Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2008, Page 21
miðvikudagur 26. nóvember 2008 21Fókus
Þjónustuauglýsingar sími 515 5000
Útgáfutónleikar Tómasar R.
Útgáfutónleikar Tómasar r. Einarssonar vegna geisladisksins Trúnó
verða í iðnó í kvöld klukkan 20. Þar mun hljómsveit Tómasar og
söngvararnir ragnheiður gröndal og mugison flytja lög Tómasar
við ljóð yngri og eldri skálda, auk hans eigin texta. Forsala fer fram
í iðnó. Þess má geta að á meðfylgjandi mynd er mugison að reyna
að kyssa Tómas á hálsinn.
FRábæR
Fjölskyldu-
skemmTun
Á grámyglulegum kreppusunnudegi
dreif ég mig af stað með frændsyst-
kini mín tvö, fjögurra ára og níu ára,
á GilliGill tónleika í Salnum. Í síðasta
mánuði kom út platan Gilligill með
textum eftir Braga Valdimar Skúla-
son í flutningi Memfismafíunnar og
margra þjóðþekktra söngvara.
Þó platan sé barnaplata er hún
ekki síður skemmtileg fyrir okkur
fullorðna fólkið og var ég því álíka
spennt fyrir tónleikunum og spari-
klæddu frændsystkinin mín. Tón-
leikarnir hófust stundvíslega klukk-
an þrjú. Á sviðinu hafði þá komið
sér fyrir heil Memfismafía í litrík-
um grímubúningum, Ragnheiður
Gröndal í þjóðlegum síðkjól, Magga
Stína (sem örugglega lánaði öllum
hinum á sviðinu þessi litríku föt
sem hún lumaði á í fataskápnum)
með blómakransa í appelsínugul-
um sokkabuxum og Egill Ólafsson í
skærlitri skyrtu með hatt. Á bak við
þetta gríðarlega hressa tónlistarfólk
rúlluðu svo fagrar og skemmtilegar
myndir úr plötuumslaginu, teikn-
aðar af Karítas Pálsdóttur. Allt þetta
náði svo sannarlega strax athygli
barnanna.
Egill Ólafsson var í hlutverki eins
konar hljómsveitarstjóra og lék á als
oddi. Í upphafi sagði hann börnun-
um að í lok tónleikanna fengju þau
að gera svolítið sem væri undir öll-
um öðrum kringumstæðum strang-
lega bannað að gera á tónleikum,
sem byggði upp mikla spennu.
Spurði börnin og foreldrana spurn-
inga á milli atriða og fékk nokk-
ur börn upp á svið með sér. Salur-
inn í Kópavogi er ekki stór og það
myndaðist heimilisleg og huggu-
leg stemning á tónleikunum. Börn-
in voru óhrædd við að kalla spurn-
ingar og athugasemdir til Egils inn á
milli þess sem þau fylgdust dolfallin
með æðislegum lögunum.
Eins og áður sagði eru lögin
ekki síður skemmtileg fyrir okk-
ur fullorðna fólkið með ýmiss kon-
ar bráðsmellnum athugasemdum
í textunum enda húmorinn í fyrir-
rúmi á GilliGill.
Magga Stína fór á kostum og
hoppaði og skoppaði um sviðið eins
og henni einni er lagið. Ragnheiður
Gröndal stóð sig líka með prýði en
þetta var henni ekki alveg jafneðl-
islægt og Möggu Stínu. Í rauninni
þarf ekki að hafa neinar málaleng-
ingar um það hvernig hver og einn
flytjandi stóð sig því í heildina voru
þau stórskemmtileg. Það skein líka
í gegn hvað hópurinn skemmti sér
vel á sviðinu sem skilar sér jú alltaf
til áhorfandans.
Í lokalaginu, GilliGill, kom svo
að þessu óvænta sem Egill hafði lof-
að börnunum að fá að gera í upp-
hafi sem vakti mikla lukku. Ég ætla
samt ekki að segja frá því hér heldur
hvet ég alla foreldra, ömmur og afa
og jafnvel frændsystkini að sleppa
því að eyða peningum í rándýra
sunnudagssteik og skella sér frekar
með börnin á GilliGill og fá sér bara
klinktilboð á McDonalds í kvöld-
matinn. Miðaverð er ekki nema
fimmtán hundruð krónur og hefjast
tónleikarnir klukkan þrjú á hverjum
sunnudegi fram að jólum.
KristaHall
tónleikar
GilliGill
Salnum,sunnudaginn23.nóvember
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
Jólakaffi verður þriðjudaginn 25. nóv. kl. 20 í
Víkingasal Hótel Loftleiða, fyrir þær konur sem
tóku þátt í ferðum okkar á árinu.
Hafið með ykkur myndir og góða skapið.
Nefndin
starf.is
Nýr kostur í DV
eru þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að auglýsa í DV!
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Þórarinn Arnar Sævarsson lögg. fasteignasali, tas@kontakt.is
Heildverslun með neytendavörur fyrir konur. Ársvelta 100 mkr. Góður
hagnaður. Gæti hentað til flutnings út á land.
Útgáfufyrirtæki óskar eftir sameiningu.
Fyrirtæki í matvælaframleiðslu óskar eftir sameiningu.
Heildverslun með auglýsinga- og gjafavörur óskar eftir sameiningu.
Innflutningsfyrirtæki með bílavarahluti óskar eftir sameiningu.
Iðnfyrirtæki með innréttingar óskar eftir sameiningu.
Heildverslun með álprófíla óskar eftir sameiningu.
Þekkt bílasala á besta stað. Ársvelta 65 mkr.
Rótgróin heildverslun með tæki og rekstrarvörur fyrir heilbrigðisgeirann.
Ársvelta 120 mkr. EBITDA 15 mkr.
Meðalstór prentsmiðja óskar eftir sameiningu við traust fyrirtæki með
hagræðingu í huga. Ársvelta 170 mkr. EBITDA 30 mkr.
Þekkt, lítið hellulagninga- og jarðvinnufyrirtæki með 6 ára góða rekstrar-
sögu. Ársvelta 50 mkr. Tilvalið til sameiningar eða fyrir duglegan
mann sem vill fara í eigin rekstur.
Markaðsstjóri-meðeigandi óskast að bílaumboði.
Leiðandi hestavöruverslun með mjög góða staðsetningu. Ársvelta 100 mkr.
Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 600 mkr. •
Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Á • Vitum af fjölda fyrirtækja í öllum
atvinnugreinum sem vilja skoða sameiningar með hagræðingu í huga.
Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 600 mkr. •
Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 90 mkr. •
Engar skuldir. Mjög hagstætt dæmi fyrir fjárfesta.
Framleiðslu- og þjónustufyrirtæki sem þjónar fiskvinnslu og •
matvælafyrirtækjum. Ársvelta 50 mkr. EBITDA 6 mkr. Stöðugur vöxtur.
Rótgróið bílaþjónustufyrirtæki. Ársvelta 100 mkr. Auðveld kaup fyrir •
duglegan mann.
Heildverslun með neytendavörur fyrir konur. Ársvelta 100 mkr. Góður •
na ur. Gæti hentað til flutnings út á land.
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 620 mkr. Skuldsett með •
hagstæðu erlendu láni.
Rótgróin heildverslun með tæki og rekstrarvörur fyrir heilbrigðisgeirann. •
Ársvelta 120 mkr. EBITDA 15 mkr.
Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með rekstrarvörur. Ársvelta 180 mkr. •
EBITDA 40 mkr.
Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is
Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhhildur@kontakt.is
Þórarinn rnar S varsson lögg. fasteignasali, tas@kontakt.is
Höskuldur Frímannsson rekstrarhagfræðingur, hoskuldur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is