Fréttablaðið - 22.01.2016, Síða 44
Þetta er stutt leikrit sem fjallar um eilífan glerþvott. Í því er maður sem hefur fengið það verkefni að skafa sömu glerplötuna
síendurtekið og sér ekki fyrir endann
á því. Spurningin er svo hvort hann
sætti sig við það eða láti ekki bjóða
sér það,“ segir Matthías Tryggvi Har-
aldsson sem skrifaði og leikstýrir
verkinu Þvottur sem hinn nýstofnaði
sviðslistahópur Ketiltetur kompaní
sýnir í Tjarnarbíói í febrúar.
Stofnendur hópsins eru nem-
endur á fyrsta ári við Sviðslistadeild
Listaháskóla Íslands en auk Matth-
íasar sér Alma Mjöll Ólafsdóttir um
aðstoðarleikstjórn og útlitshönnun
verksins og Stefán Ingvar Vigfússon
sér um framleiðslu þess.
Nafnið á hópnum er vísun í hið
vel þekkta búsáhald ketilinn sem
gjarnan er notaður til þess að sjóða
vatn. „Við ákváðum að það væri í
anda hópsins að bendla okkur við
vel valið búsáhald, og ketillinn varð
fyrir valinu, ekki síst vegna þess
að við sáum fyrir okkur suðuna,
hitann og tilraunamennskuna sem
við viljum að einkenni samstarfið,“
segir Matthías og Alma Mjöll bætir
við: „Svo erum við líka staðráðin í
að láta íslenskt sviðslistalíf finna til
tevatnsins.“
Matthías telur að þrátt fyrir óræð-
an raunveruleika verksins þá séu í
því samsvaranir til raunveruleikans.
„Ég held að allir eigi sína glerplötu,
sama hvað hún táknar fyrir þeim.“
Að sögn Matthíasar er Þvottur
upphafið á fleiri verkum. „Við
stefnum að því að vera iðin við
það að koma frá okkur leikverkum,
hvort sem það verður sama skipanin
innan hópsins eða ekki og ætlum að
spreyta okkur á fleiri hlutverkum.
Hvort við sjálf stígum á svið næst eða
ekki kemur í ljós. Ég veit að Alma er
með handrit í skúffunni sem bíður
þess að líta dagsins ljós.“
Sjálfur er Matthías spenntur að
sjá verk sitt á sviði. Þvottur er þriðja
leikverkið sem hann setur á svið en
það fyrsta sem fær sviðið út af fyrir
sig – tvö fyrri verk hans voru sýnd á
Ungleik og deildu þar sviðinu með
verkum eftir fleiri unga höfunda.
Matthías komst í kynni við leik-
ritun í Menntaskólanum í Reykjavík
þegar hann kom að því að þýða og
gera leikgerð á verki eftir Gertrude
Stein.
„Þá lifnaði við einhver heimur
sem ég hafði aldrei séð áður. Ég
hafði verið að semja ljóð fyrir það
og er enn að því,“ segir hann glaður
í bragði og bætir við að það sé
heillandi tilfinning að sjá karaktera
sem hann hefur skapað sjálfur vakna
til lífsins á leiksviðinu. „Það er dálítið
skrýtið að hitta þessar manneskjur
sem hafa hingað til bara verið til í
hausnum á manni. Það liggur við að
manni blöskri bara og svo að leik-
stýra þeim í þokkabót.“
Þvottur verður frumsýnt í Tjarnar-
bíói 17. febrúar og leikarar verksins
eru þeir Aron Már Ólafsson, Árni
Beinteinn Arnarson og Hákon
Jóhannesson sem allir eru nemendur
á leikarabraut Listaháskóla Íslands.
Um tónlistina í verkinu sér Friðrik
Guðmundsson og leikmynd Klem-
ens Hannigan. gydaloa@frettabladid.is
Láta finna
til tevatnsins
Alma Mjöll Ólafsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson og Stefán Ingvar Vigfússon eru öll nemar á fyrsta ári á sviðslistabraut Listaháskóla Íslands og stofnuðu sviðslistahópinn Ketiltetur en hér eru þau ásamt lukkugrip
sínum, ketiltetrinu. FréTTAbLAðIð/ErnIr
Hinn nýstofnaði sviðslistahópur Ketiltetur
kompaní frumsýnir sitt fyrsta verk, Þvott í
febrúar. Leikritið fjallar um eilífan glerþvott.
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
15
ára
999,- Kr HELGI
22--til--24 JANÚAR 2016
Föstudagur til Sunnudags
(frá 11:30 til 23:00)
Í TILEFNI AF
15 ÁRA
AFMÆLIS OKKAR,
BÝÐUR
ALLA VINSÆLA RÉTTI Í
MATSEÐILL Á
999.-
ókeypis eftirrétt fylgir!
Kr.
TANDOORI & CURRY CUISINE
PAKISTANI
Ph: (00354) 551 0292
AUSTURSTRÆTI 4, 101 - REYKJAVIK
www.shalimar.is
شالیمار
2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r36 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
D
-1
D
C
8
1
8
3
D
-1
C
8
C
1
8
3
D
-1
B
5
0
1
8
3
D
-1
A
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K