Lögmannablaðið - 01.12.2013, Side 25

Lögmannablaðið - 01.12.2013, Side 25
Á léttUM nótUM LÖGMANNSÞJÓNUSTA SÍÐAN 1907 logos@logos.is www.logos.is 42 New Broad Street London EC2M 1 JD England +44 (0) 207 920 3020 +44 (0) 207 920 3099 Efstaleiti 5 103 Reykjavík Iceland 5 400 300 5 400 301 dómara tækifæri til skilnings á þeirri aðstöðu sem ég var í. En hann virtist einfaldlega skilja mig þannig að erfitt sé að játa á sig sök. Ekki var um annað að ræða en að taka því. dómarar eru jú eins og dómarar eru. Við þrælum nú í tinnámunni frá sólar­ uppkomu til sólseturs. Þá drögnumst við til búða svo að neyta megi þess sem heldur kröftum okkar uppi, grjónakássu og stundum súpuglundurs með einhvers konar kjöt­ eða fisktægjum á stangli. samþrælar mínir eru óupplýstir og ómenntaðir síbrotamenn og meira eða minna ruglaðir vesalingar, sem leiðst hafa út í forboðnar athafnir, oft af ástæðum sem þeir höfðu ekkert vald yfir. Það finnst mér ég eiga sameiginlegt með þeim. mér finnst samt sá munur vera á, að þeir gátu neitað sök án þess að brjóta með neitun sinni gegn þeim hagsmunum, sem þeir voru sakaðir um að hafa raskað – en voru dæmdir þó. Einstaka sinnum reyna gamlir vinir að senda mér skilaboð fyrir milligöngu varðanna. tadayoshi­san er víst orðinn hæstaréttardómari. mér skilst að naomi keisaraynja sé enn í sömu stöðu við hlið eiginmanns síns. Ég vonast til að hún minnist mín og geti einhvern tíma beitt áhrifum sínum til að ég verði frjáls að nýju. Ég veit einnig að saburo keisari er ekki lítilsigldur maður. Honum eru ljósir kostir manna og gallar, og hann hefur áður getað sýnt mönnum mildi, þótt eftir á að hyggja hafi það sennilega aðeins gerst ef hann hefur séð sér pólitískan hag að. En sátt hans við konu sína kann að benda til þess að hann telji sér einnig fært að sættast við mig. Ég þræla og vona. sayonara. myndir teknar af Wikipediu, sjá: http://en.wikipedia.org/wiki/File:Kobayashi_izanami_and_izanagi.jpg notuð hæStaréttarlögmannSSkikkja til Sölu. upplýSingar á miðlaranum á heimaSÍðu lmfÍ.

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.