Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 30
30 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2010
I. Minningarmót
Minningarmót LMFÍ 2010 um
Guðmund Markússon hrl. og Ólaf
Axelsson hrl. fór fram hinn 25. júní sl. á
Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópa vogs
og Garðabæjar. Alls tóku 23 golfarar úr
lögfræðingastétt þátt í mótinu.
Aðstæður til golfiðkunar voru ágætar
þennan dag en mikið skýfall setti þó
nokkurt strik í reikning sumra þátt
takenda á lokaholunum. Venju
samkvæmt var um punktakeppni að
ræða, með og án forgjafar.
Úrslit urðu þessi:
A. Í keppni um Guðmundarbikarinn
(án forgjafar):
1. Hjalti Pálmason (35 punktar).
2. Árni Gestsson (27 punktar).
3. Páll Eiríksson (26 punktar).
B. Í keppni um Óla Axels bikarinn
(með forgjöf):
1. Hjalti Pálmason (36 punktar).*
2. Bogi Nilsson (36 punktar).*
3. Páll Eiríksson (34 punktar).
*Þar sem Hjalti og Bogi voru með
jafnmarga punkta eftir 18 holur réði
punktafjöldi á síðari 9 holum úrslitum.
Á léttum nótum
Golfsumar í mót og meðvindi
gunnar Þór Ásgeirsson vann sigur í
mótinu og tekur hér við verðlaunum
úr hendi Hauks arnar birgissonar,
mótsstjóra.
tilbúnir í slaginn á fyrsta teig. F.v. benedikt Sveinsson, Eyjólfur
Á. Kristjánsson, Stefán Pálsson og Karl ó. Karlsson.
Þrír kvenkylfingar mættu til leiks að þessu sinni og skemmtu
sér konunglega í góðum félagsskap. F.v. guðfinna
Þórsdóttir, tinna ósk óskarsdóttir og guðmundína
Ragnarsdóttir.