Lögmannablaðið - 01.09.2005, Síða 29
29L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
til að halda á landsgrundvelli. Hefur þetta sam-
starf komið vel út og þátttaka góð á þeim nám-
skeiðum sem haldin hafa verið. Einnig hafa
félögin haft með sér óformlegt samstarf á vett-
vangi CCBE og IBA og er áhugi á að auka það
verulega, sem og að skoða aðra þætti sem hags-
munir þeirra liggja saman, svo sem á sviði siða-
reglna, starfsábyrgðartrygginga, upplýsingatækni
o.fl. Verður umræðum um þessa þætti haldið
áfram á næstu misserum, en auk þess komu fram
hugmyndir um aukna samvinnu við Eystrasalts-
löndin um samstarf á vettvangi CCBE.
Hvannadalshnjúkur
vorið 2006!
Félagsdeild LMFÍ stendur fyrir göngu á Hvannadalshnjúk föstu-
daginn 12. maí 2006. Til undirbúnings verður boðið upp á tilboð í
líkamsrækt, þrekpróf, áhættumat hjá Hjartavernd og athugun á
nauðsynlegum útbúnaði til slíkrar ferðar. Einnig verður farið í fjall-
göngu í vetur þar sem æft verður að ganga á broddum í snjó. Þátt-
takendur skrái sig sem fyrst hjá félagsdeild LMFÍ eyrun@lmfi.is en
kostnaður við ferðina er enn sem komið er óviss. Lögmönnum er vel-
komið að skrá fjölskyldu og vini með í ferðina.
Leiðangursstjóri verður Haraldur Örn Ólafsson lögfræðingur
og pólfari með meiru.
S e t j u m m a r k i ð h á t t o g s t e f n u m á t o p p i n n n æ s t a v o r !
Mynd: Reynir Þórarinsson