Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Page 10
Fatahreinsun Kópavogs ódýrust með afslætti Ekki var sérstaklega spurt um af- slætti í könnuninni. Hjá Fatahreins- un Kópavogs var þó sérstaklega tek- ið fram að ef viðskiptavinur kemur með þrjá hluti eða fleiri fæst 25 prósenta afsláttur. Komi hann með fimm hluti eða fleiri fæst 35 pró- senta afsláttur. Ef við gefum okk- ur að viðskiptavinur ætli að láta hreinsa allar þær sex flíkur sem kannaðar voru í verðkönnuninni kostar pakkinn 5.616 krónur og er langódýrast þar. Ef komið er með flíkurnar stakar kostar hreinsunin 8.640 krónur. Eins og fram hefur komið er Borgarefnalaugin ódýrust. Þar kost- ar 6.760 krónur að hreinsa þessar sex flíkur. Hjá Þvottahúsinu Fag- hreinsun kostar sama þjónusta 9.790 krónur og er dýrust af þeim tíu aðilum þar sem verð voru könn- uð. Láttu hreinsa jóladúkinn Dv kannaði hvað það kostar að láta hreinsa jóladúkinn. Ekki reyndist unnt að reikna verðið inn í töfluna vegna þess hve mismunandi verðið er. Sumir aðilar miða við metraverð en það er þá yfirleitt á bilinu 595 til 700 krónur. Hreinsun fyrir einfalda hvíta borðdúka kostar yfirleitt á bil- inu 1.190 til 1.600 krónur en það verð er fljót að hækka ef dúkarnir eru stórir og skrautlegir. miðvikudagur 26. nóvember 200810 Neytendur Dísilolía el d sn ey t i Gullinbrú verð á lítra 149,5 kr. verð á lítra 179,6 kr. Skeifunni verð á lítra 148,2 kr. verð á lítra 175,5 kr. Skógarhlíð verð á lítra 149,5 kr. verð á lítra 179,6 kr. bensín Dalvegi verð á lítra 145,9 kr. verð á lítra 173,6 kr. Bæjarlind verð á lítra 145,9 kr. verð á lítra 173,7 kr. Fellsmúla verð á lítra 148,3 kr. verð á lítra 175,9 kr. Skógarseli verð á lítra 148,0 kr. verð á lítra 178,1 kr. umsjón: baldur guðmundsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is Meira en 150 prósenta munur er á verði fyrir hreinsun á herraskyrtu. Borgarefnalaugin býður ódýrustu fatahreinsunina ef marka má verðkönnun sem DV framkvæmdi en Fata- hreinsun Kópavogs býður best ef komið er með fimm flíkur eða fleiri. Allt að 1.100 krón- um munar á verði fyrir hreinsun á jakkafötum. 45% verðmunur á fatahreinsun Borgarefnalaugin býður ódýrustu fatahreinsunina ef marka má verð- könnun sem DV framkvæmdi á mánudaginn. Munurinn á dýrustu og ódýrustu fatahreinsuninni reynd- ist 45 prósent en munur á einstök- um flíkum er hann mun meiri, eða allt að 152 prósent. Sex mismunandi flíkur Könnunin var þannig framkvæmd að blaðamaður DV hringdi í tíu fyr- irtæki sem bjóða fatahreinsun á höfuðborgarsvæðinu. Blaðamaður kynnti sig sem slíkan, sagðist vera að gera verkönnun og bað um verð fyrir hreinsun á eftirfarandi flík- um: Jakkafötum, kjól, dragt, bindi, herraskyrtu og dömuskyrtu. Viðtök- urnar voru alls staðar góðar. Verði á kjólum ber að taka með nokkrum fyrirvara vegna þess að kjólar geta verið af ýmsum stærðum og gerð- um. Beðið var um lýsandi verð fyrir einfaldan kjól. Miklu munar á jakkafötum Verðmunur á stökum flíkum reynd- ist frá 30 prósentum, fyrir dömu- skyrtu, upp í 152 prósent fyrir herra- skyrtu. Hreinsun á herraskyrtunni er ódýrust hjá Borgarefnalauginni í Borgartúni. Þar kostar hún 250 krónur en ekki er hægt að koma með fleiri í einu en þrjár. Dýrast er að hreinsa herraskyrtuna hjá Þvotta- húsinu Faghreinsun, 630 krónur. Miklu munar einnig á jakkaföt- um en þar reyndist verðmunur- inn mestur í krónum talið. Aðeins kostar 1.500 krónur að láta hreinsa jakkafötin hjá Borgarefnalauginni en sama þjónusta kostar 2.600 krón- ur hjá Efnalauginni Björgu. Munur- inn er 1.100 krónur eða um 73 pró- sent. n Í verslun Tals á suður- landsbraut á dögunum mætti par sem hugðist hefja viðskipti við símafyrirtækið. Þegar þangað var komið, seinnipart dags, var fullt út úr dyrum. aðeins voru tveir þjónustufulltrúar til að aðstoða viðskiptavini i. Þeir stóðu sig vel en manneklan var mikil. n kona fór á Quiznos á suðurlands- braut á sunnudaginn. staðurinn kom henni skemmtilega á óvart; samlokan var stærri en hún virtist á auglýsingaskiltinu auk þess sem starfsmaðurinn gaf henni, og þeim sem með henni voru, 10 prósenta óútskýrðan afslátt, líklega vegna þess að þau versluðu mikið. Til fyrirmyndar. Bretar henda þriðjungi þeirra matvæla sem þeir koma með inn á heimilið. Þar af eru 19 prósent sem alls ekki er hægt að nýta betur. Stærsti hlutinn, eða 61 prósent, reyndist þó óþarfa sóun á matvælum. Þetta leiddi bresk rannsókn, sem kynnt var í vor, í ljós. Hún náði til 2.000 heimila en frá þessu segir í nýjasta hefti Neytendablaðsins. Algengast reyndist að fólk fengi sér of mikið á diskinn en því næst gaf fólk þær skýringar að varan hefði verið út- runnin. Ólíklegt verður að teljast að við Íslendingar séum eftirbát- ar þessarar vinaþjóðar okkar. Ekki GEyma GjaFaBréFin Varast ber að geyma gjafabréf of lengi í því árferði sem við búum við. Oftast er það þannig að fari fyrirtæki á hausinn situr neyt- andinn, sem á gjafabréf eða aðra kröfu á fyrirtækið, í súpunni. Neytendasamtökunum hafa bor- ist þó nokkrar fyrirspurnir vegna inneignarnótna eða gjafabréfa í fyrirtækjum sem hafa lagt upp laupana. Dæmi eru um að fólk hafi greitt inn á vörur sem það fær síðan hvorki afgreiddar né endurgreiddar. Ekki taka óþarfa sénsa því óvíst er að krafa í þrota- bú skili árangri. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is „Miklu munar einnig á jakkafötum en þar reyndist verðmunurinn mestur í krónum talið.“ Mikill verðmunur á herraskyrtum 152 prósenta verðmunur reyndist á hreinsun á herraskyrtum. BrEtar Sóa mat FatahrEinSanir Svanhvít efn. Hreinn efn. Borgarefn. Faghreinsun Fatahr. Kópav. efn. Garðab. Katla efn. efn. Björg efn. Úðafoss Fönn Jakkaföt 2490 2300 1500 2600 2500 2420 2000 2600 2380 2390 Kjóll 1610 1800 1970 2490 1830 1900 1550 1600 1880 2019 Dragt 2490 2300 1760 2600 2500 2420 2000 2600 2380 2390 Bindi 575 650 630 890 770 660 630 975 665 566 Herraskyrta 615 300 250 630 520 510 430 550 510 502 Dömuskyrta 615 500 650 580 520 510 530 550 510 502 SamtalS 8395 7850 6760 9790 8640 8420 7140 8875 8325 8369 * Tilboð: 3 skyrTur eða fleiri, 300 kr. ** Hámark Þrjár HerraskyrTur. *** 3 HluTir 25% afsláTTur og 5 HluTir 35% afsláTTur **** sÍður kjóll 2230 vErðSamanBurður efnalaug verð Munur 1. Borgarefnalaugin 6760 2. Katla efnalaug 7140 5,62% 3. Hreinn efnalaug og þvottahús 7850 16,12% 4. efnalaugin Úðafoss 8325 23,15% 5. Fönn 8369 23,80% 6. Svanhvít efnalaug 8395 24,19% 7. efnalaug Garðabæjar 8420 24,56% 8. Fatahreinsun Kópavogs 8640 27,81% 9. efnalaugin Björg 8875 31,29% 10. Þvottahúsið Faghreinsun 9790 44,82%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.