Lögmannablaðið - 01.09.2005, Side 31

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Side 31
31L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Námskeið LMFÍ Kennari Steinunn Guðbjartsdóttir hrl. Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Tími Fimmtudagur 3. nóvember 16:00-19:00. Verð kr. 15.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 10.500,- Ný lög um fullnustu refsinga – 17. nóvember Á námskeiðinu verður farið yfir ný lög og reglugerðir um fullnustu refsinga, skipan fangelsismála í íslensku réttarkerfi, stjórnsýslumeðferð mála, réttindi fanga, samfélagsþjónustu og ýmsar agaviðurlagaákvarðanir. Kennari Jón Þór Ólason lögfræðingur hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu . Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Tími Fimmtudagur 17. nóvember, kl. 17:00-19:00. Verð kr. 11.500,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 7.000,- Kynning fyrir ritara lögmannsstofa – 25. nóvember LMFÍ efnir til kynningar fyrir ritara í samstarfi við Hér- aðsdóm Reykjavíkur og Sýslumanninn í Reykjavík. Til- gangurinn er að kynna fyrir riturum feril mála sem send eru til úrlausnar hjá þessum embættum, skoða húsa- kynni embættanna auk þess sem þeir fá tækifæri til að hitta kollega. Kynningin fer fram föstudaginn 25. nóv- ember, kl. 13:30-17:00. 13:30 Kynning hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. 14:45 Kynning hjá Sýslumanninum í Reykjavík. 16:00 Kynning hjá Lögmannafélagi Íslands. Boðið verður upp á léttar veitingar. Aðgangur er ókeypis. Athugið að takmarkaður fjöldi kemst á kynninguna. Skráning er á netfangið eyrun@lmfi.is Skiptir réttarheimspeki máli? – 1. desember Leiða má að því líkum að ekkert íslenskt fræðirit hafi verið jafn mikið lesið á ofanverðri 20. öld og Almenn lögfræði eftir Ármann Snævarr. Bók Ármanns og bók Sigurðar Líndal, Inngangur að lögfræði, sem nú hefur að mestu tekið við í lagaskólum landsins, byggja báðar á tilteknum réttarheimspekilegum hugmyndum. Hverjar eru þær? Hvaða mála skipta þær í íslenskri lagahefð og lögfræðiiðkun? Skiptir réttarheimspeki máli? Um þessar spurningar verður fjallað á námskeiðinu og má búast við fjörlegum umræðum. Kennari Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur. Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Tími Fimmtudagur 1. desember 17:00-19:00. Verð kr. 9.500,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 5.000,- Skiptastjórn þrotabúa – 19. janúar. Fjallað verður starf og meginskyldur skiptastjóra frá skipun til skiptaloka. Kennari Kristinn Bjarnason hrl. Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Tími Fimmtudagur 19. janúar 2006, 16:00-19:00. Verð kr. 15.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 10.500,- Sjaría: Lög Múslima – 26. janúar 2006 Hvaða hlutverk eiga trúarbrögð að hafa í réttarkerfi lýðræðissamfélaga? Eitt umdeildasta mál í alþjóðastjórnmálum í dag tengist stöðu sjaría, sem er lagakerfi Íslam, í nútímasam- félögum. Eftir því sem Múslimum fjölgar í Evrópu og Norður-Ameríku hefur umræðan um réttarstöðu þeirra aukist til muna. Á námskeiðinu verður fyrst fjallað um þróun sjaría laganna og undirstöðuatriði þess. Sérstak- lega verður fjallað um hjónabandið, réttindi kvenna, og hugmyndir sjaría um stjórnarfar og réttlæti. Að lokum verður afstaða sjaría til lýðræðis könnuð og hvort hægt sé að samhæfa réttarkerfi Múslima við vestræn samfé- lög. Kennari Magnús Þór Bernharðsson, lektor í sögu Mið- Austurlanda við Williams College. Hann er höfundur Píslarvottar nútímans. Samspil trúar og stjórnmála í Írak og Íran og Reclaiming a Plundered Past: Archaeology and Nation Building in modern Iraq. Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Tími Fimmtudagur 26. janúar 2006 16:30-18:30. Verð kr. 11.500,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 7.000,- Skráning fer fram hjá félagsdeild í síma 568 5620 eða með tölvupósti á netfangið: eyrun@lmfi.is

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.