Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 22
22 3 / 2 0 0 5
Bókasafn
Sumarið var notað til að færa
bókakost LMFÍ úr Metrabók yfir í
Gegni en það hefur umtalsverða hag-
ræðingu í för með sér fyrir notendur
bókasafnsins sem geta hér eftir leitað
að þeim bókum sem þá vantar á
einum stað.
Gegnir er bókasafnskerfi sem hýsir
samskrá íslenskra bóksafna. Í Gegni
eru upplýsingar um bækur, tímarit og
annan safnkost um 120 safna á land-
inu. Upplýsingar um bækur sem tengjast lög-
fræði, og eru til á helstu bókasöfnum landsins,
eru því allar á einum stað: www.gegnir.is
Bókasafnið er til afnota fyrir alla félagsmenn
LMFÍ og fulltrúa þeirra. Þeir geta einnig fengið
lánaðan lykil ef þeir þurfa að nota safnið utan
skrifstofutíma, s.s. á kvöldin og um helgar. Nem-
endur í lögfræði fá einnig aðgang að safninu á
skrifstofutíma.
Bókakostur safnsins er einungis ætlaður til
nota á staðnum en nokkrir tugir titla eru keyptir
inn á ári hverju. Auk þess er bókasafnið með
áskrift að tímaritum um lögfræðileg efni frá
nágrannalöndunum. Rafræn áskrift að Karnov og
Ufr er einnig keypt. Ljósritunarvél og tölva eru til
afnota fyrir safngesti en hóflegt gjald er rukkað
fyrir ljósritun.
Gjöf til
bókasafns
LMFÍ
Börn Auðar
Auðuns, fyrir
milligöngu
Stefáns Melsted
hdl., gáfu til
félagsins hluta af bókasafni hennar en í því voru
m.a. árgangar af Norsk retstidende, Rettens gang
og TfR sem ekki reyndust vera til fyrir. Að auki
fékk félagið talsvert af bókum úr safni hennar
sem verið er að skrá og er ætlunin að halda þessu
safni saman, sérstaklega merkt henni. Lög-
mannafélagið vill færa börnum Auðar bestu
þakkir fyrir gjöfina.
Námskeið félagsdeildar
Á vorönn sóttu 123 félagar þau 12
námskeið sem boðið var upp á. Það
er svipaður fjöldi og verið hefur síð-
ustu annir. Nú er verið að skipu-
leggja námskeið haustannar en eftir-
talin námskeið hafa nú þegar verið
tímasett: Áhrif EES-samningsins á
íslenskt skattaumhverfi, Skattalegur
samruni fyrirtækja, Fjármál hjóna og
opinber skipti til fjárslita milli hjóna,
Námskeið um hluthafasamkomulög,
Skiptir réttarheimspeki máli? og Námskeið um
ný lög um fullnustu refsinga. Í janúar verður svo
námskeið um Sjaría: Lög Múslima sem Magnús
Þór Bernharðsson sagnfræðingur mun velta upp
spurningunni hvaða hlutverk trúarbrögð eigi að
hafa í réttarkerfi lýðræðissamfélaga. Nám-
skeiðin eru auglýst rækilegar á öðrum stað í
blaðinu.
Lögmenn stefna á toppinn:
Hvannadalshnjúkur 2006
Félagsdeild hefur nú hafið undirbúning að
göngu upp á hæsta fjall landsins, Hvanna-
dalshnjúk, næsta vor. Haraldur Örn Ólafsson
lögfræðingur og Jóhannes Albert Sveinsson hrl.
munu sjá um undirbúning ferðarinnar ásamt
starfsmanni félagsdeildar en stefnt er að æfinga-
göngum í vetur ásamt því að bjóða lögmönnum
upp á almennt heilsuátak. Fenginn verður einka-
þjálfari til að meta líkamsástand, Hjartavernd
mun bjóða upp á almennt heilsutékk og margt
fleira.
Af skikkjum og skápum
Í vor gerði Lögmannafélagið samning við
saumastofuna Eðalklæði um að sauma skikkjur á
lögmenn. Í kjölfarið voru skikkjur auglýstar til
sölu hjá félaginu á hagstæðu verði og nú er
nýlokið við að sauma 45 skikkjur sem verið er að
afhenda kaupendum um þessar mundir. Félagið
ákvað einnig að setja upp læsta skápa í aðstöðu
lögmanna í Héraðsdómi Reykjavíkur og bjóða til
útleigu og hafa vel á fjórða tug skápa þegar verið
leigðir út.
Fréttir frá félagsdeild
Eyrún Ingadóttir