Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Síða 9
TEKUR ÖSSUR
Á ORÐINU
Smári Garðarson, starfsmaður á
vélaverkstæði Eimskips, ætlar að
taka Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra á orðinu og fara með hon-
um á skrifstofu Davíðs Oddssonar
seðlabankastjóra þar sem þeir krefj-
ast þess að Davíð upplýsi um ástæðu
þess að Bretar beittu hryðjuverkalög-
um á Íslendinga. „Jú, það ætla ég að
gera. Hann stakk upp á þessu. Þetta
er mitt eina tækifæri til að krefja
Davíð svara,“ segir Smári í samtali
við DV.
Smári tók til máls á borgarafundi
í Háskólabíói á mánudagskvöld-
ið þar sem hann minnti Össur á að
þeir hefðu tekið loforð hvor af öðr-
um á vinnustaðafundi hjá Eimskip
fyrir síðustu kosningar. „Ég lofaði
að kjósa þig og gerði það. En ég ætla
rétt að vona að þú munir hverju þú
lofaðir mér. En ef þú gerir það ekki
skal ég upplýsa þig um það þegar
Davíð upplýsir viðskiptaráð um það
sem hann veit,“ sagði
Smári. Viðskipta-
nefnd Al-
þingis hef-
ur kallað
Davíð
Oddsson
á fund
sinn til
að skýra
málið
en Dav-
íð hef-
ur haldið
fram að
hon-
um sé fullkunnugt um ástæðu þess
að hryðjuverkalögunum var beitt án
þess að vilja skýra það nánar.
Leyndarmál Davíðs
Össur svaraði því til að hann
hefði ekki náð að sjá fram-
an í Smára þegar hann
lagði fram spurningu
sína á borgarafundin-
um enda gnótt af fólki
þar. „Ég þarf að horfast
í augu við fólk til að
þekkja það aftur. Ég
viðurkenni fúslega
fyrir Smára að ég
man þess vegna ekki
hvað það var sem ég
sagði við hann. En
ég er með ráð við
því. Ég tel að við
eigum að fara sam-
an, ég og hann, á
skrifstofu seðla-
bankastjóra, og
láta hann segja
okkur leyndar-
málið. Þá getur
hann rifjað þetta
upp fyrir mér um
leið,“ sagði Össur og
uppskar mikið lófa-
klapp.
Lofaði í vitna
viðurvist
Smári gat þó upplýst
blaðamann um loforðið
sem Össur gaf honum um árið.
Hann sagði þá við Össur að bú-
setuúrræði fyrir aldraða væru hon-
um efst í huga og skammarlegt að
í íslensku samfélagi væru dæmi þess
að eldri borgarar ættu hvorki þak yfir
höfuðið né fengju inni á öldrunar-
heimili þar sem það fengi viðunandi
þjónustu.
„Ég tók af honum loforð að ef
hann væri ekki búinn að koma þess-
um hlutum í lag á miðju kjörtímabili
myndi hann standa upp úr stólnum,
ef hann fengi stól, og við tókumst
í hendur upp á það. Strákarnir við
borðið voru vitni að þessu og Össur
gekkst inn á þetta,“ segir Smári.
Aldraðir í kuldanum
Að mati Smára eru húsnæðismál
aldraðra síður en svo komin í við-
unandi horf. „Málefni aldraðra eru í
sama farvegi og þau hafa alltaf verið.
Það er ekkert að gerast. Það er langur
vegur frá því að aldraðir hafi fengið
það sem þeir eiga skilið,“ segir hann.
Smári bendir á að margir standi jafn-
vel frammi fyrir því nú að hafa misst
ævisparnaðinn og eiga því ekki fyr-
ir þaki yfir höfuðið. „Við verðum að
hugsa vel um gamla fólkið,“ segir
hann.
Smári gagnrýnir að stjórnmála-
menn lofi stundum upp í ermina
á sér í þeirri vissu að loforðin verði
ekki borin upp á þá. „Auðvitað skil-
ur maður að það er ekki hægt að gera
alla hluti, en þá er bara að segja það,“
segir Smári.
Kjörtímabilið er hins vegar langt
í frá hálfnað og Össur hefur því enn
tíma til að standa við loforð sitt við
Smára.
Össur Skarphéðinsson svaraði
ekki skilaboðum blaðamanns við
vinnslu fréttarinnar.
miðvikudagur 26. nóvember 2008 9Fréttir
Jólaskreytingar
Jólaförðun
Jólaspil
Jólaglögg
Kreppukransar
Jólauppskriftir
Jólaherbergi barnanna
Jólaföt
Jólagjöfin hennar
Jólagjöfin hans
Jólablað DV
Stórglæsilegt og veglegt sérblað um jólin
fylgir DV föstudaginn 28. nóvember.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16:00,
miðvikudaginn 26. nóvember
í síma 512 7050 eða í gegnum tölvupóst
á auglýsingar@dv.is
:::
:::
:::
:::
:::
:::
:::
:::
:::
:::
Meðal efnis er:
Ásamt öllu hinu
sem fylgir jólahátíðinni.
„Auðvitað skilur
maður að það er
ekki hægt að gera
alla hluti, en þá er
bara að segja það.“
Smári Garðarsson tekur vel í hugmynd Össurar Skarphéðins-
sonar og ætlar með honum á fund Davíðs Oddssonar seðlabanka-
stjóra þar sem þeir krefjast svara um hryðjuverkalögin. Smári
segir Össur hafa lofað sér fyrir síðustu kosningar að koma hús-
næðismálum aldraðra í lag. Smári lofaði því að kjósa Össur og
stóð við sitt. Hann bíður nú eftir aðgerðum ráðherrans.
ErLA HLynSDóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Aldraðir í forgang Smári garðarsson
segir Össur Skarphéðinsson hafa lofað
sér fyrir síðustu kosningar að tryggja
örugga búsetu fyrir aldraða í landinu.
MynD róbErt rEyniSSOn
Fara saman til Davíðs Össur
Skarphéðinsson stakk upp á því
að þeir Smári færu saman á fund
davíðs Oddssonar og krefðu
hann svara um hryðjuverkalögin.
MynD KArL PEtErSSOn
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
V
I
44
05
9
11
/0
8
www.kvikmyndaskoli.is
LEIKS
TJÓR
N / FR
AMLE
IÐSLA
SKAP
ANDI
TÆK
NIVIN
NA
HAND
RIT /
LEIKS
TJÓR
N
LEIKL
IST /
FRAM
KOMU
FRÆÐ
I
Kvikm
ynda
skóli
Íslan
ds er
skem
mtile
gur
og kr
efjan
di sk
óli se
m me
nntar
fólk
til
skap
andi
starfa
.
SKRÁ
NING
STEN
DUR Y
FIR!Vi
ðurk
ennt
tveg
gja á
ra ná
m.
100%
láns
hæft
hjá L
ÍN.
* Töffari á Akureyri
* Skítafýlubombur í Borgarbíói
* Mætti með saltfiskinn á ballið
* Rakvélablöðin borðuð með bestu lyst
* Lás opnaður með augnaráðinu
* Náði úrum, veskjum og brjósthaldara
* Uppskurður með berum höndum
* Morðhótun
* Löggubíl ekið undir áhrifum
* Hjartastopp í sjónvarpsviðtali
holar@simnet.is – www.holabok.is
Einlæg,
áhugaverð, fyndin,
átakanleg!