins var skrifstofa hans í hreppnum innsigl-uð og honum sagt upp störfum. Við rannsókn endurskoðenda á bók-haldi hreppsins kom í ljós að ekki var allt með felldu. Í kjölfarið var hann kærður en rannsókn málsins hefur tekið tæpt ár. Brynjólfur er
meðal annars grunaður um auðg-unarlagabrot í opinberu starfi og fyrir að hafa gert margvíslegar ráð-stafanir í nafni hreppsins sem hann hafði ekki heimild fyrir.Samkvæmt heimildum DV er Brynjólfur grunaður um að hafa keypt rándýran skotbómulyftara að andvirði fimm til sex milljónir króna í nafni Grímseyjarhrepps. Lyftarann notaði hann við höfnina til að af-greiða birgðir úr Grímseyjarferju. Aðrir sveitarstjórnarmenn höfðu ekki hugmynd um kaupin og voru þau aldrei rædd á fundum. Þegar í ljós kom að ekki væri allt með felldu varðandi kaupin reyndi Brynjólfur að hylma yfir þau, samkvæmt heim-ildum DV. Hann sagðist hafa borgað lyftarann með fé úr eigin vasa.
Þetta eru ekki einu bók-haldssvikin sem Brynjólfur er grunaður um því hann keypti einnig landmæling-artæki fyrir átta milljónir króna sem ekki heldur hafði fengist samþykkt. Sam-kvæmt heimildum DV keypti hann einnig hæðarmæli fyrir 290 þúsund krónur sem hann skrifaði á hreppstjórann. Meint brot Brynjólfs geta varðað sex ára fangelsi.
brynjólfur ákærður
Ákærður mál brynjólfs verður þingfest í Héraðsdómi norðurlands eystra í dag.
„Já, já, en ég vil ekki tjá mig um það,“ svaraði útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason spurður út í tuttugu og fimm milljarða lán sem félagið Stím ehf. fékk frá Glitn-isbankanum í október á síðasta ári en samkvæmt heimildum DV gjaldféll lánið í síðasta mánuði auk þess sem lítil sem engin veð voru lögð fyrir töku lánsins. Þegar haft var samband við Fjármálaeftirlitið og spurt hvort félagið væri í rann-sókn eða lántaka þess hjá Glitni vildi eftirlitið ekki gefa upp hvaða félög væri verið að rannsaka. Þegar upplýsingafulltrúi eftirlitisins var ennfremur spurður hvort félagið væri þá ekki í rannsókn, vildi hún ekki tjá sig um það.
Engin veð
Það var í október á síðasta ári sem Glitnir lánaði Stím ehf. tuttugu og fimm milljarða til hlutabréfa-kaupa í FL Group, sem stuttu síð-ar skilaði mesta tapi
Íslandssögunn-
ar, eða tæpum
sjötíu milljörð-
um króna. Með
láninu varð
Stím sjöundi
stærsti hlut-
hafi FL Group
en eignar-
haldsfélag-
ið átti
4,33 prósent í félaginu. Jafnframt kom í ljós þegar Glitnir var þjóð-nýttur að Stím var tuttugasti stærsti hluthafi Glitnisbankans með 0,87 prósent hlut í bankanum. Sam-kvæmt heimildum DV fékk Stím ehf. 25 milljarða lánið án þess að hafa veð fyrir að minnsta kosti 15 milljörðum króna. Þess má geta að Jón Ásgeir Jóhannesson var einn af stærstu einstöku hluthöfum Glitnis auk þess að vera eigandi FL Group sem síðar varð Stoðir.
25 milljarða tap
Þegar skoðað var hver átti félagið varð fátt um svör. Að lokum kom í ljós að það var Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður frá Bolungarvík, sem var skráð-ur fyrir félaginu. Hann rekur ásamt föður sínum útgerð-arfélagið Jakob Valgeir ehf. Þegar rætt var við allnokkra heimildarmenn furðuðu þeir sig á því að kvótastrákur frá Bolungarvík hefði fengið slíkt
risalán og það til þess að fjárfesta í FL Group sem þótti varhugavert þá. Jakob Valgeir er á fertugsaldri og var skattakóngur Vestfjarða á síðasta ári.
Eftir að Glitnir var þjóðnýtt-ur og hlutur hluthafa varð einskis virði og Stoðir, áður FL Group, fóru í greiðsluþrot tapaði Stím ehf. þeim 25 milljörðum sem það hafði feng-ið lánað. Þegar Jakob Valgeir var spurður hvort útgerðin væri í hættu í ljósi ris-atapsins sagði hann svo ekki vera.
Engin áhrif á útgerðina
„Nei, þetta er vænt-anlega einkahluta-félag og fé sett í það,“ svaraði Jakob þeg-ar hann var spurð-ur hvort hann hefði ekki tapað gríðar-
legum fjármunum vegna stöðu þeirra
félaga sem Stím ehf. var hluthafi í. Hann sagðist ekki sjá annað fyrir sér en að útgerðin héldi áfram eins og hún hefði áður gert og því hefði tapið ljóslega engin áhrif á stöðu hans.
Aðspurður hvort honum finnist þetta ekki undarlegt og hvort hann sé raunverulega í forsvari fyrir þetta fyrirtæki almennt, svarar Jakob því að hann hafi ákveðið að tjá sig ekki um eignarhaldsfélagið.
Fór ekki eðlilegar boðleiðir„Ef það er eitthvað athugavert við það mun það koma upp úr kafinu hjá Fjármálaeftirlitinu eða skila-nefndunum,“ segir Jakob Valgeir sem er fullviss um að þetta sé allt eins og það eigi að vera. Samkvæmt heimildum blaðsins fékk Stím ehf. 25 milljarða lán án þess að leggja fram raunveruleg veð fyrir því. Þá hefur blaðið einnig heimildir fyrir því að lánið hafi ekki farið eðlilegar boðleiðir innan bankans þegar það var veitt á síðasta ári.
„Ég sé ekki að ég verði bættari með því að ræða um þetta félag, ég sé ekkert í því,“ segir Jakob að lokum.
„ef það er eitthvað at-hugavert við það mun það koma upp úr kaf-
inu hjá Fjármálaeftir-
litinu eða skilanefnd-
unum.“
Jakob Valgeir Flosason
feNGU MILLJARÐA LÁNÁN ÁBYRGÐAR
Valur grEttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Hannes smárason var forstjóri FL group þegar Stím ehf. keypti rúmlega fjögurra prósenta hlut í félaginu með lánsfé frá glitni. glitnir bankinn lánaði Stím ehf. 25 milljarða án þess að fá nein almennileg veð fyrir láninu en Stím var tuttugasti stærsti hluthafinn í bankanum.
Jakob Valgeir Flosason varðstóreigandi í FL-group fyrir hrun félagsins, í krafti milljarðaláns.
LeiðréttingÍtarlega var fjallað um Ice-landic Glacier-vatnið, sem athafnamaðurinn Jón Ólafs-son framleiðir, í morgunþætt-inum The Today Show sem sýndur er í Bandaríkjunum. Í fyrirsögn stóð hins vegar að Jón Ólafsson hafi komið fram í þættinum. Það er ekki rétt. DV biðst velvirðingar á því.
Braut glas á
höfði mannsAðalmeðferð fór fram í máli Patreks Inga Heiðarssonar, Reykvíkings á þrítugsaldri, í Héraðsdómi Reykjavík-ur í gær. Hann er ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 28. janúar í fyrra, á veitinga-staðnum Ölveri, slegið Pétur Örn Björnsson í höfuðið með glerglasi með þeim afleið-ingum að hann hlaut fimm sentímetra langan skurð aftarlega á hvirfli. Hann ját-ar að hafa slegið manninn með glasi, en það hafi verið ástæða fyrir því. Fórnarlamb-ið, Pétur Arnar Björnsson, krefst skaðabóta að fjárhæð 190 þúsund krónur að við-bættum dráttarvöxtum.
stím fjallaði fyrst
miðla um leynifélagið Stím.
Fl group Stoðir, sem áður
voru FL gropup, töpuðu 64
milljörðum á síðasta ári en í
morgunblaðinu var fullyrt að
Stím ehf. hafi átt að viðhalda
undarlega háu gengi í fallandi
félagi.
Jón Ágseir Jóhannesson Segist ekki
hafa stofnað leynifélagið Stím en hann
var stjórnarformaður FL group á sama
tíma og hann var stærsti hluthafi glitnis
þegar Stím fékk dularfullt risalán.