Lögmannablaðið - 01.03.2012, Síða 20

Lögmannablaðið - 01.03.2012, Síða 20
20 lögmannaBlaðið tBl 01/12 Aðsent efni stéttarfélag lögfræðinga er rótgróið stéttarfélag með það megin ­ hlutverk að vera í forsvari fyrir félags­ menn sína við gerð kjara samninga og við aðrar ákvarðanir sem á einhvern hátt snerta kjör þeirra. í dag er félags­ aðild heimil þeim launþegum sem lokið hafa að lágmarki Ba námi í lögfræði frá viðurkenndum háskóla en áður var félagsaðild bundin við launað starf hjá hinu opinbera. félagsmenn eru tæplega 500 og starfa ýmist hjá ríki, sveitar­ félögum eða á almennum vinnumarkaði. enn er mikill meirihluti félagsmanna, eða hátt í 80%, ríkis starfsmenn en hlutfall þeirra sem starfa á almennum vinnumarkaði fer stöðugt hækkandi. í stjórn sl eru alda hrönn jóhannsdóttir formaður, helga Björk laxdal, Þórhildur lilja ólafsdóttir, ingi B. poulsen og hannes guðmundsson. kjaramál og aðstoð við félagsmenn Stéttarfélag lögfræðinga sinnir kjara­ málum lögfræðinga auk þess sem það er aðili að bandalagi háskólamanna (bHm) og tekur þátt í starfsemi þess. Stéttarfélagið rekur sameiginlega þjónustuskrifstofu með fimm öðrum háskólafélögum þar sem nú starfa þrír afar hæfir og öflugir starfsmenn. Starfsemi skrifstofunnar, sem ber nafnið Huggarður, er mikilvægur þáttur í rekstri félagsins, en þar fer fram dagleg þjónusta við félagsmenn. Stéttarfélag lögfræðinga og starfsfólk skrifstofunnar hefur áralanga reynslu í því að aðstoða félagsmenn við lausn ágreiningsmála er varða framkvæmd og túlkun kjarasamninga, meðal annars með því að leita lögfræðilegrar ráðgjafar í einstaka málum. Starfsfólk SL tekur það jafnframt að sér að vera talsmenn félagsmanna gagnvart vinnuveitanda ef óskað er eftir slíku liðsinni. Stéttarfélagið vinnur að gerð mið­ lægra kjarasamninga fyrir lögfræðinga auk stofnanasamninga og fer félagið með sjálfstæðan samningsrétt að lögum. Jafnframt hefur aðstoð við félagsmenn við gerð ráðningasamninga og túlkun á þeim stórlega aukist á síðustu árum. Ef nauðsyn krefur þá tekur starfsfólk félagsins það að sér að aðstoða við útreikning á launum og innheimtu auk þess sem vel er fylgst með ástandi á vinnumarkaði og atvinnuleysi meðal lögfræðinga. fræðslumál SL hefur löngum tekið hlutverk sitt varðandi fræðslu og upplýsingamiðlun í kjaramálum mjög alvarlega og tekur öflugan þátt í fræðslustarfi bHm m.a. með því að standa fyrir ýmiskonar fræðslufunda­ og námskeiðahaldi er varða starfsmannamál, kjaramál og vinnumarkaðsmál. SL hefur jafnframt látið gera reglulega kannanir á launa­ kjörum félagsmanna. önnur hagsmunamál umfjöllun um kosti þess fyrir lögfræðinga að tilheyra SL verður ekki lokið án þess að nefna sjóði bHm sem félagsmenn eiga aðild að. Fyrst ber að nefna orlofssjóðinn sem býður félagsmönnum fjölbreytta og spennandi orlofskosti allan ársins hring en 89 orlofshús og íbúðir standa sjóðfélögum til boða bæði innanlands og erlendis. bæði sjúkrasjóður og styrktarsjóður bHm veita fjárhagsaðstoð vegna ýmiskonar áfalla og forvarna auk þess sem starfsmenntunarsjóðurinn veitir félagsmönnum styrki til að sinna endur­ og símenntun. Athygli er vakin á því að félagsmenn í fæðingarorlofi eiga rétt á greiðslum úr sjúkrasjóði og margir félagsmenn fá einnig greiðslur úr vísindasjóði sem er ætlað að styrkja félagsmenn vegna kaupa á fræðibókum, námskeiðum og þess háttar. Lögfræðingar á öllum sviðum atvinnu lífsins eru hvattir til þess að kynna sér kosti þess að tilheyra stéttarfélagi þar sem megináhersla er lögð á sameiginleg hagsmunamál þeirra. mikill metnaður er lagður í að veita félagsmönnum öfluga þjónustu á þeim sviðum sem snerta kjara­ og réttindamál þeirra. Jafnframt er það ótvíræður kostur að vera eitt aðildarfélaga bHm sem er heildarsamtök stéttarfélaga háskólamanna og hefur það að markmiði m.a. að efla fagstéttarfélög háskólamanna og auka veg æðri menntunnar á Íslandi. Starfsemi bHm byggir á því að menntun háskólamanna sé virt sem forsenda og þróun í íslensku atvinnulífi og að hún sé metin að verðleikum til launa. Við tökum á móti ykkur á skrifstofunni að borgartúni 6, 3ju hæð auk þess sem allar helstu upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins http://www.bhm.is/sl. kostir þess að vera í stéttarfélagi lögfræðinga AlDA Hrönn JóHAnnsDóttir, forMAðUr sl

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.