Lögmannablaðið - 01.09.2005, Síða 26
26
I. GUÐMUNDARBIKARINN – ÓLA
AXELS-BIKARINN.
Minningarmót LMFÍ í golfi um þá Guðmund
Markússon, hrl., og Ólaf Axelsson, hrl., fór fram
við ágætis aðstæður á Leynisvelli á Akranesi
fimmtudaginn 9. júní. Alls voru 26 keppendur en
það er sami fjöldi og á síðasta ári.
Úrslit urðu eftirfarandi:
A. Í keppni um Guðmundarbikarinn (án forgjafar):
1. Bernhard Bogason, hdl. 29 punkta.
2. Rúnar S. Gíslason, hdl. 27 punkta.
3. Gestur Jónsson, hrl. 23 punkta.
B. í keppni um Óla Axels bikarinn (með forgjöf):
1. Jón B. Stefánsson, verkfr. 36 punkta.
2. Bernhard Bogason, hdl. 35 punkta.
3. Karl Ó. Karlsson, hdl. 35 punkta.
II. Fjórleikur við tannlækna.
Keppnin fór að þessu sinni fram á Grafarholts-
vellinum þriðjudaginn 21. júní og var hörku-
spennandi. Lögmenn byrjuðu vel og skiluðu
fyrstu vinningunum í hús, en tannlæknar sóttu í
sig veðrið og tókst að jafna metin. Við héldum því
bikarnum á jöfnu.
III. Fjórleikur við lækna.
Keppnin fór fram í mannskaðaveðri á hinum
skemmtilega Strandarvelli á Hellu sunnudaginn 3.
júlí. Var um tíma tvísýnt hvort allir myndu skila
sér í hús og voru björgunarsveitir í viðbragðs-
stöðu! Var þó greinilegt að lögmenn eru vanari
mótlæti og unnum við með yfirburðum.
3 / 2 0 0 5
Golfmót sumarsins 2005
Keppendur á minningarmótinu en fimm höfðu yfirgefið völlinn
Verðlaunahafar minningarmótsins. F.v. Gestur
Jónsson, Jón B. Stefánsson, Bernhard Bogason,
Rúnar Gíslason og Karl Ó Karlsson.
IV. Fjórleikur við endurskoðendur.
Keppnin fór fram í ágætisveðri á Kiðjabergs-
vellinum 30 júní. Illa hefur gengið að sigra endur-
skoðendur á undanförnum árum enda eru þeir
komnir með feiknasterkt lið. Var golfnefndin farin
að hafa af þessar nokkrar áhyggjur. Því var mikil
áhersla lögð á að fá góða menn til keppni, setja
upp gott leikskipulag og ná upp siguranda. Það er
skemmst frá því að segja að við gjörsigruðum
endurskoðendur að þessu sinni. Náðu þeir aðeins
einu stigi, á síðustu holunni í síðasta hollinu.
VI. Meistaramót LMFÍ
Meistaramót LMFÍ fór einnig fram á Kiðja-
bergsvellinum 26. ágúst í mun betra veðri en und-
anfarin ár. Sjóvá styrktu mótið að venju og bauð