Lögmannablaðið - 01.09.2005, Side 25
25
fóru í boð á vegum Íslandsbanka sem var haldið í
tjaldi í Húsdýragarðinum.
Aðalfundir einstakra landsdeilda norrænu lög-
fræðingaþinganna voru haldnir að morgni laugar-
dagsins 20. ágúst, en þar voru m.a. kosnar nýjar
stjórnir. Á aðalfundi Íslandsdeildarinnar vék Guð-
rún Erlendsdóttir, hæstaréttardómari, úr stjórn en
hún hafði verið formaður Íslandsdeildarinnar frá
1993 og setið í stjórninni í 27 ár eða frá 1978.
Einnig vék Ármann Snævarr úr stjórn eftir að hafa
setið í henni í 54 ár, þar af sem formaður til fjölda
ára (1972-1993). Hlýtur svo löng stjórnarseta að
teljast einsdæmi og var Ármann Snævarr einróma
kjörinn heiðursfélagi Íslandsdeildarinnar. Ragnar
Tómas Árnason var kjörinn nýr formaður stjórn-
arinnar, en aðrir í stjórn eru Brynhildur Flóvenz,
Erla Jónsdóttir, Helgi I. Jónsson, Hjörtur Torfa-
son, Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Thors, Ragn-
hildur Helgadóttir, Valborg Snævarr og Viðar Már
L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
Matthíasson. Fræðilegri dagskrá þingsins lauk um
hádegisbil á laugardag og var þinginu slitið í kjöl-
far þess. Gátu þátttakendur því notið Menningar-
nætur Reykjavíkurborgar um eftirmiðdaginn en
um kvöldið var boðið til sameiginlegs veislu-
kvöldverðar að Ásvöllum í Hafnarfirði.
Þingið þótti takast vel í alla staði og hefur mjög
góður rómur verið gerður að því. Þátttakan var
prýðileg. Það hefði þó verið ánægjulegt að sjá
fleiri íslenska lögfræðinga taka þátt, en e.t.v. vefst
það fyrir sumum þeirra að á þingunum er töluð
danska, norska eða sænska. Það er þó um að gera
að láta ekki slíkt halda aftur af sér, enda eru
þingin byggð þannig upp að þátttakendur geta
með lestri greinargerða kynnt sér vel efnin sem
eru til umfjöllunar á málstofum og hugtakanotkun
í þeim áður en þeir sækja málstofurnar. Ráð-
stefnuskrifstofa þingsins var Congress Reykjavík.
Styrktaraðilar þess voru Gunnar Swensons Fond,
Icelandair, Íslandsbanki, Ístak, Kauphöll Íslands,
KB banki, Landsbanki Íslands – Vesturbæjar-
útibú, Landsvirkjun, LOGOS lögmannsþjónusta
og PricewaterhouseCoopers. Auk þess hafa
margir íslenskir lögfræðingar lagt hönd á plóginn.
Kann stjórn Íslandsdeildarinnar þessum aðilum
öllum bestu þakkir fyrir. Næsta þing norrænna
lögfræðinga verður haldið í Kaupmannahöfn í
ágúst 2008.
Ragnar Tómas Árnason hdl.
aðalritari 37. norræna lögfræðingaþingsins
í Reykjavík 2005
Ljósmyndari: Emil Þór
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, veitir Leif Sevón, forseta
Hæstaréttar Finnlands, norrænu lög-
fræðingaverðlaunin.
Frá málstofu á þinginu.