Fréttablaðið - 22.01.2016, Side 44

Fréttablaðið - 22.01.2016, Side 44
Þetta er stutt leikrit sem fjallar um eilífan glerþvott. Í því er maður sem hefur fengið það verkefni að skafa sömu glerplötuna síendurtekið og sér ekki fyrir endann á því. Spurningin er svo hvort hann sætti sig við það eða láti ekki bjóða sér það,“ segir Matthías Tryggvi Har- aldsson sem skrifaði og leikstýrir verkinu Þvottur sem hinn nýstofnaði sviðslistahópur Ketiltetur kompaní sýnir í Tjarnarbíói í febrúar. Stofnendur hópsins eru nem- endur á fyrsta ári við Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands en auk Matth- íasar sér Alma Mjöll Ólafsdóttir um aðstoðarleikstjórn og útlitshönnun verksins og Stefán Ingvar Vigfússon sér um framleiðslu þess. Nafnið á hópnum er vísun í hið vel þekkta búsáhald ketilinn sem gjarnan er notaður til þess að sjóða vatn. „Við ákváðum að það væri í anda hópsins að bendla okkur við vel valið búsáhald, og ketillinn varð fyrir valinu, ekki síst vegna þess að við sáum fyrir okkur suðuna, hitann og tilraunamennskuna sem við viljum að einkenni samstarfið,“ segir Matthías og Alma Mjöll bætir við: „Svo erum við líka staðráðin í að láta íslenskt sviðslistalíf finna til tevatnsins.“ Matthías telur að þrátt fyrir óræð- an raunveruleika verksins þá séu í því samsvaranir til raunveruleikans. „Ég held að allir eigi sína glerplötu, sama hvað hún táknar fyrir þeim.“ Að sögn Matthíasar er Þvottur upphafið á fleiri verkum. „Við stefnum að því að vera iðin við það að koma frá okkur leikverkum, hvort sem það verður sama skipanin innan hópsins eða ekki og ætlum að spreyta okkur á fleiri hlutverkum. Hvort við sjálf stígum á svið næst eða ekki kemur í ljós. Ég veit að Alma er með handrit í skúffunni sem bíður þess að líta dagsins ljós.“ Sjálfur er Matthías spenntur að sjá verk sitt á sviði. Þvottur er þriðja leikverkið sem hann setur á svið en það fyrsta sem fær sviðið út af fyrir sig – tvö fyrri verk hans voru sýnd á Ungleik og deildu þar sviðinu með verkum eftir fleiri unga höfunda. Matthías komst í kynni við leik- ritun í Menntaskólanum í Reykjavík þegar hann kom að því að þýða og gera leikgerð á verki eftir Gertrude Stein. „Þá lifnaði við einhver heimur sem ég hafði aldrei séð áður. Ég hafði verið að semja ljóð fyrir það og er enn að því,“ segir hann glaður í bragði og bætir við að það sé heillandi tilfinning að sjá karaktera sem hann hefur skapað sjálfur vakna til lífsins á leiksviðinu. „Það er dálítið skrýtið að hitta þessar manneskjur sem hafa hingað til bara verið til í hausnum á manni. Það liggur við að manni blöskri bara og svo að leik- stýra þeim í þokkabót.“ Þvottur verður frumsýnt í Tjarnar- bíói 17. febrúar og leikarar verksins eru þeir Aron Már Ólafsson, Árni Beinteinn Arnarson og Hákon Jóhannesson sem allir eru nemendur á leikarabraut Listaháskóla Íslands. Um tónlistina í verkinu sér Friðrik Guðmundsson og leikmynd Klem- ens Hannigan. gydaloa@frettabladid.is Láta finna til tevatnsins Alma Mjöll Ólafsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson og Stefán Ingvar Vigfússon eru öll nemar á fyrsta ári á sviðslistabraut Listaháskóla Íslands og stofnuðu sviðslistahópinn Ketiltetur en hér eru þau ásamt lukkugrip sínum, ketiltetrinu. FréTTAbLAðIð/ErnIr Hinn nýstofnaði sviðslistahópur Ketiltetur kompaní frumsýnir sitt fyrsta verk, Þvott í febrúar. Leikritið fjallar um eilífan glerþvott. 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 15 ára 999,- Kr HELGI 22--til--24 JANÚAR 2016 Föstudagur til Sunnudags (frá 11:30 til 23:00) Í TILEFNI AF 15 ÁRA AFMÆLIS OKKAR, BÝÐUR ALLA VINSÆLA RÉTTI Í MATSEÐILL Á 999.- ókeypis eftirrétt fylgir! Kr. TANDOORI & CURRY CUISINE PAKISTANI Ph: (00354) 551 0292 AUSTURSTRÆTI 4, 101 - REYKJAVIK www.shalimar.is شالیمار 2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r36 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 1 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 3 D -1 D C 8 1 8 3 D -1 C 8 C 1 8 3 D -1 B 5 0 1 8 3 D -1 A 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.