Fréttablaðið - 22.01.2016, Side 4
ÚTSALA
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
Opið laugardag kl. 11-16
VELDU
GRILL
SEM EN
DAST
OG ÞÚ
SPARA
R
• Orka 18,7 KW = 64.000 BTU
• 4 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Tvöfalt einangrað lok m. mæli
• Postulínsemaleruð efri grind
• Rafkveikja fyrir alla brennara
• Gashella
• Auðveld þrif
Landmann gasgrill
Avalon 4ra brennara
Er frá Þýskalandi
FULLT VERÐ
139.900
104.925
18,7
KW
Úts
ölu
nni
lýk
ur
á la
uga
rda
g
25%
afslátt
ur
Heilbrigðismál „Það endurspeglast
í svari ráðherra að það sé lítill áhugi
á þessum málaflokki,“ segir Jóhanna
María Sigmundsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks. Hún sendi fyrir-
spurn til umhverfis- og auðlindaráð-
herra eftir frétt Fréttablaðsins um
svartan markað húðflúrara. Í frétt-
inni kom fram óánægja þaulvanra
húðflúrara með eftirlitsleysi yfir-
valda á húðflúrmarkaðnum enda
stundi margir greinina án þekking-
ar, réttra tækja eða tilskilinna leyfa.
Jóhanna spyr meðal annars hvort
ráðherra hafi kynnt sér löggjöf
annarra Norðurlanda um húðflúrun
og hvort ráðherra hafi í hyggju að
leggja til að starfsheiti húðflúrara
verði löggilt. Svar ráðherra við
spurningunum tveimur er stutt og
skýrt. Einfaldlega nei.
Í svarinu við hvort ráðherra muni
beita sér fyrir setningu reglna um
starfsemi húðflúrstofa kemur fram
að Embætti landlæknis telji þörf
á frekari fræðslu fyrir húðflúrara.
Fulltrúar frá Embætti landlæknis,
Umhverfisstofnun og heilbrigðis-
nefndum sveitarfélaga þyrftu að
fræða um sýkingarhættu, sótt-
hreinsun, dauðhreinsun og hvað
beri að varast. Einnig um lög og
reglur, starfsleyfisskilyrði og eftirlit.
Fram kemur að Umhverfisstofnun
muni taka málið aftur upp í kjölfar
fyrirspurnar Jóhönnu.
„Ég vonaðist til þess að það yrði
farið í að kanna þetta enn frekar.
Til dæmis að gera þetta að löggildu
starfi og læra af nágrönnum okkar.
Ég vonaði líka að tekið yrði betur
undir skoðanir landlæknis. Það er
til dæmis ekkert sem bannar mér að
kaupa tattúvél og byrja að húðflúra,
ég má bara ekki selja þjónustuna,“
segir Jóhanna María.
Í svari ráðherra kemur enn fremur
fram að sextán húðflúrstofur séu
með starfsleyfi hér á landi og að
ekki sé haldin sérstök skrá yfir tilvik
í heilbrigðiskerfinu sem rekja má til
húðflúrunar. – ebg
Ráðherra stefnir ekki að því að löggilda starfsheiti húðflúrara
skólamál Síðustu daga hafa verið
fluttar fréttir af þrjátíu kennurum
Melaskóla sem hótað hafa uppsögn
við skólann ef skólastjórinn, Dagný
Annasdóttir, kemur aftur til starfa
í lok mars eftir veikindaleyfi. Þó
er enn mjög á huldu hvar vandinn
nákvæmlega liggur.
Í Stundinni var birt nafnlaust
viðtal við kennara í Melaskóla sem
sagði Dagnýju leggja kennara í ein-
elti og stjórna með harðri hendi.
Engin sértæk dæmi eru tínd til.
Dagný vill ekki tjá sig um málið
í fjölmiðlum. „Með hagsmuni
barnanna í skólanum að leiðarljósi
tel ég ekki rétt að tjá mig um málið,“
útskýrir hún. „Afstaða mín byggist
líka á því að halda eins mikinn frið
um skólastarfið og mögulegt er við
þessar aðstæður.“
Mætti strax mikilli andúð
Í fimm áratugi, frá árinu 1959 til
2013, tók innanhússmaður við stöðu
skólastjóra í Melaskóla. Í flestum
tilfellum erfði aðstoðarskólastjóri
stöðuna. Fyrir þremur árum var sú
hefð brotin þegar Dagný var ráðin
skólastjóri en sextán sóttu um stöð-
una, þar á meðal starfandi aðstoðar-
skólastjóri Melaskóla.
Kennari við Melaskóla sem Frétta-
blaðið ræddi við segir Dagnýju
aldrei hafa fengið tækifæri innan
veggja skólans og hún hafi strax
mætt mikilli andúð. Hann segir
kennararæði ríkja í skólanum og
fólk alls ekki tilbúið að taka stjórn.
Því hafi tilburðir Dagnýjar til að
taka stjórnina fallið í grýttan jarð-
veg. Hún hafi þurft að fara í erfiðar
aðgerðir, niðurskurð og fylgja kjara-
samningum, en uppskorið persónu-
lega óvild í sinn garð.
Kennarinn vill ekki koma fram
undir nafni af ótta við útskúfun í
kennarahópnum en hann segir mik-
inn þrýsting vera meðal kennara-
hópsins að koma Dagnýju úr starfi.
Fullyrðir hann að margir kennarar
sem skrifuðu undir undirskrifta-
listann hafi verið beittir þrýstingi
til þess og ótti sé ríkjandi við sterka
kennaraklíku sem gangi hvað harð-
ast gegn Dagnýju.
Ómöguleiki í kringum Dagnýju
Annar kennari sem Fréttablaðið
ræddi við segir upplifun sína af
skólastjóranum stangast á við
það sem komið hefur fram í fjöl-
miðlum. Hann segir Dagnýju vissu-
lega hafa viljað gera breytingar
þegar hún hóf störf – en margar
hafi verið mjög af hinu góða – enda
tækjakostur og húsnæði í niður-
níðslu. Kennarinn tekur dæmi
um kaffistofu kennara. Hún hefur
alltaf verið tvískipt og lengi verið
vilji kennara að sameina stofuna.
Þegar Dagný réðst í það verk þá
varð mikil óánægjubylgja meðal
kennara. Segir kennarinn að þetta
sé dæmi um þann ómöguleika sem
ríkir í kringum skólastjórann.
Síðustu ár erfið fyrir skólastjóra
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, for-
maður Skólastjórafélags Reykja-
víkur, fordæmir einhliða umfjöllun
fjölmiðla síðustu daga. „Mér finnst
þetta óvægið og fjölmiðlar eiga
ekki að vinna svona. Þetta snýst um
manneskju og þetta eru alvarlegar
ásakanir. Þessi einhliða umfjöllun
hefur áhrif á traust til skólans og
getur skaðað starfsemina,“ segir
hún.
Aðspurð hvort ábyrgðin liggi ekki
hjá kennurum Melaskóla, játar hún
því. „Þetta á að fara í eðlilega ferla.
Ef fólk hefur áhyggjur af stjórnun í
skólanum á það að láta vita á réttum
stöðum. En ekki fara í fjölmiðla.“
Guðlaug segir síðustu ár hafa verið
erfið fyrir skólastjórnendur. Það hafi
hún heyrt úr fleiri en einni átt. „Við
erum oft í því hlutverki að ganga inn
í mál, skera niður og semja við okkar
fólk um önnur kjör og aðrar aðstæð-
ur. Þetta er ekki alltaf vinsælt.“
Frá hruni hefur verið skorið niður
í skólakerfinu og nýir kjarasamning-
ar hafa ekki farið vel í alla kennara.
„En stjórnandi þarf að taka ábyrgð-
ina og taka erfiðar ákvarðanir. Það
er hans starf.“
Guðlaug ítrekar að það eigi að
fara réttan farveg í svo viðkvæmum
málum. „Mér finnst þetta forkastan-
legt og að draga foreldra út í þetta
finnst mér skelfilegt. Svo eru stjórn-
endur bundnir trúnaði og geta ekki
varið sig.“ erlabjorg@frettabladid.is
Gagnrýna einhliða og grimma umræðu
Kennarar við Melaskóla segja framgang samkennara undarlegan og vegið að mannorði skólastjórans. Formaður Skólastjórafélags
Reykjavíkur segir umræðuna forkastanlega. Síðustu ár hafi niðurskurður og nýir kjarasamningar verið óvinsæl verkefni skólastjóra.
Börn í Melaskóla standa hönd i hönd á skólalóðinni en samheldnin virðist minni meðal starfsmanna skólans. FréttaBlaðið/VilhelM
En stjórnandi þarf
að taka ábyrgðina
og taka erfiðar ákvarðanir.
Það er hans starf.
Guðlaug Erla Gunn-
arsdóttir, formaður
Skólastjórafélags
Reykjavíkur
stjórnsýsla Fjármálaráðuneytið
hefur tekið þá ákvörðun að bjóða
út farmiðakaup stjórnarráðsins í
febrúar og í framhaldi af því verði
kaupum annarra ríkisstofnana á
flugfarmiðum boðin út.
Félag atvinnurekenda hefur
ítrekað sent fyrirspurnir til ráðu-
neytisins um málið þar sem ríkið
hafi brotið lög um opinber inn-
kaup með því að bjóða ekki út
flugfarmiða opinberra stofnana
ríkisins. Í tilkynningu ráðu-
neytisins segir að ráðuneytið hafi
í samstarfi við önnur ráðuneyti,
Fjársýslu ríkisins og Ríkiskaup
unnið að undirbúningi undan-
farin misseri.
„Við fögnum því að fá loksins
einhver viðbrögð úr ráðuneytinu.
Það er fagnaðarefni að hreyfing sé
að komast á málið eftir meira en
þriggja ára brot ríkisins á lögum
um opinber innkaup,“ segir Ólafur
Stephensen, framkvæmdastjóri
FA. – sa
Ríkið býður út farmiðakaup í febrúar
Það er til dæmis
ekkert sem bannar
mér að kaupa tattúvél og
byrja að húðflúra, ég má
bara ekki selja
þjónustuna.
Jóhanna María
Sigmundsdóttir,
þingmaður Fram-
sóknarflokksins
Framiðakaup ríkisins verða boðin út. FréttaBlaðið/VilhelM
Það er fagnaðarefni að hreyfing sé að
komast á málið eftir meira en þriggja
ára brot ríkisins á lögum um opinber innkaup.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda
Með hagsmuni
barnanna í skól-
anum að leiðarljósi tel ég
ekki rétt að tjá mig um málið.
Dagný Annasdóttir,
Skólastjóri Melaskóla
2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö s t U D a g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
3
D
-0
E
F
8
1
8
3
D
-0
D
B
C
1
8
3
D
-0
C
8
0
1
8
3
D
-0
B
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K