Lögmannablaðið - 01.10.2010, Síða 20
20 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2010
- skráning stendur yfir á heimasíðu www.lmfi.is
Nýting auðlinda til orkuframleiðslu
28. október
Farið verður yfir meginatriði þess lagaumhverfis sem tekur
til nýtingar auðlinda til orkuframleiðslu á Íslandi, hugað að
nýjum auðlindakostum 21. aldar og fjallað um reglur um
takmarkanir á aðkomu erlendra aðila.
Fjallað verður um hvernig eignarhaldi náttúruauðlinda er
háttað að íslenskum rétti og farið í gegnum ferlið frá því að
hugmynd um hagnýtingu orkuauðlindar vaknar og þar til
hún er orðin að veruleika. Þá verður sérstaklega fjallað um
raforkulöggjöfina og mismunandi reglur sem gilda um
meðferð raforku frá því áður en hún „fæðist“ og þar til hún
er nýtt. Gerð verður grein fyrir hugmyndum nefndar
forsætisráðherra um fyrirkomulag varðandi leigu á vatns og
jarðhitaréttindum í eigu íslenska ríkisins.
Kennarar Karl Axelsson hrl. hjá Lex lögmannsstofu og
Dýrleif Kristjánsdóttir hdl. hjá Lex lögmannsstofu.
Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
Tími Fimmtudagur 28. október 2010 kl. 16:0020:00.
Verð Kr. 27.000, en fyrir félaga í félagsdeild kr. 20.000,
Sérvalin tónverk, ostar og vín
– 4. nóvember
Á tónlistarkvöldi, sem haldið verður 4. nóvember, mun
Ólafur Reynir Guðmundsson, píanóleikari, kynna nokkrar
af töfrandi melódíum gömlu meistaranna s.s. Chopin og
Rachmaninoff og ræða um uppbyggingu þeirra og form.
Ólafur Reynir færir okkur svo inn í nútímann og kynnir
frumsamin tónverk sín sem þó eru í rómantískum anda.
Boðið verður upp á léttvín og osta.
Stjórnandi Ólafur Reynir Guðmundsson, píanóleikari
(Universität für Musik und darstellende Kunst,
Vínarborg/Harvard) og lögfræðingur Samtaka
verslunar og þjónustu.
Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
Tími Fimmtudagur 4. nóvember 2010 kl. 18:0020:00.
Verð Kr. 6.000, en fyrir félaga í félagsdeild kr. 4.000,
Vinir og vandamenn velkomnir með á námskeiðið. Athugið
takmarkað sætaframboð.
Hver er sinnar streitu smiður
11. nóvember
Félag kvenna í lögmennsku og félagsdeild LMFÍ standa
saman að námskeiði um streitu með Jóhanni Inga
Gunnarssyni, sálfræðingi.
Þegar á reynir þurfum við að geta náð tökum á streitu og
gera okkur grein fyrir hverjir eru helstu streituvaldarnir í
umhverfi okkar. Streita er í rauninni lífsorka sem við ættum
að nota til að takast á við erfiðleika og aðlagast breytingum.
Sá sem hefur gott vald á streitu er því vel settur í
lífsbaráttunni, hvílist betur og fer vel með orkuna sína.
Á námskeiðinu verður farið yfir hagnýtar aðferðir til að
nýta sér streitu á jákvæðan hátt. Þátttakendur fá tækifæri til
að taka streitupróf til að átta sig betur á hvar þeir standa.
Blandað verður saman fyrirlestrum, umræðum og hagnýtum
verkefnum.
Kennari Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur.
Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
Tími Fimmtudagur 11. nóvember 2010 kl. 16:0019:00.
Verð Kr. 20.000, en fyrir félaga í félagsdeild kr. 15.000,
Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum LMFÍ
Árangursríkur málflutningur
16. nóvember
Hvernig leggja skal mál fyrir dóm og flytja mál fyrir dómi
Farið verður yfir undirbúning og hagnýt atriði munnlegs
málflutnings fyrir dómstólum, framkomu í dómsal og
samskipti lögmanna og dómara.
Kennarar Sigurður Tómas Magnússon, hrl. og
sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík,
Ingveldur Einarsdóttir, héraðsdómari og Gestur Jónsson,
hrl. hjá Mörkinni lögmannsstofu.
Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
Tími Þriðjudagur 16. nóvember 2010 kl. 17:0019:00.
Verð Kr. 12.500, en fyrir félaga í félagsdeild kr. 10.000,
Tilvalið endurmenntunarnámskeið fyrir starfandi lögmenn
sem vilja bæta málflutning sinn!