Lögmannablaðið - 01.09.2005, Page 8

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Page 8
8 3 / 2 0 0 5 Málskostnaðarákvarðanir dómstóla hafa lengi verið hitamál meðal lögmanna. Margir eru þeirrar skoðunar að dæmdur málskostnaður sé jafnan of lágur og að dómstólar sýni þannig störfum lögmanna lítilsvirðingu. Flestir lögmenn þekkja einnig dæmi um hið gagnstæða, að dæmdur málskostnaður hafi verið mun hærri en reiknað var með, þótt um færri tilvik sé að ræða. Lögmannablaðið fékk nokkra lögmenn, þá Ólaf Björnsson hrl., Hrafnhildi Stefánsdóttur hrl., Jóhannes Albert Sævarsson hrl. og Jón Jónsson hdl., til að lýsa skoðunum sínum á málinu. Sigurður Tómas Magnússon héraðsdómari og kennari í réttarfari við lagadeild Háskólans í Reykjavík svaraði síðan spurningum um málið og gagnrýni sem lögmennirnir settu fram. „Kröfum sóknaraðila, NN, á hendur varnaraðilum, PP, er hafnað. Sóknaraðilar greiði varnaraðilum 120.000 krónur í málskostnað.“ „Gjafsóknarkostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, útlagður kostnaður vegna málsins 435.545 krónur og málflutningsþóknun lögmanns hans 250.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.“ Málskostnaðar- ákvarðanir dómstóla

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.