Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Síða 20
miðvikudagur 26. nóvember 200820 Fókus
Ef það er eitthvað sem er Oliver
Stone hugleikið er það Víetnam-
stríðið og forsetar. Fyrst og fremst
bandarískir forsetar þótt hann hafi
einnig gert Comandante, frábæra
viðtalsmynd við Fidel Castro. W
segir sögu umdeildasta þjóðarleið-
toga heims í áratugi. Hér er flassað
fram og til baka í tíma og stiklað á
stóru á tíðindamiklum ferli hans.
Við sjáum táknrænar senur af Bush
leika sér einn í ímynduðum hafna-
boltaleik þar sem hann dagdreym-
ir sig betri en hann er. En vonbrigð-
in banka upp á í næturdraumum.
Maður bjóst við fleiri senum af
þessu tagi sem Stone notar gjarnan
til að sýna það sem hrá atburðarás
getur ekki sagt.
Þótt Bush birtist manni sem
húðlatur, ofdekraður og alkóhólis-
eraður fáviti sem snapar gellur með
montsögum af ættarauði er klárlega
sterk samúð með honum frá hendi
leikstjórans. Bush lifir í skugga Jebs,
stóra bróður, þarf að huga að ættar-
heiðri Bush-nafnsins og sækir stíft í
áfengið. Stone fetar eitthvað millibil
milli hinnar miklu samúðar í hetju-
myndinni JFK og hins vegar gagn-
rýninnar og raunsærrar myndar
sinnar um Nixon. Myndin magnast
upp eftir því sem líður nær forseta-
tíma Bush og þar nær hún þeim há-
gæðum sem maður vildi sjá. Bush
er vel skilað til áhorfenda af Josh
Brolin en er þó sérstaklega sann-
færandi á efri árum. Það er spenn-
andi að sjá rafmagnaða stemningu
milli feðganna sem glöggir sáu
snert af í opinberri umræðu feðg-
anna í tengslum við seinna Íraks-
stríðið. Hún er vægast sagt frábær
vinnslan á fundum Bush-stjórn-
arinnar í aðdraganda Íraksstríðs-
ins. Þar liggur hápunktur myndar-
innar, þrunginn spennu þess sem
hugar að örlögum hundraða millj-
óna manna. Heimurinn vildi vita
hvernig í fjandanum menn kom-
ust að þessarri niðurstöðu og þetta
eru þungavigtarsenur ekki síst í
því samhengi. Richard Dreyfuss er
óborganlegur sem Dick Cheney,
gervið er gott og þessi skakki gní-
standi munnsvipur varaforsetans
er svo sannarlega til staðar. Condi
Rice er langsamlega best túlkuð, og
það af hinni bresku Thandie Newt-
on. Hvernig hún naðrast hálfhokin
kringum forsetann eins og eitthvað
nagdýr. Óskar fyrir aukahlutverk
hefur sjaldan átt jafnvel við. Col-
in Powell er einnig góður þar sem
hann reynir að ræða af skynsemi og
reynslu hermanns en bognar eins
og laminn rakki undan kjaftöskun-
um. Er í kjölfarið sendur í sneypu-
för fyrir þing Sameinuðu þjóðanna
þar sem hann reynir að sannfæra
heiminn um gereyðingarvopna-
eign Saddams sem sagan hefur
dæmt sem eitt versta uppistands-
grín seinni tíma.
Þetta er spennandi mynd um
okkar tíma og vel þess virði. En
það verður að segjast eins og er að
Stone hefði getað notast við meira
krassandi handrit að sögu Bush.
Af nógu er að taka. Hann hefði að
auki getað gert myndina fyndn-
ari án þess að ýkja né fara út fyr-
ir söguna. Nokkrar hrikalegar til-
vitnanir í Bush eru hér en margar
af frægustu og heimskulegustu til-
vitnunum hans eru fjarri. Málhelti
Bush er einstakt en er fyrirferðar-
lítið í W. Stone hefði getað verið
mun beinskeittari og farið dýpra í
það hvernig Bandaríkin hrundu í
virðingu á alþjóðavettvangi sökum
Bush. Stone gefur drjúgan afslátt
af ruglinu sem fylgdi Bush í Hvíta
húsinu, hinum vafasama kosninga-
sigri, dætrum hans sem eru ansi
undarlegur kapítuli og það er rétt
svo minnst á kókaínneysluna. Bush
sleppur að hluta úr greipum Stone,
sama hvernig á málið er litið.
Stuðningsmenn forsetans
reyndu að baktryggja sig með
áróðri gegn myndinni áður en hún
leit dagsins ljós og kannski vegna
þess þrýstings er óvinsælasti for-
setinn í sögu Bandaríkjanna höndl-
aður frekar snyrtilega. En það verð-
ur ekki tekið af W að vera prýðileg
mynd um forseta sem uppfyllti
„kröfur fólks til forseta“ að sögn
spunameistarans Karl Rove: „Þetta
snýst allt um með hverjum fólk vill
setjast niður og drekka bjór.“ Það er
orðið skuggalega fámennt á knæp-
unni en Oliver Stone er að minnsta
kosti einn þeirra sem leggja það á
sig.
Erpur Eyvindarson
á miðvikudegi
Aðventutónleikar Baggalúts
miðasala er í fullum gangi á tvenna aðventutónleika Baggalúts í salnum í
Kópavogi 4. og 11. desember. Leikin verða lög af nýjustu hljómskífu baggalúts,
ásamt völdum jólalögum og ýmsu öðru góðgæti. baggalútsmenn lofa sérlega
huggulegri jólastemningu fyrir alla fjölskylduna en biðja fólk þó að athuga að
orðfæri í textum og málfari sveitarmanna geti valdið misskilningi. miðasalan fer
fram á midi.is.
SkítApAkk
á SkítAtúr
Hljómsveitirnar Dr. Spock, Agent
Fresco og Slugs halda í tónleikatúr,
sem ber yfirskriftina Skítatúr, í dag til
að kynna nýútkomnar plötur sínar.
Túrinn stendur fram á sunnudag.
Böndin leita ekki langt yfir skammt
á fyrsta viðkomustaðnum sem er
Dillon við Laugaveg, en reyndar
ætlar Dr. Spock að halda útgáfutón-
leika út af fyrir sig í spinning-tíma í
Sporthúsinu í Kópavogi í hádeginu
í dag. Næstu viðkomustaðir eru svo
Laugarvatn á morgun, Keflavík á
föstudag, Stykkishólmur á laugar-
dag og loks Akranes á sunnudag. 500
krónur kostar á alla tónleika nema á
Dillon þar sem er frítt inn.
mynd
fyrir miðA
Þjóðleikhúsið óskar eftir fjöl-
skyldumyndum fyrir uppsetn-
ingu á jólasýningu leikhússins á
Sumarljósi eftir Jón Kalman Stef-
ánsson. Óskað er eftir líflegum og
hlýlegum myndum, gömlum eða
nýjum, sem fólk vill gefa leikhús-
inu í skiptum fyrir miða á sýning-
una. Myndirnar mega vera eftir-
prentanir og af hvaða stærð sem
er. Verði myndin notuð í leikmynd
Sumarljósa fær eigandi hennar
einn miða á sýninguna og er fólki
frjálst að senda inn fleiri en eina
ljósmynd. Myndirnar sendist á
props@leikhusid.is eða á Þjóð-
leikhúsið, leikmunadeild, fyrir 5.
desember.
tekur trúAr-
SpekingA
á teppið
Græna ljósið frumsýnir á föstudag-
inn heimildarmyndina Religulous
þar sem Larry Charles, leikstjóri
Borats, gerir hinn þekkta grínista
Bill Maher út af örkinni til að kryfja
trúarbrögð heimsins eins og þau
hafa aldrei verið krufin áður. Charles
og Maher hafa sýnt áður að þeim
er ekkert heilagt og ku sanna það
vel hér. Maher á bágt með að skilja
hvers vegna menn sem eru mjög
skynsamir og rökfastir í daglega líf-
inu geti hent allri rökhugsun út um
gluggann þegar kemur að trúmál-
um. Hann fer út um allan heim til að
hitta ýmsa spekinga frá öllum helstu
trúarbrögðunum og lætur allt vaða
á þá.
Það var mikið sjónarspil sem
áhorfendur á tónleikum Sigur Rós-
ar upplifðu í Laugardalshöllinni
síðasta sunnudagskvöld. Það er
engum blöðum um það að fletta
að aðdáendahópur Sigur Rósar er
stór hér á landi og urðu viðstadd-
ir ekki fyrir neinum vonbrigðum
með niðurstöðuna. Strákarnir virt-
ust vera fulir af orku þrátt fyrir að
þetta væri lokahnykkurinn í tón-
leikaferð þeirra sem staðið hefur
yfir síðan í júní.
Undirritaður mætti á svæð-
ið um það leyti sem upphitunar-
hljómsveitin For A Minor Reflect-
ion byrjaði að spila. Eftir að hafa
horft á sveitina spila varð manni
ljóst að þarna fer ekki einungis
efnileg hljómsveit heldur hljóm-
sveit sem, miðað við gæðin, gæti
orðið næsta útflutningsvara okk-
ar Íslendinga. Sigur Rós mætti síð-
an á sviðið klukkan 21 en tónleik-
arnir sjálfir byrjuðu klukkan 20.
Viðstaddir þurftu því ekki að bíða
óþægilega lengi eftir að For A Min-
or Reflection hafði lokið sér af,
þó biðin hafi verið rúmar tuttugu
mínútur.
Sigur Rós spilaði öll sín bestu
lög. Þar var úr vöndu að velja þar
sem lög Sigur Rósar eru flest hvert
öðru betra. Eins og áður segir
voru tónleikarnir mikið sjónarspil.
Strákarnir nýttu sér Laugardals-
höllina til hins ýtrasta. Meðal ann-
ars birtist risastór foss sem skildi
að tónleikagesti og sviðið í tveimur
lögum. Á fossinn var varpað mynd-
um af meðlimum sveitarinnar og
allt var gert til að gera umgjörðina
hina glæsilegustu. Þetta var meðal
annars gert í lokalaginu, „Popplag-
inu“, af plötunni ( ). Frábærri tveggja
tíma dagskrá var lokið og hurfu
tónleikagestir sáttir út í myrkrið og
kuldann þetta nóvemberkvöld.
Einar Þór Sigurðsson
Fossar og fegurð í Höllinni
SAmúðArSAgA
grátAndi trúðS
kvikmyndir
W.
Leikstjóri: Oliver Stone
Aðalhlutverk: Josh brolin, elizabeth banks,
richard dreyfuss, James Cromwell, ellen
burstyn, Thandie newton
tónleikar
Sigur róS
Laugardalshöll, sunnudaginn 23. nóvember
Frábær tónleikaumgjörð
aðdáendur Sigur rósar voru ekki
sviknir af tónleikum sveitarinnar
síðasta sunnudagskvöld.