Lögmannablaðið - 01.09.2005, Page 13

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Page 13
Þrátt fyrir að vera nýlega byrjaður í lög-mennsku hafa málskostnaðarákvarðanir í málum sem ég hef komið að vakið mig til umhugsunar um málefnið. Nokkrar hugleiðingar varðandi málskostnaðarákvarðanir fylgja hér á eftir en þær varða fyrst og fremst einkamál þótt sambærileg sjónarmið geti átt við í opinberum málum. Það er ein af grundvallarreglum íslenskrar stjórnskipunar að einstaklingar og lögaðilar geta borið mál sín undir sjálfstæða og óvilhalla dóm- stóla þar sem málsmeðferð er réttlát og opinber. Óaðskiljanlegur hluti þessa kerfis er aðgangur að sjálfstæðri lögmannastétt. Á Íslandi er þessi réttur tryggður í réttarfarslöggjöfinni, þ.m.t. lögum um lögmenn, og er þar m.a. kveðið á um einkarétt lög- manna til að gæta hagsmuna aðila fyrir dómi. Ekki er byggt á því að hið opinbera kosti störf lögmanna heldur að málsaðilar geri það sjálfir, með fáeinum undantekningum þó, sbr. gjafsóknarreglur. Segja má að úrlausn um málskostnað aðila, þ.m.t. lög- mannskostnað, sé því hluti af þeirri dómstólameð- ferð sem mannréttindasáttmálar og grundvallar- reglur tryggja borgurunum. Lagareglur um ákvörðun málskostnaðar eru því eðlilega hluti rétt- arfarslöggjafarinnar. Í XXI. kafla laga um meðferð einkamála er fjallað um málskostnað. Kaflinn felur í sér ítarlegar lagareglur um málskostnaðarákvarðanir dómara. Í 129. gr. er fjallað um hvað teljist málskostnaður. Í a-lið 1. mgr. greinarinnar er tiltekinn kostnaður af flutningi máls sem einkum á við lögmannskostnað. Þá verður lesið af g-lið 1. mgr. greinarinnar að málskostnaður sé kostnaður sem stafar beinlínis af máli. Vinna lögmanns við að reyna sættir fyrir málshöfðun fellur að mínum dómi vel undir þann lið og önnur samskipti við gagnaðila sem telja má eðlilega lögmannshætti. Meginreglu um ákvörðun málskostnaðar er að finna í 1. mgr. 130. gr. eml. Sá sem tapar máli í öllu verulegu skal að jafnaði dæmdur til að greiða gagnaðila sínum máls- kostnað. Til þess að til álita komi að ákvæðinu verði beitt þarf að hafa komið fram krafa um málskostnað af hálfu málsaðila, skv. 3. mgr. 129. gr. eml. Dóm- krafa um að fá greiddan málskostnað er því sett fram á grundvelli málsforræðisreglunnar. Við máls- kostnaðarákvörðun er hins vegar ekki byggt á málsforræði aðila þótt að í einhverjum tilfellum bendi lögmenn á galla í málskostnaðarkröfu gagn- aðila. Tengsl málsforræðis og málskostnaðar- ákvarðana verður þó ekki gert að frekara umfjöll- unarefni hér. Þýðingu meginreglna þekkja lesendur Lög- mannablaðsins. Málskostnaðarákvarðanir dóma eru hins vegar sjaldan í samræmi við framan- greinda reglu. Málskostnaður er oft látinn niður falla þrátt fyrir að annar aðili tapi máli algjörlega eða í öllu verulegu. Ennþá algengara er að þegar málskostnaður er dæmdur þeim til handa er vann mál að fjárhæð hans sé skert frá því sem krafist var. Niðurstöður sem þessar byggja á undantekningu frá meginreglu og geta byggst á reglum XXI. kafla eml. og skýringu þeirra. Það er hins vegar fátítt að greina megi á hverju beiting undantekningar byggir af lestri dóma. Form málskostnaðarákvörðunar Málskostnaðarkrafa er sett fram sem sérstök dómkrafa og falli dómur um hana ætti hann að inni- halda forsendur fyrir málskostnaðarákvörðun, skv. 1. mgr. 114. gr. eml. Þá væri eðlilegt að í texta dóma komi fram fjárhæðir þess málskostnaðar sem krafa er gerð um við aðalmeðferð máls, enda inni- hald dómkröfunnar þá fyrst endanlegt. Dómur skal innihalda rökstudda niðurstöðu um sönnunaratriði og lagaatriði, sbr. f-lið 114. gr. eml. Málskostnaðar- ákvarðanir byggja á lögum og sönnunaratriðum. Rökstuðning fyrir niðurstöðu um kröfuna vantar oft í dómum. Ekki verður séð að sérstök heimild undanþiggi rökstuðning hvað þetta varðar. Hafa Um málskostnaðarákvarðanir Jón Jónsson hdl. 13L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.