Lögmannablaðið - 01.03.2012, Side 4

Lögmannablaðið - 01.03.2012, Side 4
4 lögmannaBlaðið tBl 01/12 árni HelGAson HDl. leiðAri segjum „já en“ heimspekinni stríð á hendur Atburðir og umræðA síðustu daga og vikna, í kjölfar fólskulegrar og hörmulegrar árásar á starfsmann lögmannsstofu, hafa vakið marga, bæði lögmenn og aðra, til umhugsunar. Árásin vekur óhug og hugurinn er hjá fórnarlambinu, fjölskyldu, vinum og samstarfsfólki. Sú spurning vaknar í kjölfarið hvernig svona getur gerst og hvort breyting sé að verða á okkar þjóðfélagi. Eitt af því besta og virðingarverðasta við íslenskt samfélag hefur löngum verið að þrátt fyrir að erfiðleikar hafi dunið á og átök hafi geisað hefur ofbeldi aldrei verið meðal þeirra meðala sem beitt er í slíkri baráttu. Þannig hafa tilteknar stéttir eða hópar almennt ekki þurft að sæta því að verða fyrir árásum eða hótunum annarra. Þetta er merki um heilbrigt hugarfar og hefur ákveðna tengingu við lög og rétt, þ.e. að deilur á milli manna verða leystar friðsamlega fyrir dómstólum, samkvæmt lögum og reglum en ekki með hnefarétti fyrir dómstóli götunnar. Því miður eru vísbendingar um breytingar séu að verða og að þetta hugarfar sátta og friðsamlegra úrlausna sé á undanhaldi. Ekki er hægt að loka augunum fyrir því að þessi hörmulegi atburður er ekki einangrað tilvik, þótt afleiðingar þeirra atburða sem á undan komu hafi sem betur fer ekki verið jafnalvarlegar. Þessi atvik, sem upp hafa komið undanfarin misseri, eiga það sameiginlegt að fórnarlambið hafði þau einu tengsl við gerandann að sinna tilteknu starfi. Ekki hafa öll slík atvik ratað í fjölmiðla en dæmin eru orðin of mörg. Í kjölfar árásarinnar í byrjun mánaðar­ ins varð þeirra tilburða vart úr ýmsum áttum að reyna að útskýra verknaðinn og setja hann í samhengi við eitt og annað. Slíkur málflutningur, þótt hann kunni að vera varfærnislega orðaður, er hættulegur, enda heyra þeir, sem hyggja á eitthvað misjafnt, útskýringar betur en fordæmingu. ofbeldi í hvaða mynd sem það birtist er óþolandi og óverjandi. Líkt og arfinn, sem vex ef ekkert er að gert, þrífst ofbeldið best í aðgerðarleysi og andrúmslofti þar sem flestir þegja og fæstir þora að andmæla. Það er brýnt og skiptir öllu máli að hegðun sem þessi sé fordæmd, án nokkurra fyrirvara eða réttlætinga og að „já en“ heimspekinni verði sagt stríð á hendur. ný ritnefnd Þetta blað er fyrsta tölublað nýrrar ritefndar Lögmannablaðsins og er fyrri ritnefnd og ritstjóra þökkuð góð störf. Lögmannablaðið hefur skipað sér sess meðal lögmanna sem vettvangur fyrir skoðanaskipti, greinaskrif og frásagnir af því góða starfi sem Lögmannafélagið og aðrir á vegum lögmanna vinna og vill ný ritnefnd halda áfram á sömu slóðum. meðal efnis í blaðinu nú eru greinar um nýgenginn dóm Hæstaréttar um vaxtaákvörðun á lánum sem hefur þurft að endurreikna vegna ólögmætrar gengistengingar og umfjöllun um dóm Hæstaréttar í máli nr. 445/2011 þar sem reyndi á tiltekin grundvallaratriði í sambandi verjanda og sakbornings. Auk þess er ítarleg umfjöllun um málskostnaðarákvarðanir dómstóla, þar sem leitað er eftir sjónarmiðum lögmanna og dómara, en af hálfu þeirra lögmanna sem rætt var við er sett fram gagnrýni á ákvarðanir um málskostnað, sem þykja í mörgum tilfellum óljósar og lítt rökstuddar. málið er þó ekki einfalt en ljóst er að ef verulegt misræmi er á milli ákvarðana dómstóla um málskostnað til þess sem hefur betur í dómsmáli og þess kostnaðar sem sannarlega fellur til vegna málarekstursins, getur það haft þau áhrif að fæla einstaklinga frá því að leita réttar síns. MEISTARANÁM Í LÖGFRÆÐI VIÐ LAGADEILD HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK Haustönn 2012 KJÖRGREINAR/MÁLSToFuR KENNARAR Advanced Legal English Erlendína Kristjánsson Afbrotafræði Svala Ísfeld Ólafsdóttir Alþjóðaviðskipti Þórdís Ingadóttir og James H. Mathis Barnaréttur Davíð Þór Björgvinsson European Law: Internal market Gunnar Þór Pétursson Gagnaöflun og málflutningur í einkamálum Sigurður Tómas Magnússon og María Ellingsen Hjúskapar- og sambúðarréttur Dögg Pálsdóttir Málstofa í bótarétti Þóra Hallgrímsdóttir Málstofa í fjölmiðlarétti Páll Þórhallsson Málstofa um alþjóðlega mannréttindavernd Oddný Mjöll Arnardóttir Réttarsaga Magnús K. Hannesson Skuldaskilaréttur Steinunn H. Guðbjartsdóttir og Valgerður D. Valdimarsdóttir Stjórnsýsluréttur II Margrét Vala Kristjánsdóttir The Philip C. Jessup International Law Moot Court Competition I (fyrri hluti) Þórdís Ingadóttir Umhverfisréttur NN Vinnuréttur Bergþóra Ingólfsdóttir ML ritgerð Ýmsir Starfsnám VORönn 2013 KJÖRGREINAR/MÁLSToFuR KENNARAR Aðferðafræði III, hagnýt réttarheimspeki Davíð Þór Björgvinsson og Milosz M. Hodun Alþjóðadómstólar og friðsamlegar úrlausnir í deilumálum Þórdís Ingadóttir og Ruth Mackenzie Alþjóðlegur skattaréttur I Gunnar Gunnarsson og Ágúst Karl Guðmundsson Auðgunar- og efnahagsbrot Sigurður Tómas Magnússon og Björn Þorvaldsson European Law: State Aid and Competition Dóra Sif Tynes Evrópskur félagaréttur Hallgrímur Ásgeirsson Hagnýtur samningaréttur Þórður S. Gunnarsson, Aðalsteinn Leifsson og Hafliði Kristján Lárusson Law, Social Policy and Children’s Rights Brian Gran Málstofa í auðlindarétti - frá hugmynd til framkvæmdar Kristín Haraldsdóttir og Elín Smáradóttir Málstofa um evrópskan samningarétt Matthías G. Pálsson Málstofa um hugverkaréttindi í alþjóðlegum viðskiptum og samninga þeim tengdum Hafliði Kr. Lárusson Málstofa í stjórnsýslurétti Margrét Vala Kristjánsdóttir Ofbeldis- og fíkniefnabrot Svala Ísfeld Ólafsdóttir Sókn og vörn í sakamálum Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir og Björn L. Bergsson The Philip C. Jessup International Law Moot Court Competition II (síðari hluti) Þórdís Ingadóttir Úrlausn ágreiningsmála ( m.a. fyrir dómstólum og stjórnvöldum) Arnar Þór Jónsson Vátryggingaréttur Þóra Hallgrímsdóttir ML ritgerð Ýmsir Starfsnám VORönn 2014 KJÖRGREINAR/MÁLSToFuR KENNARAR Alþjóðlegur einkamálaréttur, lagaskil á sviði samningaréttar Herdís Hallmarsdóttir og fl. Alþjóðlegur refsiréttur Þórdís Ingadóttir Auðgunar- og efnahagsbrot Sigurður Tómas Magnússon og Björn Þorvaldsson Auðlindaréttur Kristín Haraldsdóttir Comparative Law Ragnhildur Helgadóttir og Milosz M. Hodun European Constitutional law Gunnar Þór Pétursson European law: Financial services Hallgrímur Ásgeirsson Heilbrigðisréttur Dögg Pálsdóttir Kauparéttur Jónas Þór Guðmundsson Málstofa um evrópskan samningarétt Matthías G. Pálsson Málstofa í almannatryggingarétti Guðmundur Sigurðsson Réttarsálfræði Jón F. Sigurðsson, Anna K. Newton og Gísli Guðjónsson Skuldaskilaréttur Steinunn H. Guðbjartsdóttir og Valgerður D. Valdimarsdóttir Sókn og vörn í sakamálum Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir og Björn L. Bergsson Vörumerkjaréttur Ásdís Magnúsdóttir Wilhelm C. Vis Commercial Arbitration Moot (síðari hluti) Garðar Víðir Gunnarsson ML ritgerð Ýmsir Starfsnám Haustönn 2013 KJÖRGREINAR/MÁLSToFuR KENNARAR Afbrotafræði Svala Ísfeld Ólafsdóttir Alþjóðleg lausafjárkaup Þórður S. Gunnarsson Alþjóðlegir og innlendir fjármögnunarsamningar Guðmundur Ingvi Sigurðsson Alþjóðlegur skattaréttur II Gunnar Gunnarsson og Ágúst Karl Guðmundsson Fullnusturéttarfar Feldís Lilja Óskarsdóttir Gagnaöflun og málflutningur í einkamálum Sigurður Tómas Magnússon og María Ellingsen International and European Energy Law - íslenskur orkuréttur Catharine Banet og Kristín Haraldsdóttir Kaup á fyrirtækjum/samruni og áreiðanleikakannanir Ólafur F. Haraldsson, Garðar G. Gíslason og Kristín Edwald Lagasetning Páll Þórhallsson Legal English Erlendína Kristjánsson Mannréttindasáttmáli Evrópu Oddný Mjöll Arnardóttir Málstofa í stjórnskipunarrétti og stjórnskipunarsögu Ragnhildur Helgadóttir Neytendamarkaðsréttur Gísli Tryggvason Sjó- og flutningaréttur Einar Baldvin Axelsson Verktaka- og útboðsréttur Erlendur Gíslason, Jón E. Malmquist og fl. Wilhelm C. Vis Commercial Arbitration Moot (fyrri hluti) Garðar Víðir Gunnarsson ML ritgerð Ýmsir Starfsnám NÁMIÐ HENTAR EKKI AÐEINS ÞEIM EINSTAKLINGuM SEM LoKIÐ HAFA GRuNNNÁMI Í LÖGFRÆÐI HELDuR EINNIG ÞEIM SEM HAFA HÁSKÓLAPRÓF Í ÖÐRuM GREINuM. YFIRLIT YFIR KJÖRGREINAR oG MÁLSToFuR 2012–2014 • Rannsóknartengt 2ja ára meistaranám til ML-gráðu. • Nemendur sem hafa lokið grunnnámi í lögfræði geta lokið fullnaðarprófi í lögfræði með meistaranáminu. • Markmið námsins er að þjálfa og hvetja nemendur til greinandi og gagnrýninnar hugsunar og vísindalegra vinnubragða. • Einstaklingsbundin námsáætlun. • Helstu einkenni námsins eru mikið val um áherslur og námsleiðir og margvíslegir möguleikar á sérhæfingu innan lögfræði og samþættingu við aðrar greinar. • Gefinn er kostur á að ljúka meistaranámi á alþjóðasviði. Umsóknarfrestur um inngöngu í meistaranámið haustið 2012 er til og með 30. apríl. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um meistaranámið í kennsluskrá á vef lagadeildar Háskólans í Reykjavík: www.lagadeild.is

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.