Lögmannablaðið - 01.09.2005, Síða 28
28
Árlegur forsætisfundur Norrænulögmannafélaganna fór fram í
Visby á Gotlandi (Svíþjóð), dagana 1.-
3. september s.l. en fundinn sækja for-
menn, varaformenn og framkvæmda-
stjórar lögmannafélaganna á Norður-
löndunum.
Á fundinum voru fjögur megin
umfjöllunarefni, auk þess sem lagðar
voru fram upplýsingaskýrslur um
helstu viðfangsefni sérhvers félags
undanfarið ár.
Danska lögmannafélagið kynnti
niðurstöðu tveggja ára naflaskoðunar félagsins og
vinnu við greiningu á grundvallarskyldum lög-
manna og hvernig gera á lögmenn, og þá sem
kaupa þjónustu þeirra, meðvitaðri um þessar
skyldur. Með þessu er stefnt að því gera vinnu
lögmanna sýnilegri, aðgengi að þeim auðveldara
og auka gæði þjónustu þeirra. Markmiðið er m.a.
að bæta stöðu lögmanna í vaxandi samkeppni við
aðrar starfsstéttir. Þær fimm grundvallarskyldur
sem danska lögmannafélagið telur, á grundvelli
þessarar innri skoðunar, að hvíli á lögmönnum
eru: sjálfstæði, ábyrgð, starfshæfni, frumkvæði
við framgang og úrlausn mála og loks aðgengi,
bæði að lögmanninum sjálfum, ýmist í gegnum
síma, tölvupóst eða heimsókn á skrifstofu og hvað
varðar skiljanlegar upplýsingar um lagalega stöðu
skjólstæðinganna. Hefur félagið þegar lagt fimm
milljónir danskra króna í verkefnið og hyggst
leggja aðra eins fjárhæð á ári næstu tvö árin, bæði
í innleiðingu þess og við mat á árangri. Einnig er
lögð áhersla á að lögmenn leiti nýrra möguleika í
að veita þjónustu í stað þess að eyða kröftum
sínum í að verjast ágangi annarra starfsstétta inn á
einstök svið.
Annað megin fundarefni á forsætisfundinum
snerti hlutverk lögmannafélaganna og þá bæði út
frá skyldum þeirra, lögum samkvæmt, og einnig
þjónustu þeirra við lögmenn og þá sem kaupa lög-
mannsþjónustu. Sú þróun hefur átt sér stað á
Norðurlöndunum undanfarin misseri
að auknar kröfur hafa verið lagðar á
herðar lögmanna að upplýsa skjól-
stæðinga sína fyrirfram um áætlaðan
kostnað af þeirri vinnu sem þeir taka
að sér að vinna, sem og þann tíma
sem málið gæti tekið. Með upptöku
þessara reglna er þjónusta við skjól-
stæðinga aukin, jafnframt því sem
þessi nýju vinnubrögð krefjast mark-
vissari áætlunargerðar og aga af hálfu
lögmanna. Undir þessum lið var
einnig rætt um hlutverk og heimildir
lögmannafélaganna til að setja sér og félags-
mönnum reglur, samskipti við samkeppnisyfir-
völd og hugsanleg áhrif frjálsari reglna um eign-
arhald á lögmannsstofum, sem hugmyndir hafa
komið fram um á Norðurlöndunum, þótt með mis-
munandi hætti sé.
Þriðja fundarefnið sem tekið var fyrir á forsæt-
isfundinum snéri að innleiðingu nýrra reglna um
baráttu gegn peningaþvætti og áhrif þeirra á trún-
aðarskyldu lögmanna, en um er að ræða regluverk
á grundvelli Evróputilskipunar nr. 2004/0137 EC,
sem tók gildi 7. júní s.l. Nokkur óvissa hefur ríkt
um ýmis atriði varðandi framkvæmd þessara nýju
reglna, svo sem það hvenær upplýsingaskylda
vaknar, viðvarandi áreiðanleikakönnun á skjól-
stæðingi, hugsanlega skaðabótaskyldu lögmanna
vegna tjóns sem hlýst af rangri tilkynningu eða
því að ekki var tilkynnt o.s.frv. Umrædd tilskipun
hefur enn ekki verið tekin upp í íslenska löggjöf,
en félagið mun fylgjast grannt með þeirri þróun
og kynna lögmönnum innhald slíkra reglna þegar
þær liggja fyrir, en aðilaríki EES-samningsins
hafa tvö ár til að innleiða þessar reglur í landslög
og útfæra nánari reglur um efnið.
Fjórða umfjöllunarefni forsætisfundarins varð-
aði aukna samvinnu norrænu lögmannafélaganna,
en félögin reka nú þegar sameinlega endurmennt-
unarstofnun sem skipuleggur námskeið fyrir lög-
menn á Norðurlöndunum sem ekki er grundvöllur
3 / 2 0 0 5
Forsætisfundur norrænu
lögmannafélaganna
Ingimar Ingason
framkvæmdastjóri
LMFÍ