Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 10
10 3 / 2 0 0 5
Félagsdómur er sérdómstóll sem dæmir ímálum um brot á lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur og um brot á kjarasamningum og
túlkun þeirra. Félagsdómur er líka sérstakur fyrir
þær sakir að málsforræðið er á hendi sambanda
verkalýðsfélaga og atvinnurekendafélaga. Samtök
atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands reka því
mál fyrir hönd meðlima sinna fyrir dómnum.
Sama gildir um BSRB, BHM og önnur sambönd.
Félög sem ekki eru meðlimir sambandanna reka
sjálf mál sín og meðlima sinna. Ófélagsbundnir
aðilar reka mál sín sjálfir. Þannig er aðildin, sbr.
45. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur, nr.
80/1938. Um málskostnaðarákvarðanir skal fylgja
lögum um meðferð einkamála í héraði, sbr. 69. gr.
laga nr. 80/1938. Mál fyrir Félagsdómi eru í lang-
flestum tilvikum viðurkenningarmál án tilgrein-
ingar á fjárhagslegum hagsmunum. Þeir geta engu
að síður verið mjög miklir, jafnvel svo skipti
tugum eða hundruðum milljóna.
Með vísan til þessa er forvitnilegt að skoða
dóma Félagsdóms. Sú breyting hefur orðið á síð-
ustu tveimur árum að í flestum málum er nú
dæmdur málskostnaður, andstætt því sem áður var
þegar málskostnaður var iðulega felldur niður.
Hallaði þar greinilega á vinnuveitendahliðina, sbr.
eftirfarandi yfirlit.
Þetta er mjög jákvæð þróun enda engin efni til
að mismuna aðilum að þessu leyti. Aðilar máls eru
að öllu jöfnu sambönd atvinnurekenda og
verkalýðsfélaga og því fullt jafnræði með þeim.
Það vekur einnig athygli að allt tímabilið frá
2000 til 2004 er krónutala dæmds málskostnaðar
sú sama, á bilinu milli 100.000 – 250.000 kr.
Meðaltalsupphæð dæmds málskostnaðar kann þó
að hafa hækkað. Málin voru heldur ekki skoðuð
sérstaklega með tilliti til umfangs eða hagsmuna.
Slík tengsl eru a.m.k. ekki augljós.
Nokkur orð um
málskostnaðarákvarðanir
Félagsdóms
Mál dæmd í félagsdómi 2000-2005
Fjöldi
dóma og
úrskurða
Dæmdur
málskostn.
í efnisdómi
Upphæð í
þús. kr.
Dæmdur
málskostn.
Frávís.mál
Upphæð í
þús. kr.
Málskostn.
felldur niður
í efnisdómi
Stéttarfél.
(dæmdur
málskostn.)
Vinnuveit.
(dæmdur
málskostn.)
2000 16 4 100-250 3 100-150 6 3 (2) 7 (2)
2001 15 5 100-225 1 150 6 6 (4) 5 (1)
2002 15 6 100-250 3 60-100 5 7 (6) 5 (1)2)
2003 11 9 100-250 0 2 8 (8) 3 (1)
2004 6 4 100-250 1 100 - 2 (2) 2 (2)
2005 1
)
8 5 150-250 3 100-150 - 4 (4) 1 (1)
[1] T.o.m. júní 2005.
[2] Málskostnaður í máli nr. 8/2002 er tvítalinn
Unnin mál
Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl.