Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Page 16
miðvikudagur 26. nóvember 200816 Ættfræði 50 ára í dag 30 ára n Huy Van Nguyen Gnoðarvogi 34, Reykjavík n Eva Björk Magnúsdóttir Grýtubakka 2, Reykjavík n Olgeir Sveinn Friðriksson Traðarlandi 21, Bolungarvík n Hulda Guðrún Bragadóttir Reykási 26, Reykjavík n Sigurður Þórsson Helgamagrastræti 43, Akureyri n Ása Huldrún Magnúsdóttir Skessugili 19, Akureyri n Kristjana Helga Ólafsdóttir Grenigrund 13, Akranes n Halldór Hallgrímur Gíslason Tindaflöt 4, Akranes n Elín Rós Bjarnadóttir Leirdal 42, Njarðvík 40 ára n Minming Wu Bugðulæk 17, Reykjavík n Símon Ormarsson Löngulínu 10, Garðabær n Helgi Jakob Helgason Kjarnagötu 30, Akureyri n Stefán Hafþór Stefánsson Bakkastöðum 7, Reykjavík n Sigurður Heiðar Stefánsson Ljósulind 12, Kópavogur n Sverrir Guðmundsson Lerkiási 3, Garðabær n Áslaug Jónasdóttir Laugalæk 16, Reykjavík n Þórdís Linda Guðjónsdóttir Víðimel 73, Reykjavík n Róbert Guðmundsson Mundakoti, Eyrarbakki n Björg Eyjólfsdóttir Veghúsum 11, Reykjavík 50 ára n Birgitta María Braun Löngumýri 37, Garðabær n Einar Eyjólfsson Linnetsstíg 2, Hafnarfjörður n Karl Jóhann Jóhannsson Hamrahlíð 5, Grundarfjörður n Einar Þór Garðarsson Brekkuhlíð 16, Hafnar- fjörður n Jóhanna Jóhannsdóttir Smáraflöt 3, Garðabær n Laufey Sigurlaug Sigurðardóttir Stórholti 2a, Akureyri n Erla Ívarsdóttir Geitastekk 1, Reykjavík n Ásdís Viggósdóttir Amsturdam 1, Mosfellsbær n Ottó Ólafur Gunnarsson Smárarima 33, Reykjavík 60 ára n María Ragnhildur Eyþórsdóttir Hrafnakletti 7, Borgarnes n Gunnar Vilhelmsson Fannafold 150, Reykjavík n Júlíus Fossberg Arason Aðalstræti 3, Akureyri n Aleksandr Klimov Nökkvavogi 6, Reykjavík n María Björg Jensen Klyfjaseli 6, Reykjavík n Hákon Björnsson Akurholti 1, Mosfellsbær n Kristbjörg Guðjónsdóttir Bjarnhólastíg 9, Kópavogur n Steinunn B Geirdal Grænlandsleið 24, Reykjavík n Guðmundur Karl Stefánsson Hátúni 10, Reykjavík n Svanhildur Leifsdóttir Norðurbakka 5c, Hafnarfjörður n Finnur Sigfús Illugason Háaleitisbraut 34, Reykjavík Marianne Ósk B Nielsen Hellubakka 14, Selfoss n Pálmi Sveinsson Hvannahlíð 6, Sauðárkrókur 70 ára n Kolbrún Dóra Indriðadóttir Kirkjusandi 3, Reykjavík n Ella Tryggvína Guðmundsdóttir Bergstaðas- træti 11a, Reykjavík n Eggert Þorsteinsson Hamrabergi 22, Reykjavík n Guðný Hrönn Þorsteinsdóttir Rjúpnasölum 12, Kópavogur n Jóhanna Haraldsdóttir Háulind 31, Kópavogur n Gunnar Berg Björnsson Frostaskjóli 85, Reykjavík n Helgi Ingvarsson Hlíðarenda, Hvolsvöllur 75 ára n Ólafur J Gunnarsson Gullsmára 11, Kópavogur n Friðrik Bogason Rauðarárstíg 9, Reykjavík n Indriði Elberg Baldvinsson Skúlagötu 5, Stykkishólmur n Selma Samúelsdóttir Kleppsvegi 86, Reykjavík n Flóra Sigríður Ebenezersdóttir Skólagötu 8, Ísafjörður 80 ára n Valdimar Ásgeirsson Norðurbrún 1, Reykjavík 85 ára n Hjalti Sigfússon Árskógum 6, Reykjavík n Jón Bragi Hlíðberg Hofakri 5, Garðabær n Magnús Jónsson Frumskógum 6, Hveragerði Sólveig JakobSdóttir dósent við menntavísindasvið Hí Sólveig fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Vogahverfinu. Hún var í Voga- skóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1978, lauk BS-prófi í jarðfræði og kennslu- réttindum frá HÍ 1983, stundaði framhaldsnám í kennslufræði við University of Minnesota með áherslu á tölvunotkun í skólastarfi,lauk MEd- prófi 1989 og síðan doktorsprófi 1996. Sólveig kenndi við Kvennaskól- ann í Reykjavík 1983-86, var verk- efnastjóri hjá Íslenska menntanet- inu 1997, lektor við KHÍ 1997 og síðan dósent í fjarkennslufræðum þar frá 1999 og er nú dósent á menntavís- indasviði HÍ. Sólveig átti frumkvæði að stofn- un Netlu, veftímarits um uppeldi og menntun, og sat í ritstjórn þess í nokkur ár, og sat í stjórn 3f, Félags um upplýsingatækni og menntun um skeið. Fjölskylda Eiginmaður Sólveigar er Jón Jóhannes Jónsson, f. 21.7. 1957, læknir í Reykja- vík. Hann er sonur Jóns Jóhannesson- ar, prófessors f. 6.6. 1909, d. 4.5. 1957, og Guðrúnar Pálínu Helgadóttur, f. 19.4. 1922, d. 5.7. 2006, fyrrv. skóla- stjóra Kvennaskólans í Reykjavík. Börn Sólveigar og Jóns eru Jó- hanna Jónsdóttir, f. 12.1. 1981, dokt- orsnemi við University of Cambridge; Guðrún Pálína Jónsdóttir, f. 10.3. 1988, nemi við MH; Jón Jakob Jóns- son, f. 4.8. 1996, grunnskólanemi. Systkini Sólveigar eru Oddur Sig- urður Jakobsson, f. 18.3. 1961, fram- haldsskólakennari og fulltrúi hjá Fé- lagi framhaldsskólakennara, búsettur í Reykjavík; Auðbjörg Jakobsdóttir, f. 9.6. 1966, tölvunarfræðingur, búsett í Nepal. Foreldrar Sólveigar eru Jakob Jak- obsson, f. 28.6. 1931, fiskifræðingur og fyrrv. forstjóri Hafrannsóknastofn- unar, og Jóhanna Gunnbjörnsdóttir, f. 4.11. 1938, d. 24.4. 1974, húsmóðir. Stúpmóðir Sólveigar er Margrét Elísabet Jónsdóttir, f. 25.4.1940, fyrrv. fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu. Ætt Jakob er sonur Jakobs, skipstjóra á Norðfirði Jakobssonar, á Illugastöð- um Bjarnasonar. Móðir Jakobs skip- stjóra var Auðbjörg Jónsdóttir. Móðir Jakobs fiskifræðings var Sólveig Ás- mundsdóttir, frá Norðfirði Jónssonar, og Þórunnar Halldórsdóttur. Jóhanna var dóttir Stefáns Gunn- björns, tækjasmiðs hjá Rannsókna- stofnun atvinnuveganna Egilssonar, óðalsb. á Laxamýri, bróður Jóhanns skálds. Systir Egils var Snjólaug, móðir Sigurjóns lögreglustjóra, föður Jóhanns, forstjóra HAFRÓ. Snjólaug var einnig amma Magnús- ar heitins Magnússonar, sjónvarps- manns hjá BBC, föður Sallýjar, rit- höfundar og fréttamanns á BBC, og Önnu Snjólaugar, dagskrárgerða- manns á BBC. Egill var sonur Sig- urjóns, óðalsb. á Laxamýri Jóhann- essonar, ættföður Laxamýrarættar og bróður Jóns á Sýrnesi, langafa Jónasar frá Hriflu og langalangafa Jónasar Kristjánssonar, fyrrv. for- stöðumanns Árnastofnunar. Móð- ir Jóhönnu var Oddrún Sigríður Jó- hannsdóttir frá Tyrfingsstöðum í Skagafirði Jónssonar. Til hamingju með afmælið! Birgitta fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Vogahverfinu. Hún var í Vogaskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1978, stundaði nám í almenn- um málvísindum við HÍ, lauk BA- prófi í almennum málvísindum og íslensku og síðan í uppeldis- og kennslufræði. Birgitta var grunnskólakenn- ari við Grunnskólann á Þingeyri 1986-90, kennari við Grunnskólann í Stykkishólmi og Fjölbrautaskóla Vesturlands í Stykkishólmi 1992-99, verkefnastjóri á Málvísindastofnun HÍ 2000-2005 og hefur starfað á Al- þingi frá 2005 og jafnframt starfað sjálfstætt að ýmsum verkefnum er varða kennslu og textagerð. Fjölskylda Eiginmaður Birgittu er Gunnar Ei- ríkur Hauksson, f. 2.6. 1957, sóknar- prestur í Stykkishólmi og prófastur í Snæfellsness- og Dalaprófasts- dæmi. Hann er sonur Hauks Guð- mundssonar, f. 29.12. 1921, d. 21.11. 2001, skrifstofumanns hjá Reykja- víkurborg, og Sigurbjargar Eiríks- dóttur, f. 29.8. 1924, fyrrv. skrifstofu- manns hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Börn Birgittu og Gunnars Ei- ríks eru Kristbjörg Gunnarsdótt- ir, f. 11.5. 1981, BA í félagsfræði og háskólanemi í Gautaborg en maður hennar er Gunnar Páll Ólafsson há- skólanemi og er dóttir þeirra Bryn- hildur Anna, f. 26.10. 2006; Sigrún Gunnarsdóttir, f. 15.8. 1983, BA í málvísindum í framhaldsnámi í Lundi; Jón Gunnar Gunnarsson, f. 7.5. 1991, nemi við MH. Systkini Birgittu eru Jón Örn Bragason, f. 27.6. 1956, innkaupa- stjóri hjá Húsasmiðjunni; Aðalheið- ur Bragadóttir, f. 18.5. 1961, aðstoð- arskólastjóri Hlíðaskóla; Brynjólfur Bragason, f. 1.11. 1963, sérfræðing- ur hjá Símanum. Hálfsystir Birgittu, samfeðra, er Erna Kristín Bragadóttir, f. 29.5. 1950, hárgreiðslukona í Danmörku. Foreldrar Birgittu: Bragi Jóns- son, f. 31.7. 1929, bókbindari í Reykjavík, og Kristbjörg Gunnars- dóttir, f. 1.1. 1937, verslunarmaður í Reykjavík. birgitta bragadóttir íslenskufræðingur og starfsmaður alþingis „Þetta er farið að verða ásættanlegt,“ segir Eva Björk Magnúsdóttir hlæj- andi þegar hún er spurð hvernig þrí- tugsafmælið leggist í hana. Afmælis- dagurinn stóri er einmitt í dag. „Ég kveið þessu hérna áður fyrr en mað- ur hefur haft nokkur ár til að sætta sig við þetta.“ Eva, sem búsett er í Breiðholti, var ekki búin að plana neitt sérstakt fyrir daginn þegar blaðamaður talaði við hana í gær. „Ætli ég hafi daginn ekki bara léttan. Fari út að borða og dekri kannski smá við mig,“ segir Eva sem er heimavinnandi með tvö börn, sjö ára og þrettán mánaða. „Ég var þá að hugsa um stað sem gæti hentað sem sambland fyrir okkur krakkana, ann- aðhvort Ítalía eða Nings.“ Engin veisluhöld eru fyrirhug- uð í tilefni tímamótanna. „Ég ætlaði að hafa eitthvað en það er bara búið að vera svo mikið að gera að ég held ég nái því ekki á næstunni. Allavega ekki næstu helgi því þá verð ég líklega í Noregi,“ segir Eva. Hún kveðst vera töluvert afmælisbarn, man til dæm- is eftir afmælisdögum flestra í kring- um sig, en hefur aftur á móti ekki verið mikið í því að halda veislur þeg- ar hún sjálf á afmæli. „Ég hef aldrei haldið upp á afmælið mitt í seinni tíð, til dæmis ekki þegar ég varð tvítug. Ef ég á afmæli kaupi ég mér helst eitt- hvað gott að borða og hef kósíkvöld.“ Eva neitar því ekki að af þessum sök- um sé ákveðin pressa frá vinunum um að halda smá veislu í tilefni þrí- tugsafmælisins. Hvort sem veislan verður hald- in eða ekki lítur Eva björtum augum fram á veginn. „Já, já, ég geri það. Maður er orðinn þroskaðri og reynsl- unni ríkari. En reyndar er ég með smá kvíðahnút yfir fimmtudagsaldr- inum,“ segir Eva. Og hlær. 50 ára í dag Eva Björk Magnúsdóttir er þrítug í dag: Með kvíðahnút fyrir fiMMtugsaldrinuM Helga fæddist á Ísafirði en ólst upp á Flateyri. Hún var í Grunnskólan- um á Flateyri, Héraðsskólanum á Laugarvatni og stundaði nám við MÍ. Helga stundaði fiskvinnslu í frystihúsinu Kambi á Flateyri á unglingsárunum og vann í sölu- turni um skeið. Þá vann hún í Fé- lagskaupum á Flateyri í nokkur ár. Eftir að Helga flutti suður starf- aði hún hjá Öryggismiðstöð Íslands í þrjú ár en hefur verið ritari á arki- tektastofunni Gláma Kím frá 2005. Fjölskylda Eiginmaður Helgu er Pétur Þór Hafþórsson, f. 15.7. 1977, starfs- maður Brimborgar sem nú starfar í Noregi. Börn Helgu og Péturs Þórs eru Embla Ósk Pétursdóttir, f. 30.8. 1997; Askur Þór Pétursson, f. 3.8. 2004. Hálfsystir Helgu, sammæðra, er Kristín Ágústsdóttir, f. 28.8. 1958, starfsmaður Mjólkursamsölunnar á Selfossi. Alsystkini Helgu eru Magnús Eggertsson, f. 27.5. 1967, pípulagn- ingamaður á Reyðarfirði; Haraldur Eggertsson, f. 18.1. 1965, d. 26.10. 1995, skipstjóri á Flateyri; Guð- rún Sigurbjört Eggertsdóttir, f. 4.2. 1966, bókari á Ísafirði; Ómar Ingi Eggertsson, f. 19.9. 1973, rafvirki á Reyðarfirði. Foreldrar Helgu eru Eggert Jón Jónsson, f. 31.7. 1936, skipstjóri, nú búsettur í Kópavogi, og Laufey Guðbjartsdóttir, f. 15.8. 1936, fyrrv. kaupkona á Flateyri, nú búsett í Kópavogi. Helga ósk eggertsdóttir ritari í kópavogi 30 ára í dag Eva Björk fer líklega á ítalíu eða nings í kvöld með börnunum sínum tveimur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.