Lögmannablaðið - 01.09.2005, Qupperneq 30
30 3 / 2 0 0 5
Námskeið um hluthafasamninga – 13. október
Fjallað verður um hluthafasamninga, eðli þeirra, til-
gang, efni og réttaráhrif, svo og möguleg vanefndaúr-
ræði aðila. Er einhver greinarmunur á samþykktum og
hluthafasamningum og þá hver? Hvers vegna gera
menn hluthafasamninga? Hvaða reglur gilda um túlkun
slíkra samninga og hverjir teljast skuldbundnir af þeim?
Til hvaða úrræða geta aðilar hluthafasamninga gripið
vegna vanefnda gagnaðila? Gilda einhver sérsjónarmið
um hluthafasamninga ef félagið sem þeir varða er skráð
á opinberum markaði? Leitað verður svara við þessum
spurningum og fleirum og grein gerð fyrir lagaá-
kvæðum og dómum sem efnið varða.
Kennari Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hrl. og stunda-
kennari í félagarétti við lagadeild Háskólans í
Reykjavík
Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108
Reykjavík.
Tími Fimmtudagur 13. október 16:00-19:00.
Verð kr. 15.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr.
10.500,-
Trílógía um skattarétt
Áhrif EES-samningsins á íslenskt skattaumhverfi –
18. október
Farið verður yfir áhrif fjórfrelsisins á íslenskt skattaum-
hverfi og skattaleg tengsl milli landa á evrópska efna-
hagssvæðinu.
Kennarar Vala Valtýsdóttir hdl. og Jón Elvar Guð-
mundsson hdl., hjá Tax.is.
Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108
Reykjavík.
Tími Þriðjudagur 18. október 16:00-19:00.
Verð kr. 18.500,- en fyrir félaga í félagsdeild kr.
14.500,-
Samsköttun félaga – 25. október
Á námskeiðinu verður farið í gegnum reglur varðandi
samsköttun félaga. Skoðað verður hvenær þessi mögu-
leiki á við, hvaða skilyrði þurfa þá að vera uppfyllt og
hvers þarf að gæta í framkvæmd. Sérstaklega verður
skoðað hvort samsköttun íslenskra og erlendra félaga sé
möguleg. Megináhersla verður lögð á ákvæði laga nr.
90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt en einnig fjallað
um ákvæði stuttlega um heimild virðisaukaskattslaga til
samskráningar félaga á virðisaukaskattskrá.
Kennarar Elín Árnadóttir hdl. og Friðgeir Sigurðsson
hdl., hjá PWC
Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108
Reykjavík.
Tími Þriðjudagur 25. október 16:00-19:00.
Verð kr. 18.500,- en fyrir félaga í félagsdeild kr.
14.500,-
Skattlagning söluhagnaðar og arðs og skattasnið-
ganga – 22. nóvember
Skattlagning söluhagnaðar: Farið yfir þær reglur sem
gilda um sölu eigna skv. íslenskum skattalögum, frest-
unarheimildir og þær leiðir sem lögin bjóða uppá til
temprunar eða frestunar á skattlagningu af söluhagnaði.
Farið yfir mismunandi reglur sem í gildi eru eftir því
hvaða eignir er verið að selja og hver er að selja þær.
Einnig verður farið yfir mismun skattlagningar á mót-
teknum arði og söluhagnaði.
Hugtakið skattasniðganga verður skilgreint og farið í
hvort almenn skattasniðgönguregla sé til staðar í
íslenskum skattarétti með athugun nýlegra dóma og
úrskurða yfirskattanefndar. Innihald slíkrar reglu og
mörk lögmætrar lágmörkunar skatta og ólögmætrar
skattasniðgöngu könnuð.
Kennarar Kristján Gunnar Valdimarsson hdl., forstöðu-
maður hjá Landsbanka Íslands og Árni Harð-
arson hdl., Deloitte.
Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108
Reykjavík.
Tími Þriðjudagur 22. nóvember 16:00-19:00.
Verð kr. 18.500,- en fyrir félaga í félagsdeild kr.
14.500,-
Verð á eitt skattanámskeið: kr. 18.500,- en fyrir félaga í
félagsdeild: kr. 14.500,-
Verð á tvö skattanámskeið: kr. 31.000,- en fyrir félaga í
félagsdeild kr. 25.000,-
Verð á þrjú skattanámskeið: kr. 39.000,- en fyrir félaga
í félagsdeild: kr. 31.000,-
Fjármál hjóna og opinber skipti til fjárslita milli
hjóna – 3. nóvember
Farið verður yfir fjárskiptareglur við skilnað, fjárskipta-
samninga hjóna og helstu atriði er varða opinber skipti
til fjárslita milli hjóna.
Námskeið LMFÍ
Skráning fer fram hjá félagsdeild í síma 568 5620 eða með tölvupósti á netfangið: eyrun@lmfi.is